Morgunblaðið - 31.03.2002, Qupperneq 22
FRÉTTIR
22 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ökupróf
Samkvæmt samningi við Umferðarráð annast Frum-
herji hf. framkvæmd skriflegra og verklegra ökuprófa
um land allt frá og með 1. apríl. Umferðarráð hefur
enn sem áður umsjón með ökunámi og ökuprófum og
mun sjá um eftirlit með starfseminni.
Breytingar verða litlar til að byrja með, sömu próf-
dómarar munu sinna verkefninu og prófað verður á
sömu stöðum áfram, nema á höfuðborgarsvæðinu,
þar flytjast öll próf til Frumherja hf. á Hesthálsi 6-8 í
Reykjavík. Pöntunarsími ökuprófa verður 570 9070.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Umferð-
arráðs www.umferd.is og Frumherja hf.,
www.frumherji.is.
Umferðarráð þakkar ökukennurum og próftökum far-
sælt samstarf á liðnum árum og væntir góðs fram-
halds þar á.
Umferðarráð og Frumherji hf. stefna saman að því
markmiði að ökunám og ökupróf auki umferða-
röryggi í landinu.
TAP af reglulegri starfsemi Ríkisút-
varpsins á síðasta ári, að teknu tilliti
til fjármunatekna og gjalda, var um
250 milljónir kr. samanborið við um
92 millj. kr. tap árið 2000.
Ársreikningur Ríkisútvarpsins
var staðfestur á miðvikudag og setja
óhagstæð gengisþróun og almennar
launa- og verðlagshækkanir mark
sitt á afkomuna að mati forsvars-
manna stofnunarinnar.
Tap af beinum rekstri án fjár-
magnskostnaðar nam í heild 86,4
milljónum kr. en sambærileg tala
miðað við árið 2000 var 121,6 millj.
Í ársskýrslunni segir að megin-
skýringar á hallanum séu þær, að
launahækkanir og almennar verð-
lagshækkanir hafi orðið mun meiri
en fram hafi komið í forsendum fjár-
laga ársins 2001. ,,Til að mynda var
þar gert ráð fyrir 3,0 % hækkun
launa og 3,0% hækkun annars kostn-
aðar. Niðurstaðan var hins vegar sú
að almenn, samningsbundin launa-
hækkun opinberra starfsmanna nam
6,9% um mitt ár og síðan höfðu stofn-
anasamningar enn frekari hækkanir
í för með sér.
Auglýsingatekjur lækkuðu
um 63 milljónir kr. milli ára
Samkvæmt launavísitölu Hagstof-
unnar varðandi opinbera starfsmenn
og bankamenn hækkuðu laun þeirra
um 9,6% á milli áranna 2000 og 2001.
Þá hefur gengisfall íslensku krón-
unnar haft afar neikvæð áhrif á
rekstur Ríkisútvarpsins vegna
hækkunar á aðkeyptu erlendu efni
til sýningar í Sjónvarpinu. Erlent
dagskrárefni nemur um 60% af
heildarútsendingartíma Sjónvarps-
ins,“ segir í ársskýrslu RUV.
Alvarlegur samdráttur á auglýs-
ingamarkaði hafði slæm áhrif á
rekstrarafkomu Ríkisútvarpsins en
auglýsingatekjur lækkuðu um 63,4
millj. króna milli áranna 2000 og
2001.
Fjármagnsgjöld hækkuðu
um 174 milljónir króna
Fjármagnsgjöld hækkuðu hins
vegar á milli ára um 174 millj. króna.
Þá segir í ársskýrslunni að auknar
lífeyrisskuldbindingar, sem Ríkis-
útvarpinu hefur verið gert að taka á
sig vegna slæmrar stöðu Lífeyris-
sjóðs ríkisstarfsmanna, hafi haft ,,af-
skaplega neikvæð áhrif á rekstrar-
niðurstöðu síðustu ára“ og staðan
versnað með hverju ári. Útgjöld árs-
ins 2001 af þessum sökum einvörð-
ungu námu um 190 millj. króna, þar
af vextir og verðbætur 136 millj.kr.
250 milljóna halli á rekstri
Ríkisútvarpsins 2001
FRAMKVÆMDASTJÓRI DV lítur
svo á að Fréttablaðið brjóti klár-
lega gegn samningi milli Frjálsrar
fjölmiðlunar og núverandi eigenda
DV með því að birta smáauglýs-
ingar í blaðinu á miðvikudag og
brjóti þar með gegn lögbanni sýslu-
mannsins í Reykjavík.
Eins og greint var frá í Morg-
unblaðinu á miðvikudag setti sýslu-
maður lögbann á að Fréttablaðið
seldi og birti smáauglýsingar eins
og þær hafa birst í blaðinu undir
nafninu flokkaðar auglýsingar.
Byggðist lögbannið á kröfu DV,
sem sagði birtinguna brjóta í bága
við samning sem gerður var við FF
þegar síðarnefnda fyrirtækið seldi
hlut sinn í DV.
Í Fréttablaðinu á miðvikudag
hafði birtingarformi auglýsinganna
verið breytt, þó ekki ýkja mikið, og
þær ekki lengur nefndar flokkaðar
auglýsingar. Hjalti Jónsson, fram-
kvæmdastjóri DV, sagðist ætla að
skoða Fréttablaðið á þriðjudag, 2.
apríl og þá meta hvort ástæða væri
til að krefjast þess að sýslumaður
gengi eftir því að lögbannið yrði
virt, en sýslumaður mun ekki hafa
afskipti af málinu nema DV krefjist
þess.
Samkeppnisstofnun fékk á mið-
vikudag í hendur samninginn á milli
útgáfufélags DV og FF. Stofnunin
hafði farið fram á að fá samninginn
til að kanna hvort hann bryti gegn
ákvæðum samkeppnislaga og kem-
ur þar sérstaklega 10. grein lag-
anna til álita. Þar er m.a. fjallað um
samninga milli fyrirtækja sem
koma í veg fyrir samkeppni t.d.
með skiptingu á mörkuðum. Skv.
upplýsingum frá stofnuninni verður
ákvörðun um framhaldið tekin eftir
páska.
Hjalti segir að samningurinn hafi
verið gerður í góðri trú og eigi ein-
ungis við um FF og gildi ekki fyrir
aðra aðila í samkeppni á smáaug-
lýsingamarkaði.
Telur birtingu auglýsinga
brot gegn lögbanni
TÖLUVERÐAR breytingar urðu
á fylgi stjórnmálaflokkanna í mars-
mánuði frá mánuðinum á undan
skv. fylgiskönnun Gallup sem gerð
var í marsmánuði. Fylgi Fram-
sóknarflokksins mælist nú 18% í
stað rúmlega 14% í febrúar. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar einu pró-
sentustigi og mælist nú með 40%
fylgi. Vinstrihreyfingin – grænt
framboð fer úr 21% í febrúarkönn-
un í rúm 17% fylgi nú, Samfylk-
ingin bætir fylgi sitt og fer úr tæp-
lega 20% fylgi í febrúar í rúm 22%
nú en fylgi Frjálslynda flokksins
breytist lítið milli mánaða og er
rúm 2%. Ríkisstjórnin nýtur stuðn-
ings 56% kjósenda skv. könnuninni
Fylgi flokkanna