Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 47

Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 47 ÞAÐ er ekki von að ég átti mig á R-listan- um í Reykjavík; alin upp á Húsavík þar sem allflestir fórnuðu sér fyrir Sambandið í þeirri trú að maðurinn mætti þakka fyrir það eitt að fá að éta. Einnig höfðu menn á hreinu að Guð væri kaupfélagsstjóri. Enda hver vill ekki mæta skapara sínum í auðmýkt? Menn unnu myrkr- anna á milli til þess eins að fá mat út í reikning. Ekki var spurt um verð á ag- úrkunni á þeim tíma. Verðið var löngu ákveðið fyrir sunnan þannig að enginn hafði áhyggjur af því. Bændurnir fengu bara mat þeg- ar fært var í bæinn en voru dug- legir að byggja upp þann iðnað sem við erum einna stoltust yfir á þessu landi; mjólkuriðnaðinn. Hverjir eiga aftur mjólkuriðn- aðinn núna? Eða kaupfélögin? Ég man þetta ekki svo ljóst, enda skiptir það örugglega ekki máli frekar en hverjir eiga Reykjavík- urborg. Nú er svo komið að Húsvíking- urinn finnur að grasrótarstefna Sambandsins var í engu frábrugð- in stefnu R-listans, þ.e.: „Við sjáum um ykkur vesalingar …“ Ég hef lengi reynt að þegja og þætti Alfreð Þorsteinssyni það örugglega þægilegra þar sem ég get engan veginn áttað mig á því hugrekki að á árinu 2002 séu op- inberar stofnanir, já svona eins og Sambandið á sínum tíma, að rétta fólki matarmiða í einu formi eða öðru. Hafið þið hjá R-listanum aldrei heyrt að hjá flestum þjóðum er bú- ið að taka upp nýtt hagstjórnar- kerfi? Að í flestum borgum eru breytt- ir tímar, að Sovétríkin liðu undir lok, að á Íslandi er lýðræði, að nú eru það viðurkennd mannréttindi að þurfa ekki að betla, múta eða drepa til þess eins að hafa ofan í sig og á? Svo er það líka viðurkennt í mörgum borgum heims að menn fái að skapa öðrum atvinnu, það er kallað fyrir- tækjarekstur. Þar, í hinum borgunum, er því fylgt eftir að fyr- irtækin þurfi aldrei að óttast samkeppni við stjórnvöld, en vissulega er það nú frekja. Nýju heilsurækt- inni í húsinu okkar á eftir að farnast vel. Allir borgarbúar geta ekið framhjá og sagt: „Þetta er heilsurækt- in mín.“ Ég get ekki hugsað mér að bjóða í reksturinn. Ég gæti ekki hugsað mér að gera öðrum heilsu- ræktarstöðvareigendum það að þeir sjálfir hefðu greitt fyrir mig allan stofnkostnað, bygginguna, innréttingar, markaðssetninguna og svo vatn, hita og rafmagn. Mér fyndist ég þá hafa svikið lýðræðið. Ég sæki því ekki um Alfreð minn og það er þér mikill léttir, þar sem ég er svo óþolandi gagn- rýnin á þín verk. Við tölum ekki sama mál, ekki einu sinni af sama stofni. Mér finnst þú einhvern veg- inn svo forngrískur í hugsun. Mik- ið fyrir minnisvarða. Það eitt að þú skulir voga þér enn eina ferðina að fara í beina samkeppni við einkarekin fyrir- tæki er náttúrulega bara bráð- skondið. Hitt er ekki skondið að hinir í R-listanum þegi yfir þér. Þau halda ef til vill að þú sért Guð og vilja mæta þér í auðmýkt. Alfreð, það er löngu búið að semja lög á Íslandi um samkeppni við einkavædd fyrirtæki og það er líka búið að finna upp nýtt hag- kerfi í hinum