Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 34

Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 34
LISTIR 34 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ AÐEINS 10% sætanýting var á tónleikun- um og skal engum getum að leitt hvort hafi vegið þyngra, framsækið dagskrárefni eða upplýsingaskortur í símsvara og á heimasíðu hússins. Stofnuninni til hróss má hins vegar nefna, að tónleikaskráin var óvenjuvel búin upplýsingum um flytjendur, höfunda og verk. Flytjendur starfa allir á Akureyrarsvæðinu. Vigdís Klara Aradóttir og Guido Bäumer léku fyrst Duo-Sonata eftir Sofiu Gubaidulina (f. 1931), upphaflega samda fyrir tvö fagott en síð- ar umritaða fyrir 2 barýtonsaxófóna. Vel skrif- að verk, sem sömu aðiljar fluttu raunar áður á sama stað fyrir 15 mánuðum að undirrituðum viðstöddum, mótaði viðtökuandrúmsloftið fyrir frumflutning nýs verks eftir Atla Heimi Sveinsson, Grand duo concertante nr. 5. Þetta nýjasta dúó Atla fyrir tvo hljóðfæra- leikara og tónband minnti hvað aðferð varðar á tvö eldri verk í samnefndum flokki. Sú virtist einkum sverja sig í ætt við „indetermínisma“ eða slembihyggju 6. áratugar, með nóteruðu tónefni flytjenda í „kössum“ milli þagna sem mætti endurtaka eða jafnvel spinna úr að vild (alltjent hljómaði það þannig), meðan tónband- ið malaði stöðugt. Líkt og í fyrri grand dúóum var bandefnið mikið til unnið úr barnsröddum frá leikskóla, en að þessu sinni stillt svo hátt að litlu skinnin urðu að skrímslum er iðulega yf- irgnæfðu tónlistarmennina. Vel má vera að ónotalegt yfirbragðið hafi helgazt af undirtitl- inum „til vökunnar helkalda voðadraums“. Enda varð hlutskipti hlustandans fremur óþægilegt þegar nýjabrumið dofnaði eftir fyrstu mínúturnar og skerandi hávaði – og smám saman tilbreytingarleysi – varð öðru yf- irsterkara. Breytti litlu að flytjendur lögðu sig augljóslega alla fram. Þrátt fyrir fulla kort- érslengd bar verkið né heldur með sér að hafa kostað mikla yfirlegu. Í bezta falli mætti segja um tónsmíðina, að hér virtist sízt verið að hygla skyndibitaþörfum fjöldans. Þríþætt Sónata síberska tónskáldsins Edis- ons Denisovs (1929–96) fyrir hina óalgengu samstæðu altsaxófóns og sellós var samið 1994. I. þáttur var borinn uppi af líflegum „samræð- um“ hjóðfæranna. II. (Tranquillo) mótaðist af vel unninni raddfærslu þrátt fyrir háafstrakt tónmál, og III. var e.k. umbreytt passacaglía með plokkað selló í þrábassahlutverki. Túlkun dúósins var hvarvetna ljóðræn og vönduð. Loks lék þríeykið saman verk eftir örugg- lega minnst þekkta höfund dagskrár, hina austurrísku Olgu Neuwirth (f. 1968). Verkið nefndist Fondamenta fyrir bassaklarínett (í höndum Vigdísar Klöru), barýton- og tenór- saxófóna og selló. Eins og nafnið bar með sér var mest málað í dýpri enda tónalitrofsins, s.s. „Undirstöðunni“, með oft ferskum og fallega hljómandi samsetningum. Þrátt fyrir einstaka sérkennilega sjónræna tilburði – eins og að láta sellistann kljúfa loftið með boganum í of- boði, líkt og verið væri að hálshöggva draug – bauð verkið af sér furðumikinn þokka. Enda hér sem fyrr leikið af þeirri öguðu samstillingu og markvissu tjáningargleði er einkennir góða hljómlistarmenn – sama hvað við er að etja. TÓNLIST Salurinn Sofia Gubaidulina: Duo-Sonata. Atli Heimir Sveins- son: Grand duo concertante nr. 5 (frumfl.). Edison Denisov: Sónata f. A-sax og selló. Olga Neuwirth: Fondamenta. Vigdís Klara Aradóttir, saxófónar og bassaklarinett; Guido Bäumer, saxófónar; Pawel Panasiuk, selló. Laugardaginn 27. apríl kl. 17. KAMMERTÓNLEIKAR Músík hinna fáu Ríkarður Ö. Pálsson Út er komið hjá Máli og menningu rit- ið Þingvallavatn – undraheimur í mótun í ritstjórn