Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 58
DAGBÓK
58 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Akra-
berg, Akureyrin og
Mánafoss koma í dag.
Sava Lake, Arnarfell og
Goðafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brattegg kom og fór í
gær. Taurus og Brúar-
foss fóru í gær. Kleif-
arberg og Katla komu í
gær.
Mannamót
Árskógar 4. Hand-
verksýning verður
föstudaginn 10. og laug-
ardagin 11. maí kl. 13–
16.30. Bingó fellur niður
föstudaginn 10. maí
vegna sýningarinnar.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudögum
kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga á föstudögum kl.
11. Kóræfingar hjá Vor-
boðum, fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu á sunnu-
dögum kl. 11. Óvissu-
ferð. Mánud. 13. maí,
lagt af stað frá Damos
kl. 13 og komið til baka
um kl. 17. Uppl. hjá
Svanhildi í síma
692 0814.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Á morg-
un föstudag brids kl.
13.30. Morgungangan
laugardaginn 11. maí ,
farið frá Hraunseli kl 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi.
Fimmtudagur: Brids kl.
13. Fuglaskoðun og
söguferð suður með sjó
og á Reykjanes 11. maí,
leiðsögn Sigurður Krist-
insson, kaffihlaðboð í
Vitanum Sandgerði,
skráning á skrifstofu
FEB. Göngu-hrólfar
fara í leikhúsferð á Sól-
heima laugardaginn 18.
maí að sjá „Hárið“,
brottför frá Ásgarði
Glæsibæ kl. 14 allir vel-
komnir. Skráning á
skrifstofu FEB. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10–12 í s. 588 2111.
Skrifstofa félagsins er
flutt í Faxafen 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarf aldraðra,
Seltjarnarnesi. Handa-
vinnusýning í dag á
Skólabraut 3–5 kl.
13.30–18. Selt verður
vöfflukaffi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Handverks-
sýning verður föstudag-
inn 10. maí frá kl. 10–16,
laugardaginn 11. maí frá
kl. 13–16 og mánudag-
inn 13. maí kl. 10–16.
Félagsvist fellur niður
mánudag. Sunndags-
kaffið fellur niður sun-
nud. 12. maí.
Félagsstarfið Seljahlíð.
Sýning á handverki
heimilismanna verður
dagana 11., 12. og 13.
maí kl. 13.30–17. Kaffi-
veitingar á staðnum.
Allir vekomnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Lokað í dag uppstign-
ingardag. Messa í Fella-
og Hólakirkju kl. 14.
m.a. syngur Gerðuberg-
skórinn. Gestir frá
Suðurnesjum í heim-
sókn, kaffiveitingar í
boði sóknarnefndar
Fella- og Hólabrekku-
sóknar. Á föstudag kl.
10 boccia, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
14.30 syngur Gerðu-
bergskórinn kl. 15.30,
kl. 16.30 dansleikur. All-
ir velkomnir, enginn að-
gangseyrir. Veitingar í
Kaffi Berg. Upplýsingar
um starfsemina á staðn-
um og í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Nemendur Digranes-
skóla bjóða eldri borg-
urum í Kópavogi til
fræðslu- og skemmti-
dagskrár föstudaginn
10. maí kl. 10. Vorsýn-
ingin verður opin frá kl.
14–18 í félagsheimilinu
11. og 12. maí. Smiðjur
verða í gangi frá kl. 15–
16, og áhugavinna frá kl.
14–16. 30. „Smellur 2,
aldrei of seint“ sýnir kl.
14 í Félagsheimili Kópa-
vogs. Bókmenntaklúbb-
ur flytur dagskrá í
Menningarmiðstöðinni
kl. 15 sunnudag. Ljóða-
hópur flytur frumsamin
ljóð kl. 20 11. maí í Gjá-
bakka. Uppl. í s.
554 3400 og 564 5260.
Gullsmári, Gullsmára
13. Nemendur Digra-
nesskóla bjóða eldri
borgurum í Kópavogi til
fræðslu- og skemmti-
dagskrár föstudaginn
10. maí kl. 10. Vorsýn-
ingin verður opnin frá
kl. 14–18 í félagsheim-
ilinu 11. og 12. maí.
