Morgunblaðið - 31.03.2002, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 43
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði KLUKKUBERG 15 - HF. - MEÐ BÍLSKÚR
OPIÐ HÚS
MÁNUDAG frá kl. 14-18
Vorum að fá í einkasölu á þessum frábæra
útsýnisstað mjög góða 4ra herbergja íbúð
á annarri hæð ásamt bílskúr, samtals 131
fm. Fallegar innréttingar, sérinngangur, 3
herbergi. Frábært útsýni. Verð 14,3 millj.
Anna og Árni taka á móti væntanlegum
áhugasömum kaupendum á mánudag frá
kl. 14-18.
DREGIÐ var í leik meðal ferming-
arbarna sem Lyfja stóð fyrir í öllum
útibúum sínum, 22. mars sl. Mjög
góð þátttaka var í leiknum enda til
mikils að vinna. Vinningshafarnir
urðu 16 og fengu þeir allir glæsi-
lega gjafapakka með vörum frá
Tommy Hilfiger.
Fyrr á þessu ári sendi Lyfja for-
eldrum barna á fermingaraldri
gjafakort sem jafnframt var þátt-
tökuseðill. Innsendir miðar voru
settir í pott og síðan voru dregnir
út tveir vinningar í hverju útibúi
Lyfju, einn fyrir strák og annar fyr-
ir stelpu. Hringt hefur verið í vinn-
ingshafana.
Hluti þeirra fermingarbarna sem unnu gjafapakka frá Lyfju.
Fermingarleikur Lyfju
MÁLSTOFA í tengslum við
kennslu í stjórnskipunarrétti í
lagadeild Háskóla Íslands verður
haldin miðvikudaginn 3. apríl í
stofu L-101 í Lögbergi kl. 12.15-
13.30.
Umræðuefnið verður: „Málstofa
um mannréttindi: Staða fé-
lagslegra mannréttinda í lýðræð-
isþjóðfélagi“. Málshefjendur verða
Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Atli
Harðarson heimspekingur.
Málstofan er öllum opin, segir í
fréttatilkynningu.
Málstofa um
mannréttindi í
lagadeild
SVÆÐISSKRIFSTOFA Skeljungs
á Akureyri hefur verið flutt í
Oddeyrarskála, en þar rekur
Eimskip fjölbreytta starfsemi.
Skrifstofan var áður við Hjalteyr-
argötu og á Skeljungur þar hús-
næði.
Þær breytingar verða í kjölfar
flutningsins að Eimskip mun sjá
um birgðahald og vörudreifingu
fyrir Skeljung á Akureyri og um
Norðurland.
Höskuldur Ólafsson hjá Eim-
skip sagði að félögin tvö hefðu átt
gott samstarf áður, t.d. um rekst-
ur vöruhótels í Sundahöfn og
vænti hann að svo yrði áfram nú
þegar Skeljungur hefði flutt
starfsemi sína í Oddeyrarskála.
Sagði Höskuldur að Eimskip hefð
á síðustu árum aukið mjög starf-
semi sína á landsbyggðinni, en
frá árinu 1998 hefði störfum á
vegum félagsins fjölgað úr 40 í
78. Alls starfa 30 manns í Odd-
eyrarskála.
Friðrik Stefánsson hjá Skelj-
ungi nefndi að sá varningur sem
seldur hefði verið í verslun Skelj-
ungs við Hjalteyrargötu yrði nú
seldur í verslunum í bænum, m.a.
í Húsasmiðjunni og 66°norður.
Skeljung-
ur flytur
í Oddeyr-
arskála
Morgunblaðið/Kristján
Benedikt Elísson og Friðrik Þ. Stefánsson undirrita samninginn. Að
baki þeim standa Höskuldur Ólafsson og Kristinn Björnsson.
Menntamálaráðuneytið hefur sam-
ið við Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla Íslands um umsýslu
með Þróunarsjóði grunnskóla og
Þróunarsjóði leikskóla í tilrauna-
skyni til þriggja ára, frá 2002–
2004. Sjóðirnir hafa hingað til ver-
ið í vörslu ráðuneytisins í sam-
ræmi við reglur um sjóðina.
Björn Bjarnason þáverandi
menntamálaráðherra og Ólafur
Proppé, rektor Kennaraháskóla
Íslands, undirrituðu formlegan
verksamning vegna þessa máls
fyrir skömmu. Er þetta í samræmi
við þá stefnu menntamálaráðu-
neytisins að færa umsýslu ein-
stakra verkefna út úr ráðuneytinu
til annarra aðila, segir í frétta-
tilkynningu
Menntamálaráðuneytið skipar
eftir sem áður ráðgjafarnefnd Þró-
unarsjóðs grunnskóla skv. reglum
um sjóðinn og úthlutunarnefnd
Þróunarsjóðs leikskóla, skilgreinir
forgangsverkefni hvers árs, aug-
lýsir eftir umsóknum og tekur
formlega ákvörðun um úthlutun
styrkja úr sjóðunum.
Mikil gróska hefur verið í þró-
unarstarfi í skólum, segir í frétta-
tilkynningu, og árlega hafa milli 20
og 30 verkefni verið styrkt úr Þró-
unarsjóði grunnskóla og um 10
verkefni úr Þróunarsjóði leikskóla.
Þróunarsjóður grunnskóla hefur
haft um 11 milljónir kr. árlega til
ráðstöfunar en Þróunarsjóður leik-
skóla 3 milljónir kr.
KHÍ tek-
ur við
umsýslu
þróunar-
sjóða
PÁSKAHELGIN er síðasta sýning-
arhelgi á öðrum hluta 30 ára afmæl-
issýningu Myndhöggvarafélags
Reykjavíkur í miðrými Listasafns
Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum.
Verkin á sýningunni eru eftir Þór
Vigfússon og Hallstein Sigurðsson.
Sýningunni lýkur mánudaginn 1.
apríl.
Afmælissýning
Myndhöggv-
arafélagsins
SVEITARSTJÓRN Eyjafjarðar-
sveitar hefur beint þeirri áskorun til
landbúnaðarráðherra að hann leiti
leiða til að Skógræktarfélag Eyfirð-
inga fái til eignar án endurgjalds rík-
isjörðina Saurbæ í Eyjafjarðarsveit.
Sagði í áskorun sveitarstjórnar að
með slíkri gjörð fælist öflugur stuðn-
ingur við skógræktarstarf og um leið
viðurkenning á því þýðingarmikla og
árangursríka starfi sem félagið hefði
unnið í þágu skógræktar. Ennfrem-
ur segir að fái félagið jörðina til eign-
ar opnist því aðrir möguleikar til
nýtingar og ráðstöfunar á landinu en
við leigu og styðji betur áform fé-
lagsins um samfellda skógrækt og
annars konar skipulagningu á um-
ræddu svæði.
Sveitarstjórn mæli með ákveðnum
kvöðum fái félagið jörðina, en náist
ekki sátt um þessa leið er mælt með
því að Skógræktarfélag Eyfirðinga
fái jörðina leigða til skógræktar með
hliðstæðum skilmálum og gilda um
leigu á nágrannajörðinni Hálsi í
Eyjafjarðarsveit og Þrándarstöðum
í Brynjudal.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og
Skógræktarfélag Eyfirðinga
Félagið fái Saurbæ
til skógræktar
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