Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 20

Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 20
SUÐURNES 20 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ HeildsöluLAGERSALA Laugavegi 82 á horni Laugavegs og Barónsstígs Barna-, dömu- og herrafatnaður Merkjavara á verði sem ekki hefur áður sést Check in Loki Bad boys Bad girls Vila Fransa Uniface Filati Belika Carnet Nú opnum við í dag 1. maí kl. 12 Afgreiðslutími: Mán.-fös. kl. 12-19 Lau.-sun. kl. 12-17 VINNUSKÓLI Reykjanesbæjar hef- ur auglýst til umsóknar sumarvinnu fyrir unglinga í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla. Dregið verður úr um- sóknum sem berast rafrænt af vef Reykjanesbæjar og eiga þeir nem- endur von á vinningum. Þeir sem ekki hafa aðgang að Net- inu geta sótt um rafrænt í tölvuverum grunnskólanna eða á Bókasafni Reykjanesbæjar. Umsóknareyðublöð liggja jafnframt frammi á skrifstofu vinnuskólans í Kjarna, Hafnargötu 57 og hjá skólariturum grunnskólanna. Umsóknarfrestur er til og með 6. maí. Vinningar sem dregnir verða úr nöfnum þeirra sem sækja um rafrænt eru námskeið í vefsíðugerð, árskort á heimaleiki Keflavíkur í knattspyrnu og tölvuleikir. Auglýsa sumarstörf í vinnuskóla Reykjanesbær LÉTTSVEIT Tónlistarskóla Reykjanesbæjar heldur maraþon- tónleika á sal skólans að Austurgötu 13 í Keflavík, í dag, miðvikudag. Tón- leikarnir hefjast kl. 13 og stefnt er að því að leika í 6 klukkustundir. Á meðan tónleikarnir standa yfir, mun hljómsveitin selja tónleikagest- um kaffi og meðlæti á vægu verði. Tilefni tónleikanna er að safna í ferðasjóð sveitarinnar, en hún fer í tónleikaferð til Spánar í sumar. Tónlistin sem Léttsveitin leikur á maraþontónleikunum verður fjöl- breytt, allt frá gamla góða swinginu til rokk- og salsatónlistar í Big-Band stíl. Léttsveitin lék nýlega á stór- sveitatónleikum í Ráðhúsi Reykja- víkur og á þingi Lionshreyfingarinn- ar en það var haldið í Reykjanesbæ. Léttsveit með maraþon- tónleika Keflavík LISTMÁLARINN Tobba er með málverkasýningu í Framsóknarhús- inu Hafnargötu 62 í Keflavík. Sýning- unni lýkur 5. maí og verður þá boðið upp á kaffihlaðborð, frá kl. 15 til 17. Þorbjörg Magnea Óskarsdóttir, listakonan Tobba, gefur 30% af and- virði seldra verka á sýningunni til styrktar langveikum börnum. Framsóknarhúsið er opið alla virka daga frá kl. 15 til 22, laugardaga frá 13 til 20 og sunnudaga frá kl. 13 til 17. Tobba sýnir hjá Framsókn Keflavík ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ESTER Helga Guðmundsdóttir hefur rifið upp kórstarf í Grinda- vík. Um það bar söngskemmtun sem boðið var upp á í Grindavík- urkirkju á sumardaginn fyrsta vitni. Flytjendur á söngleikjaveislunni voru allir úr Grindavík ef und- anskildir eru þrír meðlimir í fimm manna hljómsveit. Það verður að teljast gott að geta sett saman svona öfluga dagskrá sem raunin var og þá ekki síður það að um nær tveggja klukkustunda dag- skrá var að ræða. Skemmtunin fékk góðar undirtektir gesta. Þarna komu fram Brimkórinn, Kammerkór Brimkórsins, Briml- ingarnir ásamt einsöngvurum og hljómsveit undir