Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 32

Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 32
UMRÆÐAN 32 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÚ FYRIR helgina voru samþykkt lög á Alþingi um veiðigjald á aflaheimildir. Tilefni þessara skrifa er ekki að fjalla efnislega um löggjöfina sem slíka heldur miklu fremur að fara nokkrum orðum um viðbrögð Morgun- blaðsins við henni, sem fram koma í leiðara og miðopnu. Það er fyrst og fremst í þeim hluta umfjöllunarinnar sem felst í grein fráfarandi ritstjóra, Matthíasar Johannessen, sem koma fram efnisleg at- riði sem knýja mig til að setja þessar línur á blað. Kaldar kveðjur Sé horft framhjá mjög svo sjálf- hælinni söguskoðun sem fram kem- ur í greininni eru þar atriði sem að mínu mati bæði túlka ótrúlegan hroka í garð þeirra sem stunda sjáv- arútveg og í öðru lagi byggjast að mínu mati á grundvallarmisskiln- ingi. Framarlega í greininni segir Matthías: „Ritstjórar blaðsins töldu sem sagt ekki, að það væri í anda kapítalismans að menn gætu lagt undir sig eigur annarra vegna þess að þeir höfðu komist yfir gamla ryð- kláfa sem voru ekkert annað en ávís- un á brask og óréttlæti, þegar kerfið var tekið upp.“ Hér eru þeir sem stunduðu sjávarútveg þegar kvóta- kerfið var tekið upp settir í einn flokk og í senn þjófkenndir og sak- aðir um siðlítið brask. Seinna í greininni lætur Matthías að því liggja að „eftir- minnilegir sjósóknar- ar“ finnist ekki lengur í hópi íslenskra útgerð- ar- og sjómanna. Ég vil í fullri einlægni hvetja Matthías til þess að taka sér nú ferð á hendur í hinar fjöl- mörgu þróttmiklu sjáv- arbyggðir landsins og þá mun hann komast að því að í þeim hópi, sem með vinnu sinni hefur lagt drjúgan skerf að góðum lífs- kjörum okkar, mun hann finna harðjaxla og eftirminnilega kar- aktera sem gætu fyllt Lesbók Morg- unblaðsins svo árum skipti. Að lokum hvað þennan þátt varð- ar hlýt ég að vitna í eftirfarandi: „Grikkland er hrunið, Hómer lifir,“ var einu sinni sagt. Hið sama mætti segja um Morgunblaðið, þegar talað er um stórmálin tvö um okkar daga, hrun kommúnismans og fiskveiði- stjórnunina. Lýðræðið og réttlætið. „Þarf frekari vitna við?“ Vinnsla og markaðsmál Sá sem þetta skrifar hefur haft tækifæri til þess að fylgjast með virkum hætti með íslenskum sjávar- útvegi í tvo áratugi. Á þessum tíma hef ég fylgst með greininni þróast frá því að vera drifin áfram af veið- um, þ.e. framleiðslan markaðist af þeim afla sem hægt var að ná á land og var að meginhluta unninn í ein- faldar pakkningar á lager. Sölumálin voru í höndum stóru sölusamtakana og farið með þau mál eins og eitt- hvað sem þeir, sem stunduðu veiðar og vinnslu, ættu að vita og skipta sér sem minnst af. Einhvern veginn finnst mér að umræða dagsins í dag taki að veru- legu leyti mið af þessum sjónarmið- um, þ.e. að íslenskur sjávarútvegur snúist fyrst og fremst um veiðar. Það er eins og menn hafi ekki tekið eftir því að hér hefur orðið á grund- vallarbreyting. Íslenskur sjávarút- vegur í dag snýst því fyrst og fremst um vinnslu og markaðsmál. Hann hefur á til þess að gera stuttum tíma breyst úr því að vera framleiðslu- drifinn í það að vera markaðsdrifinn. Í þessum anda er það sjónarmið Matthíasar sem kemur fram í eft- irfarandi tilvitnun: „Morgunblaðið hefur aldrei amast við þeim dugn- aðarforkum sem kunna öðrum frem- ur að gera út á gullnámuna umhverf- is landið, jafnvel þótt þeir hafi fengið kvótann á silfurbakka í upphafi og hann sé grundvöllur þess gróða sem menn hampa í ársskýrslum sínum nú um stundir.