Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 27
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 27
REKSTRARTAP Jarðborana hf. á
fyrstu þremur mánuðum ársins
2002, fyrir fjármagnsliði og skatta,
nam 51,4 milljónum króna en var
31,2 milljónir á sama tímabili á síð-
asta ári. Niðurstöðutala rekstrar-
reiknings var 39 milljóna króna tap,
en var 36,2 milljóna króna tap á sama
tímabili árið 2001. Í tilkynningu frá
félaginu er tekið fram að velta Jarð-
borana er að jafnaði mjög lítil á
fyrsta fjórðungi hvers árs og félagið
því oftast rekið með nokkru tapi
fyrstu mánuði ársins.
Rekstrartekjur Jarðborana fyrstu
þrjá mánuði ársins námu 136,9 millj-
ónum króna, en voru 162,2 milljónir
á sama tíma árið á undan. Rekstr-
argjöld fyrirtækisins með afskriftum
á fyrri helmingi ársins voru 188,3
milljónir, samanborið við 193,4 millj-
ónir á sama tíma í fyrra.
Hlutafé Jarðborana er 259,6 millj-
ónir króna. Eigið fé var 796,9 millj-
ónir króna 31. mars s.l. og eiginfjár-
hlutfall er nú 54,8%. Heildareignir
félagsins voru 1.455,4 milljónir
króna. Heildarskuldir félagsins
námu 658,5 milljónum króna.
Veltufé frá rekstri var neikvætt
um 33,5 milljónir króna fyrir tímabil-
ið en var neikvætt um 17,6 milljónir á
sama tíma á síðasta ári. Veltufjár-
hlutfall er 1,3.
Í tilkynningu Jarðborana segir að
vrkefnastaða félagsins fyrir árið
2002 sé góð og komi þar einkum til
áframhaldandi aukning á nýtingu
háhita til raforkuframleiðslu hjá
stærstu orkufyrirtækjunum, Hita-
veitu Suðurnesja og Orkuveitu
Reykjavíkur, og áhugaverð tækifæri
í erlendum verkefnum. Nokkur
samningsbundin verkefni séu einnig
frágengin fyrir sveitarfélögin í land-
inu.
Tap Jarðborana hf.
39 milljónir króna
FISKIÞING Fiskifélags Íslands
verður haldið föstudaginn 3. maí
næstkomandi á Grand Hótel í
Reykjavík. Fiskiþing er eins og
undanfarin ár haldið í tveimur hlut-
um. Annars vegar er þingið aðal-
fundur félagsins. Sá hluti hefst kl.
10:30 og mun ljúka fyrir hádegið.
Hinn hlutinn er málstofa um sjáv-
arútvegsmál og mun sá hluti hefjast
kl. 13:30. Sá hluti er öllum opinn.
„Þema þingsins er hvaða verk-
efni bíða íslensks sjávarútvegs í
hinni alþjóðlegu umræðu um nýt-
ingu auðlinda hafsins. Fengnir hafa
verið tveir sérfræðingar erlendis
frá til þess að fjalla um þetta mál.
Annar þeirra dr. Grímur Valdi-
marsson, sem hefur starfað hjá
FAO undanfarin ár við góðan orðs-
tír. Grímur hefur verið hvetjandi
þess að íslenskur sjávarútvegur
taki meiri þátt í að móta alþjóðlega
umræðu á þessu sviði og er ekki að
efa að eftir hans málflutningi verð-
ur tekið. Hinn sérfræðingurinn sem
fengin hefur verið erlendis frá er
Justin LeBlanc. Justin LeBlanc er
framkvæmdastjóri ICFA (Inter-
national Coaltion of Fisheries
Associations). Höfuðstöðvar þeirra
samtaka eru í Washington skammt
frá Pentagon, sem ásamt tvíburat-
urnunum í New York varð fyrir
hrottalegri hryðjuverkaárás þann
11. september s.l. eins og alkunna
er. Sá atburður hefur valdið
straumhvörfum í öllu alþjóðlegu
samstarfi og mun Justin LeBlanc
rýna í þau straumhvörf og greina
hvert stefnir.
Þá er ekki síður ástæða til að
benda á erindi Árna Bjarnasonar
nýkjörins forseta Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands um
umgengni við auðlindina, en þau
mál eru og verða í brennidepli,“
segir í frétt frá Fiskifélaginu.
Fiskiþing verður
haldið á föstudag
URBAN ACTIVE sigrar tímann
Nú fæst þetta öfluga dagkrem með 20 % afslætti - og það er ekki allt:
Einnig fylgir snyrtibudda, 30ml kornakrem fyrir líkamann,
50ml andlitsvatn og 5ml túpa með farða.
URBAN ACTIVE kremið vinnur ekki einungis gegn öldrun húðarinnar
heldur einnig gegn áhrifum nútímalífsstíls (streitu, þreytu, ónógum svefni, mengun…).
Skelltu þér á gott krem fyrir sumarið.
Útsölustaðir: Reykjavík og nágreni: Ársól snyrtistofa-verslun Grímsbæ,
Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23,
Libia Mjódd, Mist Spönginni 23, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80,
Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi,
Fína Háholti 14 Mosfellsbæ, Hygea Smáralind Kópavogi
Landið: Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík,
Konur og Menn Aðalstræti 9 Ísafirði, Miðbær Vestmannaeyjum,
Myrra Austurvegi 4 Selfossi