Morgunblaðið - 08.05.2002, Síða 1
108. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 8. MAÍ 2002
AÐ MINNSTA kosti sextán manns
biðu bana og fimmtíu særðust í sjálfs-
morðsárás í Rishon Letzion, nærri
borginni Tel Aviv í Ísrael í gærkvöldi.
Hamas-samtökin hafa lýst ábyrgð á
ódæðinu á hendur sér en þetta er
fyrsta sjálfsmorðsárás Palestínu-
manna gegn ísraelskum borgurum í
næstum fjórar vikur. Atburðurinn
átti sér stað á sama tíma og þeir
George W. Bush Bandaríkjaforseti
og Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, funduðu vestur í Bandaríkj-
unum. Er talið fullvíst að ódæðis-
mennirnir hafi skipulagt árásina í því
augnamiði að hleypa viðræðum Bush
og Sharon í uppnám og sagði í yfirlýs-
ingu Hamas í gær að menn gætu
vænst frekari árása af þessari teg-
und.
Talsmenn Sharons sögðu að ráð-
herrann myndi stytta heimsókn sína
til Bandaríkjanna og halda heim á
leið í dag vegna árásarinnar. Ódæðið
átti sér stað á þriðju hæð veitinga-
staðar og sögðu talsmenn ísraelskra
yfirvalda að svo virtist sem sprengju-
maðurinn hefði gengið inn í miðjan
hóp fólks og þar sprengt sig í loft upp.
Bush og Sharon gerðu hlé á fundi
sínum í Washington til að ræða við
fréttamenn en þá höfðu þeim ekki
borist fréttir af árásinni. Síðar for-
dæmdi Bush ódæðið og hið sama
gerði palestínska heimastjórnin í yf-
irlýsingu, sem hún sendi frá sér.
Bush upplýsti á fréttamannafund-
inum að hann hefði ákveðið að senda
George Tenet, yfirmann bandarísku
leyniþjónustunnar (CIA), aftur til
Mið-Austurlanda í því skyni að leggja
á ráðin um öflugar öryggissveitir
meðal Palestínumanna, sem tryggja
ættu frið á svæðinu.
Sharon tók undir með Bush að
veigamiklar umbætur yrðu að eiga
sér stað hjá heimastjórn Yassers
Arafats, leiðtoga Palestínumanna, ef
takast ætti að koma á varanlegum
friði en hann var ósammála þeirri
áherslu sem Bush lagði á að Palest-
ínumenn fengju að stofna eigið, sjálf-
stætt ríki. „Umræður um slíkt eru
ekki tímabærar,“ sagði Sharon.
„Tímasetningin er afar slæm“
Ljóst má telja að sprengjutilræðið
í gær getur haft alvarlegar afleiðing-
ar. Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, sagði seint í gær-
kvöldi að mönnum væri mjög brugðið
við fréttirnar en Þorkell er staddur í
borginni Ramallah. „Fólk óttast að
borgir Palestínumanna verði ein-
angraðar á ný – að Ísraelar láti til
skarar skríða að nýju á heimastjórn-
arsvæðunum. Þeir sem ég talaði við
hér í kvöld eru sammála um að tíma-
setningin sé afar slæm.“
Þorkell hitti Arafat að máli í Ram-
allah í gær, einungis örfáum klukku-
stundum fyrir tilræðið í Rishon Letz-
ion. „Hann kom mér fyrir sjónir sem
gamall, slitinn maður,“ sagði Þorkell.
Fyrr í gær hafði virst að til friðar
horfði en þá hafði talsmaður Ísr-
aelshers staðfest að samkomulagi
hefði verið náð í deilunni um vopnaða
Palestínumenn í Fæðingarkirkjunni í
Betlehem sem ísraelskir hermenn
hafa setið um í rúman mánuð. Tafir
höfðu hins vegar orðið á framkvæmd
samkomulagsins eftir að á daginn
kom að Ítalir eru tregir til að taka á
móti mönnunum, en miðað hafði verið
við að þeir færu þangað í útlegð.
Sextán féllu í sjálfs-
morðsárás í Ísrael
Friðarumleit-
unum hleypt
í uppnám
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti og Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, ræða við fréttamenn í gærkvöldi. Skömmu síðar bárust fréttir
um sjálfsmorðsárásina í Ísrael. Á innfelldu myndinni sést hvar særður
Ísraeli er fluttur á sjúkrahús eftir ódæðisverkið í Rishon Letzion.
Fórnarlamb/22
Rishon Letzion, Washington. AFP, AP.
AP
ALÞJÓÐLEG nefnd rithöfunda
hefur valið „Don Kíkóti“ eftir
Spánverjann Miguel de Cervant-
es Saavedra bestu skáldsögu allra
tíma. Meðal 100 bestu bókanna að
mati rithöfundanna eru „Njáls
saga“ og „Sjálfstætt fólk“ eftir
Halldór Laxness.
