Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 31. MARS 2002 74. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Menningaráhugi er sterkasta þjóðareinkennið 10 Út á ystu nöf þess mögulega 14 Fyrsta aprílgabbið birtist fyrir nær hálfri öld 16 Glíman við eldinn 20 YASSER Arafat Palestínuleiðtogi, sem er umkringdur ísraelskum her- sveitum á skrifstofum sínum í Ramal- lah, missti um miðjan dag í gær öll tengsl við umheiminn þegar rafhlöð- urnar í farsímum hans tæmdust. Ara- fat var þá ásamt nánustu aðstoðar- mönnum sínum á neðstu hæð húss í aðalstöðvum heimastjórnarinnar á Vesturbakkanum og höfðu símalínur þangað verið rofnar og lokað fyrir raf- magn og vatn. Ísraelar segjast ekki ætla að vinna Arafat mein, markmiðið sé einungis að einangra hann. Ísraelar lokuðu fyrir rafmagnið í aðalstöðvunum á föstudaginn og Ara- fat og menn hans notuðust við kerta- ljós í fyrrinótt. Með skriðdrekum rufu Ísraelar göt á veggi húsasamstæð- unnar, þar sem aðalstöðvar heima- stjórnarinnar eru, og fóru um allar byggingarnar. Arafat sagði í símtali við CNN á föstudaginn að sjö bygg- ingar í húsasamstæðunni hefðu verið lagðar í rúst. Í gærmorgun sagði Na- bil Shaath, ráðherra í heimastjórn- inni, að hann hefði talað við Arafat skömmu fyrir klukkan tíu að íslensk- um tíma og hefðist Arafat við í tveim- ur herbergjum í þeim byggingum sem enn stæðu. Barist var á götum Ramallah í gærmorgun. Bandaríkin með í ályktun SÞ Ísraelar hófu aðgerðirnar í Ramal- lah á föstudagsmorgun og segja þær fyrsta skrefið í mun umfangsmeiri árásum er miðist að því að uppræta „hryðjuverkaöfl“ þau sem Ísraelar segja ábyrg fyrir dauða þeirra hundr- aða Ísraela sem fallið hafa síðan Pal- estínumenn hófu uppreisn sína fyrir 18 mánuðum. Rúmlega 1.200 Palest- ínumenn hafa fallið á þeim tíma. Sha- ath sagði í gær að ísraelski herinn hefði fyrirskipað erlendum sendi- fulltrúum í Tel Aviv að kalla alla rík- isborgara sína frá palestínsku heima- stjórnarsvæðunum áður en þau yrðu „algerlega hernumin“. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærmorgun ályktun sem Norðmenn lögðu fram þess efnis að Ísraelar skyldu kveðja herlið sitt á brott frá palestínskum bæjum og borgum, þ.á m. Ramallah. Banda- ríkjamenn voru meðal þeirra ríkja sem stóðu að ályktuninni og er þetta í annað sinn á einum mánuði sem þeir greiða atkvæði með ályktun ráðsins um Miðausturlönd. Árum saman hafa Bandaríkjamenn staðið utan við slík- ar ályktanir og beitt neitunarvaldi ef í þeim felst gagnrýni á Ísrael. Hernaðaraðgerðirnar sem Ísraelar hófu á föstudaginn voru svar við sjálfsmorðsárás Palestínumanns er varð 21 að bana á miðvikudaginn. Á föstudag banaði palestínsk kona sjálfri sér og tveimur Ísraelum í Jerú- salem. Ekki var ljóst um hádegi í gær hversu margir höfðu fallið í Ramallah þá um morguninn en sjúkraflutninga- menn sögðu fimm fallna og 25 særða en Arafat hafði sagt sjö fallna og 40 særða. Einnig féllu tveir ísraelskir hermenn. Sharon hefur sagt að innrásin í Ra- mallah sé aðeins byrjunin á aðgerðum sínum til að einangra Arafat sem Sharon hefur sagt að sé „óvinurinn“ og kveða niður árásir Palestínu- manna á ísraelsk skotmörk. Kallaði Sharon út 20 þúsunda manna aukalið og sagði aðgerðirnar mundu standa „að minnsta kosti nokkrar vikur“ og verða „umfangsmeiri en nokkru sinni fyrr“. Þegar CNN spurði Arafat hvort hann teldi að Ísraelar væru að reyna að drepa hann svaraði hann fullum hálsi: „Hvað heldur þú með því að skjóta stanslaust á okkur undanfar- inn sólarhring. Hvað heldur þú? Er þetta tilviljun?