vestræna heimi. En það eru enn til lönd þar sem hugs- unarháttur R-listans virkar dável, eins og t.d. á Kúbu. Hvernig væri að fulltrúar R- listans færu bara sjálfir út í við- skipti þar sem áhugi þeirra á fyr- irtækjarekstri blasir alls staðar við? Getur verið að þeir óttist að taka ábyrgð, veðsetja húsin sín, fjölskyldur sínar og að þeir óttist að þurfa að greiða sjálfir fyrir skemmtiferðirnar til Ungverja- lands til þess eins að læra hvernig ríkisreknar heilsuræktarstofnanir eru reknar þar? Getur verið að þeir treysti sér ekki til að rífast við stöðumæla- verði, gatnagerðarmenn, óláns- menn, glæpamenn, gleðikonur og lögregluna? Getur verið að vinir þeirra sem hanna grjótið í Austur- strætinu og láta rífa upp malbikið fái ekkert að gera? Getur verið að miðborgin þeirra verði okkar? Ég hvet R-listann til þess að ákveða hvar í heiminum hann vill koma sér niður, því ekki á hann heima í frjálsu hagkerfi íslensku þjóðarinnar. Við kjósendur þurfum að ákveða hvort í Reykjavík verða teknir upp matarmiðar eða hvort við viljum fá að upplifa breytingar líkt og gerist meðal þróaðra ríkja hins vestræna heims. Í raun er ég ekki alveg viss um hvað virkar best … en tel samt betra að snúa ekki til baka. Þeir sem eru kosnir af okkur eiga að greiða götu okkar, ekki loka henni. Þeir sem eru kosnir af okkur eiga að greiða fyrir atvinnusköpun en ekki vera í rekstri. Hvað er að gerast Ingibjörg Sól- rún? Þú þessi greinda kona. Vonandi var þetta síðasta útspil Alfreðs bara aprílgabb. Jónína Benediktsdóttir Reykjavík Þeir sem eru kosnir af okkur, segir Jónína Benediktsdóttir, eiga að greiða fyrir atvinnusköpun en ekki vera í rekstri. Höfundur rekur heilsuræktarstöðvar. Heilsuræktar- stöð R-listans SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur valið að leggja til atlögu við tvö mikilvæg þjónustufyrirtæki borgar- búa, Reykjavíkurhöfn og Orkuveitu Reykjavíkur. Það er markmið Sjálf- stæðisflokksins að einkavæða Orku- veituna annars vegar og þrengja svo að höfninni hins vegar að hún eigi ekki neina vaxtarmöguleika til fram- tíðar. En hvaða máli skiptir Reykja- víkurhöfn? Undirstaða efnahagslífs Um leið og hafnargerð hófst í Reykjavík, á öðrum áratug síðustu aldar, var lagður grunnur að því að gera höfuðborg Íslands að alþjóðlegri viðskipta- og þjónustumiðstöð í Norð- ur-Atlantshafi. Nú, um 85 árum síðar, velkist enginn í vafa um að höfnin er auk þess ein sterkasta undirstaða efnahagslífs þjóðarinnar. Stærstur hluti alls inn- og útflutnings lands- manna fer um Reykjavíkurhöfn og hún er einnig með stærstu verstöðv- um landsins. Árlega fara þúsundir er- lendra ferðamanna, sem heimsækja landið á skemmtiferðaskipum, um höfnina. Og á hafnarsvæðunum er að finna mörg framsæknustu tækni- og þjónustufyrirtæki á sviði sjávarút- vegs og fiskvinnslu. Daglega fara þús- undir sendi- og vöruflutningabifreiða um hafnarsvæðið með afurðir til út- flutnings um allan heim eða til að lesta innflutning sem síðan dreifist til allra landsmanna. Þegar litið er á þjóðarbúskap Ís- lendinga kemur í ljós að vægi