Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 28
LISTIR 28 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BERGÞÓR Pálsson barítonsöngv- ari og Jónas Ingimundarson píanó- leikari halda ljóðatónleika í Saln- um í kvöld kl. 20. Á efnisskrá er ljóðaflokkurinn Dichterliebe (Ást skáldsins) eftir Schumann og frönsk ljóðalög eftir Chausson, Gounod, Duparc og Ravel. Ást skáldsins eftir Schumann er einn þekktasti lagaflokkur, sem saminn hefur verið, með16 lögum við ljóð eftir Heine. Bergþór segir að lögin láti ekki öll mikið yfir sér, „en magn er ekki alltaf sama og gæði, stundum er það smæsta það dýrmætasta í lífinu. Schumann var glæsipíanisti og var með þeim fyrstu til að gera píanóinu jafnhátt undir höfði og röddinni. Tónlist og orð eru svo samtvinnuð, að þeir fé- lagar hafa greinilega verið andlega skyldir, enda báðir nánast sjúklega viðkvæmir. Það má reyndar segja um frönsku tónskáldin líka og ástin hjá rómantísku skáldunum er gjarnan óendurgoldin. En þráin eftir óskilgreindri fyllingu, ham- ingju og samræmi er alls ekki bundin við rómantíska tímann, heldur er hún sammannleg á öllum tímum og kannski ekki síst í dag, þegar fólk hefur mikil ytri gæði, en virðist samt vera í sífelldri leit eftir einhverju óþekktu. En stundum rofar til og kemur vor! Og jafnvel fáum við fínlegan húmor í lokin í lögunum um hinn sjálfumglaða að- alsmann, Don Kíkóta.“ Íslenskar þýðingar á skjá Á tónleikunum verður íslenskum þýðingum í fyrsta skipti varpað upp á skjá. „Þetta hefur raunar lengi verið gert í óperuhúsum,“ segir Bergþór. „Á ljóðatónleikum fær maður hins vegar oftast lítinn bækling með þýðingum. Mér finnst þó truflun að því að rýna ofan í efn- isskrár og það segir ekki nema hálfa söguna að horfa á söngv- arann og reyna að ráða í svip- brigðin. Það er svipað og að hlusta á útlending tala mál sem maður skilur ekki í einn og hálfan tíma. Eftir svoleiðis útreið er maður örmagna og tómur. Ég held að þetta sé ástæðan fyrir því, að margir halda að þetta listform sé of framandi fyrir sig. Þess vegna langar mig til að hjálpa hverjum sem er utan af götunni til að koma og njóta alls sem fer fram. Raunar er ekki fráleitt að varpa texta upp, jafnvel þótt söngvarar séu að syngja á máli sem allir skilja, því þeir eru misleiknir í að halda text- anum skýrum. Ef orð eru notuð á annað borð, hlýtur að vera frum- skilyrði að þau komist til skila, svo að þau nái tilgangi sínum. Ég vona að þetta gangi tæknilega vel fyrir sig, en mér finnst það a.m.k. til- raunarinnar virði.“ Þetta eru fyrstu ljóðatónleikar Bergþórs í nokkurn tíma. Hvað veldur? „Það er sérkennilegt, því að þetta listform höfðar meira til mín en allt annað. Ástæðan er kannski fyrst og fremst praktísk, ég hef lif- að af söng á Íslandi sl.15 ár, en það er fyrst og fremst vegna tækifær- issöngs sem ég hef átt salt í graut- inn. Því miður hefur engum söngv- ara ennþá tekist að lifa af óperusöng einum saman á Íslandi, – þó að fastráðningar við Óperuna séu skref í rétta átt, – hvað þá ljóðasöng. Ef vel á að vera, þarf söngvari að undirbúa sig fyrir ljóðatónleika í a.m.k. heilt ár, í fyrsta lagi að læra ljóðin, skilja og skynja hvert einasta orð, sökkva sér ofan í verkefnið, kafa ofan í merkinguna, gráta og hlæja og upplifa ljóðin jafnvel svo sterkt að hann næstum bilist og sé lagður inn. Þetta er dálítið sérstæð árátta, en af einhverjum ástæðum er þetta ótrúlega spennandi viðfangsefni.