Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.03.2002, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ • Sjóðurinn fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum verðbréfum sem þýðir í raun litla breytingu fyrir þig frá sparnaði í spariskírteinum. • Þú ávaxtar fjármuni þína með hliðstæðum hætti, bara á einfaldari hátt. • Inneign ávallt laus til útborgunar. • Ávöxtun síðustu 12 mánuði 12,88% • Öryggið í fyrirrúmi. Hafðu samband við þjónustufulltrúa á næsta afgreiðslustað eða í síma 550 1400 og haltu áfram að spara. Eignaskipting Áskriftarsjóðsins Afhverju Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa? Sérstök skiptikjör: enginn gengismunur til 29. apríl til eigenda Spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga 1. apríl 2002 Óverðtryggðar eignir 27% Verðtryggðar eignir 73% Spariskírteini ríkissjóðs Öryggið í fyrirrúmi www.spron.is Ísland frá kr. 3.700,- á dag Danmörk frá kr. 3.500,- á dag Þýskaland frá kr. 2.500,- á dag Bretland frá kr. 2.700,- á dag Bandaríkin frá kr. 3.400,- á dag Ítalía frá kr. 3.800,- á dag Spánn frá kr. 2.200,- á dag Nánari uppl. í síma 591 4000 Verð miðast við flokk A eða sambærilegan Lágmarksleiga 7 dagar Gildir til 31/03/02 Verð miðast við flokk A Lágmarksleiga 7 dagar Innifalið: Ótakmarkaður akstur, trygging og vsk. Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík Avis býður betur ... um allan heim Traustur alþjóðlegur þjónustuaðili HARALDUR Örn Ólafs-son áætlar að fljúga ídag með Twin Otterflugvél frá Katmanduí Nepal til bæjarins Lukla. Þeir sem þar hafa komið hafa lýst fluginu þangað sem hinni mestu glæfraför. Flugbrautin er afar stutt og liggur í brattri brekku. Þegar aftur er tekið þar á loft er farið niður brekkuna og fram af klettum! Þótt óhug slái að mönnum er þetta þó aðeins barna- leikur miðað við þann mikla leið- angur sem bíður Haraldar Arnar. Í Lukla hefst gangan upp í grunnbúðir Everest, sem liggja í 5.400 metra hæð. Pólfarinn knái slæst þar í för með hópi erlendra fjallgöngumanna, Bandaríkja- manna, Ástrala og Nýsjálendinga. „Það tekur um það bil eina viku að ganga í grunnbúðirnar en það ræðst þó að miklu leyti af færinu. Þetta er það snemma árs að þarna snjóar ennþá og getur orðið mjög kalt,“ segir Haraldur Örn. Fer sömu leið og Edmund Hillary fór fyrir tæpri hálfri öld Á leiðinni er gengið til borgar sem heitir Namche Bazar, sem er höfuðstaður sherpanna. Þarna býr þessi stórmerkilegi þjóðflokkur í hrjóstugri náttúrunni og hefur meðal annars þann starfa að að- stoða fjallgöngumenn sem leið sína leggja á Everest. Namche Bazar er á svæði sem kallast Khumbu- dalur og þarna eru grunnbúðir leiðangursins. Haraldur Örn fer sunnan megin upp á fjallið, um Suðurskarð og suðausturhrygg, sömu leið og Ed- mund Hillary og sherpinn Tensing fóru fyrstir manna fyrir 49 árum. Fyrsti tálminn á leiðinni frá grunn- búðunum er einmitt Khumbu-fall- jökullinn, sem steypist niður úr vesturdal fjallsins niður bratta kverk. Þarna er mikill og sprung- inn ís og ísveggir og leiðin talin af- ar hættuleg. Sprungurnar eru brú- aðar með álstigum. Sherparnir halda álstigunum stöðugt við því jökullinn breytist daglega. Reynt er að hafa þennan hluta leiðarinnar sem greiðfærastan því fjallgöngu- menn vilja eyða sem skemmstum tíma á þessum hættulega jökli. „Í grunnbúðunum hefst aðlög- unarferlið. Við förum í stuttar að- lögunarferðir upp í fjallið og niður aftur. Þetta er gert a.m.k. þrisvar sinnum og þá alltaf hærra í hvert skipti. Við getum því náð í fyrstu eða jafnvel aðrar búðir en endum svo aftur í grunnbúðum í aðlög- unarferðunum. Í þriðju ferðinni gistum við í þriðju búðum og höld- um niður aftur daginn eftir.