hafn- arinnar er mjög mikið. Á hafnarsvæð- unum starfa um 400 fyrirtæki og fjöldi ársverka sem verða til vegna hafnarinnar er um 6.500 sem lætur nærri að vera um 6% heildarársverka á Íslandi. Hvorki meira né minna. Heildarvelta vegna fyrirtækja á hafn- arsvæðum Reykjavíkur eru 78 millj- arðar króna á ári. Þessum fyrirtækj- um, þessum störfum og þessari verðmætasköpun verður ekki vísað burt úr borginni með einu penna- striki. Fiskur, flutningar og ferðamenn Sjávarútvegur er mikilvægasta at- vinnugrein okkar Íslendinga. Vafa- laust verður svo áfram um mörg ókomin ár. Ein litríkasta starfsemi Reykjavíkurhafnar tengist einmitt fiskveiðum, fiskverkun og fiskafurð- um. Árið 2000 var t.d. landað um 80 þúsund tonnum af fiski í Reykjavík og tæplega 700 fiskiskip koma árlega til hafnarinnar til fisklöndunar. Reykja- víkurhöfn hefur kappkostað að bjóða sjávartengdum fyrirtækjum góðar byggingarlóðir með öflugri landgerð í Örfirisey og þar hefur nú risið eins konar verslunar-, tækni- og þjónustu- þorp í snyrtilegu umhverfi. Þar starfa íslensk fyrirtæki á sviði sjávarútvegs sem standast fyllilega alþjóðlega samkeppni hvað varðar þekkingu og tækni. Reykjavíkurhöfn er nú orðin ein vinsælasta viðkomuhöfn á Norður- Atlantshafi fyrir skemmtiferðaskip. Á síðustu tíu árum hefur fjöldi erlendra skemmti- ferðaskipa sem leggja leið sína til Reykjavíkur vaxið úr 25 í 49 og far- þegum með þessum skipum hefur fjölgað úr um 12 þúsundum í 27 þúsund, þannig að hátt í 10% erlendra ferða- manna sem koma hingað til lands á hverju ári koma um Reykjavíkur- höfn. Sundahöfn hefur um nokkuð langt skeið verið aðalvöruflutningamið- stöð Íslands og höfnin er nú fjórða stærsta gáma- höfn á Norðurlöndum. Yfir 70% alls innflutnings og meira en 40% alls út- flutnings landsmanna fer um Reykja- víkurhöfn þegar flutningar til álvers- hafnanna í Straumsvík og Hvalfirði eru frátaldir. Þannig er Sundahöfnin slagæð verslunar Íslendinga við um- heiminn. Öll þessi starfsemi skiptir sköpum fyrir atvinnulífið í borginni og raunar fyrir landið allt og það er að sjálf- sögðu ótrúlegt ábyrgðarleysi og skammsýni að vilja setja hana í upp- nám með því að vísa henni burt úr borginni eins og Sjálfstæðisflokkur- inn vill nú. Framtíðarsýn Hafnarsvæðin í Reykjavík verða að mestu fullbyggð eftir um 15 ár. Því er mikilvægt að höfnin eigi sér vaxtar- og þróunarmöguleika til framtíðar því víst er að enn um langa fram- tíð verður dreginn fisk- ur úr sjó við Íslands strendur og Ísland verður áfram eyja og þannig háð höfninni um inn- og útflutning landsmanna. Og höfn þarf helst að vera við sjó. Það hefur lengi verið pólitísk samstaða um það í Reykjavík að ætla höfninni framtíð- arstað í Eiðsvík, þótt sjálfstæðismenn hafi nú upp á síðkastið ákveðið að leggja til at- lögu við höfnina og setja framtíð hennar í fullkomna óvissu. Reykjavík- urlistinn er að sjálfsögðu reiðubúinn að skoða gaumgæfilega alla mögu- leika á þróun hafnarinnar, skoða aðra kosti frá umhverfislegu, efnahagslegu og samfélagslegu sjónarhorni. Slík vinna getur hafist strax á næsta