Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 48

Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 48
UMRÆÐAN 48 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ STEFÁN Jón Haf- stein, fjölmiðlafræð- ingur og frambjóðandi R-listans í Reykjavík, sendi nokkuð athyglis- verða grein úr músar- holu sinni fyrir stuttu sem hann fékk birta í Morgunblaðinu 5. apríl s.l. undir fyrirsögninni Ostbiti við hverja mús- arholu. Greinin er helst athyglisverð fyrir þær sakir að í henni reynir frambjóðandinn að rangtúlka stefnuskrá Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Þeir eru margir maðkarnir í þessari moðsuðu fram- bjóðandans. Einn er sá að hann virð- ist standa í þeirri trú að fram- kvæmdir við Sundabraut séu ekki hafnar vegna afstöðu samgönguráð- herra. „Beðið er eftir samgönguráð- herra“ segir frambjóðandinn orðrétt í grein sinni. Þarna er enn og aftur af hálfu talsmanna R-listans reynt að etja saman hagsmunum landsbyggð- ar og höfuðborgar þegar að sam- göngumálum kemur. Hið rétta er, að Sundabrautin er mjög mikilvægt mannvirki í grunnneti samgöngu- kerfis landsins alls, bæði fyrir borg- arbúa sem og íbúa Norður- og Vest- urlands. Því hefur ekki staðið á samgönguráðherra eða samgönguyf- irvöldum í þessu máli. Að halda öðru fram er dæmi um, í besta falli, hall- ærislega, pólitíska fléttu, en í versta falli, dæmi um að vaðið er fram á rit- völlinn af algjöru þekkingarleysi á því sem verið er að fjalla um. Staðreyndir varðandi byggingu Sundabrautar eru einfaldar:  Árið 1984 kom Sundabraut fyrst inn á Aðalskipulag Reykjavík- ur. Vegurinn var teiknaður milli Kleppsspítala og Miklagarðs, eins og leið I var teiknuð síðar.  Veturinn 1994/95 var Sunda- braut tekin í tölu þjóðvega á Alþingi sem þjóðvegur nr. 450. Ákveðin fjár- veiting var til undirbúnings á árinu 1996, 2 m.kr. Við endurskoðun veg- áætlunar fyrir árin 1997-8 voru 10 m.kr. fjárveitingar til Sundabrautar hvort ár.  Haustið 1995 var myndaður vinnuhópur Vegagerðarinnar og Borgarverkfræðingsins í Reykjavík til að annast undirbúning verkefn- isins.  Skilgreindir voru þeir kostir sem til greina kæmu. Jafnframt var hafin vinna á sviði jarðtækni, um- ferðartækni, umhverfismála, þar á meðal líffræði og straummælinga.  Október 1997 er gefin út Áfangaskýrsla I, Þverun Kleppsvík- ur. Skýrslan var m.a. kynnt á fundi með þingmönnum Reykjavíkur og borgarstjórn. Skýrslan endar á þess- um orðum: Tillaga aðalráðgjafa er sú að fækka valkostum niður í tvo grunnvalkosti þ.e. lágbrú á leið III og hábrú á leið I.  Nóvember 1998 er gefin út Áfangaskýrsla 2, tillögur vinnuhóps. Í útdrætti skýrslunnar kemur fram: Að öllu samanlögðu leggur vinnu- hópurinn það til að leið III verði far- in, þ.e.s.k. innri leið.  Áfangaskýrsla 2 fór til umfjöll- unar í nefndum og ráðum Reykjavík- urborgar. Skoðaðir voru nokkrir viðbótar- möguleikar, m.a. jarð- göng frá Gufunesi (Hallsvegi) að Kringlu- mýrarbraut. Einnig var kannað hvað „þriggja hæða gatna- mót“ Sæbrautar og Sundabrautar gætu kostað, en þá var um- ferðin suður Sæbraut tekin í jarðgöngum í sveig undir Skeiðarvog og Kleppsmýrarveg og tengd Sundabraut. Þar með voru allir umferð- arstraumar í fríu flæði.  