Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 14

Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 14
FRÉTTIR 14 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Heitt og nýlagað það er ekkert betra Moccamaster 90 8 / TA K T ÍK - kaffivél sem þú getur treyst Moccamaster Kaffitár, Bankastræti Rönning, Borgartúni Glóey, Ármúla Rafsól, Skipholti Te & Kaffibúðin, Suðurveri Tónborg, Hamraborg Kóp. Rafbúiðn, Álfaskeið, Hafj. Rafbúð Sigurdórs, Akranesi Öryggi, Húsavík Einkaumboð Glitnir, Borgarnesi Straumur, Ísafirði Rönning, Akureyri. Geisli, Vestmannaeyjar Árvirkinn, Selfossi Ljósboginn, Keflavík Rafb. Sveinn Guðm., Egilsst. Kaupf. Skagfirðinga, Sauðárkróki Hér eru helstu útsölustaðirnir. fyrir að barnaverndarnefndir geti haft afskipti af þunguðum konum og er að finna ákvæði um möguleg úrræði þeirra í slíkum tilfellum,“ tók Páll sem dæmi og bætti við að úrskurðarvald í málum vegna sviptingar forsjár flyttist frá barnaverndarnefndum til dóm- stóla. „Barnaverndarnefnd er gert kleift að gera kröfu um brottvikn- ingu heimilismanns og nálgunar- bann fyrir dómi, í samræmi við þá málsmeðferð sem gildir samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála um nálgunarbann.“ Athygli vekur að gert er ráð fyrir því að barn BARNAVERNDARRÁÐ er lagt niður en komið á fót kærunefnd til að skjóta til minniháttar úrskurð- um barnaverndarnefnda sam- kvæmt nýsamþykktum barna- verndarlögum. Stærri mál, s.s. forsjársviptingarmál, fara beint til dómstóla að því er fram kom í setningarræðu Páls Péturssonar félagsmálaráðherra á málþingi um réttindi barna á Grand hóteli í gær. Ný heildarlöggjöf um barna- vernd var samþykkt samhljóða með öllum greiddum atkvæðum á þingi í gær. Á málþinginu „Stöndum vörð um æskuna – Réttur barna til verndar“ vakti Páll athygli á því að fjöldi nýmæla væri í lögunum. Ýmis fyrirmæli stuðla að því að stækka og efla barnaverndarum- dæmi í landinu, t.d. eiga að jafnaði ekki að vera færri en 1.500 íbúar að baki hverri barnaverndarnefnd. Félagsmálaráðherra verða fengnar heimildir til að hlutast til um að komið verði á fót barnaverndar- nefndum samkvæmt skilyrðum laganna. Leyfð afskipti af þunguðum konum Róttækar breytingar eru lagðar til á framsetningu ákvæða um ráð- stafanir barnaverndarnefnda og flokkun ráðstafana. „Gert er ráð sem náð hafi 15 ára aldri sé aðili barnaverndarmáls. Með því er reynt að stuðla að því að treysta réttarstöðu barna í barnaverndar- málum. Þá er í frumvarpinu að finna ítarlegar og skýrar reglur um fóstur. „Dregið er úr þeim mun sem gerður er á tímabundnu og varanlegu fóstri. Þá er gert ráð fyrir sérstökum fósturráðstöfunum fyrir börn sem eiga við verulega hegðunarerfiðleika að stríða vegna geðrænna eða tilfinningalegra vandamála. Verkaskipting milli Barnaverndarstofu og barnavernd- arnefnda við ráðstöfun barna í fóstur er gerð skýrari svo og máls- meðferðarreglur í tengslum við fóstur,“ sagði Páll og tók fram að leitast væri við að setja laga- ramma um beitingu þvingunarráð- stafana á heimilum og stofnunum sem rekin væru á grundvelli lag- anna. Sérstaklega er tekið á þátt- töku barna í fyrirsætu- og fegurð- arsamkeppni í nýju lögunum. Ný barnaverndarlög kynnt á málþingi um réttindi barna Forsjársviptingarmál fara til dómstólanna Morgunblaðið/Golli Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði að um lagasetninguna hefði tekist einstæð sátt á Alþingi. GUÐMUNDUR Þóroddsson, for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, telur kostnað við endurnýjun fyrrum íbúðarhúss starfsmanna við rafstöð- ina í Elliðaárdal eðlilegan, en 26 milljónir króna kostaði að gera húsið upp og kaupa ný húsgögn. Guð- mundur segir að húsið sem var byggt árið 1921 sé stórt að flatar- máli, skipt hafi verið um hurðir, glugga, raf- og vatnslagnir, ofna- kerfi og fleira sem var úr sér gengið og ekki sé óeðlilegt að það kosti svipað og að byggja nýtt hús frá grunni. Aðspurður hvort þörf verði á hús- inu eftir að nýjar höfuðstöðvar OR á Réttarhálsi verða teknar í notkun segir Guðmundur alltaf þörf fyrir aðstöðu á borð við þessa. Orkuveitan hefði þó ekki ráðist