“ Aðlögunin er lífsnauðsynleg. Líkaminn þarf að venjast eins og hægt er súrefnisskortinum í þeirri miklu hæð sem leiðangurinn fer um. Í efstu búðum er súrefnismagn í andrúmsloftinu t.a.m. ekki nema 30% af því sem það er á láglendi. Einnig kynnast menn aðstæðum og fjallinu í þessum ferðum. Í fyrsta sinn á fjall með aukasúrefnisbirgðir Allur aprílmánuður fer því í gönguna upp í grunnbúðir og að- lögunarferðir hjá Haraldi Erni og félögum upp í fjallið. Þegar þessu er lokið hefst bið eftir réttu veðri. Enginn veit fyrirfram hve löng sú bið getur orðið. Sá tími sem gefst til að ganga á tindinn er nánast all- ur maímánuður en upp úr því hefst monsúntímabilið og þá er ekki fært á tindinn. Í grunnbúðum skoða menn lang- tímaveðurspár sem þeir fá sendar í gegnum gervihnetti í tölvur sínar. Þegar veðurútlit er gott er atlagan gerð að tindum. Haraldur Örn notar í leiðangr- inum í fyrsta sinn aukasúrefni á kútum. Hann verður líka í sér- stökum dúnsamfestingi og sér- hönnuðum, kuldavörðum skóm. Um tólf tíma tekur að ganga frá efstu búðum á tindinn, úr 8.000 metra hæð í 8.850 metra. Í þessari hæð þrífast menn ekki í langan tíma og mikil átök eru fólgin í hverju skrefi í súrefnisleysinu. Menn þurfa bókstaflega að hvíla sig eftir hvert skref. Hver 100 metra hækkun er gríðarlegt verk- efni út af fyrir sig. Margir hafa þurft að snúa við smáspöl frá tind- inum og þarna ríður á að hafa góða dómgreind og láta kappið ekki hlaupa með sig í gönur. Fjall- göngugarparnir eru líka allar stundir í keppni við tímann. Þeir mega ekki vera of lengi upp því þeir þurfa að komast aftur niður áður en myrkur skellur á og þeir verða líka að gæta þess að eiga súrefni á leiðinni niður. Einnig er nauðsynlegt að fylgjast grannt með veðrinu. „Það er mjög algengt að menn verða að snúa við þegar þeir eiga stuttan spöl ófarinn á toppinn því þarna eru menn komnir út á ystu mörk þess mögulega. Algengt er að menn eigi mjög stutt eftir en eru knúnir af aðstæðum til að snúa við. Það er þó því miður alltof al- gengt að menn taki ekki réttu ákvörðunina og haldi áfram þótt skynsamlegast sé að snúa við. Þetta er skiljanlegt því það er vita- skuld grátlegt að þurfa að snúa við þegar ekki nema kannski 100 metrar eru á toppinn. En á það ber að líta að það eru ekki nema 30% þeirra sem reyna að klífa Everest sem ná alla leið upp. 70% þurfa að hætta við,“ segir Haraldur Örn. Aðspurður um hvort hann hafi velt því fyrir sér hvernig hann myndi bregðast við í slíkum að- stæðum segir hann: „Ég sé sjálfan mig fyrst og fremst ná toppnum. Það er líka mikilvægt að hugsa þannig fyrirfram. En ég get auð- vitað lent í því eins og margir aðrir að þurfa að snúa við. Þarna verða menn að sýna fyllstu skynsemi,“ segir Haraldur Örn. Ljósmynd/Björn Ólafsson Íslenski Everest-leiðangurinn 1997. Myndin er tekin af Hallgrími Magnússyni á egginni milli Suðurtinds og Hillary-þreps. Út á ystu nöf þess mögulega Lokaáfanginn í sjö tinda leiðangri Haraldar Arnar Ólafssonar er hafinn og erfiðasti hjallinn framundan, ganga á sjálfan Everest-tind. Guðjón Guðmundsson ræddi við Harald Örn áður en hann lagði í hann. Ljósmynd/Haraldur Örn Haraldur Örn á tindi Kilimanjaro, þriðja áfangans í sjötindaleiðangr- inum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.