Morgunblaðið - 27.04.2002, Side 58
Það er jafnan mikið fjör á dansæfingum Breiðfirðinga.
BREIÐFIRÐINGAFÉLAGIÐ er
eitt af elstu átthagafélögum á höf-
uðborgarsvæðinu. Það var stofnað
árið 1938 og hefur allar götur síðan
rekið öflugt félagsstarf með margs
konar afþreyingu og uppákomum
gegnum tíðina, enda samhentur fé-
lagsskapur með ákveðin markmið
með starfinu; að efla og viðhalda
kunningsskap, vináttu, ættar-
tengslum og jafnframt færa átt-
hagana nær, ef svo má að orði kom-
ast. Ein af árlegum samkomum
félagsins hefur verið að fagna sum-
arkomu. Nú í kvöld verður dansað í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni, frá kl.
22–03 við undirleik og söng Breið-
bandsins og söngkonunnar Örnu
Þorsteinsdóttur. Félagar eru hvatt-
ir til að fjölmenna sem fyrr og taka
með vini og kunningja.
Breiðfirð-
ingar sunnan
heiða fagna
sumarkomu
Útgáfutónleikar Blikandi stjarna
Í DAG, á milli kl. 14.30 og 17.00, mun
sönghópurinn Blikandi stjörnur
halda sína fyrstu útgáfutónleika á
nýja sviði Borgarleikhússins. Söng-
hópurinn er skipaður ungu fólki með
fötlun, í honum eru tíu manns og hef-
ur hópurinn verið að æfa reglulega
undanfarin tvö ár undir stjórn Ingv-
eldar Ýrar Jónsdóttur. Það er hljóm-
sveitin Í svörtum fötum sem leikur
undir hjá Stjörnunum að þessu
sinni.
Tilefni tónleikanna er geisladisk-
urinn Það er eðlilegt að vera öðru-
vísi, en hann tók hópurinn upp í
Þýskalandsför, þar sem hljómsveitin
The Rockers var m.a. heimsótt.
Lögðust hóparnir á eitt með að taka
upp efni, bæði saman og hvor í sínu
lagi, en niðurstöðurnar er hægt að
nálgast á nefndum diski. Til gamans
má geta að hljómsveitin góðkunna
Sigur Rós var verndari þessa ferða-
lags og var það Ungt fólk í Evrópu
sem styrkti förina – samtök sem lúta
áætlun á vegum Evrópusambands-
ins, þar sem ungt fólk frá ólíkum
löndum er hvatt til að hittast og
vinna saman. Á milli 14.30 og 15.00
verða svo sýndar myndir sem teknar
voru í Þýskalandsförinni.
Pönk, reggí og blús
„Sveitin var stofnuð árið 1999,
sem partur af Sérsveit Hins húss-
ins,“ segir Kristinn Ingvarsson,
verkefnastjóri Sérsveitarinnar.
„Eins og fram kemur var diskur-
inn tekinn upp í Þýskalandi og þess
má geta að The Rockers koma hing-
að í júlí og þá ætlum við að útbúa
myndbönd við einhver laganna.“
Aðspurður um lagaval á disknum
segir hann það vera alls kyns.
„Þarna eru íslenskar dægurlaga-
perlur og söngleikjalög t.d. Þá kom-
um við víða við í frumsömdu lögun-
um okkar sem eru þrjú; eitt pönklag,
eitt reggílag og eitt blúslag!“
Miðaverð er kr. 500 og er hægt að
panta í síma 695 5101. Athuga ber að
miðafjöldi er takmarkaður. Geisla-
diskurinn góði verður svo seldur í
hléi.
„Það er eðlilegt
að vera öðruvísi“
Morgunblaðið/Kristinn
Blikandi stjörnur á hljómleikum í Hinu húsinu.
FÓLK Í FRÉTTUM
58 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www.bmvalla.is
Þú færð heildarlausnir
fyrir framkvæmdirnar í söludeild
BM•Vallá í Fornalundi
Söludeild í Fornalundi
Breiðhöfða 3 • Sími: 585 5050 • Fax: 585 5051
sala@bmvalla.is
HÚS GARÐUR FRÁVEITUR
daginn léku svo þau Tena Palmer og
Matthías Hemstock og í gær lagði Til-
raunaeldhúsið safnið undir sig, með
tilheyrandi tónlistarlegum sveigjum
og beygjum.
Í kvöld lýkur tónleikaröðinni svo er
harðkjarnasveitin Mínus og tilrauna-
tónlistarmaðurinn Curver troða upp í
sameiningu; með góðri hjálp frá
myndbandslist Sigurðar Guðjónsson-
ar. Uppákoman hefst stundvíslega kl.
20.00 og er aðgangseyrir kr. 500.
Tónlistin
tilreynd
Guðmundur Steinn Gunnarsson, eða „Burkni“, við störf.
Jaðardögum 2002 slitið í kvöld
UNDANFARNA daga hefur tónlist-
arhátíðin Jaðardagar 2002 – hátíð
helguð tilraunum í tónlist farið fram í
gamla Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b.
Hátíðin var opnuð síðasta miðvikudag
með kvöldi djassklúbbsins Ormslev
þar sem Curver, Hrafn Ásgeirsson,
Burkni og tilrauna-djasssveitin Anus
léku sér með jaðardjass. Á fimmtu-