Péturs M. Jón- assonar, prófessors við Kaup- mannahafnarháskóla, og Páls Her- steinssonar, prófessors við Háskóla Íslands. Í kynningu segir: „Þingvallasvæðið er eitt af undrum veraldar. Ummerki um flekaskil milli heimsálfanna tveggja, Evrópu og Ameríku, eru hvergi augljósari en einmitt þar sem Þingvallavatn fyllir hluta sigdæld- arinnar sem myndaðist er flekana rak hvorn frá öðrum. Svæðið er enn á hreyfingu og þar er náttúruleg rann- sóknarstofa á flestum sviðum nátt- úruvísinda. Tákn Þingvalla, Skjald- breiður, rís tignarlegt upp úr sigdældinni og síar jökulgorminn úr vatninu frá Langjökli svo að blátært lindarvatn brýst fram undan hrauns- kildinum við strendur og á botni Þing- vallavatns. Á þeim 10 þúsund árum sem liðin eru frá myndun vatnsins hafa þróast þar fjögur bleikjuafbrigði sem gera vatnið að einum yngsta leikvelli þróunarfræðinnar á jörðu. Í uppsprettum Þingvallvatns uppgötv- aðist nýlega ævafornt helladýr, náföl og ljósfælin marfló sem þar hefur lif- að í grunnvatni eða undir ís í milljónir ára. Undanfarinn aldarfjórðung hafa far- ið fram afar viðamiklar rannsóknir á vatnasviði Þingvallavatns og er nú svo komið að þetta einstæða vist- kerfi er betur þekkt en flest önnur vatnasvið í heiminum. Alls hafa 50 vísindamenn, bæði íslenskir og er- lendir, lagt hönd á plóginn og sýnt fram á að vatnið sjálft og umgjörð þess er ein órjúfanleg heild. Töluvert á annað hundrað ritgerðir hafa birst um þessar rannsóknir í alþjóðlegum vísindaritum og rannsóknir á Þing- vallavatni eru efni 6 doktorsritgerða auk nokkurra meistararitgerða. Í bók- inni Þingvallavatn – undraheimur í mótun er þessi þekking dregin sam- an á einum stað á íslensku og gerð aðgengileg öllum almenningi. Jarð- fræði svæðisins, gróðurfari og dýra- lífi á vatnasviðinu er lýst. Ferill vatns- ins er rakinn allt frá Langjökli uns það sprettur fram annars vegar í iðr- um Þingvallavatns og hins vegar sem heitt vatn í Henglinum. Fæðuvefir vatnsbolsins sjálfs og botnsins eru útskýrðir og sýnt er hvernig efna- samsetning lindarvatnsins hefur áhrif á þörungagróður og smádýralíf í vatnsbol og á botni. Efstir í fæðu- vefnum eru svo fiskar og fuglar sem eiga allt undir því að vatnið sé vernd- að svo að lífsferlar gróðurs og smá- dýra raskist ekki. Í bókinni er einnig lýst sumum þeim mistökum sem gerð hafa verið við framkvæmd friðunar á helgistað þjóðarinnar á Þingvöllum og bent á hvernig varast megi að eyðileggja Þingvallasvæðið svo að komandi kyn- slóðir fái að njóta þess um alla fram- tíð.“ Bókin er 303 blaðsíður prýdd fjölda ljósmynda. Þorsteinn G. Jóns- son sá um umbrot. Prentun: Prent- smiðjan Oddi hf. Skýringamyndir og kápuhönnun: Næst. Kort: Ólafur Valsson og Hans Hansson. Leiðbeinandi verð: 7990 Náttúrufræði Morgunblaðið/Ásdís Ritstjórarnir Páll Hersteinsson og Pétur M. Jónasson. Grænland er eftir Leif Aidt í þýð- ingu Sigurðar Helgasonar og Völundar Jóns- sonar. Í kynningu seg- ir m.a.: Grænland – firnastórt með fjarlægum byggðum handan jökulísa, en þó svo skammt undan. Og engir búa nær okkur á erlendri grund en fólkið við fjörðinn mikla í norðri, Scor- esbysund. Fleira er mótsagnakennt þegar við lítum til þessara granna okkar – menning og hlutskipti á marg- an hátt frábrugðið en þó sumt furðu líkt, einkum það sem skiptir sköpum: strjálbýli og barátta við hverflynda náttúru sem er veiðimanninum mis- gjöful hvort sem hann leitar einn fanga á fari sínu eða stendur í brú á verksmiðjuskipi, umkringdur raf- eindatækjum. Útgefandi er Námsgagnastofnun. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda, korta og skýringarteikninga. Kennslubók

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.