“ Fyrir þá sem stunda sjávarútveg sem atvinnugrein er kvótinn sem slíkur engin uppspretta hagnaðar. Hagnaðurinn verður því einungis til að innan fyrirtækjanna sé til þekking til þess að vinna og selja afurðirnar á sem arðbærastan hátt á hverjum tíma. Það eru hin raunverulegu verðmæti sem gera okkur kleift að byggja afkomu okkar að svo stórum hluta á sjávarútvegi sem raun ber vitni. Kvótinn er í raun hamlandi þáttur í starfseminni. Sett- ur á til þess að takmarka sókn í of- nýtta auðlind. Nýtt aðstöðugjald Ég ætla að lokum að fara nokkr- um orðum um þá löggjöf sem nú er búið að koma á. Ég vil í því sam- hengi nefna að ég tel eðlilegt og sjálfsagt að grunnatvinnuvegir eins og sjávarútvegurinn greiði fyrir þá þjónustu sem sótt er til hins opin- bera og varðar greinina. Hinu vil ég vara við að sett sé flatt aðstöðugjald, sem mun alltaf hafa tilhneigingu til að hækka, á eina atvinnugrein. Í þessu samhengi vil ég minna á að það er ekki nema áratugur síðan al- mennt aðstöðugjald var afnumið í ís- lensku atvinnulífi. Rökin fyrir því voru m.a. þau að flatur skattur á grunnþætti atvinnulífsins drægi þrótt úr fyrirtækjunum, þar sem sú króna sem tekin væri út úr rekstr- inum á þessu stigi margfaldaðist ekki í áframhaldandi rekstri eða uppbyggingu og skilaði því að lokum minni verðmætum í formi skatta en hún hefði gert að öðrum kosti. En veiðigjaldið sem nú hefur verið sett á er í raun ekkert annað en flatt að- stöðugjald sett á eina grein atvinnu- lífsins. Landsbyggðarskattur Hitt atriðið sem ég ætla að nefna varðar það hvar þessi skattlagning mun koma harðast niður. Það er ljóst að 75% af gjaldinu verða inn- heimt af landsbyggðinni. Það er einnig ljóst að mínu mati að þeir sem eiga verst með að standa undir því eru fyrirtæki sem eru að einhverju leyti rekin með önnur sjónarmið að leiðarljósi en hörðustu arðsemis- kröfur, s.s. byggðafestu. Þá munu skuldsett fyrirtæki af millistærð eiga mjög erfitt með að standa undir nýjum álögum, en í þeim flokki eru m.a. fjölskyldufyrirtæki, sem góðu heilli eru enn til og skipta víða miklu máli í sjávarútvegi út um land. Fyrr í grein minni vitnaði ég í orð Matthíasar um „lýðræðið og réttlæt- ið“. Lýðræðið á væntanlega sína til- vísun til falls kommúnismas og þá á réttlætið að öllum líkindum að vísa til þess að með nýrri löggjöf hafi réttlætið sigrað hvað varðar kvóta- kerfið. Í þessu samhengi hlýt ég að benda á hvað réttlætið er afstætt hugtak og er á líðandi stundu í raun túlkun einstaklinga eða hópa á sýn sinni á lífið og tilveruna. Við getum barist fyrir málefnum og haft sigur en hvað réttlætið varðar verðum við dauðlegir menn að bíða eftir ófull- komnum dómi sögunnar. Morgunblaðið og veiðigjaldið Jóhannes Geir Sigurgeirsson Kvótinn Íslenskur sjávarút- vegur, segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, snýst fyrst og fremst um vinnslu og markaðsmál. Höfundur er varaformaður stjórnar Samherja hf. VIÐ Skjálfanda stendur Húsavík, einn fegursti og vinsælasti ferðamannastaður á Ís- landi og er Húsavíkur- kirkja vafalaust þekkt- asta „vörumerki“ bæjarins. Ferðaþjón- usta á Húsavík hefur vaxið með ótrúlegum hraða undanfarin ár og nú er svo komið að bærinn er orðinn heimsþekktur fyrir hvalaskoðunarferðir, einstök söfn s.s. hvala- safn, byggðasafn, lista- safn, náttúrugripasafn og sjóminjasafn. Árið 2001 fóru tæplega 23.000 ferðamenn í hvalaskoðunarferðir frá Húsavík á móti 1.500 árið 1995 sem sýnir vel þróunina sem orðið hefur í komu ferðafólks til Húsavíkur. Í könnun Ferðamálaráðs árið 2001 sem gerð var í Keflavík, þ.e. þegar