í að byggja nýtt hús frá grunni, en OR eigi húsið og geti ekki selt það þar sem húsið stendur í garðinum við gömlu raf- stöðina og sé hluti af húsaþyrping- unni þar. Það standi húsið einnig við árbakka Elliðaánna og því þyki ekki við hæfi að selja það til einkaaðila. Húsið sé sömuleiðis sögufrægt og hluti af sögu fyrirtækisins þannig að OR myndi alltaf halda því við. Húsið verður notað fyrir mót- tökur, fundahöld og námskeið og segir Guðmundur að húsið sé tengt beint við tölvukerfi Orkuveitunnar. Hægt hafi verið að byggja upp þessa aðstöðu í höfuðstöðvunum. Hann segist hins vegar telja að húsið henti vel til þeirra verkefna sem fyrirhug- að sé að húsið verði notað til, eins og vinnu við fjárhagsáætlanir, yfirferð lagafrumvarpa og stefnumótun. Það geti verið jákvætt fyrir starfsmenn að komast úr daglegu umhverfi sínu þannig að þeir geti einbeitt sér að verkefninu ótruflaðir. Hann segir að Orkuveituna heim- sæki mikill fjöldi fólks á hverju ári, t.d. erlendar sendinefndir og að hús- ið nýtist vel til að taka á móti slíkum hópum. Hann segir að fyrir nokkr- um árum hafi húsið verið íverustað- ur rafmagnsveitustjóra, í dag séu fyrirtæki hætt að leggja mönnum til húsnæði. Enginn fastur starfsmaður verður í húsinu og segir Guðmundur að starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi iðulega fengið húsið lánað til stefnumótunarfunda og annars í þeim dúr. Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur um hús OR í Elliðaárdal Telur kostnað við endurnýjun eðlilegan VETRARVEÐUR hefur gengið yfir Húnaþing frá því um helgina, norð- austanstormur og snjóslitringur. Á mánudagskvöldið var fárvirði á Hvammstangabrautinni, leiðinni inn á hringveg 1. Um kl. 22:30 fauk póstbíllinn frá Reykjavík út af fyrir ofan Litla-Ós í afar sterkum vind- streng, og snjóbyl, en glæra hálka var á veginum. Ökumaður slapp óskaddaður og virðist bifreiðin lítið skemmd. Varningurinn var enn í bifreiðinni um hádegi á þriðjudag, þegar fréttaritari tók myndina. Morgunblaðið/ Karl Sigurgeirsson Póstbíllinn fauk út af HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur dæmt fjóra unga menn í fangelsi fyrir fjölda innbrota á höfuðborgarsvæðinu sem flest voru framin í desember á síð- asta ári. Verðmæti þýfisins nam milljónum króna. Mennirnir ját- uðu allir brot og þýfið komst að langmestu leyti til skila og var tekið tilllit til þess við ákvörðun refsingar. Sá sem hlaut þyngstu refs- inguna, 18 mánaða fangelsi, var dæmdur fyrir 13 auðgunarbrot, þar af 11 sem hann framdi í fé- lagi við aðra. Félagi hans hlaut 14 mánaða fangelsi fyrir 5 þjófn- aði en þrátt fyrir að hann hafi hafið áfengismeðferð taldi dóm- urinn ekki skilyrði til að hafa refsinguna skilorðsbundna. Refsing hinna tveggja var á hinn bóginn skilorðsbundin. Annar þeirra var dæmdur í 18 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára þar sem hann væri á „ábyrgan hátt að stuðla að breyttu og bættu lífi sínu.“ Segir í dómnum að hann hafi átt við vímuefnavandamál að stríða en hafi nú sótt um langtíma end- urhæfingarmeðferð hjá Byrg- inu. Sá fjórði var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára. Allir eiga mennirnir nokkurn saka- feril og þeir rufu allir skilorð með brotum sínum. Einn til viðbótar var ákærður fyrir að eiga þátt í innbrotunum en lögreglu hefur ekki tekist að hafa uppi á honum til að birta honum ákæru. Tókst ekki að stela hraðbanka Innbrotin frömdu mennirnir ýmist einir eða í félagi við aðra úr hópnum. Þeir brutust inn í fjölda fyrirtækja og sóttust einkum eftir fartölvum og tölvu- búnaði auk reiðufjár. Meðal þess sem þeir játuðu á sig var innbrot í Menntaskólann í Hamrahlíð en þar gerðu þeir m.a. misheppnaða tilraun til að brjóta upp og stela hraðbanka. Þá stálu þeir þremur hagla- byssum úr verslun Ellingsen. Hjalti Pálmason sótti málið f.h. lögreglustjórans í Reykja- vík. Hæstaréttarlögmennirnir Hilmar Ingimundarson, Páll Arnór Pálsson. og Örn Clausen voru skipaðir verjendur. Valtýr Sigurðsson héraðsdómari kvað upp dóminn. Dæmdir í fangelsi fyrir fjölda innbrota

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.