Morgunblaðið - 31.03.2002, Qupperneq 21
brýnt að sveitarfélög sameinist um
slíkan búnað og að landshlutar vinni
betur saman. Það sama má segja um
eldvarnaeftirlit sveitarfélaganna.
Það getur verið erfitt fyrir slökkvi-
liðsstjóra að segja strákunum í
frystihúsinu að setja eldvarna-
hurðina á sinn stað. Honum yrði þá
kannski ekki boðið í næsta jólaboð.
Við verðum að stækka svæðin því
annars verður nálægðin of mikil.“
Samræming gagnagrunna
Að mati Björns verður einnig að
mennta starfsmenn eldvarnaeftir-
litsins svo að eftirlitið verði virkt.
Sagði hann að verið væri að sam-
ræma gagnagrunna hjá eldvarnaeft-
irlitum sveitarfélaganna og einnig
skýrslugerð sem til þessa hefur verið
með ýmsu móti. Slík samræming sé
nauðsynleg og muni t.d. auðvelda
alla vinnu við tölfræðilegar upplýs-
ingar.
„Ég tel að sameining slökkvilið-
anna á höfuborgarsvæðiu hafi verið
mikið happaskref og til góðs fyrir
íbúanna,“ sagði hann. „Annars skipt-
ir ekki öllu máli hvort menn samein-
ast eða taka upp samstarf. Aðalatrið-
ið er að í hverjum þéttbýliskjarna sé
slökkvilið, sem komið er á staðinn að
minnsta kosti um 10 mínútum eftir
útkall og að menn séu þá klárir að ná
í vatn, setja á sig reykköfunartæki
og hefja leit að fólki.“
Íslenskar bókmenntir
Þrátt fyrir miklar annir segist
Björn gefa sér tíma til að sinna
áhugamálunum.
„Ég hef mikinn áhuga á myndlist
og íslenskum bókmenntum, ljóðlist
og tónlist,“ sagði hann. „Að vísu var
erfitt að ná í íslenskar bókmenntir
erlendis og því datt ég niður í enskar
bókmenntir. Það er því alveg frá-
bært að vera kominn heim mitt í alla
hringiðuna og geta horft á Esjuna á
hverjum morgni. Geta staðið upp og
talað íslensku við menn í stað þess að
tala sænsku við stífa Svía og að vera
heima hjá sér og fjölskyldunni að
ógleymdum vinum. Ég hef í gegnum
árin haldið góðu sambandi við þá. Í
þeim hópi er tónlistarmaðurinn KK
eða Kristján Kristjánsson, sem bjó
um tíma í Lundi. Við höfum alltaf
verið nánir vinir og spiluðum saman
á Þorrablótunum, Kristján, ég og
nokkrir aðrir. Kristján er náttúrlega
svo fær að hann gat borið hljómsveit-
ina uppi. Við gátum leikið „Bláu aug-
un þín“, „Fyrsta kossinn“ og önnur
góð sígild gömlu lög. Þetta var frá-
bærlega gaman. En það sem er best
við þetta allt saman er að vera kom-
inn heim til sín eftir 20 ára útlegð.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 21
Reynaldo
Bólstrun
Karls
s:587 7550
S t a n g a r h y l 6
áklæði
Barcelona
Monte Carlo
Milano
Feneyjar
Florens
Róm
Napoli
Taormina, Sicily
Valletta, Malta
Aþena
Golden Princess - Toppur siglinganna
Mesta upplifun Miðjarðarhafsins
Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564,
netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is
Golden Princess
Staðfestar símapantanir
56 20 400
í dag kl.13-15.
Sjá vefsíðu www.heimsklubbur.is - Pantanir í dag í síma 56 20 400 kl.13-15
Feneyjar
ÚTSALA!
Nýr áfangi í siglingum í MIÐJARÐARHAFI - vöggu siglinga:
SÉRTILBOÐ okkar með 60% afsl. á nýjasta skemmtiskipi
heimsins seldist upp samdægurs-en nú er NÝTT TÆKI-
FÆRI: Umboð okkar hefur 4 viðbótarklefa á GULL-
PRINSESSU með brottf. 17. ágúst til Barcelona, siglt 18.-30.
