Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 66
DAGBÓK
66 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Númerið sem þú
valdir er á tali
SÍMNOTANDI hringdi í
Velvakanda og bað hann að
koma á framfæri ergelsi
sínu yfir hinni nýju síma-
þjónustu sem felst í því að
blíðleg kvenrödd segir
„Númerið sem þú valdir er
á tali“ í stað venjulegs tal-
sóns ef númerið er á tali.
Verið er að gera einfalt mál
flókið og t.d. getur þetta
verið villandi fyrir útlend-
inga.
Hver er tilgangurinn
með þessu, spyr símnot-
andinn sem er dauðleiður á
því að hlusta á símsvara af
öllu tagi, og óskar eftir
svörum frá viðeigandi aðil-
um á þessum vettvangi.
Að láta sig varða fólk
ÉG vil þakka Steinunni Jó-
hannesdóttur rithöfundi
fyrir mjög góða grein í Um-
ræðu Morgunblaðsins 24.
apríl sl. um sýknumál
Hæstaréttar í kynferðis-
brotamáli í október 1999 og
hvet ég fólk til þess að lesa
þessa grein.
G.S.
Að íslenska nöfn
þátta og mynda
LESANDI vill benda Stöð
2 á að íslenska nöfn þátta
og kvikmynda sem þeir
auglýsa. Segir lesandi að
oft sé fólk ekki nógu gott í
ensku til að skilja enskt
heiti mynda og þátta.
Lægra matvöruverð…
NÝLEGA var fjallað um í
fréttaflutningi að matvöru-
verð á Íslandi og í Noregi
væri hátt vegna þess að
þessi lönd væru ekki í
Efnahagsbandalaginu. Ég
hef búið um árabil í Svíþjóð
áður en landið gekk í Efna-
hagsbandalagið og þá þeg-
ar var matvöruverð þar
mun lægra en bæði á Ís-
landi og í Noregi. Á þeim
tíma var algengt að Norð-
menn sem bjuggu nálægt
landamærunum keyrðu yf-
ir til Svíþjóðar til að kaupa
matvörur.
Það er því ekki hægt að
segja að orsökin fyrir
lægra matvöruverði í Sví-
þjóð sé vegna þess að það
er gengið í Efnahags-
bandalagið og getur það
einnig átt við um fleiri lönd.
Ein á faraldsfæti.
Öfgahyggjan of mikil
MÉR finnst öfgahyggjan
varðandi verkafólk vera of
mikil hér í þessu þjóðfélagi.
Það gleymdist að reikna
inní taxta að við þyrftum að
kaupa okkur húsnæði.
Mig langar að spyrja
hvaða þingflokkur ætli að
berjast fyrir því að verka-
fólk fái rétti sínum fram-
gengt.
Jón Trausti
Halldórsson.
Stefnumót
MIG langar til að þakka
Svanhildi Jakobsdóttur
fyrir alla birtuna sem hún
færir hlustendum ríkisút-
varpsins í hvert sinn sem
hún flytur þátt sinn Stefnu-
mót. Svanhildur undirbýr
þætti sína sérstaklega vel,
talar skýrt og fallegt mál og
flytur efnið á lifandi hátt
með sinni fallegu og björtu
rödd.
Margrét.
Finnst hún frábær
ÉG þurfti að hafa samband
við borgarstjórann til að fá
niðurfellda skatta. Það var
eins og ég væri að tala við
gamla kunningjakonu, ég
þurfti ekkert að segja
henni, hún vissi alveg um
hvað málið snerist. Finnst
mér hún alveg frábær.
Ein ánægð.
Tapað/fundið
GSM-sími fannst við
Langá
GSM-sími fannst við Langá
á Mýrum. Hefur líklega
týnst sl. sumar. Upplýsing-
ar í síma 437 1553 í hádegi
og á kvöldin.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
NÝLEGA var haldinn dagurbókarinnar eða vika bókarinn-
ar og ýmis tiltæki voru drifin upp í
samhengi við það. Eftir þannig um
fjöllun virðist sem bókin haldi velli
og að menn þurfi ekki að óttast að
bóklestur hverfi þrátt fyrir fjöl-
marga aðra afþreyingu sem í boði
er og mikið er stunduð.