ferðamenn fara af landi brott kom fram að 45,5% allra erlendra ferðamanna heimsækja Húsavík sem gerir bæinn að einum vinsælasta ferðamanna- stað landsins. Fyrirtæki á svæðinu hafa fundið fyrir þessari jákvæðu aukningu enda hefur hún stutt við aðra uppbyggingu á svæðinu, m.a. í endurbyggingu gamalla húsa og opnun nýrra veitingahúsa, nýrra safna og uppbyggingu hótel- og gistiaðstöðu í og við bæinn. Það er ekki vafi í mínum huga að þessir samverkandi þættir hafa skapað Húsavík og Þingeyjarsýslum mjög jákvæða ímynd innanlands sem og erlendis. Mesta framkvæmdatímabilið Þá hefur verið mikið um fram- kvæmdir á Húsavík síðustu ár og hefur sú bæjarstjórn sem setið hefur síðasta kjörtímabil undir forystu Húsavíkurlistans lyft grettistaki, byggt nýja orkustöð sem framleiðir rafmagn úr heitu vatni og sér bæn- um að mestu leyti fyrir rafmagni. Í því sam- bandi var lögð ný að- veituæð frá Hveravöll- um til Húsavíkur. Verulegar endurbætur hafa verið gerðar á sundlaug bæjarins, nýr íþróttavöllur hefur ver- ið byggður, lokið var við byggingu grunn- skóla, átak var gert í gatnagerðarfram- kvæmdum og stærsta framkvæmdin á kjör- tímabilinu er bygging fyrri áfanga nýrrar hafnar sem ljúka mun í haust. Brýnasta verk- efni næsta kjörtímabils verður að ljúka þessari mikilvægu framkvæmd með byggingu viðlegukants árið 2004. Höfnin er lífæð Húsavíkur og því skiptir miklu máli að stjórnvöld vinni að því með heimamönnum að klára þessa mikilvægu framkvæmd. Húsavíkurlistinn hefur einnig stutt vel við æskulýðs- og íþróttamál og í því sambandi komið að endurfjár- mögnun Íþróttafélagsins Völsungs og þar með blásið nýju lífi í starfsemi félagsins. Með kaupum á líkams- ræktartækjum af fyrirtæki sem komið var í þrot, kom Húsavíkurlist- inn í veg fyrir að þau færu úr bæn- um. Þar með var komið til móts við vilja fjölmargra bæjarbúa sem hafa beitt sér fyrir því með undirskrift- arsöfnun, að tækin yrðu áfram í bænum. Frítt hefur verið í lyftur á skíðasvæði Húsvíkinga og nýlega var opnuð ný félags- og menningar- miðstöð fyrir unglinga. Sterkur byggðakjarni Húsavík er sterkur byggðakjarni sem styrkist enn frekar við samein- ingu við Reykjahrepp. Fyrir er á Húsavík góð heilsugæsla og sjúkra- hús, Dvalarheimili aldraðra, Fram- haldsskóli, fjölbreytt atvinnulíf, menningar- og listalíf. Í því sam- bandi vil ég nefna sérstaklega Leik- félag Húsavíkur og Tónlistarskóla Húsavíkur. Það starf sem fram fer á vegum þessara aðila hefur vakið mikla athygli víðs vegar um land. Þá er ekki bið eftir leikskólaplássi á Húsavík og eru 6 mánaða börn og eldri með aðgang að leikskólum. Landssíminn lagði fyrir nokkrum ár- um breiðbandskerfi í jörðu um allan Húsavíkurbæ fyrst allra sveitarfé- laga. Áhugi er fyrir því að nýta þess- ar grunnlagnir til að byggja upp net- tengt upplýsinga- og þekkingarsamfélag á Húsavík. Mikil orka er í og við Húsavík sem gerir bæinn að eftirsóknarverðum stað fyrir ný fyrirtæki. Í dag er til skoð- unar að byggja glúkósamínverk- smiðju, 5.000 tonna fiskeldisstöð og þá eru erlendir aðilar að kanna stað- arval fyrir súrálsverksmiðju á Ís- landi og kemur Húsavík þar mjög sterklega til greina. Verði þessar framkvæmdir að veruleika verður hægt að tala um „Stór-Húsavíkur- svæðið“ með göngum undir Vaðla- heiði sem mótvægi við höfuðborgar- svæðið. Heimamenn eru líka hugmyndaríkir og í því sambandi má benda á hugmynd um krókódílaeldi sem vakið hefur mikla athygli bæði hér innanlands og eins erlendis. Húsavík hefur alla möguleika til að verða eitt öflugasta sveitarfélagið á landsbyggðinni