Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 1

Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 1
LJÓST var seint í gærkvöld þegar síðustu atkvæðin höfðu verið talin í lögþingskosningunum í Færeyjum, að spurningunni um vilja lands- manna til að lýsa yfir fullu sjálfstæði eyjanna á næstu árum eða halda áfram sambandinu við Danmörk hafði ekki verið svarað. Niðurstaðan eftir ákaflega harða kosningabaráttu og mjög spennandi talningu var sú, að báðar fylkingarnar eru jafnstór- ar, landstjórnarflokkarnir þrír, sem vilja stefna að sjálfstæði, og stjórn- arandstaðan, sem vill endurskoða sjálfstjórnarlögin en vera áfram í ríkjasambandi við Danmörk. Að landstjórninni í Færeyjum standa þrír flokkar, Þjóðveldisflokk- urinn, Fólkaflokkurinn og Sjálf- stjórnarflokkurinn. Fékk sá fyrst- nefndi undir forystu Høgna Hoydals, sem fer með sjálfstæðis- málin í landstjórninni, stuðning 23,7% kjósenda og átta þingmenn eins og í síðustu kosningum. Tapaði flokkurinn 0,1 prósentustigi og kom það verulega á óvart því að honum hafði verið spáð góðu gengi og hann yrði einn helsti sigurvegari kosning- anna. Fólkaflokkurinn með Anfinn Kallsberg lögmann í broddi fylk- ingar fékk 20,8% og tapaði 0,5 pró- sentustigum. Eru þingmenn hans nú sjö í stað átta fyrir fjórum árum. Sjálfstjórnarflokkurinn með Eyð- un Elttør olíumálaráðherra í forystu fékk 3,2% atkvæða og tapaði 4,4 pró- sentustigum. Hefur flokkurinn að- eins einn þingmann nú á móti tveim- ur áður. Sambandsflokkurinn er sigurvegari Ótvíræður sigurvegari kosning- anna er stærsti stjórnarandstöðu- flokkurinn, Sambandsflokkurinn, og formaður hans, Lisbeth L. Petersen. Leggur flokkurinn megináherslu á sambandið við Danmörk og fékk nú stuðning 26% kjósenda og átta menn í stað sex. Jafnaðarflokkurinn og formaður hans, Joannes Eidesgaard, fengu 20,9%, 1,1 prósentustigi minna en í síðustu kosningum, en halda sínum sjö mönnum. Miðflokkurinn fékk síð- an 4,2% atkvæða og formaður hans, Jenis av Rana, verður því áfram á þingi. Færeyski félagsfræðingurinn Jo- annes Hansen segir, að það hafi aldr- ei gerst áður, að stjórn og stjórn- arandstaða í Færeyjum hafi haft jafn marga þingmenn. Það er því ljóst, að núverandi samsteypustjórn getur ekki verið við völd áfram nema Miðflokkurinn gangi til liðs við hana. Fylkingarnar í færeyskum stjórnmálum hnífjafnar Spurningunni um sjálfstæði var ekki svarað í kosningunum Þórshöfn. Morgunblaðið. Morgunblaðið/RAX 1. maí – baráttudagur verkalýðsins 100. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 1. MAÍ 2002 ÍSRAELSSTJÓRN hafnaði í gær allri samvinnu við rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna fyrr en orðið hefði verið við fjölmörgum kröfum hennar um skipan nefndarinnar og umboð. Kofi Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, hugleiddi í gær að leysa nefndina upp. 26 óbreyttir borgarar fengu í gær að yfirgefa Fæðingar- kirkjuna í Betlehem. Ísraelar setja sex skilyrði fyrir því, að rannsóknarnefndin fái að kynna sér ástandið í flóttamannabúðunum í Jenín. Hún vill fá að ráða nokkru um hverjir verði kallaðir fyrir sem vitni og hvaða skjöl nefndin fái í hendur. Þá vill hún, að ísraelskir hermenn verði undanþegnir hugsanlegri saksókn og fleiri sérfræðingar í hryðjuverkum verði nefndinni til aðstoðar. „Ef ekki verður gengið að þessu, verður ekkert af rannsókn,“ sagði í yfirlýsingu stjórnarinnar. Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, sagðist í gær óttast, að Sam- einuðu þjóðirnar gengju ekki að þessu og síðan myndi öryggisráðið knýja rannsóknina fram án tillits til óska Ísraela. Kvaðst hann ekki búast við, að Bandaríkjastjórn beitti neitun- arvaldi þar sem hún væri hlynnt rannsókninni. Ísraelskir embættismenn sögðu hins vegar í fyrradag, að þeir treystu því að Bandaríkjastjórn styddi Ísrael í öryggisráðinu vegna þess, að Ísrael- ar hefðu fallist á að hætta umsátri um Arafat. Ekkert lát er samt enn á umsátrinu um höfuðstöðvar Arafats í Ramallah og útgöngubann er í nálægum hverfum. Tuttugu og sex Palestínumenn fengu að yfirgefa Fæðingarkirkjuna í gær og voru þeir strax fluttir burt á brynvörðum bifreiðum. Átti síðan að láta þá lausa eftir yfirheyrslu. Í kirkj- unni eru enn um 200 menn og þar á meðal 20 til 30 menn, sem Ísraelar vilja handtaka eða senda í útlegð. Ísraelskir hermenn virtust vera að tygja sig burt frá Hebron í gær en sátu enn um Alia-sjúkrahúsið í borg- inni. Þar eru 20 menn, sem Ísraelar vilja handtaka, og sagði foringi um- sátursmannanna, að þeir væru reiðu- búnir að ráðast inn í sjúkrahúsið ef annað dygði ekki. Eyðilegging og þjófnaður Ísraelska dagblaðið Haaretz sagði í gær, að ísraelskir hermenn hefðu gerst sekir um mikla eyðileggingu og þjófnað á Vesturbakkanum. Hafði blaðið það eftir ónefndum foringja í hernum en hann sagði, að hermönn- unum hefði verið skipað að fjarlægja harða diskinn í tölvum vegna hugs- anlegra upplýsinga en þeir hefðu ekki aðeins gert það, heldur eyðilagt allt, sem þeir gátu. Þá hefðu þeir stolið fé úr bönkum og brotið upp hraðbanka í sama skyni. Hafna rannsókn á vegum SÞ Jerúsalem. AP, AFP. Verður Suu Kyi látin laus? Rangoon. AP. ORÐRÓMUR var á kreiki í gær í Búrma um að þess væri að vænta að Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar í landinu, yrði leyst úr stofufangelsi innan skamms. Sendi- maður Sameinuðu þjóðanna sagðist vænta árangurs af tilraunum sínum til að binda enda á þráteflið í stjórn- málum landsins. Herstjórnin í Búrma hefur hald- ið Suu Kyi í stofu- fangelsi á heimili hennar frá í sept- ember 2000, eftir að hún reyndi að fara á stjórnmálasamkomu fyrir utan höfuðborgina, Rangoon, í trássi við yfirvöld. Í gær voru borgarstarfs- menn að hreinsa til í kringum bústað hennar í borginni. Kom þetta á óvart þar sem gatan heim að húsinu hefur ekki verið hreinsuð síðan Suu Kyi var sett í stofufangelsi. Erlendir sendimenn og stjórn- málaskýrendur telja, að verði Suu Kyi látin laus í vikunni, bendi það til, að herstjórnin og stjórnarandstaðan hafi komist að samkomulagi um hvernig hún fái að starfa sem leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Herstjórnin muni hins vegar reyna að tryggja, að lausn Suu Kyi fari fram í kyrrþey þar sem hún óttist mikinn mannsöfnuð og fagnaðarlæti stuðningsmanna henn- ar. Julie Resdie, talsmaður banda- ríska utanríkisráðuneytisins, sagði í gær, að yrði Suu Kyi látin laus, yrði að gera það án nokkurra skilyrða. Sagði Resdie, að vonandi boðuðu þessar fréttir, þótt óstaðfestar væru enn, betri tíma fyrir Búrma. Aung San Suu Kyi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.