Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 43

Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 43 Í ÁR eru rétt 230 ár frá því Rússar, Prússar og Austurríkismenn hófu að skipta Póllandi á milli sín. Árið 1795 var því verki lokið með því að landið var afmáð af kortum Evrópuríkja og birtist þar ekki aftur svo orð væri á gerandi fyrr en 1918. Þriðja maí 1791, fyrir réttum 211 árum síðan, gekk í gildi byltingar- kennd stjórnarskrá. Pólland var þá ásamt Frakklandi evrópskur brautryðjandi í gerð lýðræðislegra stjórnarskráa. 15 árum áður höfðu Bandaríki Norður-Amer- íku gefið tóninn. Stjórnarskrá Pól- lands innleiddi þingbundna konungs- stjórn í fyrsta sinn í gjörvallri mannkynssögunni og lagði grunn að þingræðislegri ábyrgð þings og ráð- herra jafnframt sem smábændur öðl- uðust réttarbætur og lögbundið rétt- aröryggi. Það fór hins vegar með réttarbætur 3. maí stjórnarskrárinn- ar eins og margar góðar hugmyndir að þær komust aldrei í framkvæmd, urðu aðeins fögur fyrirheit á blaði. Á næstu fjórum árum, 1793 og 1795, skipti nágrannaríkin þrjú Pól- landi á milli sín. Pólland hvarf, Pól- verjum var bannað að mæla á tungu sína, en Pólverjar hurfu þrátt fyrir allt ekki. Ef til vill má segja að Pól- verjar sjálfir hafi átt nokkurn þátt í örlögum sínum. Ef svo var, má full- yrða að eitt afdrifaríkasta skrefið hafi verið stigið þann þriðja maí 1791, skref sem í senn er stolt þeirra og harmur. Nú minnast Pólverjar 3. maí stjórnarskrárinnar hvert ár og hafa gert daginn að öðrum tveggja þjóðhá- tíðardaga sinna. Hinn er 11. nóvem- ber, friðardagurinn 1918, en frá þeim degi hefur Pólland aftur verið á kort- um Evrópuríkja, þótt það hafi á köfl- um reynst þrautin þyngri að tolla þar. Pólverjar Grimm örlög Pólverja á 19. öld ollu því að fáar Evrópuþjóðir flúðu land sitt í jafn ríkum mæli og þeir, að því leyti eru þeir í flokki með Írum. „Sléttumannaland“ nefndi Halldór Laxness land þeirra og leiddi það af nafninu Pole sem þýðir akur á máli þarlendra. Þetta frjósama land, forðabúr Evrópu um aldir, þaðan sem Íslendingar fengu sitt besta korn á tímum einokunarverslunar, þetta land neyddust bændur og búalið að flýja, áratug eftir áratug. Pólskir far- andverkamenn voru jafn árviss þáttur í at- vinnulífi nágrannaþjóða eins og verferðir ís- lenskra bænda og vinnumanna. Jafnvel á 9. áratug 20. aldar þeg- ar ríkið sem kenndi sig við „sósíalismus“ og al- þýðu var komið að fót- um fram, mátti hitta háttsetta pólska ráða- menn við jarðarberjat- ínslu á Sjálandi og Skáni. Við Íslendingar höfum borið gæfu til að sumir hafa kosið Ísland sem viðkomustað, til skemmri eða lengri tíma. Sumum hefur jafnvel, gegnt öllum lögmálum, fallið svo vel vistin hér að þeir hafa sest hér að og gerst íslenskir ríkisborgarar. Nú eru Pólverjar stærsta þjóðar- brot á Íslandi og fer stækkandi. Hér á landi er starfandi vináttufélag Íslend- inga og Pólverja (VÍP) sem er opið öllu áhugafólki um gagnkvæm tengsl þessara tveggja þjóða. Póllandskynning VÍP og Ferðaskrifstofunnar Emblu Áhugi Íslendinga á Póllandi og pólskri menningu og sögu hefur auk- ist undanfarin ár sem m.a. hefur leitt til fjölda ferða undirritaðs með Ís- lendinga um „Sléttumannaland“. Svo mikill hefur áhuginn verið að í lok hverrar ferðar hefur verið spurt, hvert förum við næst? Nú hefur tekist samvinna með Vináttufélagi Íslend- inga og Pólverja og Ferðaskrifstofn- unni Emblu um skipulagðar ferðir til Póllands. Af því tilefni verður haldin kynning í Norræna húsinu þann 2. maí kl. 20:00. Sýndar verða myndir úr fyrri ferð- um, kynnt fyrirhuguð ferð í septem- ber næstkomandi, íslenskumælandi Pólverjar gefa upplýsingar um sín heimahéruð og borgir, listamenn troða upp og íslenskir innflytjendur kynna vöru sína. Allir eru hjartanlega velkomnir. Þorleifur Friðriksson Sagnfræði Hér á landi er starfandi vináttufélag Íslendinga og Pólverja, segir Þorleifur Friðriksson, sem er opið öllu áhugafólki um gagn- kvæm tengsl þessara tveggja þjóða. Höfundur er sagnfræðingur og formaður VÍP. Pólland – 3. maí stjórnarskráin Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.