Morgunblaðið - 31.03.2002, Side 44
FRÉTTIR
18.4
26/27.4
3.5
11.-26.5
30.5
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Háskólabíó við Hagatorg
Sími 545 2500
sinfonia@sinfonia.is
www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUNNAR
fimmtudaginn 11. apríl kl. 19:30 í Háskólabíói
dv, sigfríður björnsdóttir, 19. janúar 2001.
stórviðburður
spennandi dagskrá framundan:
Fyrir rúmu ári urðu löngu tímabærir endurfundir Vladimirs
Ashkenazys og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Á þeim tón-
leikum var samspil hljómsveitar, stjórnanda og einsöngvara
með slíkum hætti að gestir og gagnrýnendur voru á einu máli:
Tónleikarnir voru frábærir og einstakur listviðburður.
Nú snýr Ashkenazy aftur í Háskólabíó til að stýra hljómsveit-
inni við frumflutning á Íslandi á stórvirki Edwards Elgars
„The Dream of Gerontius“. Á sviðið munu einnig stíga
stórsöngvararnir Charlotte Hellekant, Robert Gambil og Garry
Magee ásamt Kór Íslensku óperunnar.
Er rétt að hvetja unnendur lista að tryggja sér miða á meðan
þeir bjóðast. Miðasalan er hafin en þú getur náð forskoti með
því að senda strax miðapöntun á sinfonia@sinfonia.is.
ÁSKELL OG STRAUSS I Á efnisskránni eru tvö verk eftir
Richard Strauss og eitt eftir Áskel Másson sem eiga það
sameiginlegt að hafa ekki heyrst í Háskólabíói áður.
VORMENN ÍSLANDS I Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Jón Rúnar Arason og Ólafur Kjartan Sigurðsson eru í farar-
broddi á glæsilegum óperutónleikum.
GÓÐUR GESTUR I Einleikur Erlings Blöndals Bengtssonar
með Sinfóníuhljómsveitinni er alltaf sérstakt tilhlökkunarefni.
Í þetta skiptið er það sellókonsert Williams Waltons.
HOLLENDINGURINN FLJÚGANDI I Framlag Sinfóníu-
hljómsveitarinnar til Listahátíðar er þátttaka í hinni mögnuðu
óperu Wagners. Miðasala hefst í Þjóðleikhúsinu 2. apríl.
SIBELIUS OG SJOSTAKOVITSJ I Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar leikur einleik á
tónleikum sem hafa á sér afar dramatískan blæ.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
O
G
D
Ý
R
Ð
IN
edward elgar
„ÞESSARA TÓNLEIKA
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
UNDIR STJÓRN ASHKENAZY
VERÐUR MINNST
SEM EINS AF HÁPUNKTUM
Í TÓNLEIKAHALDI HENNAR.“
Sími 511 2900
Auðbrekka
Nóatún
Nýlegt 400 m² fullbúið skrifstofu- og lagerhúsnæði með tveimur
innkeyrsludyrum rétt við Kringlumýrarbrautina. Húsnæðið er 310
m² að grunnfleti og með 89 m² millilofti. Jarðhæðin skiptist í tvo flí-
salagða sali með um 4-5 m lofthæð sem geta nýst annars vegar
sem sýningaraðstaða eða verslunarpláss og hins vegar sem lager.
Ágæt aðstaða er fyrir gámalosun á lóð. Hægt að keyra upp að og
leggja beint fyrir framan húsnæðið. Húsnæðið er í alfaraleið og er
t.d. hentugt fyrir heildverslanir eða hvers kyns þjónustustarfsemi.
Fullinnréttað 635 m² skrifstofuhúsnæði á 4. hæð í lyftuhúsi á horni
Nóatúns og Laugavegs. Leigusali er reiðubúinn að aðlaga húsnæð-
ið að þörfum leigjanda gegn langtíma leigusamning. Rýmið er bjart
með glugga í allar áttir, góðri lofthæð og með aðgengi að svölum
frá báðum göflum. Mögulegt er að skipta húsnæðinu t.d. til helm-
inga, eða jafnvel minni einingar. Sameign hússins er snyrtileg. Næg
bílastæði eru á lóðinni og ýmis þjónusta er fáanleg í húsinu og
næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar vegna ofangreindra
húsnæða eru veittar á skrifstofu okkar.
