Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 39

Morgunblaðið - 01.05.2002, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 39 „ÉG TEL að sú aðferð sem við völdum, að ræða við forystumenn sveitarfélaga og fyrirtækja aug- liti til auglitis, hafi verið hárétt og skilað þeim árangri að allir fundu til ábyrgðar sinnar og vildu leggja sitt af mörkum með verðlækkunum til að vísitala neysluverðs yrði undir rauða strikinu. Þessi aðferð gafst vel við þessar aðstæður og að mati okkar mun betur en ef komið hefði einhver skipun að ofan um að grípa til aðgerða,“ segir Grét- ar Þorsteinsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands, um þann ár- angur sem náðst hefur, m.a. fyrir tilstilli ASÍ, í lækkun vöruverðs til þess að freista þess að halda vísitölunni undir 222,5 stigum, rauða strikinu. Grétar Þorsteinsson segir að aðdragandann að herferð ASÍ megi rekja til síðasta árs. Þá hafi forystumenn ASÍ séð að í óefni stefndi varðandi verðlags- og verðbólgumál og síðla síðasta sumars hafi verið settar fram nokkrar tillögur til að sporna við verðbólgu. Stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins hafi einnig verið með í þeirri umræðu og leitað hafi verið sameiginlega leiða til að draga úr verð- bólgu. Það hafi á endanum leitt til samningsins 13. des- ember milli ASÍ og SA og hafi rík- isstjórnin einnig átt aðild að honum en samningurinn var gerður í kjölfar for- mannafundar ASÍ þar sem rík stemmning hefði verið fyrir þessum aðgerðum. Eftir vísitölumælingu í janúar sagði Grétar að þyrmt hefði yfir menn vegna þess hve há hún var og menn hafi velt því fyrir sér hvort málið væri þegar tapað. „Við sáum að það gengi ekki að gefast upp og ákváðum að heim- sækja öll stóru sveitarfélögin, stóru matvörukeðjurnar, trygg- ingafélög, banka, flutningafélög, olíufélög og fleiri til að benda þeim á þátt þeirra í að hemja verðbólguna. Það kom okkur þægilega á óvart að málflutn- ingi okkar var tekið vel. Við sögðum ekki þið eigið að lækka verðið heldur að það skipti þá ekki síður máli en okkur að það takist að hemja verð- lag og lækka verð- bólgu. Nær und- antekningalaust voru undirtektir og síðan framkvæmdir þess- ara aðila mjög já- kvæðar og þeir brugðust við með lækkunum með einhverjum hætti. Þannig fundum við að í samfélaginu var að skapast stemmning fyrir þessum aðgerð- um.“ Bjartsýnn á árangur Grétar segir að fundirnir með þessum aðilum um land allt og á höfuðborgarsvæðinu hafi skipt tugum. Hann segir menn hafa hrokkið nokkuð við eftir mæl- ingu í mars og nokkuð hafi borið á þeirri skoðun að allar stíflur myndu bresta. Hann sagði hins vegar engar forsendur til þess að slíkt myndi gerast. „Við höfum náð þessum ár- angri vegna þess að krónan hefur styrkst verulega og stemmningin í þjóðfélaginu er þannig. Vara sem við erum að fá erlendis frá er ódýrari og vextir eru að lækka og ég minni á orð forsætisráð- herra á ársfundi Seðlabankans um að nú væri hafin hrina vaxta- lækkana sem ég vona að gangi eftir. Það eru allar forsendur til þess,“ segir Grétar einnig. Hann segir síðustu mælinguna eftir nú í byrjun maí og kveðst bjartsýnn. „Það á ekki að vera áhyggju- efni að verðlag hér snarhækki í maí og júní og ég held þvert á móti að ef þetta tekst séu yfir- gnæfandi líkur á að við séum bú- in að tryggja lága verðbólgu næstu misserin. Ég er mjög bjart- sýnn á að þetta takist og hef ver- ið það frá byrjun.“ Telur persónulegar viðræð- ur hafa skilað árangri Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ. Forseti ASÍ kveðst bjartsýnn á að verðlag haldist í skefjum g gróður Tjarnaver tu rústa- un fram- s. Alls er órsárver- km² sem rtlögðum ein áhrif en um- dhalla og mdaraðili alsverð á æf.