ágúst milli frægustu staða við Miðjarðarhaf:
MESTI SMELLUR SUMARSINS!
Áætlun: Monakó, Toscana með Florens og Pisa (frá
Livorno) Róm (frá Civitavecchia), Napoli, Pompeii,
Capri, Messinasund, Malta, Aþena,Feneyjar.
Þvílíkt glæsilíf um borð, 8 veitingahús og fullt fæði inni-
falið, öll aðstaða um borð, hvers kyns skemmtanir, full-
komin leikhús, tónlist við allra hæfi, danssalir, diskótek,
kvikmyndir, veisluhöld, sólbaðsaðstaða og sundlaugar,
landferðir á fræga staða eftir eigin vali.
Okkar verð frá kr. 229.900. Alm. verð frá kr. 480.000. Hágæði heimsins á lág-
fargjaldi! Auk þessa er innif. flug til Barcelona og til baka frá Milano án
flugvsk. (kr. 3.600), en með öllum hafnargjöldum (nærri 40 þús. kr.) - Þeir sem
kunna að meta það besta sleppa ekki slíku tækifæri! - Nú stefnir í að við bjóð-
um líka íslenskan siglingastjóra í sérflokki!
Listatöfrar Ítalíu á besta tíma: 27. júní-9. júlí
Þér er boðið á AIDU- frægustu óperusýningu heims í VERONA! Florens við Arno,
höfuðborg lista.
Við Gardavatn
Óperusýning í Arenunni, Verona
Nýja listaferðin um Ítalíu undir leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar er einstök
upplifun, sem þræðir flestar mestu lista- og menningarborgir Ítalíu upp á perlu-
band undir leiðsögn hans. Annað eins tækifæri til að kynnast lista- og menning-
arsögunni finnst varla, enda er það álit margra sem kynnst hafa ferðum hans á
þessum slóðum að þeir hafi aldrei ráðstafað ferðafé sínu betur og taka sumir
þátt í Ítalíuferðum hans aftur og aftur. Flogið er beint til VERONA, en næsta
dag hefst skoðun lands og listar á leið til Milano og síðan til Parma, borgar
Verdis og Toscaninis og gist á frægu hóteli. Miðpunktur ferðarinnar er Toskana
hérað, þar sem dvalist er 4 daga í höfuðborg listanna, FLORENS, en bæði
SIENA og PISA heimsóttar, og búið er að opna „Skakka turninn“. Menntasetr-
in Bologna og Padua eru næst, að ógleymdum FENEYJUM. Í Trieste og Gorizia
gefst kostur á spennandi listviðburði, áður en haldið er aftur til Verona, þar sem
gist er 2 síðustu næturnar.
Hápunktur ferðarinnar er boð Listasjóðs Heimsklúbbsins á
óperuna AIDU eftir Verdi á stærsta sviði heims með mörgum í
hópi frægustu söngvara nútímans.
Andvirði þessa boðs er kr. 8.000 á mann og gildir aðeins til 2. apríl.
Hefð & gæði
bjalkabustadir.is
sími 581-4070
Sumarhús - íbúðarhús
alls konar hús
Yoga Studio – Halur og sprund ehf.,
Auðbrekku 14, Kópavogi,
símar 544 5560 og 864 1445.
Umboðsaðili fyrir Custom Craftworks
nuddbekki og Oshadhi ilmkjarnaolíur.
www.yogastudio.is
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við
streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegn-
um miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að
slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem
m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir
þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og and-
leg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist
reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá 1994.
Hefst 9. apríl — Þri. og fim. kl. 20.00.
Jóga grunnnámskeið með Ásmundi Gunnlaugssyni
Jógastöður, öndunaræfingar, slökun og undirstöðuatriði hatha yoga undir
leiðsögn Ásmundar. Góð leið fyrir fólk á öllum aldri sem vill næra andann og
styrkja líkamann. Ekki er krafist reynslu af jóga.
Hefst 11. apríl — Þri. og fim. kl. 19.00 í 4 vikur.
Þumalína
Slitolía, spangarolía,
brjóstagjafaolía og te
Póstsendum – sími 551 2136
M O N S O O N
M A K E U P
litir sem lífga