Samtök norskra bókaklúbba
fengu 100 kunna rithöfunda í 54
löndum til að nefna 10 bestu bæk-
urnar hver og úr tilnefningunum
voru síðan valdar þær 100 bestu.
Sigraði riddarinn sjónumhryggi
eða „Don Kíkóti“ með yfirburðum
en að öðru leyti hafði ekki verið
greint frá röðinni í gær.
Meðal rithöfundanna í nefnd-
inni má nefna John Irving,
Salman Rushdie, John le Carré,
Nadine Gordimer, Carlos Fuen-
tes, V.S. Naipaul, Paul Aster,
Ben Okri, Orhan Pamuk, Fay
Weldon, Wole Soyinka, Bel Dao,
Nawal el Saadawi og Norman
Mailer.
Auk íslensku bókanna eru
fjögur önnur norræn verk á list-
anum: „Sultur“ eftir Knut
Hamsun, „Brúðuheimilið“ eftir
Henrik Ibsen, „Ævintýri“ Hans
Christian Andersens og „Lína
Langsokkur“ eftir Astrid Lind-
gren.
„Don Kíkóti“ valin
besta bók allra tíma
„Njáls saga“ og „Sjálfstætt fólk“
taldar meðal þeirra 100 bestu
Ósló. AP.
Hundrað/25
STJÓRNVÖLD í Hollandi ákváðu í
gær að þingkosningar yrðu haldnar í
landinu í næstu viku eins og til stóð
þrátt fyrir morðið á stjórnmála-
manninum umdeilda, Pim Fortuyn, í
fyrradag. Var ákvörðun hollensku
stjórnarinnar í samræmi við óskir
liðsmanna í flokki Fortuyns sjálfs en
spáð hefur verið að flokkurinn, sem
er hægriöfgaflokkur, fái umtalsvert
fylgi í kosningunum, sem fara fram
15. maí nk.
Getgátur voru uppi um það í gær
að við leiðtogaembætti Fortuyns
tæki 27 ára innflytjandi af afrískum
uppruna, Joao Varela, en það vekur
athygli enda var það eitt af stefnu-
miðum Fortuyns að sporna við frek-
ari innflutningi fólks. Óvíst er þó að
Varela taki við enda með litla
reynslu af stjórnmálabaráttu.
Morðið á Fortuyn hefur vakið
mikinn óhug í Hollandi en þetta er í
fyrsta sinn í nútímasögu landsins
sem stjórnmálaleiðtogi er myrtur.
Lögregla í Hollandi hafði hendur í
hári meints morðingja Fortuyns að-
eins örfáum mínútum eftir að at-
burðurinn átti sér stað. Hann er 32
ára og hvítur á hörund. Er fullyrt að
hann sé róttækur vinstrimaður sem
barist hafi fyrir réttindum dýra.
Kosning-
um ekki
frestað í
Hollandi
Haag. AFP.
Hvar sem/22
HÁGRÁTANDI dreng er ekið í
barnavagni fram hjá mynd Henri
Matisse, „Portrett af Yvonne Lands-
berg“, í Tate-safninu í London í
gær. Um 130 myndir eftir lista-
manninn og Spánverjann Pablo Pi-
casso verða sýndar þar fram í ágúst.
Ósáttur
listrýnir
Reuters
♦ ♦ ♦
ÓTTAST er að eitt hundrað og tólf
manns hafi farist þegar flugvél kín-
verska flugfélagsins China Northern
Airlines lenti í hafinu nærri borginni
Dalian í Norðaustur-Kína í gær.
Ekki er vitað hvað olli slysinu en
ljóst þykir að mikill eldur hafi bloss-
að upp í farþegarýminu.
Slysið átti sér stað kl. 13.30 í gær
að ísl. tíma, eða um hálftíu að kvöldi
að kínverskum tíma. Misstu flugum-
sjónarmenn á jörðu niðri allt sam-
band við vélina eftir að flugmaðurinn
hafði greint frá því að eldur væri
kominn upp í flugstjórnarklefanum.
Flugvélin var af gerðinni MD-82
og var hún á leið frá Peking til Dali-
an er hún fórst. 103 farþegar voru
um borð og níu í áhöfn. Þetta er í
annað skipti á tæpum mánuði sem
kínversk flugvél ferst með fjölda
manns innanborðs en 15. apríl sl. fór-
ust 129 þegar Boeing 767-flugvél Air
China flaug inn í fjallgarð í Suður-
Kóreu. Er talið að þar hafi mistökum
flugmanns verið um að kenna.
15 fórust í flugslysi í Túnis
Fréttir af flugslysinu í Kína komu
skömmu eftir að flugvél egypska
flugfélagins EgyptAir hafði nauðlent
nærri Túnisborg, höfuðstað Túnis.
64 voru um borð í vélinni, sem var af
gerðinni Boeing 737-500, og sögðu
egypsk yfirvöld að fimmtán manns
hefðu farist en aðrir komist lífs af.
112 biðu bana í
flugslysi í Kína
Peking. AFP.