Smiðjur verða í gangi
frá kl. 15–16, og áhuga-
vinna frá kl. 14–16. 30.
„Smellur 2, aldrei of
seint“ sýnir kl. 14 í Fé-
lagsheimili Kópavogs.
Bókmenntaklúbbur flyt-
ur dagskrá í Menningar-
miðstöðinni kl. 15
sunnudag. Ljóðahópur
flytur frumsamin ljóð kl.
20 11. maí í Gjábakka.
Uppl. í s. 554 3400 og
564 5260.
Hraunbær 105. Miðvi-
kud. 15. maí verður farið
frá Hraunbæ 105 kl. 13
og ekið að Aflagranda,
þaðan ekið um miðbæ-
inn, vesturbæinn og
komið við í Læknasafn-
inu á Seltjarnanesi.
Kaffi drukkið í Afla-
granda. Leiðsögumaður:
Gunnar Biering læknir.
Skráning á skrifstofu
eða í s: 587 2888.
Vesturgata 7. Hand-
verkssýning verður 10.,
11. og13. maí frá kl.13–
17 alla dagana.
Meðal annars sem sýnt
verður, hannyrðir,
postulínsmálun, mynd-
mennt, tréútskurður og
leirmótun. Ragnar Páll
Einarsson leikur á
hljómborð alla dagana.
10. og 11. kl.15 sýna
nemendur Sigvalda
dans. 13. maí kl 15
syngja Hvannirnar und-
ir stjórn Sigurbjargar
Petru Hólmgríms-
dóttur.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður mið-
vikud. 15. maí kl. 20 á
Ásvöllum. Rætt um
sumarferðina 5. júní.
Staðfesta þarf pöntun á
fundinum. Takmarkaður
sætafjöldi.
Kvenfélag Grens-
ássóknar. Kaffisala fé-
lagsins til fjáröflunar
verður sunnud. 12. maí
kl. 15 í safnaðarheim-
ilinu. Tekið á móti kök-
um frá kl. 11 sunnudag.
Vorfundur félagsins
verður kl. 20, mánudag-
inn 13. maí.
S.V.D. Hraunprýði. Hin
árlega kaffi- og merkja-
sala verður mánud. 13.
maí. Kaffisalan verður
að Hjallahrauni 9, kl.
15–20. Tekið á móti kök-
um og meðlæti að
Hjallahrauni 9 frá kl. 9
sama dag.
Vopnfirðingafélagið í
Reykjavík. Hinn árlegi
kaffidagur félagsins
verður haldinn í Félags-
og þjónustumiðstöðinni
Aflagranda 40 sunnud.
12. maí kl. 15. Kaffiveit-
ingar, félagsmenn hvatt-
ir til að fjölmenna og
takameð sér gesti.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund
mánudaginn 13. maí kl.
20. Gestafundur,
skemmtiatriði, sum-
arferðin kynnt.
Gigtarfélag Íslands.
Gönguferð um Laug-
ardalinn laugard. 11.
maí kl. 11 frá húsakynn-
um félagsins að Ármúla
5. Klukkutíma ganga
sem hentarflestum.
Einn af kennurum hóp-
þjálfunar gengur með
og sér um upphitun og
teygjur. Allir velkomnir.
Ekkert gjald. Upplýs-
ingar í s. 530 3600.
Bústaðakirkja. Dagur
aldraðra í Bústaða-
kirkju 9. maí og hefst
með messu kl. 14.
Ræðumaður Helgi Selj-
an, Glæðurnar syngja í
messunni.
Öldruðum boðið í kaffi
eftir messu. Sýning á
munum sem unnir hafa
verið af öldruðum í vet-
ur verða til sýnis í safn-
aðarheimilinu.
Vestfirðingafélagið.
