Morgunblaðið - 31.03.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRJÁR farþegaþotur og ein frakt-
vél Flugleiða sem áttu að lenda á
Keflavíkurflugvelli í gærmorgun
urðu frá að hverfa þar sem ekki
voru brautarskilyrði í Keflavík til
lendingar. Tvær farþegaþotnanna
lentu í Reykjavík, ein á Akureyri og
fraktvélin á Egilsstöðum.
Vélarnar voru allar að koma til
lendingar á svipuðum tíma eða milli
kl. 6 og 7 í gærmorgun, en að sögn
Guðjóns Arngrímssonar, upplýs-
ingafulltrúa Flugleiða, var þá mikil
snjókoma í Keflavík og var vell-
inum því lokað. Vélarnar sem lentu
í Reykjavík voru að koma frá Bost-
on og Baltimore í Bandaríkjunum
og að sögn Guðjóns voru farþeg-
arnir úr vélunum fluttir með rútum
til Keflavíkur til að undirgangast
venjubundna öryggisskoðun, hvort
sem þeir voru á leið til Íslands eða
áfram til annarra landa. „Á Reykja-
víkurflugvelli er hvorki tækjabún-
aður né mannskapur á þessum tíma
dags til að sinna þessum verkum,
bæði að taka farangur af flugvélum
og fara með fólk í gegnum öryggis-
skoðun þannig að það var einfald-
lega ákveðið að fara með alla til
Keflavíkur.“
Vélin sem lenti á Akureyri var að
koma frá Minneapolis í Bandaríkj-
unum. Að sögn vaktstjóra á Ak-
ureyrarflugvelli fengu farþegar
vélarinnar að fara úr henni meðan
beðið var eftir því að hægt yrði að
fljúga til Keflavíkur. Á meðan var
flugstöðinni læst til að tryggja ör-
yggi þannig að farþegarnir komust
ekki út af flugvallarsvæðinu. Var
vélin síðan komin til Keflavíkur fyr-
ir hálfellefu að sögn Guðjóns.
Rúmlega 500 manns voru í far-
þegavélunum þremur að sögn Guð-
jóns.
Vegna alls þessa urðu seinkanir í
Evrópuflugi fram eftir degi og átti
Guðjón ekki von á því að áætlunin
yrði að fullu komin í lag fyrr en í
dag.
Fjórar flugvélar Flugleiða urðu að hverfa frá lendingu í Keflavík
Lentu á þremur innanlands-
flugvöllum í gærmorgun
Morgunblaðið/Sverrir
Meðal þeirra farþegar, sem
fluttir voru með rútum frá
Reykjavík til Keflavíkur til að
undirgangast öryggisskoðun,
var hópur skólanema frá Boston
í Bandaríkjunum sem hér sést á
leið úr flugvélinni í rútuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um klukkan 10.30 var búið að opna Keflavíkurflugvöll. Hér má sjá
aðra þotuna í flugtaki á leið frá Reykjavík og hina að gera sig klára.
FORMAÐUR samráðsnefndar
vegna Reyðarálsverkefnisins gerði
iðnaðarráðherra grein fyrir að
tímasetningar vegna byggingar
Reyðaráls væru í uppnámi um
mánaðamótin febrúar/mars eftir
ákvarðanir Norsk Hydro í þeim
efnum í síðustu viku febrúar.
Þórður Friðjónsson, formaður
samráðsnefndarinnar, sagði að það
væri ekki fyrr en í síðustu viku
febrúarmánaðar sem þær ákvarð-
anir voru teknar innan Norsk
Hydro, sem að lokum leiddu til
þess að fyrirtækið treysti sér ekki
til að standa við tímasetningar
varðandi verkefnið. Fyrr en það
hefði legið fyrir hefði ekkert verið
fast í hendi varðandi breytingar á
tímasetningum og áhyggjur um að
áætlanir stæðust ekki kæmu alltaf
upp öðru hverju í verkefnum eins
og þessum og ekki mætti gera of
mikið úr slíkum áhyggjum.