Í gildandi veg- áætlun eru 50 m.kr. til undirbúnings Sundabrautar í ár. Samgönguráðherra og borgar- stjóri ákváðu með samkomulagi vet- urinn 1999-2000 að halda verkefninu áfram og undirbúa greinargerð um mat á umhverfisáhrifum. Í greinar- gerðinni skyldi gera grein fyrir helstu áhrifum hvors kosts fyrir sig, en ekki var ætlunin að leggja hana fram fyrr en annar hvor kosturinn yrði valinn. Greinargerð þessi var unnin eins langt og hægt var án þess að ákveðinn kostur væri valinn. Þeirri vinnu var lokið um áramótin 2000/2001. Umfjöllun um legu Sundabrautar hefur að verulegu leyti legið niðri frá því matsáætlun var gerð í febrúar 2001. Ástæðan er fyrst og fremst vinna við Svæðisskipulag höfuðborg- arsvæðisins og endurskoðun á um- ferðarlíkani svæðisins, sem fór fram samhliða. Undirbúningur að grein- argerð um mat á umhverfisáhrifum hefur þó verið í gangi. Nú liggur endurskoðað umferðarlíkan fyrir og vinna við svæðisskipulagstillöguna er á lokastigi. Ætlunin er að vinnu- hópur Vegagerðarinnar og Reykja- víkurborgar láti fara fram arðsem- ismat á þeim kostum, sem helst hafa komið til greina, á forsendum svæð- isskipulagstillögunnar, en þær for- sendur eru talsvert öðru vísi en að- alskipulagið gerði ráð fyrir áður. Rétt er að undirstrika, frambjóð- andanum til upplýsingar, að borgar- yfirvöld hafa frekar horft til svokall- aðrar leiðar I, þ.e. ytri leiðarinnar yfir Kleppsvík, en Vegagerðin frekar til leiðar III, sem er innri leiðin. Verulegur kosnaðarmunur er á þess- um leiðum, en ekki hægt að sjá nema ákaflega lítinn mun á umferðarflæði milli þessara leiða. Kostnaður við fyrsta áfangann, þ.e. frá Sæbraut yf- ir Kleppsvík að Hallsvegi er áætl- aður á bilinu 10–13,5 milljarðar kr. á leið I, en 7–8,5 milljarðar kr. á leið III. Kostnaður við síðari áfangann, þ.e. frá Hallsvegi að Vesturlandsvegi er áætlaður um 7 milljarðar króna. Þessi kostnaður miðast við fjögurra akreina veg alla leið. Samgönguráðherra hefur lagt áherslu á að ríkissjóður tæki þátt í fjármögnun þessa verkefnis á sem hagkvæmastan hátt. Sé valin leið sem hefur í för með sér umfram- kostnað umfram hagkvæmustu leið- ina, með tilliti til umferðar og kostn- aðar, þá verður að sjálfsögðu að ræða þann möguleika alveg sérstak- lega. Af framansögðu má ljóst vera, að ekki er flugufótur fyrir þeirri stað- hæfingu frambjóðandans að „beðið sé eftir samgönguráðherra“ varð- andi lagningu Sundabrautar. Sem íbúi í Reykjavík, sem þekki sam- göngumálin orðið nokkuð vel, get ég fullyrt að það er með þetta mál, sem svo mörg önnur er lúta að meirihátt- ar ákvörðunum á sviði samgöngu- mála í Reykjavík, að það er innan borgarkerfisins sem dráttur á ákvarðanatöku verður. Einfaldast er að nefna gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrauta, færslu Hringbraut- ar og Hallsveg. Það er því greinilega einhver maðkur í málflutningi fram- bjóðandans Stefáns Jóns Hafsteins. Maðkur í músar- holu frambjóðanda Jakob Falur Garðarsson Höfundur er aðstoðarmaður samgönguráðherra. Samgöngumál Ekki er flugufótur fyrir þeirri stað- hæfingu frambjóðand- ans, segir Jakob Falur Garðarsson, að „beðið sé eftir samgönguráðherra“ varðandi lagningu Sundabrautar. Fyrirlestur á vegum tölvunar- fræðideildar HR AARON Gage, MSc, mun halda op- inn fyrirlestur á vegum tölvunar- fræðideildar Háskólans í Reykjavík um rannsóknir sínar í tölvunar- fræði við University of South Flor- ida, fimmtudaginn 2. maí kl. 16. Fyrirlesturinn er haldinn á 3ju hæð Háskólans