Öldugrandi 3, bílskýli
OPIÐ HÚS
Falleg 100 fm íbúð á 3. hæð ásamt
ca 15 fm geymslu í kjallara. Í búðin
skiptist í 3 sv.herb. sofu, eldhús og
bað. Suðursvalir og mjög fallegt
sjávarútsýni til norðurs. Laus fljót-
lega. Egill og Ingibjörg sýna íbúð-
ina á morgun, mánudag, frá kl. 13-
15. V. 12,9 m. 2089
44 SUNNUDAGUR 31. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR fræðsluráðs hótel-
og matvælagreina og Hótel- og mat-
vælaskólinn í Menntaskólanum í
Kópavogi skrifuðu undir samstarfs-
samning um stofnun símenntunar-
miðstöðvar í matvæla- og ferðaþjón-
ustugreinum miðvikudaginn 20.
mars.
Í tilefni af samningnum opnaði
menntamálaráðherra Tómas Ingi Ol-
rich kennslustofu sem verður m.a.
tileinkuð námskeiðahaldi sem fer
fram á vegum skólans og fræðslu-
ráðsins. Símenntunarmiðstöðin kall-
ast Sæmundur Fróði og markmið
miðstöðvarinnar er að efla símennt-
un í hótel- og matvælagreinum og
skyldum greinum þ.m.t. ferðaþjón-
ustu, auka samstarf atvinnulífs og
skóla til að auka samkeppnishæfni
atvinnulífs og bjóða einstaklingum
hagnýta og fræðandi fagþekkingu á
sviði hótel- og matvælagreina og
skyldra greina. Einnig að veita ráð-
gjöf til fyrirtækja um símenntun og
rekstur á sviði hótel- og matvæla-
greina og skyldra greina þ.m.t.
ferðaþjónustu.
„Mikil ánægja og væntingar ríkja
um nánara samstarf atvinnulífs og
skóla. Það er skoðun samstarfsaðila
að samvinna af þessu tagi verði báð-
um aðilum til hagsbóta og skapar
aukin tækifæri til þess að auka vöxt
og viðgang greinanna. Verkefnin eru
ekki bundin við höfðuborgarsvæðið
heldur landið allt og væntingar
standa til þess að námskeið á vegum
aðila fari út um land þar sem áhugi
og þörf er til staðar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Fræðsluráð hótel- og matvæla-
greina er samstarfsvettvangur fyrir-
tækja og starfsmanna á sviði hótel-
og matvælagreina. Aðilar að fræðslu-
ráðinu eru: Bakarasveinafélag Ís-
lands, Félag framreiðslumanna, Fé-
lag íslenskra kjötiðnaðarmanna,
Félag matreiðslumanna, Landssam-
band bakarameistara, Samtök iðnað-
arins og Samtök um ferðaþjónustu.
Morgunblaðið/Kristinn
Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra, Níels Hjaltason, formaður
Fræðsluráðs hótel- og matvælagreina, og Margrét Friðriksdóttir, skóla-
meistari Menntaskólans í Kópavogi.
Símennt-
unarmið-
stöð í mat-
væla-
og ferða-
þjónustu-
greinum
GRUNNNÁMSKEIÐ í nám-
skeiðaröðinni: „Lesið í skóg-
inn og tálgað í tré“, sem
Garðyrkjuskóli ríkisins og
Skógrækt ríkisins standa að,
verður haldið helgina 6.–7.
apríl.
Námskeiðið fer fram í
Reykjavík og stendur frá kl.
10–18 báða dagana. Leiðbein-
endur verða Ólafur Oddsson
frá Skógræktinni og Bjarni
Þór Kristjánsson smíðakenn-
ari. Á námskeiðinu læra þátt-
takendur að lesa í marg-
breytileg form trjánna og
velja efni til ólíkra nota.
Fjallað verður um einkenni
og eiginleika íslenskra viðar-
tegunda og undirstöðuatriði
viðarfræði, skógarvistfræði
og skógarhirðu og íslensk
skógræktarsaga og skógar-
menning verður kynnt.
Nánari upplýsingar um
námskeiðið og skráning fer
fram á skrifstofu Garðyrkju-
skólans eða í gegnum net-
fangið mhh@reykir.is, segir í
fréttatilkynningu.
Að lesa í
skóginn