Efnt var til lestrar fyrir börn á
leikskólum í nokkrum bókabúðum
og sá Víkverji slíkan hóp í heimsókn
í verslun Máls og menningar við
Laugaveg. Ekki heyrði Víkverji
hvað lesið var en börnin höfðu vart
augun af sögumanni og hlustuðu
ótrufluð af öðrum sem í búðinni
voru. Eftir lesturinn var boðið upp á
kakó og hvort sem það hefur verið
kynnt fyrir börnunum fyrirfram eða
ekki þykist Víkverji viss um að það
hefði engin áhrif haft á áheyrn
þeirra. Þau hugsuðu áreiðanlega
ekkert um kakó meðan lesið var.
(Það hefði Víkverji hins vegar gert
allan tímann því honum finnst
nefnilega kakó og rjómi algjört sæl-
gæti – og er nokkuð góður í að laga
þennan drykk þótt hann segi sjálfur
frá.)
Annað sem gert var þessa daga til
að minna á bókina var að Félag ísl.
bókaútgefenda stóð fyrir útgáfu á
bók með nokkrum sögum fyrir börn
sem var gefin. Það er að segja ef
menn keyptu bók eða bækur fyrir
þúsund krónur þessa daga fylgdi
bókin með. Var í raun ekki nema
sjálfsagt að huga að þessu og var
bókinni komið á framfæri við ungan
mann sem þykir nauðsynlegt að láta
lesa fyrir sig á kvöldin.
Annars hefur Víkverji ekki
áhyggjur af framtíð bókarinnar.
Hann telur næsta víst að á mjög
mörgum heimilum sé lesið fyrir
börn langt fram eftir aldri. Þau vilja
halda í svona siði og það síast
kannski inn í þau að bækur og lest-
ur séu einhvers virði og að það geti
verið eftirsóknarvert að sækja
þangað fróðleik og skemmtun.
Börnin eru líka góðir viðskiptavinir
bókasafnanna. Bókin á því örugg-
lega framtíð fyrir sér hjá okkur.
x x x
VORIÐ er komið og sumariðreyndar líka. Nema í veðrinu.
Ófærð hefur verið um norðan- og
austanvert landið síðustu daga og
bætt á snjóinn en maður hefði hald-
ið að þessi tíð væri liðin og sumarið
raunverulega komið. Á höfuðborg-
arsvæðinu hefur líka verið hryss-
ingur og menn orðið að brynja sig
fyrir roki og kulda. Við verðum bara
að vona að sumarið nái fljótlega yf-
irhendinni og vermi okkur með sól
og hlýju. Þá verður líka hægt að
grilla án þess að þurfa að norpa yfir
því í úlpu og með vettlinga!
x x x
FYRSTI maí, hátíðisdagurverkalýðsins, er í dag eins og
þarf kannski varla að minna á.
Væntanlega verður víða boðið upp á
hefðbundna dagskrá með ræðum og
kröfugöngum. Víkverja finnst sjálf-
sagt að halda í slíka daga og nýta þá
til að minna á almenna stéttabar-
áttu. Það þarf að halda við ábend-
ingum um að bæta þurfi kjör þeirra
lægst settu, jafna kjör þar sem
ójöfnuður ríkir og tryggja eins og
kostur er að við búum öll við kjör og
aðstæður sem allir telja sjálfsögð
mannréttindi í dag. Það getur átt
við kaup og kjör á vinnumarkaði og
líka hvers konar aðbúnað sem þjóð-
félagið skapar þegnum sínum með
félagslegum réttindum.
ÉG vil nota þetta tæki-
færi og þakka Páli Hall-
dórssyni kærlega fyrir
greinina sem hann skrif-
aði í Morgunblaðið undir
fyrirsögninni „Kæri
læknir“. Páll sýnir, sem
svo oft áður, æðruleysi og
kjark með þessum skrif-
um. Má ég til með að dást
að því að hann skuli hafa
getu og mátt til að koma
fram undir nafni, því að
það er slíkt magnleysi og
hræðileg þreyta og
skömm sem þjáir að-
standendur, og þá sér-
staklega foreldra þeirra
sem eiga við eitur-
lyfjafíkn að stríða. Það að
Páll skuli koma fram og
stinga á því kýli sem eit-
urlyfjasala er, hverju
nafni sem hún nefnist, er
öllum hvatning til dáða
og foreldrum og öðrum
aðstandendum mikill
styrkur. Við hljótum að
eiga rétt á því sem skatt-
borgarar landsins að mis-
jafnir menn séu ekki að
eitra fyrir börnunum
okkar og barnabörn-
unum.