í Reykjavík og er öllum opinn. Aaron mun í erindi sínu fjalla um dulkóðun (Cryptography) – fræðin á bak við dulkóðun og hvernig hún getur virkað sem tvíeggja sverð. Dulkóðun tryggir persónuvernd en um leið getur hún verið glæpa- mönnum skjól. Aaron Gage er doktor við University of South Florida og kennir hann um þessar mundir róbótafræði á 3ja vikna Hörpunámskeiði við Háskólann í Reykjavík, segir í fréttatilkynn- ingu. FRÉTTIR Listi sjálfstæðis- manna á Seyðisfirði SJÁLFSTÆÐISMENN á Seyðis- firði hafa samþykkt eftirfarandi lista til framboðs í komandi bæjar- og sveitarstjórnarkosningum 25. maí: Listann skipa: 1. Adolf Guð- mundsson framkvæmdastjóri, 2. Hrafnhildur Sigurðardóttir þroska- þjálfi, 3. Ómar Bogason rekstrar- stjóri, 4. Gunnþór Ingvason iðnaðar- tæknifræðingur, 5. Auður Brynjars- dóttir, húsmóðir, 6. Hildur Hilmars- dóttir bankastarfsmaður, 7. Guðjón Harðarson rekstrarstjóri, 8. Daníel Björnsson skrifstofumaður, 9. Svein- björn Orri Jóhannsson stýrimaður, 10. Katrín Reynisdóttir aðstoðar- leikskólastjóri, 11. Elfa Rúnarsdótt- ir hjúkrunarfræðingur, 12. María Ólafsdóttir bankastarfsmaður, 13. Jónas A. Þ. Jónsson héraðsdómslög- maður og 14. Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður. Lýst eftir vitnum LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að því þegar hvítri Volvo- bifreið var ekið á vinstri hlið bifreið- arinnar UY-937, sem er brún Nissan fólksbifreið, þar sem hún stóð kyrr og mannlaus í stæði við Búnaðarbak- ann við Hlemm. Atvikið átti sér stað hinn 29. apríl sl. um kl. 17.50. Volvo- bifreiðinni var bakkað á hina bifreið- ina en ökumaðurinn yfirgaf samt vettvang án þess að tilkynna um tjónið. Tjónvaldur eða aðrir sem vita meira um málið eru beðnir að snúa sér til umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík. Safna fyrir Palestínu FÉLAGSMENN Félagsins Ísland- Palestína munu gangast fyrir fjár- söfnun í dag, á alþjóðadegi verka- lýðsins, 1. maí. Þeir munu selja blöð og merki og taka móti framlögum víða um land, einnig er hægt að leggja inn á bankareikning. „Neyðarsöfnun félagsins hefur þegar skilað 16.000 Bandaríkjadöl- um til læknishjálparsamtaka og sjúkrahúsa í Palestínu og meira fé bíður sendingar. Félagið greiðir einnig götu sjáfboðaliða til Ísraels og Palestínu til að leggja sitt lóð á skál- ar friðar og mannréttinda með dvöl sinni þar. Nú verður hluta af fjár- söfnuninni varið til að styrkja slíkar ferðir og eru nokkrir sjálfboðaliðar að búast til ferðar,“ segir í frétt frá stjórn Félagsins Ísland-Palestína. Þjórsárvera- vaka í Árnesi ÁHUGAHÓPUR um verndun Þjórs- árvera stendur fyrir kvöldvöku til- einkaðri Þjórsárverum föstudags- kvöldið 3. maí í Félagsheimilinu Árnesi kl. 20.30. Þar munu Þóra Ellen Þórhalls- dóttir grasafræðingur og Kristinn Haukur Skarphéðinsson dýrafræð- ingur segja frá náttúrufari veranna. Sýndur verður hluti úr kvikmynd Peters Scotts um rannsóknaleiðang- ur inn í Þjórsárver árið 1951, en hann gerði þangað tvo rannsókna- leiðangra, árin 1951 og 1953. Hjalti Gunnarsson segir frá ferð- um sínum í Þjórsárver og Loftur Erlingsson syngur við undirleik Katrínar Sigurðardóttur. Aðgangs- eyrir er 500 krónur og eru allir vel- komnir, segir í fréttatilkynningu. Sjálfstæðismenn í Árborg Hafa opnað kosninga- skrifstofu D-LISTI sjálfstæðismanna í Ár- borg opnaði