Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 59 DAGBÓK Mikið úrval Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. af buxum  Innilega þakka ég ættingjum og vinum sem glöddu mig á áttræðisafmælinu mínu og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Sigrún L. Sigurðardóttir. Útsala vegna breytinga 30–50% afsláttur Opið virka daga frá kl. 11–18, laugard. kl. 11–15 og sunnudaginn 12. maí frá kl. 13–16 Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Hættum með húsgögn Einstakt tækifæri að eignast massív handskorin húsgögn á frábæru verði. Sófasett, stakir stólar, borðstofusett, kistur innskotsborð og margt fleira. Ármúla 17a - 108 Reykjavík - Sími 553 8282 Í sumar Hugræn teygjuleikfimi frá Kína er blanda af nútíma leikfimi og hefðbundinni kínverskri leikfimi sem á sér aldagamla sögu. Hún eflir bæði líkamlegt og andlegt heilbrigði. Hún einkennist af af- slöppuðum og mjúkum hreyfingum sem þjálfa í senn líkama og huga. • Einkatímar — hóptímar Kínversk leikfimi TIL að byrja með koma að minnsta kosti þrjár leiðir til greina í sex hjörtum suðurs. En möguleikunum fækkar þegar spilinu vindur fram: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ K74 ♥ ÁG3 ♦ 972 ♣ÁK109 Suður ♠ D ♥ KD10962 ♦ ÁK5 ♣763 Vestur Norður Austur Suður – – 2 spaðar* 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass * Veikir tveir – sexlitur og 5–10 punktar. Vestur kemur út með smá- an spaða og austur tekur á ásinn og spilar gosanum til baka. Hvernig sér lesandinn framhaldið fyrir sér? Fyrsta hugsunin sem kviknar er að henda laufi í spaðakóng og reyna síðan að fríspila þrettánda laufið með trompun. En það eru fleiri kostir í stöðunni. Austur á sexlit í spaða og ef hann fylgir þrisvar lit í trompinu getur hann ekki átt nema fjögur spil í láglitunum. Ef austur á skiptinguna 6-3-2-2 má þvinga vestur í laufi og tígli með því að spila tromp- unum til enda. Þriðji kostur- inn er svo að tvísvína fyrir DG í laufi í vestur. En ekkert liggur á. Laufi er hent í spaðakóng, spaði trompaður og hjarta spilað. Í ljós kemur að trompið liggur 2-2. Þá þýðir ekkert að spila upp á þvingun og það virðist rökrétt að reyna að tromp- fría laufið. Enn á ný er samt rétt að fara rólega í málin – taka fyrst ÁK í tígli og kanna leguna þar. Þá kemur hlið óvænta í ljós – austur á ein- spil: Norður ♠ K74 ♥ ÁG3 ♦ 972 ♣ÁK109 Vestur Austur ♠ 865 ♠ ÁG10932 ♥ 74 ♥ 85 ♦ D108643 ♦ G ♣D5 ♣G842 Suður ♠ D ♥ KD10962 ♦ ÁK5 ♣763 Þar með er austur upp tal- inn með sexlit í spaða, tvö hjörtu og einn tígul. Og þar af leiðandi fjórlit í laufi. Næst er ÁK í laufi spilað og þegar vestur sýnir drottninguna er vandalaust að trompsvína fyrir gosann í austur. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert framtakssamur, for- sjáll og bjartsýnin uppmáluð og lætur fátt þér til leiðinda verða. Lífið blasir við þér. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú lætur smávægilegt atvik hafa of mikil áhrif á þig í dag. Reyndu að huga að framtíð- inni og hugsa um það sem skiptir meira máli. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það skiptir meira máli hvað þú veist en hverja þú þekkir. Hættu því að gangast upp í kunningsskapnum og menntaðu sjálfan þig. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú átt eftir að uppskera laun erfiðis þíns. Það er allt í átt- ina hjá þér og ástæðulaust með öllu að vera með ein- hverja feimni gagnvart öðr- um. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Fáðu einhvern sem þú treystir til að koma þér í samband við raunveruleik- ann því þú ert ekki fær um að taka skynsamlegar ákvarðanir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að ljúka því verkefni sem þér hefur verið falið. Rasaðu ekki um ráð fram á lokasprettinum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þótt bjartsýnin sé til staðar máttu ekki láta hana taka svo yfir að þú gerir þér enga raunhæfa grein fyrir stöðu þinni. Sýndu skynsemi. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þér sárna ummæli sem falla í samtali innan fjölskyldunn- ar. Láttu samt öfund ann- arra ekki draga þig niður heldur láttu sem ekkert sé. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú átt enn langt í land með að klára það verkefni, sem þú beinir mestri orku að. Láttu það ekki trufla þig, því í raun liggur ekkert á. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þér lætur vel að leiða aðra í starfi. Gættu þess bara að of- metnast ekki þegar vel gengur því dramb er falli næst. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur unnið vel að und- anförnu og getur því um frjálst höfuð strokið. Leggðu drög að því að komast í gott ferðalag. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ósérhlífni þín og trú- mennska í starfi fer ekki framhjá yfirmönnum þínum og þú mátt vera viss um að hljóta þau laun sem þú átt skilið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu sem minnst á því bera, hvað þú heldur um framtak samstarfsmanna þinna. Þeir munu á endanum komast að því að þú ert þeirra lykilmað- ur. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 60ÁRA afmæli. Í dag, 9.maí, er sextugur Magnús R. Aadnegard, vél- virkjameistari og einn eig- enda Véla- og skipaþjónust- unnar Framtaks ehf., Hafn- arfirði. Kona hans er Kristín Ína Pálsdóttir, kennari og bókasafnsfræðingur. Þau taka á móti gestum í veit- ingahúsinu Skútunni í kvöld milli klukkan 20 og 24. 50 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 9. maí, er fimmtugur Hreinn Ómar Sigtryggsson, Klapp- arbergi 13, Reykjavík. Kona hans er Ólafía Ott- ósdóttir. Þau hjónin verð að heiman í dag. LJÓÐABROT HEIMFÝSI Fagurt var kvöldið í friðsælum lund, fagurt var suðrið hið varma. Sá ég þar ótal hin svarteygu sprund, snjóhvíta fætur og arma. Annað mér samt í öndinni skein, unni ég hvergi þar silkirein. Hetjurnar frægu á fornmanna grund fundu að hjarta mér leiðir; heiðurinn fagur um hauður og sund, Helíkons lindir og meiðir. Ó hvað ég ann þér, hin aldna tíð, innsett og helguð af frjálsum lýð. Ó hvað ég ann þér, mitt ljúfasta land, leit ég þar fyrst mína daga. Aldan þar hljómar við ægisand, eilíf og fræg er þín saga. Saga þér bendir, og sætt hún hlær – á sigrinum frelsið og veldið grær. Benedikt Gröndal 1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. Rbd2 c6 4. g3 Bg4 5. Bg2 Rbd7 6. 