Morgunblaðið - 01.05.2002, Page 65
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 65
FRÉTTIR
ENTEN eller, eftir Søren Kirke-
gaard, var á sinni tíð mjög fræg bók.
Í fjölmennu samkvæmi, eftir að sú
umtalaða bók var nýkomin út, sagði
ein hefðarfrúin við Kirkegaard. „Jeg
holder så meget af Enten og eller.“
Hún varð nafnfræg fyrir þessa vel-
meintu viðurkenningu á bókinni við
sjálfan höfundinn.
Náttúruvernd er „annaðhvort
eða“. Þar er engin málamiðlun til.
Stórvirkjun við Kárahnjúka og þjóð-
garður í afganginum af hinni miklu
fögru veröld liti út eins og hin fagra
Siv hefði aðra kinnina alla blásvarta
en „hina ljósu fögrukinn“ hinum
megin. Hugsið ykkur; hvílík sorgar-
sjón. Þannig vilja margir ráðamenn
vorir fara með vort fagra land. Eitt
dæmi þess er kísilgúrverksmiðjan
við Mývatn. Þar skal halda eyðilegg-
ingunni áfram gegn mótmælum
þeirra sem aldrei vildu selja þá dýrð-
legu fegurð fyrir fjúkandi peninga-
seðla. Kárahnjúkavirkjun er næsta
dæmi um blinda leiðtoga á náttúru-
perlur. Nú vildi svo vel til að Norsk
hydro treysti sér ekki til að leggja
strax út í álverksmiðjuna sem ákafa-
menn vildu fara að vinna að nú þeg-
ar. Þar áttu Íslendingar að leggja til
marga milljarða. Virkjunarsinnar
tala alltaf eins og allir Austfirðingar
séu sammála um ágæti Kárahnjúka-
virkjunar, enda þótt stór hópur
þeirra hafi mótmælt þeim áformum
með opinberum hætti eins og sjá má
í Morgunblaðinu 17. mars sl. Þar á
meðal eru margir hálærðir menn á
sviði náttúrufræða og náttúruvernd-
ar. Þeir og fleiri hafa ritað afar skýr-
ar greinar um málið og lýst þeim
ófarnaði sem af virkjuninni leiðir.
Samt hefur Alþingi samþykkt að
halda málinu enn til streitu ef ein-
hverjir fást til að kaupa fagurt land
til eyðileggingar. Þessi gjörð Alþing-
is Íslendinga er einhver versta yf-
irtroðsla og forsmán sem náttúru-
vernd hefur verið sýnd. Bæði fegurð
landsins og fossrödd þess á að selj-
ast, hverjum sem kaupa vill.
Þökk sé öllum þeim sem mótmæla
áformum virkjunarsölumanna. Góð
er sú tillaga að fara að dæmi hygg-
inna fornmanna og lögleiða bann við
því að flytja stórfljót úr farvegi sín-
um. Hér verður að láta hart mæta
hörðu.
RÓSA B. BLÖNDALS,
Selfossi.
Annaðhvort eða
Frá Rósu B. Blöndals:
MIG langar að deila með ykkur
reynslu fjölskyldu minnar þegar
við heimsóttum Akureyri helgina
4.-7. apríl sl. Tilgangur ferðarinnar
var að skella sér á skíði og eiga
notalega helgi með fjölskyldunni.
Við pöntuðum stéttarfélagsíbúð
þessa daga uppá von og óvon
hvernig veður og færi yrði. Dagana
fyrir ferðina var farið að huga að
veðri og færð og í gegnum netið
gátum við fengið allar upplýsingar
sem við þurftum. Akureyrarbær og
Hlíðarfjall hefur mjög aðgengileg-
ar upplýsingar á netinu um allt sem
maður mögulega þarf að vita og
meira að segja er hægt að sjá mynd
úr Hlíðarfjalli, til að skoða aðstæð-
ur þar. Við vöknuðum fyrsta morg-
uninn í sól og blíðu og brunuðum
beint upp í fjall. Þar eru allar að-
stæður til fyrirmyndar og frábært
að eyða þarna deginum. Nýja stóla-
lyftan er mikil breyting fyrir svæð-
ið og aldrei þurftum við að bíða.