kjör- tímabili. En á meðan engin rök eða sannfærandi tillögur hafa verið færð fyrir því að höfnin geti vaxið og dafn- að á öðrum stað en í Eiðsvík er ekki hægt að taka þessa lífæð efnahags- og atvinnulífs þjóðarinnar, setja hana á kaldan klaka og vísa henni burt úr borginni. Það væri óðs manns æði. Reykjavíkurhöfn skiptir nefnilega máli. Skiptir Reykjavíkur- höfn máli? Árni Þór Sigurðsson Reykjavík Það hefur lengi verið pólitísk samstaða um það í Reykjavík, segir Árni Þór Sigurðsson, að ætla höfninni framtíð- arstað í Eiðsvík. Höfundur skipar 1. sæti Reykjavíkurlistans. VEGNA mistaka, sem urðu í sendingu greinar Ólafs Arnar Arnarsonar til Morgun- blaðsins, sem birt var í blaðinu í gær, féll niður síðari hluti greinarinn- ar, sem bar millifyrir- sögnina „Hvað er að gerast í Evrópu?“ Beð- ist er velvirðingar á þessu og hér kemur niðurlag greinarinnar. Hvað er að gerast í Evrópu? Allt annað er í gangi í Evrópu. Evrópudóm- stóllinn kvað nýlega upp úrskurð um rétt sjúklinga til þjónustu. Niðurstaðan var sú að grundvallaratriði Rómarsáttmálans gilda um heilbrigðisþjónustu eins og aðra þætti. Fái sjúklingar ekki þjón- ustu innan eðlilegs tíma geta þeir far- ið hvert sem er innan Evrópusam- bandsins á kostnað heimalandsins. Danir hafa skilgreint hámark þessa biðtíma sem tveir mánuðir. Margar Evrópuþjóðir hafa gert veigamiklar breytingar í rekstri þjónustunnar. Þær hafa komist að þeirri niðurstöðu að rekstur heil- brigðisfyrirtækja sé ekki frábrugð- inn rekstri annarra fyrirtækja. Það þurfi að kostnaðargreina alla þætti þjónustunnar svo að fjármagnið sem til hennar fer nýtist sem best. Greint hefur verið á milli kaupenda og veit- enda jafnvel þar sem hið opinbera sér um báða meginþættina, þ.e. trygg- ingar og rekstur. Ýmsar þjóðir mið- Evrópu (t.d Hollendingar og Þjóð- verjar) hafa falið einkareknum trygg- ingafélögum að sjá um þann þátt á grundvelli laga sem tryggja öllum jafnan aðgang án tillits til efnahags. Margar Evrópuþjóðir hafa ákveðið að veita mun meira fjármagn til heil- brigðisþjónustu en áður t.d. Norðmenn, Danir og Bretar. Jafnframt hafa þær tekið upp DRG-kerfi til að úthluta fjármagni til spítala á grundvelli afkasta. Á þann hátt hefur veruleg ferlistarfsemi þróast við spítalana og ekki síst háskólaspítalana. Framtíðin Að óbreyttri afstöðu íslenskra stjórnvalda verður ekki betur séð en að í umræðu um að- ild Íslands að Evrópu- sambandinu komi heil- brigðismál mjög inn í myndina. Eins og staðan er í dag er í ljósi yfirgrips- mikillar vanþekkingar íslenskra stjórnmálamanna á rekstri heilbrigð- isþjónustu mjög mikilvægt fyrir al- menning á Íslandi að skoða aðild að Evrópusambandinu vandlega. Heilbrigðiskerf- ið og ESB Ólafur Örn Arnarson Höfundur er læknir og fyrrv. formaður heilbrigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins. Heilbrigðiskerfi Margar Evrópuþjóðir, segir Ólafur Örn Arn- arson, hafa komist að þeirri niðurstöðu að rekstur heilbrigðisfyr- irtækja sé ekki frá- brugðinn rekstri ann- arra fyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.