verði rétt haldið á málum á næstu árum. Húsavíkurlist- inn er best til þess fallinn að svo verði. Þar er að finna einstaklinga með víðtæka þekkingu og reynslu í málefnum sveitarfélagsins. Húsvík- ingar og Reykhverfingar, setjum x við H á kjördag. Verum áfram sam- an í sigurliðinu. Fyrst og fremst Húsavík Aðalsteinn Á. Baldursson Húsavík Húsavík hefur alla möguleika, segir Að- alsteinn Á. Baldursson, til að verða eitt öfl- ugasta sveitarfélagið á landsbyggðinni. Höfundur skipar 5. sæti á H-listanum. Í GARÐABÆ er nú að rísa Ásahverfi á svokölluðu Hrauns- holti vestan Hafnar- fjarðarvegar. Lóðir í síðasta áfanga hverfis- ins verða til úthlutun- ar fljótlega. Steinsnar frá Ásahverfinu verð- ur næsta nýbygginga- svæði Garðabæjar eða Bryggjuhverfið um- deilda, sem nú ber heitið Strandhverfi. Skipulag þess er nú í kynningarferli og má gera ráð fyrir að byrj- að verði á fyrstu hús- unum strax í haust. Þrátt fyrir þá uppbyggingu sem staðið hefur þarna allt frá 1998, hefur enn ekki verið tekin ákvörð- un um staðsetningu grunnskóla í tengslum við þessa byggð og þaðan af síður hvenær sá grunnskóli verð- ur tilbúinn til notkunar. Á meðan bæjarstjórn hefur málin til skoð- unar er grunnskólabörnunum ekið af foreldrunum hvern dag í Flata- skóla, en í þeim skóla eru fyrir of margir nemendur miðað við húsa- kost. Fyrir dyrum stendur stækk- un Flataskóla, en hún er fyrst og fremst ætluð til þess að taka við 7. bekknum sem færa á úr Garðaskóla ekki seinna en haustið 2005. Skólann á holtið Sú lausn sem best hentar fyrir nýjan skóla á nýbyggingarsvæðun- um er á lóð efst á Hraunsholti sem áður var ætluð undir hjúkrunar- heimili. Skipulag Ásahverfisins var samþykkt áður en hjúkrunarheim- ilið Holtsbúð kom til sögunar. Æskilegt er að hjúkrunarheimili sé af vissri stærð og helst einnig í tengslum við aðra öldrunarstarf- semi. Því er þessi lóð óheppileg undir slíka starfsemi. Hún hentar aftur á móti afar vel undir skóla. Á þessum stað mætast allar göngustígar hverfisins og engir nemendur þurfa yfir umferðar- götu á leið sinni til og frá skóla. Það er mikill kostur. Í þeim skipulags- drögum af Strandhverfinu sem nú eru til meðferðar er skýrt kveðið á um að grunnskóli hverfisins verði á Grundum skammt frá skólpdælu- stöðinni við Arnarnesvoginn. Að því hefur Sjálfstæðisflokkurinn stefnt og unnið að í nokkur ár. Þessi staðsetning er afleit og mót- mælti ég henni einn bæjarfulltrúa þegar bæjarstjórn afgreiddi skipu- lagsbreytingarnar til kynningar meðal íbúa. Verður að tala skýrt Nú bregður hins vegar svo við að sjálfstæðismenn ganga um bæinn og bera út þau tíðindi að engin ákvörðun hafi verið tekin um stað- setningu skólans. Ákvörðun verði tekin í nánu samráði við íbúa Ása- hverfisins á næstu mánuðum. Þarna eru sjálfstæðismenn að leika tveimur skjöldum. Mikill órói er meðal íbúa Ásahverfis vegna skóla- málanna. Það vita sjálfstæðismenn best sjálfir. Þeim er hins vegar mikill akkur í að halda friðinn fram yfir kosningar. Meini þeir eitthvað með tali sínu er einfaldast fyrir þá að gera breytingar á þeirri stefnu sinni sem fram kemur í greinar- gerð með skipulagi Strandhverfis. Eina tækifæri til þess fyrir kosn- ingarnar verður á síðasta bæjar- stjórnarfundi kjörtímabilsins hinn 16. maí nk. Leikið tveimur skjöldum Einar Sveinbjörnsson Höfundur er bæjarfulltrúi í Garðabæ og skipar 1. sæti B-listans. Garðabær Mikill órói er meðal íbúa Ásahverfis vegna skóla- málanna, segir Einar Sveinbjörnsson. Það vita sjálfstæðismenn best sjálfir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.