“ Botnlaus áhugi Hvað þarf ljóðasöngvari að hafa til brunns að bera? „Mikla fantasíu, en kannski fyrst og fremst takmarkalausa virðingu fyrir viðfangsefninu og botnlausan áhuga fyrir orðsins list, ekki síður en tónlist. Í frægu Stuðmannalagi segir, að ég mundi gera allt fyrir frægðina, nema kannski að koma nakinn fram. Góður ljóðasöngvari gefur hins vegar ekkert fyrir frægðina eða aðdáun annarra, en þarf að vera tilbúinn til þess að koma nakinn fram. Þá meina ég að ljóðatónleikar eru ekki nema svip- ur hjá sjón, ef söngvarinn deilir ekki töluverðum hluta af sálarkirn- unni með áheyrendum. Ég sótti nokkur námskeið hjá þeim fræga ljóðasöngvara Gérard Souzay. Mér er alltaf minnisstætt þegar hann sagði: Þú skalt gæta þess að spegla ekki sjálfan þig í tónlistinni, það er tónlistin sem á að speglast í þér. Það er eitthvað óekta við það þegar söngvarar með góðar raddir virðast syngja með það að mark- miði að slá sér upp og baða sjálfan sig í aðdáun annarra, þó það geti auðvitað verið bráðfyndið í aðra röndina. En auðvitað þarf allt að koma saman, það er líka frat að syngja Hamraborgina og sleppa háa tóninum í lokin. Sé hann glæsi- legur, er það gott og blessað, en hjá góðum listamanni verður tónninn aðeins punkturinn yfir i-ið, aðeins tjáning á því að „nóttin logar af norðurljósum“. Og hjálpi mér hvað það er margt sem getur gerst við þær aðstæður! Það er einmitt slík skynjun sem áheyrendur eiga að geta upplifað og bætt við sínum eigin hugarheimi og ímyndunarafli á ljóðatónleikum.“ Takmarka- laus virðing Morgunblaðið/Kristinn Jónas Ingimundarson og Bergþór Pálsson koma fram í Salnum í kvöld. HVERS vegna Bach umritaði tríósónötur sínar þrjár í G, D og g fyrir flautu, fiðlu og fylgibassa (BVW 1027-29), sem 1980-útgáfa Groves treystir sér ekki til að tímasetja nán- ar en 1720–39, fyrir sembal og gömbu, er ekki vitað. E.t.v. var það með nemanda sinn gömbusnillinginn Karl F. Abel (1723–87) í huga, er starfaði mikið með syni Bachs Jo- hann Christian í London. Þar var hið forna strokhljóðfæri enn í miklum metum og hafði verið allt frá endurreisnarskeiði fram eftir dögum Purcells, þótt hyrfi að mestu úr notk- un annars staðar upp úr Spænska erfða- stríðinu. En hvað sem því líður þá hefur jafnan reynzt staðgóður mælikvarði á burðargetu viðkomandi tónefnis þegar Bach umritaði eldra verk eftir sig fyrir nýja áhöfn, því oft- ar en ekki er um sérstaklega grípandi stefja- val að ræða. Það kemur dável heim og sam- an við gömbusónöturnar, sem uppfullar eru af óvenjuhrífandi lagferli, og er D-dúr són- atan þar sízt eftirbátur systra sinna. Sjálf- stæður hermikontrapunktur hægri handar á hljómborðið til móts við gömburöddina ber upphaflegri flauturödd glöggt vitni, og lag- ræn áhrif frá stimamjúkum „galant“-stíl Frakka eru víða til vísbendingar um að frumverkið geti varla hafa verið samið öllu fyrr en upp úr 1730, þegar rókókó-undanfari snemmklassíkur hóf að ryðja „lærðu“ vinnu- brögð barokksins úr tízku. Það er reyndar til marks um snilld Bachs hvað honum tókst oft á seinni árum að laga sig að ríkjandi smekk án þess að slaka á eigin kröfum um vandaða raddfærslu, og er Tríósónatan úr Tónafórninni meðal glæsilegustu dæma