Þegar upp er komið er einstaklega
huggulegur bjálkakofi með góðri
verönd þar sem yndislegt er að
sitja í góðu veðri og horfa yfir
Eyjafjörðinn. Þegar skíðadeginum
var lokið var haldið heim á leið og
við þreytt og sæl eftir daginn. Þá
var komið að því að næra fjölskyld-
una á kvöldin og völdum við okkur
Veitingastaðina Greifann og La
Vita ’e Bella, sitthvort kvöldið. Það
var sama sagan á báðum stöðunum.
Þjónustan var frábær, maturinn
mjög góður, mjög huggulegir staðir
og það sem toppaði báða þessa
staði var hve vel var hugsað um
börnin. Á Greifanum, sem er meiri
fjölskyldustaður, er frábært
krakkaherbergi með allri mögu-
legri afþreyingu. En á báðum stöð-
um var sérstaklega tekið eftir
börnunum og þeirra þörfum sem
aftur leiðir til þess að foreldrarnir
eiga huggulegra kvöld.
Við fórum líka í Sundlaugina á
Akureyri og Brynjuísbúðina og alls
staðar var jafn gaman að koma.
Við þökkum Akureyingum inni-
lega fyrir frábæra helgi, við kom-
um örugglega aftur!
SIGURLAUG ANNA
JÓHANNSDÓTTIR,
Lækjarkinn 6, Hafnarfirði.
Frábær helgi
á Akureyri
Frá Sigurlaugu Önnu
Jóhannsdóttur:
ÉG GET ekki orða bundist vegna
leiðarans sl. sunnudag. Fyrst sýndist
mér fyrirsögnin benda til að bæta
ætti sorphreinsunina í miðborginni.
Nú, þar er ég sammála. En höfund-
urinn á auðsjáanlega ekki við það.
Hann vill hreinsa miðborgina af
„búllum“ og öðrum „óþverra“. Það
er rétt að miðborgin hefur misst
nokkuð af sínum sjarma á síðustu ár-
um. En þar er ekki búlunum um að
kenna heldur þeim fyrirtækjum sem
flutt hafa starfsemi sína úr miðborg-
inni. Margar verslanir hafa flutt sig
út í úthverfi, í Kringluna, Smárann
o.s.frv.
En miðborgin heldur sínu aðdrátt-
arafli enda er hún eini borgarhlutinn
sem vert er að sýna ferðamönnum
frá útlöndum. Hinir hlutar borgar-
innar hafa ekki yfir neinu að búa sem
ekki er hægt að sjá þúsundfalt á
meginlandi Evrópu eða í Ameríku.
Að hreinsa miðborgina, eins og talað
er um í leiðaranum, mundi gera illt
verra. Þar sem búlurnar eru nú
myndaðist auðn eða mundi Morgun-
blaðið flytja höfuðstöðvar sínar aftur
í Aðalstrætið ef einhverjar búlur
hyrfu? Sömu spurningu mætti leggja
fyrir ýmsar verslanir.
Nei, búlurnar eru ekki ástæða
heldur afleiðing. Þær fara þangað
sem fólkið er og tómarúm hefur
myndast við það að önnur fyrirtæki
hafa farið eitthvað út í buskann. Það
þarf að laða nýjar stofnanir og fyrir-
tæki í miðborgina.
Þar eiga líka að vera veitingahús,
kaffihús og barir því þangað leitar
fólkið og þar sem fólkið er þar vilja
verslaninar líka vera. Auðvitað sæi
ég ekkert eftir sumum skyndibita-
stöðum og tölvuleikjabúðum en þess
háttar tilheyrir víst nútíma menn-
ingu. Sumt fólk er að æsa sig útaf
súlubörunum svokölluðu. Ég fæ ekki
séð að þeir trufli umhverfi sitt meira
en hver önnur bjórkrá. Þvílíkir stað-
ir eru til í hverri stórborg og því þá
ekki í Reykjavík? Krafan að hreinsa
miðborgina er jafn óhugsuð og
margt sem Le Pen segir enda væri
hann vafalaust hrifinn af þessari
kröfu. Mér finnst hún skammsýn.
REYNIR VILHJÁLMSSON,
Miðtúni 2, Keflavík.
Vanhugsuð krafa um
hreinsun miðborgar
Frá Reyni Vilhjálmssyni:
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, afhenti 20 unglingum á
aldrinum 15–18 ára forsetamerki á
Bessastöðum á laugardag. Að þessu
sinni voru það dróttskátar frá
Norður- og Suðurlandi sem tóku
við forsetamerkinu.