“ Sam- lón í 575 land inn- r fornleif- gildra og 3,6 km af ða í hættu ugsanlega rra mót- r verða dliðdýra. st þau að rfis lón u og bak- svæðum óni. Jarð- i fer und- m 0,5 km² a í hættu nnsli sem ð rennsli flu. Land öfða, lón- alið er að 100 ár, að fram að hafi leitt til þess að tilhögun framkvæmda hafi verið breytt verulega til að draga úr eða koma í veg fyrir alvar- leg neikvæð umhverfisáhrif. „Að mati framkvæmdaraðila er niðurstaða mats á umhverfisáhrifum að með Norðlingaölduveitu með lón í 575 m y.s. haldi friðland Þjórsárvera einkennum sínum og að breytingar verði ekki á forsendum fyrir tilvist veranna. Þar með telur Landsvirkj- un að sýnt hafi verið fram á með rök- studdum hætti að nýting og verndun Þjórsárvera fari saman og sé í sam- ræmi við þá stefnumörkun ríkisins sem kemur fram í auglýsingu nr. 507/1987 um friðlýsingu Þjórsárvera og nýtingu svæðisins. Það er jafnframt skoðun fram- kvæmdaraðila að við umfjöllun um áhrif framkvæmdarinnar á umhverf- ið hefur ekkert komið fram sem bendir til þess að Norðlingaölduveita með lón í 575 m y.s. brjóti í bága við lög, reglur eða alþjóðasamninga. Landsvirkjun hefur með breyttri tilhögun Norðlingaölduveitu minnk- að umfang framkvæmdar og dregið verulega úr neikvæðum umhverfis- áhrifum hennar. Þá tryggja aðrar mótvægisaðgerðir að enn frekar verði dregið úr umfangi áhrifa. Á grunni þessara upplýsinga telur Landsvirkjun að matsskýrslan sýni að framkvæmdin komi ekki til með að hafa umtalsverð neikvæð áhrif á umhverfið og að nýting og verndun Þjórsárvera geti farið saman.“ Úrskurður í sumar Landsvirkjun hefur lagt mats- skýrsluna fyrir Skipulagsstofnun, sem kveður upp úrskurð í sumar. um Norðlingaölduveitu                                                        !          "  #     $   !          &    $                    !   "        "2$)*          ! "  #    "    #!         $"    ! !    " #    &$ ! $1' *$16 !*+# 41&+ EFLING – stéttarfélag,Verkalýðsfélagið Hlíf íHafnarfirði og Verka-lýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, félögin í Flóabandalag- inu, fengu Gallup til að kanna fyrir sig í febrúar síðastliðnum ýmis at- riði í viðhorfum félagsmanna sinna til kjaramála og þjónustu félag- anna. Meðal helstu niðurstaðna er að 89% félagsmanna vilja leggja áherslu á hækkun lægstu launa, 42% telja fjárhagsstöðu sína betri nú en fyrir þremur árum, 30% fé- lagsmanna hafa nýtt sér einhverja þjónustu félaganna síðustu 12 mán- uði og af þeim voru tæp 90% ánægð með þjónustuna. Úrtakið var 1.390 félagsmenn í félögunum þremur og eftir að tekn- ir höfðu verið út nokkrir sem ekki sögðust vera félagar, töluðu ekki ís- lensku eða voru erlendis varð úr- takið 1.294. Hóparnir innan hvers félags eru sambærilegir. Er því litið svo á að niðurstöðurnar endurspegli öll félögin saman og hvert um sig á sama hátt. Könnunin fór fram 7. til 25. febrúar og svöruðu alls 834 könnuninni sem þýðir 64,5% svar- hlutfall. Spurningar könnunarinnar voru 62. Í helstu niðurstöðum um kjara- mál sögðust 63% sammála því að lögð yrði áhersla á sömu hækkanir fyrir alla og 37% voru fylgjandi fyr- irtækjasamningum. Voru 83% sam- mála því að leggja áherslu á fyrir- tækjasamninga þótt það gæti þýtt mismunandi hækkanir milli hópa. Þá töldu 42% fjárhagsstöðu sína betri nú en fyrir þremur árum, 30% töldu hana verri og 28% kváðu hana svipaða. Rúmlega helmingur taldi hækkun matvöruverðs megin- ástæðu fyrir verri afkomu og 18,3% töldu launaþróun í landinu ástæðu verri fjárhagsstöðu. Spurt var hvort leggja beri áherslu á krónutölu- hækkun launa eða hlutfallslega og