Með bestu kveðju og
endurtekinni þökk. Megi
sá sem öllu ræður styrkja
Pál og fjölskylduna í
þessari baráttu.
Marta Ragnarsdóttir.
Páli þökkuð góð grein
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 frumkvöðull, 8 skips, 9
látna, 10 þreyta, 11
vagga í gangi, 13 lengj-
an,15 þref, 18 tala, 21
hrós, 22 æðarfugl, 23
kærleikshót, 24 vanhugs-
uð athöfn.
LÓÐRÉTT:
2 gera skarð í, 3 tyggja, 4
styrkir, 5 Gyðingum, 6
saklaus, 7 sigraði, 12
mergð, 14 kyn, 15 gras-
torfa, 16 fiskar, 17 kát-
ínu, 18 þungbær reynsla,
19 lítils báts, 20 ferskt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 stuld, 4 hollt, 7 öngul, 8 ólykt, 9 dós, 11 görn, 13
átta, 14 æruna,15 skær, 17 rófa, 20 odd, 22 falds, 23 ugg-
ur, 24 marrs, 25 synir.
Lórétt: 1 stöng, 2 ungur, 3 duld, 4 hrós, 5 leyst, 6 totta,
10 ólund, 12 nær, 13 áar,15 sófum, 16 ætlar, 18 ólgan, 19
akrar, 20 osts, 21 dugs.
K r o s s g á t a
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sel-
foss og Dettifoss koma í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Great Peace fór vænt-
anlega í gær. Ottó og
Örvar komu í gær.
Barði, Ontika og Ocean
Tiger fóru í gær. Dirk
Dirk og Bitland koma í
dag.
Mannamót
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga föstudaga kl. 11.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um fimmtudaga kl. 17–
19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Uppl. hjá
Svanhildi s. 586 8014 kl.
13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566 8060 kl. 8–
16.
Félag eldri borgara i
Kópavogi, boðar til
framboðsfundar í Fé-
lagsheimili Kópavogs,
Fannborg 2, fimmtudag-
inn 2. maí kl. 20. Fram-
bjóðendur allra flokka
ræða stefnumál sín í
tveimur umferðum og
svara fyrirspurnum. Fé-
lagar og aðrir eldri
borgarar hvattir til að
mæta.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9 vinnu-
hópur gler, kl. 13 göngu-
hópur frá Kirkjulundi.
Föstud. kl. 9 snyrti-
námskeið. Laugard. kl.
10 sundleikfimi, mánud:
kl. 9 glerskurður kl.
11.15, 12.15 og 13.05
leikfimi, kl. 13. skyndi-
hjálp. þriðjud. 7. maí:
Spilað í Kirkjuhvoli, op-
ið hús. Leikhúsferðin á
Strompleik verður 6.
júní.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli ,
Flatahrauni 3. Á morg-
un glerskurður kl. 13 og
framboðsfundur um
bæjarmál kl. 13.30 á
vegum félagsins, á fund-
inn mætta fulltrúar allra
flokka og svara spurn-
ingum.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Miðvi-
kud. Göngu-Hrólfar fara
í göngu frá Hlemmi kl.
9.45. „Sleppum for-
dómum“ tónleikar 1. maí
í Listasafni Reykjavíkur
kl. 16. Fimmtud. brids
kl. 13 og brids fyrir
byrjendur kl. 19.30.
Kynning verður 7. maí,
á notkun Nets og einnig
hvaða möguleika það
býður upp á, skráning á
skrifstofu FEB. Sögu-
slóðir á Snæfellsnesi og
þjóðgarðurinn Snæfells-
jökull 3 daga ferð 6.–8.
maí gisting á Snjófelli á
Arnarstapa, farið verð-
ur á Snæfellsjökul, leið-
sögn Valgarð Runólfs-
son. Skráning hafin á
skrifstofu FEB. Baldvin
Tryggvason verður til
viðtals miðvikud. 8. maí
um fjármál og leiðbein-
ingar um þau mál á
skrifstofu FEB panta
þarf tíma. Fuglaskoðun
og söguferð suður með
sjó og á Reykjanes 11.
maí, leiðsögn Sigurður
Kristinsson, skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánu- og mið-
vikudögum frá kl. 10–12
f.h. í síma 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Öll starfsemi fellur nið-
ur í dag, 1. maí. Á
morgun og föstudag
fellur niður vinna í
vinnustofum vegna upp-
setningar á handa-
vinnusýningu, en spila-
salur opinn. Á morgun
kl. 9.30 sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug. Umsjón
Brynjólfur Björnsson,
íþróttakennari. Kl.
