Morgunblaðið - 31.03.2002, Síða 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 29
ÞAU hafa verið nokkur sjónvarps-
leikritin sem sýnd hafa verið nú í
vetur sem gerast á ljósmyndastofu.
Þar hafa Leikfélag Íslands og RÚV
gefið nokkrum íslenskum leikstjór-
um og höfundum tækifæri til að
spreyta sig innan ákveðins tíma og
rúms og hefur árangurinn verið mis-
munandi.
Sl. sunnudag var komið að þeim
Hilmari Oddssyni og Árna Ibsen
sem margt gott hafa látið frá sér
fara í gegnum tíðina og verður verk-
ið „Það kemur í ljós“ seint talið með-
al þeirra áhrifaríkari og áreiðanlega
voru þær væntingar ekki gerðar til
leikritsins.
Hér segir frá ljósmyndaranum
Matta sem rekur ljósmyndastofu.
Hjá honum vinnur farðarinn Gurrí,
en afi Matta, Halldór atvinnuljós-
myndari til fimmtíu ára, er tíður
gestur hjá þeim þar sem hann
grúskar í tölvunni og leitar að mynd-
inni. Hinni einu sönnu. Fyrirsæturn-
ar Freyr og Sjöfn koma til þeirra
þennan dag og það gengur á ýmsu.
Mér skilst að þetta leikrit fjallaði
um ástina í öllum sínum myndum.
Hvernig hver og einn með sinn bak-
grunn nálgast ástina og að sagan
endurtaki sig. Sumir eru kynferðis-
lega ágengir, aðrir eru tilbaka vegna
mögulegrar höfnunar og enn aðrir
láta allt yfir sig ganga. En öll leitum
við að því sama, hinum fullkomna fé-
laga fyrir lífið; sönnu ástinni. Ef það
tekst ekki munum við sjá eftir því
mest af öllu þegar lífið er á enda.
Árni hefur tekið þann pól í hæðina
að gerast nokkuð djúpur í þessu litla
leikverki. Þetta er skemmtileg hug-
mynd, enda erum við öll svo ber-
skjöldið frammi fyrir myndavélinni.
Og misjafnt fólkið sem kýs að vera
fyrir framan myndavélina og fyrir
aftan. En í svona stuttu verki gefst
lítill tími til að þróa persónur og
þessu djúpstæða hefði þurft að koma
til skila á mjög hnitmiðaðan og
snjallan hátt.
Þeir Hilmar og Árni fara þó aðeins
út fyrir ljósmyndastofuna og fylgja
Halldóri gamla í strætó, þar sem
hann myndar með augunum það sem
fyrir ber. Þetta er fín kynning á karl-
inum og því alger óþarfi að láta hann
kynna sig sem ljósmyndara fyrir
fólki sem gjörþekkir hann. Til að
auka fjölbreytnina enn frekar er
myrkraherbergið notað með sinni
rauðu lýsingu.
Leikarar stóðu sig allir prýðilega
og tókst að skapa sannfærandi per-
sónur. Persóna Gurríar nær kannski
helst til manns og túlkaði Elva Ósk
þessa konu mjög mannlega og eðli-
lega einsog henni er lagið.
„Þetta kemur í ljós“ er lítið verk
þar sem reynt er að skapa eitthvað
áhugavert við ómerkilegar aðstæð-
ur. Árangurinn er eftir því, þó segj-
ast verði að það er með skemmtilegri
verkum í þessari leikritaröð.
SJÓNVARP
Það kemur í ljós
Leikstjórn: Hilmar Oddsson. Handrit: Árni
Ibsen. Stjórn upptöku: Sigurður Snæberg
Jónsson. Leikendur: Gunnar Eyjólfsson,
Björn Ingi Hilmarsson, Elva Ósk Ólafs-
dóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Ívar Örn
Sverrisson. Framleiðandi: Hallur Helga-
son fyrir Leikfélag Íslands. 36 mín. Sýnt
á RÚV 24. mars 2002.
Myndir
ástarinnar
„Leikarar sköpuðu sannfærandi persónur,“ segir í gagnrýni.
Hildur Loftsdóttir