Morgunblaðið - 01.05.2002, Qupperneq 35
SÝNING Lárusar H. List í Deigl-
unni á Akureyri skiptist í tvennt, ann-
ars vegar ljósmyndaverk og hins veg-
ar málverk, samtals 26 verk.
Í málverkunum er lita- og leikgleði
ríkjandi en á móti kemur að þau
skortir flest nægjanlegan þroska og
dýpt. Lárus málar frekar þunnt og
lætur formin raðast upp hvert ofan á
annað þannig að úr verða klasar af
formum. Besta málverkið á sýning-
unni er mynd númer 3, Fuglabjarg,
en þar tekst listamanninum að skapa
þrívídd og dýpt. Einnig má nefna
mynd númer 23 sem vel formaða. Í
sumum myndum er eins og vand-
ræðagangur ráði för þegar stór
gegnsæ svæði verða eftir á fletinum,
eins og listamaðurinn eigi eftir að
klára þær myndir.
Ljósmyndirnar eru þrennskonar;
myndir sem tengjast sjávarútvegi,
módelmyndir og svo myndir af flöt-
um, einskonar áferðarrannsóknir.
Ljósmyndirnar minna á skólaverk-
efni á ljósmyndanámskeiði eða rann-
sóknarvinnu málara í leit að skemmti-
legu mótífi. Áhugaverðasta
ljósmyndaverkið er án efa myndin
Vorboðinn, en þar hefur Lárus tekið
mynd af förumanni sem samkvæmt
listamanninum er kallaður Vorboðinn
af því að hann kemur ávallt til byggða
á vorin. Hér nær Lárus góðu sam-
bandi við umfjöllunarefni sitt og segir
áhugaverða sögu
Ljósmyndirnar bera almennt vott
um listrænt auga og næmi Lárusar
H. List fyrir umhverfinu, þó svo að
hann eigi enn töluvert í land með
notkun ljósmyndunar sem miðils.
HVENÆR er texti myndlist og
hvenær er hann eitthvað annað, t.d.
ljóð. Er nóg að setja hann upp á vegg
til að hann verði myndlist og er nóg að
setja hann í bók svo að hann verði rit-
list? Þessar spurningar koma upp í
hugann þegar sýning Guðbrandar
Sigurlaugssonar er skoðuð en hann
hefur hengt upp fimm textaverk á
vegg sem öll eru unnin í blikk og vínil.
Hann sker texta út úr vínilmottu og
límir á blikkplöturnar. Hér er um
myndlist að ræða og hverju og einu
verki er ætlað að vekja áhorfandann
til tilvistarheimspekilegra hugrenn-
inga. Samt detta manni ljóð í hug:
Ekki að það sé betra heldur best
Verði þetta aðeins meira verður það mest
Ekki það sem sýnist heldur það sem sést
Ekki hvað hér stendur heldur hvað þú lest
Ekki vildi ég vera dauður núna, nei.
Notkun texta sem meginuppistöðu
í myndlistarverkum er viðurkennd
aðferð innan greinarinnar og má
nefna listamenn eins og Lawrence
Weiner, Jenny Holtzer, Kristin
Hrafnsson og Rögnu Sigurðardóttur í
því samhengi. Af verkum þeirra má
sjá með hve ólíkum og oft áhrifamikl-
um hætti hægt er að setja fram texta.
Sýning Guðbrandar er snyrtileg og
átakalaus og gengur vel upp í einfald-
leik sínum. Guðbrandur mætti þó
íhuga fjöbreytilegri framsetningar-
máta á textum sínum í framtíðinni og
auka þannig slagkraft skilaboðanna.
Leikgleði
Fuglabjarg eftir Lárus H. List.
Þóroddur Bjarnason
Kaffi Karólína
Sýningu lokið.
TEXTAVERK
GUÐBRANDUR SIGURLAUGSSON
MÁLVERK OG LJÓSMYNDIR
LÁRUS H. LIST
Opið alla daga frá kl. 14–18. Til 1. maí.
Deiglan
MYNDLIST
Verk eftir Guðbrand Sigurlaugsson.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 35