Í fréttatilkynningu segir að tak-
markið að hljóta forsetamerkið sé
rauði þráðurinn í öllu dróttskáta-
starfi og að þjálfun dróttskáta hafi
frá upphafi verið tengd við ættjörð-
ina. Forsetamerki hafa verið afhent
frá árinu 1965 og eru handhafar
Forsetamerkisins nú orðnir rúm-
lega eitt þúsund talsins.
Morgunblaðið/Jim Smart
Forsetamerki afhent
á Bessastöðum
FRAMBOÐSLISTI félagshyggju
við Fljótið á Austur-Héraði hefur
verið lagður fram.
Hann skipa eftirtaldir: 1. Skúli
Björnsson aðstoðarskógarvörður, 2.
Íris Lind Sævarsdóttir starfsmaður
Fræðslunets Austurlands, 3. Sigurð-
ur Ragnarsson tölvukennari, 4. Jón
Kr. Arnarson framkvæmdastjóri, 5.
Ruth Magnúsdóttir kennsluráðgjafi,
6. Sævar Sigbjarnarson bóndi, 7.
Ásta Margrét Sigfúsdóttir verslun-
armaður, 8. Kristín M. Björnsdóttir
formaður Verslunarmannafélags
Austurlands, 9. Árni Ólason íþrótta-
kennari, 10. Jónína Rós Guðmunds-
dóttir framhaldsskólakennari, 11.
Óli Metúsalemsson verkfræðingur,
12. Sigurður Ingólfsson framhalds-
skólakennari, 13. Bryndís Skúladótt-
ir leikskólakennari og 14. Helga
Hreinsdóttir framkvæmdastjóri.
Listi félagshyggju
við Fljótið
STUÐNINGSMENN Reykjavíkur-
listans ætla að hittast yfir kaffibolla
og léttum veitingum á Hótel Borg að
loknum kröfugöngum og hátíðahöld-
um dagsins kl. 15–17.
Borgarfulltrúarnir Árni Þór Sig-
urðsson og Sigrún Magnúsdóttir
flytja stutt ávörp. Sönghópurinn
Gestur og gangandi skemmtir gest-
um. Kynnir verður Sveinn Rúnar
Hauksson læknir.
Fyrsta maí-kaffi
á Hótel Borg
FRAMSÓKNARFÉLAG Austur-
Héraðs gekk frá framboðslista sínum
á félagsfundi föstudaginn 26. apríl.
Listann skipa: 1. Eyþór Elíasson
fjármálastjóri og bæjarfulltrúi. 2.
Björn Ármann Ólafsson rekstrar-
stjóri og bæjarfulltrúi. 3. Sólveig
Dagmar Bergsteinsdóttir launa-
fulltrúi og skógarbóndi. 4. Gunnhildur
Ingvarsdóttir prentsmiður. 5. Sveinn
Þór Hallgrímsson framkvæmda-
stjóri. 6. Unnur Inga Dagsdóttir
rekstrarfræðingur B.Sc. 7. Katrín Ás-
grímsdóttir framkvæmdastjóri og
bæjarfulltrúi. 8. Arngrímur Viðar Ás-
geirsson íþróttakennari. 9. Magnús
Karlsson bóndi. 10. Stefán Sveinsson
bóndi. 11. Gunnar Þór Sigbjörnsson
þjónustustjóri. 12. Einar Hróbjartur
Jónsson háskólanemi. 13. Broddi
Bjarnason pípulagningameistari. 14.
Sveinn Þórarinsson verkfræðingur.
Listi framsóknar-
manna á
Austur-Héraði
BÚIÐ er að kynna lista vinstri-
grænna fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar í Árborg í vor. Valdimar
Bragason, prentari og útvarpsmaður,
Heiðarvegi 12, Selfossi, leiðir listann.
Aðrir á listanum eru: 2. Eva
Hauksdóttir leiðbeinandi, Stokks-
eyri, 3. Þorsteinn Ólafsson dýralækn-
ir, Selfossi, 4. Gyða Sigfinnsdóttir
nemi, Selfossi, 5. Hilmar Björgvins-
son kennari, Selfossi, 6. Guðrún Jóns-
dóttir félagsráðgjafi Selfossi, 7.
Andrés Rúnar Ingason tæknimaður,
Selfossi, 8. Margrét Steindórsdóttir
starfsmaður á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands, Sandvíkurhreppi, 9.