kosningaskrifstofu sína formlega sl. þriðjudag að Austur- vegi 22 á Selfossi. Frambjóðendur fluttu ávörp, boðið var upp á léttar veitingar og tónlistaratriði auk góðgætis fyrir yngri kynslóðina. Geir H. Haarde fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins var sérstakur gestur við opnunina. Fyrst um sinn verður skrifstofan opin frá kl. 16.30 til 21 virka daga og frá kl. 11 um helgar, segir í fréttatilkynningu. Í tengslum við kosningarnar verður tekin í gagnið heimasíða D- listans og er vefslóðin: www.xd.is/ arborg UNGIR jafnaðarmenn í Reykjavík afhentu þingmönnum í gær víxla upp á 69.862 krónur þar sem kröfuhafi er Íslensk erfðagrein- ing. Er upphæðin sú sama og hvert mannsbarn mun ábyrgjast vegna fyrirhugaðrar 20 milljarða króna ríkisábyrgðar til fyrirtæk- isins. Það voru formenn þingflokk- anna sem veittu víxlunum viðtöku en á þeim er gert ráð fyrir undir- skrift hvers þingmanns persónu- lega. Með þessu vilja ungir jafn- aðarmenn undirstrika mótmæli sín vegna ríkisábyrgðarinnar og vekja þingmenn til umhugsunar um það hvort þeir séu tilbúnir til að ábyrgjast þessa upphæð. Á myndinni má sjá Guðjón A. Kristjánsson, formann þingflokks Frjálslynda flokksins, Sigríði Önnu Þórðardóttur, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Kristinn H. Gunnarsson, formann þingflokks Framsóknarflokksins, Bryndísi Hlöðversdóttur, formann þingflokks Samfylkingarinnar, og Ögmund Jónasson, formann þing- flokks Vinstri grænna, taka við undirskriftunum úr höndum Ágústs Ágústssonar, formanns framkvæmdastjórnar Ungra jafn- aðarmanna, Bryndísar Ísfoldar Hlöðversdóttur, formanns Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, og Ómars Valdimarssonar, ritara Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík. Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík Morgunblaðið/Sverrir Afhentu þingmönnum víxla vegna ríkisábyrgðar Málfundur í kosningamið- stöð D-listans MÁLFUNDUR í kosningamiðstöð D-listans í Reykjavík í Skaftahlíð 24 verður í dag, miðvikudaginn 1. maí, kl. 17. Allir eru velkomnir. Guðlaugur Þór Þórðarson borg- arfulltrúi mun fjalla um álögur á skattborgara, segir í fréttatilkynn- ingu. Kaffisala hjá Kristniboðs- félagi kvenna ELSTA aðildarfélag Sambands ísl. kristniboðsfélaga, Kristniboðsfélag kvenna, stendur í dag, 1. maí, fyrir kaffisölu í Kristniboðssalnum við Háaleitisbraut 58–60 í Reykjavík. Hefst hún klukkan 14. Ágóði af kaffisölunni rennur til starfs SÍK en um þessar mundir eru þrír fulltrúar þess við störf í Afríku. Þá munu ung hjón bætast í hópinn í haust til starfa í Eþíópíu. Í kvöld verður almenn samkoma í Kristni- boðssalnum. VG í Kópavogi opnar kosn- ingaskrifstofu VINSTRIHREYFINGIN – grænt framboð í Kópavogi opnar kosninga- skrifstofu í dag miðvikudaginn 1. maí kl. 16 að Hamraborg 11 (sama hús og veitingastaðurinn Catalina) vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Boðið er uppá kaffi og meðlæti og eru allir Kópavogsbúar og aðrir vel- komnir. Hópreið hestamanna verður farin af þessu tilefni frá Vatnsenda að Hamraborg 11. Hljómsveitin Mígreni leikur fyrir utan kosninga- skrifstofuna. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð hefur ekki boðið áður fram í Kópavogi og kynnir stefnu sína í dag og næstu vikur, segir í fréttatilkynn- ingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.