þess. Jafnvægið milli hljómborðs og hinnar lág- væru gömbu var ekkert vandamál á hámekt- ardögum sembalsins. Svo er hins vegar í dag ef píanó er inni í dæminu, því þó að sellóið sé kraftmeira en gamla þverbandastrokfærið, er nútíma slagharpa tugfalt hljómstyrkari en nokkur semball. Jafnvel á hálfopnu flyg- illoki hafði sellóleikur Nicole Völu ekki alltaf í fullu tré við píanóið, enda þar við mikinn nótnaflaum að eiga í hröðu þáttum són- ötunnar (II. og IV.) sem varð enn erfiðara að hemja í eldhressu tempóvali dúósins. Burtséð frá þeim vanda, sem gerir þetta til- tekna verk trúlega verr fallið til slaghörpu- útfærslu en mörg önnur sembalverk Bachs, fannst mér atgangur téðra þátta ganga tölu- vert út yfir innbyggða danssveiflu rithátt- arins, og hefði í stöðunni verið músíkalskara bragð hjá Árna að viðurkenna hljómþunga hljóðfærisins og leika hægar, í stað þess að eltast líkt og í upphafshyggjuskyni við hrað- saumsyfirburði sembalsins. Að auki hefði gefizt tóm til að gefa rytmíkinni meiri gaum, einnig í selló. Hægu þættirnir tókust hins vegar mjög vel, og var einkum fallega „sung- ið“ hjá báðum í þeim fyrsta. Þrískipt hrynj- andin var að vísu svolítið órytmísk í III., en legatóstaðirnir vógu hana upp. Gamban hafði verið týnd og tröllum gefin hátt í öld þegar hún endurbirtist skyndilega í Vín kringum 1820 í formi sex strengja strokgítarsins „arpeggione“. Hljóðfærið naut nægilegrar alþýðuhylli til að Schubert náði að semja fyrir hana þríþætta sónötu, skömmu áður en hún datt jafnskyndilega úr tízku og hefur ekki sézt síðan. Einhver kvitt- ur ku þó á sveimi um að ónefndur ein- staklingur suður í löndum sérhæfi sig í ar- peggioneleik. Gott ef ekki hann lifi á þessu eina verki, sem sellóleikarar heims hafa ann- ars tekið upp á sína arma, enda meðal inn- blásnustu kammerdúóa Schuberts og vin- sælt eftir því. Þrátt fyrir aðgengilegt tónmál útheimtir strokröddin m.a. töluverða hæð- artækni í sellóútgáfunni, sem virtist leika í höndum Nicole Völu, er auk þess brilleraði bæði á hraðspiccató og í hægum legatóleik með ferskri og fallegri hendingamótun, enda verkinu augsýnilega þaulkunnug. Píanistinn féll og vel að heildinni með snörpum en snyrtilegum leik í allgóðu jafnvægi, og forn- hverfur húmorinn fékk að leika lausum hala í piparjunkulegum tríókafla lokaþáttarins. Glettnin réð einnig víða ríkjum í lokaverki kvöldsins, hinni meistaralegu fjórþættu Són- ötu Sjostakovitsjar frá 1934, sama ári og hann var tekinn á teppið hjá Stalín fyrir „Kaos í stað tónlistar“. En hér grúfði aftur á móti undir nístingsnapur tónn, m.a.s. í laumulegu „róbotnik“-kómíkinni í Fínalnum sem leiddi hugann að tilburðum Chaplins við færibandið í Nútímanum. Flytjendum tókst bráðvel upp í þessari frábæru tónsmíð, sem frá upphafi til enda er sneisafull af rak- vélablaðshvassri andagift. T.a.m. nutu sín skemmtilega andstæðurn- ar milli hins tryllta nornadans í upphafi II. þáttar og sakleysislegu spiladósastefjanna í kjölfarið, og mótun dúósins var borin uppi af þroskuðu öryggi í fáguðum Largóþættinum (III.), í skáldlegri andstöðu við ofsafengnu sviptingarnar í IV. Einstaka sinnum hefði kannski mátt gæla nákvæmar við rytmíkina, en í heild var sönn ánægja af innlifaðri túlk- un þeirra tvímenninga á þessu sígilda dæmi um að frumleiki í tónlist þarf ekki