“ Ísraelar sagðir stefna að „algjöru hernámi“ heimastjórnarsvæðanna Arafat með öllu sam- bandslaus við umheiminn Sharon boðar umfangsmestu hernaðaraðgerð- ir Ísraela til þessa Gazaborg, Ramallah, Amman, Sameinuðu þjóðunum. AFP, AP. AP Ísraelar beita skriðdrekum til árása á höfuðstöðvar palestínsku heimastjórnarinnar í Ramallah. Á MEÐAN ísraelskir skrið- drekar þokuðust sífellt nær sat Yasser Arafat Palestínuleiðtogi með vélbyssu við höndina og talaði í síma við hvern þjóðar- leiðtogann á fætur öðrum og bað þá þess lengstra orða að hlutast til um að Ísraelar hættu að brjóta niður húsaþyrp- inguna í Ramallah þar sem Arafat er með skrifstofur sínar. Arafat hefur oft sloppið naumlega og staðið af sér ótelj- andi hættur, og þótt ísraelskir hermenn brytu sér leið í gegn- um hvert húsið á fætur öðru sögðu ísraelskir ráðamenn að ekki væri ætlunin að vinna Ara- fat mein, bara einangra hann. En Arafat sagðist vera viðbú- inn dauða sínum. „Megi guð veita mér þann heiður að verða píslarvottur á þessu helga landi,“ sagði Arafat. Ætíð sloppið óskaddaður Arafat og Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, hafa eld- að grátt silfur í áratugi. En ekki var í gær ljóst hvert væri hið endanlega markmið síðustu að- gerða ísraelska hersins. Ætl- uðu Ísraelar sér að handtaka Arafat? Voru þeir reiðubúnir að gera hann brottrækan? Verði Arafat handtekinn jafn- gildir það því, að palestínska heimastjórnin líði undir lok. En verði Arafat rekinn í út- legð er ekki ljóst hvert hann getur farið, og óvíst að nokkurt arabaríki sé til í að taka þá áhættu að hýsa hann. Arafat hefur sloppið óskadd- aður úr tugum morðtilræða og fjölda hernaðarósigra, og sífellt sprottið upp aftur eftir hvert bakslagið á fætur öðru, en sjaldan hefur staða hans verið svo slæm sem nú. „Þetta er verra en nokkru sinni fyrr,“ sagði palestínski stjórnmála- skýrandinn Salah Abdel Shafi. „Ég dreg í efa þau orð Ísraela að þeir vilji bara einangra [Ara- fat].“ Staða Arafats aldrei verri Jerúsalem. AP. Arafat með byssu innan seilingar á skrifstofu sinni. AP FRESTUR sem Bandaríkjamenn hafa gefið stjórnvöldum í Serbíu til að handtaka eftirlýsta stríðsglæpa- menn rennur út í dag, sunnudag. Ringulreið ríkti innan stjórnkerfis Serbíu í gær en líklegt var talið að einhverjir þeirra sem eftirlýstir eru yrðu handteknir. Forsætisráðherra Serbíu, Zoran Djindjic, lýsti yfir því að Serbar væru tilbúnir að handtaka mennina, því ella myndu refsiaðgerðir á efna- hagssviðinu og einangrun á alþjóða- vettvangi bíða landsmanna. Serbar verða af 120 milljóna dala fjárhagsaðstoð uppfylli þeir ekki skilyrði Bandaríkjamanna. Sams konar krafa barst frá Bandaríkjun- um í fyrra og brugðust stjórnvöld í Serbíu þá við með því að handtaka Slobodan Milosevic, forseta Júgó- slavíu, sem er nú fyrir stríðsglæpa- dómstólnum í Haag. Athygli dóm- stólsins og Bandaríkjamanna beinist einkum að Ratko Mladic, yfirmanni hers Bosníu-Serba, sem ákærður hefur verið fyrir þjóðarmorð. Djindjic forsætisráðherra gaf hins vegar til kynna á föstudag að Serbar væru tregir til að fara gegn Mladic, sem bæði nýtur nokkurra vinsælda í Serbíu og verndar flokka hermanna. Frestur Serba útrunninn Belgrad. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.