Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 31

Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 31
HANNES Sigurðsson forstöðu- maður Listasafnsins á Akureyri lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Það er ekki nóg með að hann fái stórbrotnar hugmyndir heldur framkvæmir hann þær líka. Satt að segja kom hógværð hans í uppsetn- ingu sýningarinnar Skipulögð ham- ingja mér á óvart, hann hafði „að- eins“ skreytt safnið með rauðum fánum, málað súlur rauðar innan húss, safnað saman rússneskum barmmerkjum og hengt upp við innganginn, skrifað slagorð á rúss- nesku á veggi, útvegað rauða penna til að skrifa með í gestabók og komið fyrir hljómflutningstækj- um við innganginn sem spiluðu af krafti tónlist kórs Rauða hersins í bland við ræðu Stalíns, og eru þá myndverkin enn ótalin. Þessu er síðan fylgt úr hlaði með myndar- legri sýningarskrá, ítarlegum vef- hluta og safnakennslu auk þess sem sýndar eru rússneskar kvik- myndir í hliðarherbergi. Þegar hann sagði mér síðan að hann hefði viljað ganga enn lengra og mála Kaupvangsstrætið rautt og Lista- safnið sjálft að utan í sama lit, kannaðist ég við kauða. Ég sýndi þó skilning á þessu enda er stutt í bæjarstjórnarkosningar og Sjálf- stæðisflokkurinn í meirihluta á Ak- ureyri! Hannes er sem sagt þekktur fyr- ir að fara alla leið í uppsetningu sýninga og nýtur hann sérstöðu á Íslandi fyrir hugmyndaríka sýn- ingarstjórn sína. Verkin á sýningunni koma frá Fagurlistasafninu í Arkhangelsk og í gegnum þau má lesa ýmislegt um rússneskt samfélag á árunum 1914-1956, þó svo að mörg verk- anna, einkum frá 1932, gefi kannski ekki fullkomlega raun- sanna mynd af samfélaginu og til- finningalífi fólksins þar sem ríkið hafði stýrandi áhrif á hvaða mynd- list mætti framleiða og hverja ekki. Kommúnistaflokkurinn áttaði sig á því árið 1932 að framúrstefnu- myndlistin var ekki nógu hvetjandi fyrir fólkið í verksmiðjunum og því varð að grípa í taumana. Lista- menn þurftu að sætta sig við að vinna undir járnhæl flokksins sem fannst önnur myndlist en sú sem var raunsæ túlkun á hinni vinnandi stétt, hreinasta rusl. Verk unnin við slíkar tilskipanir eiga fátt skylt með list, frekar er að kalla það lið í markaðsherferð. Þannig urðu lista- menn að sætta sig við að mála eftir því sem yfirvaldinu þóknaðist en á bak við tjöldin unnu þeir margir hverjir að eigin myndlist einnig, sem var þá gjarnan framúrstefna og tilraunamennska. Rússnesk myndlist framan af 20. öldinni er mjög áhugaverður hluti af listasögu heimsins. Rússar áttu marga fremstu og merkilegustu sporgöngumenn nútímamyndlistar og þeir bjuggu til sína eigin útgáfu af fútúrismanum, kúbófútúrisma, en afar ánægjulegt er að sjá verk af því tagi á sýningunni í Lista- safninu. Það sem er einna merki- legast samt þegar litið er til Sov- étríkjanna er hvað myndlistin sem miðill var talin sterkt afl í mótun samfélagsins. Myndlistarmenn höfðu áhrif og voru taldir hættu- legir ef þeir dirfðust að skapa myndverk sem voru á skjön við stefnu yfirvaldsins. Þetta sýnir glöggt að myndlistin er áhrifaríkur miðill og mótandi afl. Það kennir ýmissa grasa á sýn- ingunni. Listamenn eru fjölmargir og ýmsir straumar og stefnur gægjast í gegnum hina sögulegu sýn. Sem dæmi um áhugaverða mynd þar sem blandast saman im- pressjónismi og rússneskur sósíal- realismi er myndin Lopenkov-feðg- arnir frá árinu 1942. Verk im- pressjónistanna við lok 19. aldar voru yfirleitt rómantísk og falleg, af blómum, borgarlífi eða af fólki í lautarferð, og því er skrýtið að sjá mynd af mönnum með vélbyssur máluð í þessum rómantíska stíl! Á sýningunni eru ekki verk sem teljast geta sósíalrealismi í sinni hreinustu mynd, söguleg málverk þar sem opinberar ráðstefnur og fundir eru lofaðir og verksmiðjur, traktorar og spúandi strompar hafnir upp til skýjanna. Slík verk eru fæst undir 12 fermetrum að stærð, eða of stór og dýr í flutn- ingum fyrir íslenskt