10.30 helgistund, um-
sjón Lilja G. Hallgríms-
dóttir, djákni Fella- og
Hólakirkju. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Vorsýning á
handunnum nytja- og
skrautmunum verður í
Gjábakka 11. og 12.
maí. Vinsamlega skilið
inn munum sem fara
eiga á sýninguna dag-
ana 6.–8. maí.
Gullsmári Vorsýning á
handunnum nytja- og
skrautmunum verður í
Gullsmára 11. og 12.
maí. Vinsamlega skilið
inn munum sem fara
eiga á sýninguna dag-
ana 6.–8. maí.
Hvassaleiti 58–60.
Leikhúsferð, föstudag-
inn 5. maí verður farið
að sjá Kryddlegin
hjörtu í Borgarleikhús-
inu. Skráning á skrif-
stofunni og í síma:
588 9335
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun,
fimmtudag 2. maí, á
Korpúlfsstöðum kl. 10.
Kaffistofan er opin. All-
ir velkomnir. Nánari
upplýsingar veitir Þrá-
inn Hafsteinsson í síma
5454-500.
Norðurbrún 1. Messa á
morgun kl. 10.30 prest-
ur sr. Kristín Páls-
dóttir.
Vesturgata 7. Hand-
verkssýning verður 10.,
11. og 13. maí frá kl. 13–
17 alla dagana. Meðal
annars sem sýnt verður,
hannyrðir, postulíns-
málun myndmennt,
tréútskuður og leir-
mótun. Ragnar Páll Ein-
arsson leikur á hljóm-
borð alla dagana. 10. og
11. kl. 15 sýna nem-
endur Sigvalda dans. 13.
maí kl. 15 syngja
Hvannirnar undir stjórn
Sigurbjargar Petru
Hólmgrímsdóttur.
Fimmtud. 2. maí kl.
13.30–14 verður Lands-
banki Íslands með al-
menna bankaþjónustu.
Föstud. 3. maí kl. 14.30–
16 verður dansað við
lagaval Halldóru, kaffi-
veitingar.
Vitatorg. Öll regluleg
starfsemi félagsmið-
stöðvarinnar fellur niður
2., 3. og 6. maí vegna
handverkssýningar.
Matsalurinn verður op-
inn eins og venjulega.
Sýningin verður opin
föstud. 3. maí kl. 9–16.30
og laugard. 4. maí kl.
11–16.30. Sýndir verða
munir sem unnir hafa
verið í félagsstarfinu í
vetur. Kaffisala í matsal
og ýmis skemmtiatriði
báða dagana. Allir vel-
komnir.
Barðstrendingafélagið
Félagsvist í Konnakoti,
Hverfisgötu 105, kl.
20.30 í kvöld. Allir vel-
komnir.
Söngfélag Skaftfellinga
og Reykjalundarkórinn
halda tónleika Laug-
arneskirkju miðvikudag-
inn 1. maí kl. 17.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju. Aðalfundur verð-
ur fimmtudaginn 2. maí
kl. 20, venjuleg aðal-
fundarstörf, upplestur.
Gestur verður sr. Sig-
urður Pálsson.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kosning á þing Sjálfs-
bjargar, landssambands
fatlaðra sem haldið
verður dagana 7. til 9.
júní í Reykjavík, verður
í félagsheimili Sjálfs-
bjargar, Hátúni 12,
fimmtud. 2. maí kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást nú
í Lyfjum og heilsu versl-
unarmiðstöðinni Firði í
Hafnarfirði. Kortið kost-
ar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma 552-
4994 eða síma 553-6697,
minningarkortin fást
líka í Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju s.
520-1300 og í blómabúð-
inni Holtablómið, Lang-
holtsvegi 126. Gíróþjón-
usta er í kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju
sími 520-1300 og í
blómabúðinni Holta-
blómið, Langholtsvegi
126. Gíróþjónusta er í
kirkjunni.
Í dag er miðvikudagur 1. maí, 121.
dagur ársins 2002. Verkalýðsdag-
urinn. Orð dagsins: En það er eins
og ritað er: Það sem auga sá ekki og
eyra heyrði ekki og ekki kom upp í
hjarta nokkurs manns, allt það sem
Guð fyrirbjó þeim, er elska hann.
(I. Kor. 2, 9.)