Þórður sagði að megintímasetn-
ing í þessu efni væri síðasta vika
febrúarmánaðar, en þá hefðu verið
haldnir fundir innan Norsk Hydro,
bæði í framkvæmdastjórninni og
milli samninganefndarmanna
Hydro og Eyvind Reiten, forstjóra
fyrirtækisins. Á þessum fundum
hefðu verið teknar ákvarðanir af
þeirra hálfu um að skoða aðrar
leiðir og víkja frá tímasetningum. Í
kjölfarið um mánaðamótin hefði
hann gert iðnaðarráðherra grein
fyrir því að tímasetningarnar væru
í uppnámi og næstu vikurnar hefðu
verið notaðar til til að athuga hvort
einhver flötur væri á að standa við
áætlanir þótt tímasetningar breytt-
ust eitthvað. Meðal annars hefði
aðalsamningamaður Norsk Hydro
komið hingað til lands 8. mars, en
síðan hefðu formlegar ákvarðanir
verið teknar um málið 19. mars eft-
ir samræður utanríkisráðherra og
iðnaðarráðherra við Reiten. Daginn
eftir hefði iðnðaðarráðherra til-
kynnt á Alþingi að von væri á yf-
irlýsingu í þessum efnum og hún
hefði komið á endanum 22. mars.
Þórður sagði að það væri auka-
atriði að hans mati hvenær grun-
semdir kynnu að hafa vaknað um
að svona gæti farið. Allt frá því
gengið hefði verið frá nýjum tíma-
ramma hefðu alltaf öðru hvoru
komið upp vangaveltur í þá veru að
það yrði erfitt að ná þessum tíma-
setningum. Það væri ósköp eðlilegt
í starfi eins og þessu, en þá settu
menn bara aukinn kraft í vinnuna
og það réðist síðan hvernig til tæk-
ist.
Hann bætti því við aðspurður að
fyrr en það hefði legið formlega
fyrir af hálfu Norsk Hydro að þeir
gætu ekki staðið við tímaáætlanir
hefði verið alrangt að hans mati að
hlaupa upp til handa og fóta þótt
einhverjir hefðu velt fyrir sér hugs-
anlegum frávikum eitthvað fyrr.
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
þessar ákvarðanir eru ekki teknar
innan Hydro fyrr en í lokaviku
febrúar. Það er þá sem málið í raun
og veru kemst í uppnám. Fram að
þeim tíma er að mínu viti eðlileg
viðbrögð að menn haldi ró sinni og
vinni í samræmi við þær áætlanir
sem gerðar hafa verið,“ sagði Þórð-
ur. Hann sagði að frá því þessi
breytta afstaða Hydro lá fyrir og
fram til 19. mars hefði verið unnið
að því að athuga hvort einhverjir
möguleikar væru á að koma til
móts við þarfir Norsk Hydro án
þess að það raskaði tímaáætluninni
að nokkru marki þannig að Lands-
virkjun gæti hafið framkvæmdir í
sumar, en það hefði því miður ekki
tekist. Strax og það hefði legið ljóst
fyrir hefðu verið gefnar út ofan-
greindar yfirlýsingar.
Bundinn trúnaði
Geir A. Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður Reyðaráls og fram-
kvæmdastjóri Hæfis, sagði að hann
hefði upp úr miðjum febrúarmán-
uði gert sér grein fyrir því að
vegna kaupanna á VAW gæti kom-
ið til þess að Norsk Hydro treysti
sér ekki til að taka ákvörðun 1.
september. Þá lægi ekki fyrir nein
ákvörðun þar um, þótt hann hefði
haft þessa tilfinningu fyrir því að
þetta yrði niðurstaðan. Hann væri
auk þess bundinn trúnaði gagnvart
verkefninu og Norsk Hydro og á
þessum tíma hefði verið unnið
hörðum höndum að því að finna
leiðir til að tryggja framgang verk-
efnisins og hvort einhverjar leiðir
væru til þess að Hydro gæti tekið
jákvæða ákvörðun 1. september.
Geir sagði að það væri augljóst
að hann hefði ekki átt neinn kost á
því að ræða sínar efasemdir op-
inberlega. Það hefði beinlínis verið
til þess fallið að skaða verkefnið og
þær litlu vonir að hans mati sem
hefðu verið á því að leiðir fyndust
til að halda því áfram á sama
grundvelli. Gagnrýni á hann fyrir
það að hafa ekki viðrað þessar efa-
semdir sínar opinberlega á þessum
tíma væru því fráleitar. Það væri
mjög algengt í svona verkefnum og
viðskiptum að það væri ekki hægt
að skýra opinberlega frá gangi
mála fyrr en endanleg niðurstaða
lægi fyrir.
Hann bætti því við að þegar búið
hefði verið að þrautreyna hvort
Norsk Hydro gæti ekki tekið já-
kvæða ákvörðun í málinu hefði ver-
ið kominn rétti tíminn til að skýra
frá stöðu málsins og það hefði verið
gert.