endilega að vera háður framsækni og tilrauna- mennsku. Ferskt og innlifað TÓNLIST Salurinn J. S. Bach: Gömbusónata í D, BWV 1028. Schubert: Sónata í a, „Arpeggione“. Sjostakovitsj: Sónata í d, Op. 40. Nicole Vala Cariglia, selló; Árni Heimir Ing- ólfsson, píanó. Þriðjudaginn 7. maí kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson FÆREYSKU myndlistarmennirnir Olivur við Neyst og Anker Morten- sen sýna um þessar mundir málverk í Baksalnum í Galleríi Fold. Olivur og Anker hafa hvor með sínum hætti vakið athygli á listsvið- inu í Færeyjum, Danmörku og víð- ar. Olivur er meðal þekktari fær- eyskra samtímalistamanna en hann lauk námi við Listaakademíuna í Kaupmannahöfn árið 1981 og hefur sýnt víða á Norðurlöndunum. Olivur segist hafa komist í kynni við ís- lenskan listheim í gegnum góðan vin sinn sem er skipstjóri á íslenskum togara. Sá er mikill fagurkeri og nýtir víðförli sína sem skipstjóri til þess að fylgjast með myndlistarlífi. „Matthías er enginn venjulegur skipstjóri.....“ segir Olivur hugsi, „En hann kynnti mig sem sagt fyrir Tryggva og Elínbjörtu í Galleríi Fold. Ég sýndi hérna árið 1997, og í þessu tilfelli var það aftur Matti sem kom okkur Anker saman um að halda þessa sýningu í galleríinu nú. Við Anker þekkjumst vel og má finna ákveðin tengsl í því sem við er- um að gera. Þannig fannst okkur góð hugmynd að sýna saman ný verk úr okkar fórum,“ segir Olivur. Þegar litið er til verkanna á sýn- ingunni má greina með þeim nokkur tengsl, Olivur segir að þau felist í notkun beggja á bláa litnum, en Anker telur að áhrifin séu e.t.v. ör- lítið flóknari en svo, þar nálgist þó báðir listamenn náttúruna á hug- lægan máta. „Olivur er kannski eins og einni kynslóð á undan mér í mál- verkinu, og eru verk hans e.t.v. hluti af hefð sem ég vinn út frá. Afstrakt- málverkið hefur verið mjög sterkt í færeyskri myndlist frá því á 6. ára- tugnum og sumir tala um að þar ríki mikið frelsi í tjáningu, um leið og náttúran sé þar miðlæg. Persónu- lega vinn ég mín verk sem huglæga túlkun eftir að hafa stúderað lands- lagið vel. Þetta er eina rétta leiðin að mínu viti þar sem upplifunin kemur í raun aldrei fyrr en eftir að maður hefur séð hlutina og stúderað þá. Þá fyrst getur maður raunveru- lega „séð“ hlutinn. Ég nálgast í raun landslagið á þennan hátt, ekki síst færeyska náttúru, en ég bý þar hluta ársins, eins og farfugl,“ segir Anker. Í Baksalnum sýnir Anker níu stór olíuverk, ætingu og gipsverk en Olivur sýnir 11 olíumálverk og 16 vatns- og pastelverk. Verk hins síð- arnefnda bera sterk einkenni af- strakt expressjónisma og eru þau að hans eigin sögn unnin út frá áhrifum af færeysku náttúruumhverfi. „Ég bý í Þórshöfn og mála náttúruna í kring með afstrakt og fígúratívri nálgun. Ég kæri mig satt að segja lítið um innsetningar og aðra til- burði. Málverkið er minn miðill,“ segir Olivur og eftirlætur væntan- legum sýningargestum frekari út- leggingar á verkum sínum. Sýningin Úr frændgarði var opn- uð síðastliðinn laugardag og mun hún standa til 20. maí næstkomandi. Á sama tíma stendur yfir sýning á vefmyndum Vigdísar Kristjánsdótt- ur (1903–1981) í Rauðu stofunni í Galleríi Fold. Málverk úr frændgarði Olivur við Neyst og Anker Mortensen sýna málverk í Galleríi Fold.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.