listasafn. Hægt væri að nefna margar at- hyglisverðar myndir hér og oftar en ekki er það hin fallega hugsun í myndunum sem fær mann til að stoppa við. Þetta á við um myndina Rúsakovskíj-sporvagninn frá 1928 eftir Samúíl Adlívankín en þar stendur ung stúlka stolt við stýrið á sporvagni, ný tegund verka- kvenna. Einnig er myndin Safnað undirskriftum fyrir friði frá 1952 eftir Viktor Vasíljevítsj Kíseljov falleg með skandinavísku yfir- bragði og Lestrarsalur í bænahús- inu þar sem þorpsbúar sitja í hnapp fyrir framan lítið útvarp. Þá er ónefndur tilraunakenndari hluti sýningarinnar þar sem er t.d. að finna athyglisvert verk Olgu Vlad- ímírovna Rosanova (1886–1918) Litadreifing en það er málað 1915 við upphaf abstraktsins og skoðast í samhengi við verk meistaranna Kandinskís, Malevits og Tatlins. Ein andlitsmynd af Lenín er á sýn- ingunni en hann sat sjálfur fyrir við skissugerðina. Hannes Sigurðsson fær hrós fyr- ir þessa sýningu. Það er mikið verðmæti fólgið í því að fá innsýn í menningu svo merkilegs menning- arsvæðis. Tímasetningin gæti held- ur ekki verið betri, umræður um sósíalismann hafa verið áberandi hér á landi í allan vetur og forseti Íslands er nýkominn úr sinni fyrstu opinberu för austur eftir. Það er fyllsta ástæða til að hvetja fólk til að skunda af stað og sjá sýninguna og mæli ég með að fólk gefi sér til þess góðan tíma. Rauð hamingja Rúsakovskíj-sporvagninn eftir Samúíl Adlívankín. MYNDLIST Listasafnið á Akureyri Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13–18. Til 26. maí. ÝMSIR MIÐLAR ÝMSIR LISTAMENN Þóroddur Bjarnason LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 31 SAMKVÆMT samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leik- félag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leik- flokkum afnot af húsnæði í Borg- arleikhúsinu til æfinga og sýn- inga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endur- gjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað LR vegna vinnu þeirra í Borgarleik- húsinu. Val þeirra leikflokka skal ákveðið af leikhússtjóra Leik- félags Reykjavíkur og fulltrúa sem samstarfsnefnd tilnefnir“. Samkvæmt ofangreindu er auglýst eftir umsóknum leik- flokka. Með umsókn skal senda greinargerð um verkefnið þar sem greint er skilmerkilega frá verkefninu, aðstandendum þess, framkvæmdaaðilum, listrænum stjórnendum og þátttakendum öllum. Einnig skal vönduð fjárhags- áætlun fylgja umsókninni sem berist leikhússtjóra Leikfélags Reykjavíkur eigi síðar en mið- vikudaginn 15. maí 2002. Leikflokkar fá afnot af Borgarleikhúsinu Auglýst eftir umsóknum SÝNINGUNNI Laxness og leik- listin sem Samtök um leikminja- safn standa fyrir í Iðnó lýkur í dag. Af því tilefni verður sérstök hátíðardagskrá kl. 15 þar sem Björn Bjarnason opnar nýja merkisdagasíðu tengda aldaraf- mæli Laxness. Merkisdagasíðurnar eru sér- stakar síður á heimasíðu samtak- anna, leikminjar.is, þar sem lista- mönnum og sögulegum viðburðum íslenskrar leiklistar eru gerð sér- stök skil. Fyrr í vetur var opnuð síða tileinkuð Vali Gíslasyni leik- ara. Þá munu leikarar flytja efni úr verkum Halldórs Laxness og Ingi- björg Guðjónsdóttir söngkona syngur lög eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Lokadagur sýningarinnar Laxness og leiklistin TVÆR breytingar hafa orðið á hlutverkaskipan í Hollendingn- um fljúgandi eftir Richard Wagner sem Íslenska óperan, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík setja upp í samein- ingu. Antje Jansen syngur Sentu á móti Magneu Tómas- dóttur í stað Elínar Óskar Ósk- arsdóttur sem þurfti að hverfa frá hlutverkinu vegna veikinda. Magnea mun syngja á þremur sýningum; frumsýningu og fjórðu og fimmtu sýningu en Antje syngur á annarri og þriðju sýningu. Þá mun Anna Sigríður Helgadóttur syngja Mary í stað Alinu Dubik. Hollendingurinn fljúgandi Tvær nýjar söngkonur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.