styrkri stjórn Estherar Helgu. „Þessir tónleikar sem við bjóðum upp á núna eru beinn afrakstur af því uppbygg- ingarstarfi sem unnið hefur verið undanfarin þrjú ár. Það má til sanns vegar færa að þeir sýni þennan ómælda kraft, metnað og áhuga heimamanna á að standa í stórræðum. Grindvík- ingar sýna hér mikinn metnað og Grindavíkurbær hefur stutt við bakið á okkur og það er ómet- anlegt að finna slíkan stuðning. Þetta eru fyrstu tónleikarnir þar sem Grindvíkingar eru þeir einu sem syngja í tveggja tíma dag- skrá. Það er náttúrlega mikill heiður fyrir mig að fá að vinna með svona skemmtilegum og hæfileikaríkum hópi enda held ég að viðtökurnar sýni það hér í dag,“sagði Esther Helga í lok sýningarinnar. Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Brimkórinn í fullri sveiflu á söngskemmtun í Grindavíkurkirkju. Auk hans sungu kammerkór og Brimlingar. Afrakstur uppbyggingarstarfs Grindavík LANDSMÓT íslenskra kvenna- kóra verður haldið í Reykja- nesbæ dagana 3. til 5. maí. Þetta er í fimmta skiptið sem lands- mót er haldið og er Kvennakór Suðurnesja gestgjafi í þetta sinn. Alls munu 13 kórar taka þátt í mótinu eða rúmlega fjögur hundruð konur og verður þetta því fjölmennasta mótið sem haldið hefur verið hingað til. Kórarnir sem taka þátt eru Jórukórinn frá Selfossi, Kvenna- kór Bolungarvíkur, Kvennakór Garðabæjar, Kvennakór Hafnar- fjarðar, Kvennakórinn Ljósbrá frá Hellu, Kvennakórinn Norð- urljós frá Hólmavík, Kvennakór Reykjavíkur, Kvennakórinn Seljurnar frá Reykjavík, Kvennakór Siglufjarðar, Kvennakór Suðurnesja, Kyrju- kórinn frá Þorlákshöfn, Kvenna- kórinn Ymur frá Akranesi og Senjorítur Kvennakórs Reykja- víkur. Haldnir verða tvennir tón- leikar á mótinu, þeir fyrri verða í Keflavíkurkirkju föstudaginn 3. maí kl. 20 og þeir seinni í Íþróttahúsinu við Sunnubraut sunnudaginn 5. maí kl. 14. Að- gangseyrir á hvora tveggju tón- leikana verður kr. 500. Einnig munu kórarnir verða í Drátt- arbrautinni í Grófinni á laug- ardag kl. 17 og flytja þar nokkur lög og er frítt inn fyrir gesti og gangandi. Á tónleikunum munu kórarnir syngja bæði sér og saman í hóp- um auk þess sem á sunnudag koma allir kórarnir fram saman í sameiginlegri dagskrá. Þar verð- ur frumflutt mótslag sem samið var sérstaklega fyrir mótið af Sigurði Sævarssyni, stjórnanda Kvennakórs Suðurnesja, við kvæði eftir Hallgrím Pétursson. Mótsstjóri verður Margrét Bóasdóttir söngkona. 400 syngjandi konur mætast Reykjanesbær ÞRETTÁN börn í leikskólanum Vesturbergi við Vesturgötu í Keflavík sem hefja nám í grunn- skóla í haust voru útskrifuð úr leikskólanum við hátíðlega at- höfn. Við útskriftarathöfnina sem fram fór í Frumleikhúsinu af- henti Brynja Aðalbergsdóttir nemendunum útskriftarskjal, hatta og kerti sem þau höfðu sjálf gert. Við sama tækifæri afhenti Brynja Guðríði Helgadóttur, leik- skólafulltrúa Reykjanesbæjar, skólanámskrá Vesturbergs. Er það fyrsti skólinn í Reykjanesbæ sem það gerir. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Útskrifuð við hátíðlega athöfn Keflavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.