Garðar Garðarsson rafvirki, Selfossi,
10. Olga Sveinbjörnsdóttir kennari,
Selfossi, 11. Guðni H. Bjarnhéðinsson
bifreiðastjóri, Selfossi, 12. Margrét
Einarsdóttir hjúkrunarfr., Selfossi,
13. Guðmundur Sverrisson leiðbein-
andi, Selfossi, 14. Sigfinnur Snorra-
son jarðfræðingur, Selfossi, 15. Sig-
urður Ingi Andrésson framhalds-
skólakennari, Selfossi, 16. Ólafur
Thorlacius lyfjafræðingur, Selfossi,
17. Iðunn Gísladóttir kennari, Sel-
fossi, 18. Bergþór Finnbogason kenn-
ari, Selfossi.
Listi VG á Selfossi
STARFRÆKTAR verða sumarbúðir
á Úlfljótsvatni í sumar. Boðið verður
upp á þrjár tegundir námskeiða auk
þess sem boðið verður upp á nýjung
sem kölluð er löng helgardvöl.
Námskeiðin skiptast í barnanám-
skeið fyrir 6–8 ára, sumarnámskeið
8–12 ára og unglinganámskeið fyrir
13–16 ára. Boðið er upp á sund,
gönguferðir, vatnasafarí, báta og
margt fleira, en verkefnin aðlöguð
aldri og þroska barnanna. Á sumar-
námskeiðum er einnig lögð áhersla á
útivist, ratleiki, tjaldbúðir, göngu-
ferðir, klifur og sig, kanó- og kaj-
akferðir, sund og margt fleira.
Á unglinganámskeiðum má nefna
sólarhringsgönguferð, gist undir ber-
um himni, klifur og sig í klettum,
kanó- og kajakferðir og margt, margt
fleira. Á unglinganámskeiðum geta
þátttakendur valið milli þess að fara
niður Hvítá á gúmmíbátum, farið í
dagsferð á hestum eða farið í kanó-
ferð eftir endilöngu Úlfljótsvatni, og
gengið síðan yfir í Skinnhúfuhelli sem
opnast á móti Þingvallavatni.
Allar nánari upplýsingar má finna
á heimasíðunni: www.scout.is/sumar-
budir eða í síma hjá Bandalagi ís-
lenskra skáta. Á báðum stöðum er
hægt að skrá börnin á námskeið, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Sumarbúðir á
Úlfljótsvatni
ABC-hjálparstarf verður með árlegt
kaffihlaðborð í Veislusalnum að Sól-
túni 3, 2. hæð, miðvikudaginn 1. maí
kl. 13.30 – 17.
Tónlistardagskrá verður flutt fyrir
kaffigesti og má nefna Þorvald Hall-
dórsson, Pál Rósinkranz, Herdísi
Hallvarðsdóttur og Gísla Helgason,
sem koma fram ásamt fleiri tónlist-
armönnum. Dagurinn verður tileink-
aður minningu Sigríðar Halldórs-
dóttur, sem var einn af frumkvöðlum
ABC-hjálparstarfs og upphafsmaður
að launasjóði ABC-hjálparstarfs.
Með kaffisölunni 1. maí verður lögð
áhersla á að efla launasjóð ABC-
hjálparstarfs sem var hennar aðal-
áhugamál síðasta árið. Vöxtur starfs-
ins hefur aukist undanfarin ár að ekki
er lengur unnt að vinna starfið ein-
göngu í sjálfboðavinnu. Á síðasta ári
voru sendar 70,7 milljónir króna til
hjálparstarfa erlendis sem var 43%
aukning frá árinu áður. Runnu þeir
fjármunir til framfærslu og mennt-
unar á fjórða þúsund fátækra og
munaðarlausra barna og byggingar
heimila og skóla aðallega á Indlandi.
Launasjóðurinn er forsenda þess að
hægt sé að hafa starfsmenn á launum
þar sem öll framlög til starfsins eru
send óskert til hjálpar nauðstöddum
börnum, segir í fréttatilkynningu.
Gestum býðst kostur á að gerast
bakhjarlar starfsins með því að verða
stuðningsmenn að launasjóði ABC og
einnig verður mögulegt að gerast
stuðningsaðili barns. Allir eru vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
ABC-hjálpar-
starf með
kaffihlaðborð