Morgunblaðið - 01.05.2002, Síða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
BANKASTJÓRN Seðlabanka Ís-
lands ákvað í gær að lækka ávöxtun
í endurhverfum viðskiptum bank-
ans við lánastofnanir um 0,3% frá
næsta uppboði á endurhverfum
verðbréfasamningum, sem haldið
verður þriðjudaginn 7. maí næst-
komandi. Aðrir vextir Seðlabank-
ans lækka einnig um 0,3% frá og
með deginum í dag.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir ákvörðun bankastjórnarinnar
vera fagnaðarefni og staðfesta að
vaxtalækkun Seðlabankans, sem
tilkynnt var á aðalfundi bankans
fyrir rúmum mánuði, hafi verið rétt
ákvörðun. Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
og Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, fagna einn-
ig vaxtalækkuninni.
Birgir Ísleifur Gunnarsson, for-
maður bankastjórnar Seðlabank-
ans, segir að bankinn hafi lækkað
vexti um 0,5% fyrir rúmum mánuði.
Af því tilefni hafi þess verið getið
að vonast væri til að það gæti verið
upphaf að vaxtalækkunarferli.
Bankastjórnin hafi styrkst í þeirri
trú að markmiðið um 2,5% verð-
bólgu á árinu 2003 muni nást.
„Margt bendir til að það sé
áframhaldandi samdráttur í eftir-
spurn eftir vörum auk þess sem at-
vinnuleysistölurnar hafa verið að
aukast. Þenslan er augljóslega í
mikilli rénun. Við teljum því að það
sé tilefni til að halda þessu áfram
og ákváðum því að stíga þetta
skref,“ segir Birgir Ísleifur.
Vaxtalækkunarferli hafið
Davíð Oddsson segir að ýmsir
hafi gagnrýnt þá vaxtalækkun sem
tilkynnt hafi verið um á aðalfundi
Seðlabankans fyrir rúmum mánuði
og sagt að bankinn væri að fara í
ótímabæra vaxtalækkun, eins og
það hafi verið kallað. Síðan hafi
sannast að sú tímasetning hafi ver-
ið rétt og ákvörðun Seðlabankans
nú staðfesti það.
„Vaxtalækkun Seðlabankans nú
er í samræmi við það sem formaður
bankastjórnarinnar lýsti yfir, að
það gæti farið svo að ákveðið vaxta-
lækkunarferli væri hafið. Við skul-
um vona að þróun á verðlagi og
gengi verði þannig að þetta geti
haldið áfram,“ segir Davíð.
Grétar Þorsteinsson segist fagna
vaxtalækkun Seðlabankans en vilja
sjá viðbrögð í bankakerfinu og hjá
sparisjóðunum við þessari ákvörð-
un. „Ekki er alltaf hægt að benda á
Seðlabankann,“ segir Grétar.
„Bankar og sparisjóðir verða einn-
ig að líta í eigin barm og þá er ég
ekki eingöngu að tala um vexti
heldur einnig þjónustugjöld.“ Grét-
ar væntir þess að ekki verði mjög
langt í næstu vaxtalækkun Seðla-
bankans. Tilefnið sé nægjanlegt
þótt kannski sé skiljanlegt að bank-
inn lækki vextina í ákveðnum skref-
um.
Að sögn Ara Edwald er vaxta-
lækkun Seðlabankans nú eðlileg
ákvörðun. Þar sem rétt rúmur
mánuður sé liðinn frá síðustu
vaxtalækkun sé greinilegt að komið
sé ferli vaxtalækkana. „Ljóst er að
með þeim mikla viðsnúningi sem
hér hefur orðið í verðlagsþróun er
ljóst að raunvextir eru mjög háir. Í
því ljósi hefði ég getað búist við því
að þessi vaxtalækkun yrði meiri.
Ég geri þó ráð fyrir því að við get-
um átt von á frekari lækkunum inn-
an skamms tíma, ef framvindan
verður áfram í þeim farvegi sem
vonast er eftir,“ segir Ari.
