Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isKA-menn tryggðu sér oddaleik í handboltanum / B2 Arsenal enskur meistari án taps á útivelli / B4 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í Á FIMMTUDÖGUM NÝ rannsóknarstöð Hjartaverndar var formlega tekin í notkun í gær í Holtasmára 1 í Kópavogi. Rann- sóknarstöðin er á þremur hæðum í sérhönnuðum húsakynnum og er búin fullkomnum tækjum til rann- sókna. Að undanförnu hafa umsvif í starfsemi Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar aukist umtalsvert, ekki síst vegna öldrunarrann- sóknar Hjartaverndar, sem er sam- vinnuverkefni Öldrunarstofnunar bandaríska heilbrigðisráðuneyt- isins og Hjartaverndar. Stjórn þess verkefnis er í höndum íslenskra og bandarískra vísindamanna. Aðal- forsvarsmaður þess á Íslandi er Vilmundur Guðnason, læknir og erfðafræðingur og dósent við læknadeild Háskóla Íslands, og í Bandaríkjunum er aðalforsvars- maður þess Tamara Harris, læknir og faraldsfræðingur. Við rannsóknina verða rann- sökuð öll helstu líffærakerfi sem tengjast færni og lífsgæðum á efri árum. Við það verður notuð full- komnasta tækni eins og segul- ómun, tölvusneiðmyndir og óm- skoðanir. Helsti ávinningur sem ætlað er að ná fram með þessari rannsókn er að fá upplýsingar sem nýta má í fyrirbyggjandi lækn- isfræði til að auka færni ein- staklingsins á efri árum og þar með lífsgæði hans. Vonast er t.d. til þess að upplýsingarnar nýtist til að fækka legudögum á sjúkra- húsum og tefja verulega fyrir sjúk- dómum sem herja á aldraða. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra opnaði rannsóknarstöðina að við- stöddu fjölmenni í gær og Gunnar Sigurðsson, formaður Hjarta- verndar, bauð gesti velkomna. Vil- mundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar, kynnti síðan stöð- una og ný verkefni Hjartaverndar. Þrátt fyrir ný verkefni mun Hjartavernd áfram vinna að því sem kallað er hefðbundið áhættu- mat og öðrum rannsóknum sem þegar eru hafnar. Ný rannsóknarstöð Hjartaverndar tekin formlega í notkun Aukin umsvif vegna öldr- unarrannsóknar Morgunblaðið/Sverrir Nýtt húsnæði Hjartaverndar var tekið í notkun í gær. Á myndinni eru Vilmundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartaverndar, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Gunnar Sigurðsson, formaður Hjartaverndar. ÞEIR sem greiða vanskilavexti í dag greiða 14,5% í raunvexti miðað við síðustu vísitölumælingu Hagstof- unnar. Vanskilavextir, sem í dag eru 22%, hafa ekkert breyst á þessu ári þó að verulega hafi dregið úr verð- bólgu. Í mars námu yfirdráttarlán lánakerfisins samtals 162 milljörðum króna. Tekjur lánastofnana af þess- um yfirdrætti eru varlega áætlaðar um 30 milljarðar króna á ári. Vanskilavextir voru hæstir 24% á fyrri hluta síðasta árs, en þeir lækk- uðu um 0,5% í maí í fyrra og fóru síð- an niður í 22% um áramót. Verð- bólga var á síðari hluta síðasta árs liðlega 8%, en það þýðir að raunvan- skilavextir voru tæplega 15% á þeim tíma. Í janúar var 12 mánaða verð- bólga í hámarki en þó voru vanskila- vextir 22%. Raunvanskilavextir voru þá u.þ.b. 12,5%. Samkvæmt síðustu mælingu Hagstofunnar er 12 mánaða verðbólga 7,5% og því eru raunvanskilavextir 14,5%. Ef hins vegar er miðað við 6 mánaða verðbólgu eru raunvextirnir 18%. Líkur eru á að mæling Hagstofunn- ar sem birt verður eftir helgi sýni óverulegri hækkun verðlags sem þýðir enn frekari lækkun á 12 mán- aða verðbólgu. 162 milljarðar í yfirdráttarlánum Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka námu yfirdráttarlán í bankakerfinu samtals 162,2 milljörð- um 31. mars sl. Um áramótin námu þessi lán 135,5 milljörðum og hafa því hækkað um 26,7 milljarða á þremur mánuðum. Yfirdráttarlán einstaklinga námu 66,8 milljörðum í lok mars, en námu 59,6 milljörðum um síðustu áramót og 54,2 milljörð- um í ársbyrjun í fyrra. Yfirdráttar- lán fyrirtækja námu 74,6 milljörðum í lok mars og höfðu þau hækkað um 5,2 milljarða frá áramótum. Yfir- dráttarlán fyrirtækja í ársbyrjun 2001 námu 55,8 milljörðum. Vextir á yfirdráttarlánum sem fyrirtæki taka eru núna 18,5– 19,45%. Einstaklingar greiða 19– 19,65% í vexti af yfirdráttarlánum. Bankarnir bjóða sumum viðskipta- vinum sínum afslætti frá þessum vöxtum. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að bankar og sparisjóðir séu því að innheimta um 30 millj- arða í vexti af yfirdráttarlánum á ári. Í lok mars námu yfirdráttarlán í bankastofnunum 162 milljörðum Innheimta 30 milljarða í vexti af yfirdráttarlánum                                                                              ALLIR heilsugæslulæknar á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja, fast- ráðnir sem lausráðnir, hafa sagt upp störfum, að sögn Kristmundar Ásmundssonar, yfirlæknis heilsu- gæslusviðs stofnunarinnar. Lækn- arnir sögðu upp 1. maí síðastliðinn og sagði Kristmundur starfi sínu lausu í kjölfarið þegar hann áttaði sig á því að hann yrði eini starfandi heilsugæslulæknirinn á Suðurnesj- um. Alls er um að ræða tíu fast- ráðna lækna og tvo lausráðna sem endurnýja ekki samninga sína. Ástæðan er að sögn Kristmundar óánægja með starfsskilyrði heilsu- gæslulækna og yfirgangur heil- brigðisráðuneytis. Hann segir úr- skurð kjaranefndar um að heilsu- gæslulæknum skuli ekki greitt fyrir útgáfu vottorða og síðar úrskurð um að læknum skuli greidd einhver þóknun fyrir, einungis vera kornið sem fyllti mælinn. „Það er búið að ganga á ýmsu í heilsugæslunni. Starfsskilyrði okkar hafa versnað til muna og menn eru mjög óánægðir almennt,“ segir Krist- mundur. Heimilislæknar hafi ekki sambærileg starfsskilyrði og aðrir sérfræðingar í landinu, þeim sé t.d. ekki mögulegt að opna sína eigin stofu. Á heilsugæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði undirbúa allir heilsu- gæslulæknarnir hópuppsögn. Emil Sigurðsson yfirlæknir segir að um níu lækna sé að ræða. Verið sé að skoða hvernig hægt sé að útfæra uppsögnina þannig að fólkið geti haldið áfram að starfa saman. Emil segir að meðal annars sé í skoðun hvort hópurinn geti stofnað lækna- stofu í sameiningu. Læknar á Suður- nesjum segja upp FYRRVERANDI stjórnarformaður og framkvæmdastjóri Juris, inn- heimtu- og lögfræðistofu, var dæmd- ur í 15 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í gær og til greiðslu tæp- lega 4,2 milljóna króna bóta fyrir fjár- drátt og skjalafals. Ákærði var sekur fundinn um það að hafa á tímabilinu 18. október 1995 til og með 10. janúar 2000 dregið sér og notað í rekstur Juris samtals 9.455.703 kr. sem var hluti af greiðsl- um sem innheimtar voru upp í kröfur 43 viðskiptamanna Juris hjá 95 skuld- urum þeirra. Þá var hann fundinn sek- ur um að hafa falsað alls níu víxla sem hann notaði í viðskiptum. Við refsi- ákvörðun var litið til þess að ákærði olli fjölda viðskiptamanna Juris yfir- gripsmiklu fjárhagstjóni með brotum sínum og að þau tóku yfir langt tíma- bil. Með brotunum þótti hann og hafa brugðist trúnaðartrausti þessara við- skiptamanna, sem og skuldaranna, sem eru 95 talsins. Ákærða var metið til refsimildunar að hann var sam- vinnufús við rannsókn málsins og að- stoðaði lögregluna eftir föngum við að upplýsa það. Hann var einnig dæmd- ur til að borga allan sakarkostnað. Guðmundur L. Jóhannesson hér- aðsdómari kvað upp dóminn. Skipað- ur verjandi ákærða var Helgi Jóhann- esson hrl. Sækjandi var Helgi M. Gunnarsson. 15 mánaða fangelsi fyr- ir fjárdrátt og skjalafals DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sækir árlegan sumarfund forsætis- ráðherra Norðurlanda sem haldinn verður í Molde í Noregi dagana 12. og 13. maí nk. Auk þess að ræða sameiginleg málefni munu norrænu forsætisráð- herrarnir eiga fund með Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku. „Við forsætisráðherrarnir höfum stund- um hitt ráðherra frá öðrum heims- hlutum. Forsætisráðherra Japans hefur í tvígang komið á þessa fundi,“ sagði Davíð í samtali við Morgun- blaðið og sagðist telja að fróðlegt myndi verða að hitta Thabo Mbeki að máli. Eiga fund með forseta Suður-Afríku
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.