voru 54% fylgjandi krónutöluhækk- un en 46% vildu prósentuhækkun. Fyrsta spurning könnunarinnar var á þessa leið: Í síðustu samning- um lögðu félögin innan Flóabanda- lagsins sérstaka áherslu á hækkun lægstu launa. Ertu sammála eða ósammála þessari áherslu? Sam- mála lýstu sig 89%, ósammála voru 7% og 4% sögðu hvorki né. Konur eru að jafnaði meira sammála hækkun lægstu launa en karlar. Þeir sem sögðust sammála áherslu Flóabandalagsins um hækkun lægstu launa voru spurðir hvort þeir vildu slíka hækkun þótt það þýddi minni almenna hækkun. Kváðust 83% sammála því en 11% voru ósammála. Karlar unnu ívið meiri yfirvinnu en konur en spurt var hversu marga tíma fólk hefði unnið vikuna áður. Helmingur vann enga yfirvinnu, 21,4% vann einn til níu tíma, 16,8% vann 10 til 19 tíma, 6,7% vann 20 til 29 tíma og 4,4% vann 30 tíma eða fleiri. Spurningu um hvort leggja ætti áherslu á vinnutímabreytingu í kjarasamn- ingu kváðust 65% sammála því, and- vígir voru 19% og 16% tóku ekki af- stöðu. Ívið fleiri konur en karlar voru sammála þessu atriði. Þá voru 74% hlynnt því að lögð yrði áhersla á húsnæðismál, 86% vildu áherslu á verðlagsmál, 90% á skattamál og 83% á vaxtamál. Þá var spurt hvað annað skyldi leggja áherslu á og voru þar nefnd atriði eins og að samningum sé fylgt, veikindarétt foreldra, hækkun skattleysismarka, öryggismál og tryggingar, vinnu- fatnað og nota umbun. Finnst þér sá tími sem þú hefur fyrir fjölskyldu og áhugamál vera of mikill, hæfilegur eða of lítill? var ein spurningin. Sögðu 49% hann hæfi- legan, 48% töldu hann hæfilegan en 3% sögðu frítíma vera of mikinn. Áhugamál sín sögðu flestir vera úti- vist, ferðalög, fjölskylduna og íþróttir en margir nefndu einnig bóklestur, líkamsrækt og tónlist. Fáeinir nefndu sauma, ljósmyndun, sumarhúsið eða rólegheit heima fyrir. Þá má nefna að meðal niður- staðna er að karlar telja sig betur stadda fjárhagslega en konur miðað við stöðu sína fyrir þremur árum, konur eru fjölmennari í þeim hópi sem nýta sér starfsmenntasjóði og yngri hópar eru ákveðnari í því en þeir eldri að skipta um starf á næstu þremur árum, sérstaklega í mat- væla- og veitingageira. Nauðsynleg könnun Sigurður Bessason, formaður Eflingar, tjáði Morgunblaðinu að fé- lögin hefðu talið nauðsynlegt að fara út í þessa viðhorfskönnun til að sjá hvort félögin væru á réttri leið í starfi sínu fyrir félagsmenn. Hann sagði hana í heild vera staðfestingu á því að félögin væru á réttri leið bæði hvað varðar þætti er snúa beint að þjónustu við félagsmenn og í kjarabaráttunni sjálfri. Meðal þess sem Sigurður sagði ofarlega í hugum félagsmanna væri að leggja beri áherslu á hækkun lægstu launa jafnvel þótt það leiddi til þess að önnur laun hækkuðu minna. Sagði hann það staðfesta áhersluna sem fram kom í samning- unum árið 2000. Einnig sagði hann marga segja fræðslu skipta miklu máli, 85% félagsmanna teldu að fræðsla og námskeið skilaði þeim betri kjörum og 67% telja sig þurfa á námskeiðum að halda til að þróast í starfi. Þá sagði hann líka athygl- isvert að 82% félagsmanna teldu að atvinnurekandi sinn sé jákvæður gagnvart starfsmenntun. Segir Sig- urður það líka sýna að boltinn lægi að nokkru leyti hjá fyrirtækjunum hvað þetta varðaði. Viðhorfskönnun Flóabandalagsins til þjónustu og baráttu verkalýðsfélaganna Um 89% félagsmanna leggja áherslu á hækkun lægstu launa Í viðhorfskönnun verkalýðsfélaga í Flóabanda- laginu kemur m.a. fram að 42% telja fjárhags- stöðu sína betri nú en fyrir þremur árum. 30% telja hins vegar að hún hafi versnað, fyrst og fremst vegna hækkunar á matvöruverði. Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.