0–0 e6 7. He1 Be7 8. e4 dxe4 9. Rxe4 Rxe4 10. Hxe4 Rf6 11. He1 0–0 12. c3 Rd5 13. c4 Rb6 14. b3 Bb4 15. Bd2 Bxd2 16. Dxd2 Bxf3 17. Bxf3 Df6 18. De3 Hfd8 19. Had1 g6 20. a4 Df5 21. Be4 Da5 22. Df4 Snorri G. Bergsson (2.275) hefur á síð- ustu misserum verið virkur þátttandi í ís- lensku skáklífi. Um- ræðuhorn skák- manna hefur m.a. verið sá vettvangur sem hann hefur hasl- að sér völl. Fyrir ut- an skrif sín teflir hann meira en um langt skeið. Í stöð- unni hafði hann svart gegn Erlingi Þorsteinssyni (2.142) á Reykjavík- urskákmótinu. 22. ...Hxd4! Með þessu vinnur svartur peð en því fer fjarri staða hans sé unnin. 23. Df6 e5 24. Kg2 He8 25. Bxg6! fxg6 26. Hxd4 Dxe1 27. Hh4?? Hvítum yfirsást að hann náð jafntefli með 27. Hd8 Hxd8 28. De6+. Fram- haldið varð: 27. ...Rd7 28. Dd6 Rf8 29. c5 Da5 30. f4 exf4 31. b4 Dd8 32. Dxf4 He2+ 33. Kh3 Dd7+ 34. Hg4 De6 35. Dc4 Dxc4 36. Hxc4 Re6 og hvítur lagði niður vopin. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Með morgunkaffinu Nei, það hjálpar ekki upp á uppeldið að gefa honum hjól. En strákapörin munu dreifast víðar. 50 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn 10. maí, er fimmtug Kristín Helga Jónatansdóttir, starfsmaður á Hótel Loft- leiðum. Hún tekur á móti gestum föstudaginn 10. maí kl. 18 í Síðumúla 11. FRÉTTIR LANDSÞING ITC verður dagana 10.–11. maí nk. í Hásölum, Safn- aðarheimili Hafnarfjarðarkirkju viðStrandgötu. Fjölbreytt dagskrá er á þinginu. Á föstudag verður m.a. ræðukeppni og Mary E. John- son varaforseti II. svæðis ITC flyt- ur fréttir frá stjórn alþjóðsamtak- anna. Heiðursgestur við þingsetn- ingu er Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir alþingismaður. Á laugardag heldur Hansína B. Einarsdóttir afbrotafræðingur fyr- irlestur undir heitinu: „Ég.is“. Um tengsl, persónulegan styrk og tækifæri á 21. öldinni. Fyrirlestur Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur frá Geðrækt nefnist „Sjálfsmynd, geðheilsa, vellíðan“ og að lokum er Mary E. Johnson, varaforseti II. svæðis, með fyrirlestur er nefnist „What’s In It For Me? – 2003“ Um kvöldið verður hátíðarkvöld- verður og skemmtidagskrá. Heið- ursgestur verður bæjarstjórinn í Hafnarfirði, Magnús Gunnarsson. Kvöldstund með Þorvaldi Hall- dórssyni og innsetning nýrrar stjórnar. Vigdís Finnbogadóttir fyrverandi forseti Íslands veitir formlega viðtöku titlinum „Sam- skiptajöfur ársins“. Forseti Land- samtaka ITC er Edda M. Hall- dórsdóttir. Heimasíða ITC er www.simnet.is/itc. Landsþing ITC í Hafnarfirði AÐALFUNDUR skíðadeildar Breiðabliks verður haldinn miðviku- daginn 15. maí nk. kl. 20 í Smáran- um. Venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur skíðadeildar Breiðabliks B-LISTINN efnir til skoðunarferð- ar um Garðabæ í dag, uppstigning- ardag. Lagt verður upp frá Hofsstaða- skóla klukkan 13 og ekið um bæinn í rútu. Komið verður við á þeim stöðum í Garðabæ þar sem unnið er að nýju skipulagi eða framkvæmdir eru fyr- irhugaðar. Eins verða nýbyggingar- svæði skoðuð. Sérstaklega verður staldrað við á Vífilsstöðum, þar sem B-listinn vill að byggð verði upp fjölþætt þjón- usta með íbúðum fyrir aldraða í sam- vinnu við heilbrigðisyfirvöld. Einnig verður komið við á lóðinni á Hraunsholti þar sem B-listinn vill að nýr skóli fyrir Ásahverfi og Strandhverfi rísi. Skoðunarferð með B-listanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.