Mismunandi mat
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
ráðherra sagði að aðalatriðið í
þessu máli væri að Norsk Hydro
skyldi hafa tekið þessa ákvörðun,
sem væri okkur ákaflega mikil von-
brigði. Það væri hins vegar erfitt
að meta það nákvæmlega eftir á
hvernig hver og einn hefði metið
stöðuna á hverjum tíma fyrir sig.
Þótt svo virtist sem um um nokkuð
misvísandi skilaboð til þjóðarinnar í
þessum efnum væri að ræða, þá
teldi hún að þar væri á ferðinni að
einhverju leyti mismunandi mat
eftir samtöl við þá aðila sem væru í
sambandi við Ísland út af verkefn-
inu og þar væri hún að tala um að-
ila frá Norsk Hydro.
„En þó virðist vera eins og
fulltrúar Hæfis hafi vitað þetta á
undan stjórnvöldum og það er svo
sem ekkert um það að segja. Að
mínu mati hafa þeir ekki nákvæm-
ar skyldur við mig,“ sagði Valgerð-
ur.
Hún sagði að þegar hún hefði
farið að fá þessi skilaboð, mis-
ákveðin, um að það væri raunveru-
legt vandamál þarna á ferðinni,
hefði fyrsta hugsun hennar verið sú
að það yrði að tala við forstjórann,
æðsta ráðamann fyrirtækisins. Hún
hefði fyrst spurt eftir því hvort bú-
ið væri að taka ákvörðun og svarið
við því hefði verið neitandi, enda
hefði komið fram í fjölmiðlum frá
upplýsingafulltrúa Nork Hydro að
það væri ekki búið að taka ákvörð-
un í þessum efnum. Hún hefði þá
gert kröfu til þess að fá að tala við
forstjórann um stöðu málsins, því
hún hefði viljað fá að heyra það
beint frá honum hver staða þess
væri og það hefði tekið dálítið lang-
an tíma að fá það samtal. Þegar
það hefði átt sér stað hefði ekki
farið á milli mála hver staðan væri
og þá hefði niðurstaðan verið sú að
best væri að reyna að ná einhverri
sameiginlegri yfirlýsingu. Hún
hefði greint strax frá því í þinginu
og þremur dögum seinna hefði yf-
irlýsingin legið fyrir og hún hefði
þá gert Alþingi grein fyrir henni.
Ákvarðanir Norsk Hydro um að víkja frá tímasetningum varðandi Reyðarál teknar í síðustu viku febrúar
Ráðherra gerð
grein fyrir stöðunni
um mánaðamótin
STURLA Böðvarsson samgöngu-
ráðherra ætlar að láta kanna verð-
lagningu á tengingum á milli far-
síma- og fastlínukerfa. Innan
Evrópusambandsins er nú verið að
undirbúa aðgerðir til að fá farsíma-
fyrirtæki í aðildarlöndum ESB til að
lækka gjöld sem þau taka fyrir að
tengja notanda í fastlínukerfi við far-
símakerfið. Skv. frétt Financial Tim-
es er talið að þessi gjöld nemi allt að
tveimur þriðju kostnaðarins við að
hringja úr fastlínukerfi í farsíma-
númer.
„Við höfum verið að líta yfir þessi
mál í ráðuneytinu og ég á von á því
að það verði farið rækilega yfir þessi
mál, vegna þess að þetta skiptir
mjög miklu um þróun bæði þjónust-
unnar og verðlagningar hennar í
framtíðinni,“ segir Sturla.
Að hans sögn hefur verið fylgst
með þróun þessara mála í Evrópu í
samgönguráðuneytinu og hann segir
það sjálfsagt mál að tryggt verði að
þessi þróun geti orðið hér á landi
sem annars staðar.
Samgönguráðherra
um tengingu farsíma-
og fastlínukerfa
Kanna
verðlagn-
ingu
MAÐUR var fluttur til aðhlynningar
á Heilsugæslustöðina á Selfossi eftir
að jeppi hans valt í Grímsnesinu um
hádegisbilið í gær. Að sögn lögreglu
átti atvikið sér stað á Biskupstungn-
abraut rétt austan við Seyðishóla.
Gott veður var en töluverð hálka á
köflum. Var maðurinn einn í bílnum
sem skemmdist töluvert.
Jeppi valt í
Grímsnesi
♦ ♦ ♦