Seðlabankinn ætlar að
lækka vexti um 0,3%
MORGUNBLAÐIÐ kemur út
á morgun, fimmtudaginn 2.
maí. Er það liður í því að fjölga
útkomudögum blaðsins. Blaðið
mun einnig koma út daginn eft-
ir uppstigningardag, þ.e. föstu-
daginn 10. maí, og þriðjudag
eftir hvítasunnu, 21. maí. Í dag,
1. maí, verður venjuleg þjón-
usta á fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is. Hægt er að koma
fréttaábendingum til blaða-
manna í síma 861-7970 og á net-
fangið netfrett@mbl.is.
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, segir að Norðlinga-
ölduveita sé lang hagstæðasti virkj-
unarkosturinn, því með því fyrir-
komulagi sé hægt að nýta enn betur
vatnsafl og virkjanir á Þjórsár- og
Tungnaársvæði, þ.e. í Vatnsfellsstöð,
Sigöldustöð, Hrauneyjafossstöð og
væntanlegri Búðarhálsvirkjun.
Skýrsla Landsvirkjunar um mat á
umhverfisáhrifum Norðlingaöldu-
veitu var kynnt í gær og við það
tækifæri sagði Friðrik Sophusson að
með þessari framkvæmd væri hægt
að fá sem mest vatn í gegnum sem
flestar vélar í fyrrnefndum stöðvum
auk þess sem framleiðsla Sultar-
tangastöðvar og Búrfellsstöðvar yk-
ist.
Norðlingaölduveita felur í sér að
Þjórsá verði stífluð austan við Norð-
lingaöldu og myndað 29 km² lón,
Norðlingaöldulón, með vatnsborði í
575 metra hæð yfir sjávarmáli. Vatni
verði síðan dælt um 13 km göng yfir í
Þórisvatnsmiðlun. Fyrirhuguð fram-
kvæmd er sunnan Hofsjökuls á af-
rétti Ásahrepps og Djúpárhrepps
austan ár og Gnúpverjahrepps vest-
an ár.
Að mati Landsvirkjunar hefur lón
með 575 metra vatnsborðshæð yfir
sjó helst áhrif á heiðagæs og freð-
mýrarústir en áhrif á aðra þætti
náttúrufars eru talin minni.
Í skýrslunni kemur fram að Þjórs-
árver eru stærsta heiðagæsabyggð
heims og eru talin mikilvæg fyrir
viðgang tegundarinnar. Fram kem-
ur að um 8% af hreiðurstæðum
heiðagæsar í friðlandi Þjórsárvera
og nágrenni fari undir vatn, sem
samsvari allt að 550 hreiðurstæðum
af 6.800 á öllu svæðinu. Af þessum
fjölda séu um 100 til 150 hreiður-
stæði innan friðlands Þjórsárvera en
þar sé áætlað að séu um 6.400 hreið-
urstæði. Ennfremur kemur fram að
Norðlingaölduveita hefði áhrif á inn-
an við 2% af heildarvarpstofni heiða-
gæsarinnar. Í skýrslunni kemur
fram að undanfarin 10 ár hefur heið-
argæsastofninn talið yfir 200 þúsund
fugla og veiðiálagið er nálægt 40 þús-
und fuglum.
Landsvirkjun með umhverfismat á Norðlingaölduveitu
Talinn hagstæðasti
virkjunarkosturinn
Nýting og verndun/38
Morgunblaðið/Arnaldur
UM 300 prúðbúnir starfsmenn Bón-
uss sneru frá árshátíð fyrirtækisins
í gærkvöld þar sem þeirra beið
fullbúinn salur og tilbúin veisluföng
í sal Iðnaðarmannahússins við Hall-
veigarstíg. Staðurinn hafði ekki til-
skilin leyfi fyrir skemmtanahaldi
og voru gerðar athugasemdir við
að árshátíðargestir yngri en 18 ára
væru að fara án fylgdar forráða-
manna inn á staðinn þar sem áfengi
væri veitt.
Svanur Valgeirsson starfs-
mannastjóri sagði það hafa komið á
óvart að eftirlitsmenn hefðu allt í
einu birst og meinað ungmennum
inngöngu eftir velheppnaðar árshá-
tíðir Bónuss undanfarin 13 ár.
Málalyktir urðu þær að árshátíð-
argestir 18 ára og eldri hefðu mátt
ganga til salar og vera til kl. 23.30
en ekki kl. 2 eins og til stóð en
árshátíðargestir ákváðu að sleppa
því jafnvel þótt sumir hefðu komið
um langan veg, utan af landi.
„Við förum ekki niður og skiljum
hluta af okkar starfsfólki eftir úti á
götu. Maður hefur aldrei lent í öðru
eins,“ sagði Svanur.
Svanur sagðist hafa boðist til að
loka barnum og veita ekkert borð-
vín með árshátíðarmatnum en fékk
því ekki framgengt. Hann sagði að
hringt hefði verið í foreldra yngstu
starfsmanna Bónuss þar sem tekið
var fram að séð yrði til þess að þeim
yrði ekki veitt áfengi og stífum
reglum fylgt þar að lútandi.
300 manna
árshátíð
Bónuss varð
að engu
Forsvarsmenn Bónuss, þeir Jóhannes Jónsson og Svanur Valgeirsson, ræða við lögreglumenn í gærkvöld.
NÁTTÚRUVERND ríkisins
fellst fyrir sitt leyti á innflutn-
ing krókódíla af tegundinni
Alligator mississippiensis hing-
að til lands. Í umsögn stofnun-
arinnar til landbúnaðarráðu-
neytisins segir að fallist sé á
innflutninginn í ljósi þess að
krókódílategundin lifi við allt
aðrar kjöraðstæður en er að
finna á Íslandi og að litlar líkur
séu á að hún geti haft áhrif á
náttúru landsins almennt. Þó
þurfi að skoða ýmis atriði varð-
andi innflutninginn. Yfirdýra-
læknir þurfi t.d. að kanna hvort
sjúkdómar eða sníkjudýr geti
borist til landsins við innflutn-
inginn og haft hér áhrif. Stofn-
unin bendir einnig á að tryggja
þurfi að allur aðbúnaður verði
til fyrirmyndar með tilliti til
öryggis og dýraverndarsjónar-
miða.
Húsvíkingar fagna
Reinhard Reynisson, bæjar-
stjóri Húsavíkur, sem hefur
unnið að framgangi málsins í
samvinnu við orkuveitustjóra,
fagnaði umsögn Náttúruvernd-
ar. Landbúnaðarráðuneytið
hefur til umfjöllunar erindi
Reinhards þar sem farið er
fram á að innflutningur krókó-
díla til Húsavíkur verði leyfður.
Áformað er að þeir verði eins-
konar lífrænar sorpkvarnir
sem taki við matarúrgangi frá
fiskeldi, fiskvinnslu og kjöt-
vinnslu í bænum. Hugmyndin
er fengin frá Colorado-fylki í
Bandaríkjunum þar sem krókó-
dílar búa við óvenjuleg veður-
farsleg skilyrði. Reinhard segir
að einnig gætu krókódílarnir
dregið að forvitna ferðalanga.
Reinhard sagði ótímabært að
gefa upp hvenær krókódílarnir
gætu komið til Húsavíkur.
Náttúru-
vernd
fellst á inn-
flutning
krókódíla
KOLMUNNASTOFNINN er nú
tvöfalt stærri en á sama tíma í fyrra
þrátt fyrir ofveiði. Í fyrra voru veidd-
ar 1,7 milljónir tonna sem var langt
umfram ráðleggingar fiskifræðinga.
Íslendingar veiddu í fyrra um
340.000 tonn af kolmunna, en hafa
ákveðið að draga verulega úr veið-
inni á þessu ári og hefur kvóti verið
gefinn út miðað við 288.000 tonn, en
213.00 tonnum hefur verið deilt út til
bráðabirgða. Norðmenn hafa hins
vegar ákveðið að draga ekki úr veið-
um sínum.
„Þetta eru miklar gleðifréttir,“
segir Árni Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra. „Þetta er sameiginlegur
stofn þannig að við fáum ráðlegging-
ar um veiði frá Alþjóðahafrann-
sóknaráðinu. Við verðum að bíða og
sjá hvað þaðan kemur.“
Kolmunna-
stofninn
að stækka
Kolmunnastofninn/25