Menningarvaka sem er
tileinkuð minningu Sig-
ríðar Valdimarsdóttur
verður í félagsheimilinu
Gullsmára, Gullsmára
13 frá kl. 20 þriðjud. 14.
maí. Meðal efnis verður
gamanmál í umsjá Jó-
hannesar Kristjáns-
sonar og erindi um sér-
kenni Vestfjarða sem
Pétur Bjarnason flytur.
Dans, söngur, Uppl. í s.
554 3773 eða 566 6500.
Minningarkort
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheimersjúkl-
inga. Minningarkort eru
afgreidd í s. 533-1088
eða í bréfs. 533-1086.
Í dag er fimmtudagur 9. maí, 129.
dagur ársins 2002. Uppstigningar-
dagur. Orð dagsins: Þegar sál mín
örmagnaðist í mér, þá minntist ég
Drottins, og bæn mín kom til þín, í
þitt heilaga musteri.
(Jónas 2, 8.)
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 kaldur, 4 peningur, 7
andinn, 8 pytturinn, 9
nudda, 11 svelgurinn,13
kolla, 14 tré, 15 vers, 17
dýr, 20 bókstafur, 22
fuglar, 23 eldstæði, 24
rýma, 25 svarar.
LÓÐRÉTT:
1 vistir, 2 drengja, 3
heimili, 4 sjóða, 5 storm-
urinn, 6 talar um, 10 yf-
irhöfnin, 12 tók, 13 sómi,
15 yrkir, 16 meðalið, 18
þyngdareiningar, 19 lé-
legar, 20 espa, 21 brúka.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 góðglaður, 8 stórt, 9 æfing, 10 læt, 11 rotta, 13
agnar, 15 beinn, 18 stóll, 21 æst, 22 farið, 23 afurð, 24
griðlands.
Lóðrétt: 2 ómótt, 3 gutla, 4 alæta, 5 uxinn, 6 ósar, 7 ag-
ar, 12 tin, 14 get, 15 bifa, 16 iðrar, 17 næðið, 18 staka, 19
ólund, 20 liða.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur verið tíðurgestur í kvikmyndahúsum
borgarinnar að undanförnu og hef-
ur séð þrjár myndir á einni viku.
Það þykir nokkuð mikið á mæli-
kvarða Víkverja því bíóferðirnar
urðu sennilega ekki fleiri en tvær á
öllu síðasta ári. Umræddar þrjár
myndir hafa farið vel í Víkverja en
hann byrjaði á Monsters Ball með
óskarsverðlaunahafanum Halle
Berry og Billy Bob Thornton. Næst
var sjónum beint að Köngulóar-
manninum sem Víkverji skemmti
sér konunglega á og að síðustu fór
Víkverji á Mullholland Drive eftir
David Lynch. Víkverji var hrifinn
af öllum þessum myndum og ætlar
örugglega að taka bíóþrennu aftur
bráðlega og því ekki seinna vænna
að velja einhverjar góðar myndir.
x x x
VÍKVERJI hefur einnig verið aðlesa nýtt tímarit Útivistar,
sem leysir af hólmi ársrit félagsins,
sem komið hefur út í 25 ár. Ekki er
annað hægt að segja en að ágæt-
lega hafi tekist til með fyrsta tölu-
blaðið. Í því eru ferðasögur og
fræðigreinar í bland við kynningar
á ýmsum útivistargreinum og fróð-
leiksmolar um eitt og annað auk
auglýsinga. Á tímaritinu er léttari
blær en á ársritinu og verður fróð-
legt að sjá næsta tölublað, en stefnt
er að tveimur blöðum á ári.
Í grein Jóhanns Óla Hilmarsson-
ar, sem nefnist Friðland í Flóa,
voru mjög skemmtilegar ljósmynd-
ir af fuglum og fuglavinum að störf-
um. Þarna komu fyrir þúfutittling-
ur, hrossagaukur og lómur svo
eitthvað sé nefnt og fjallað var um
endurheimt og vernd votlendis.
Áhugavert málefni það. Víkverji
setur þá ósk fram að meira verði
fjallað um fugla í næsta tölublaði og
væri gaman að sjá myndasyrpu af
haförnum. Nú er víst bannað að
ljósmynda erni eins og hverjum
þóknast en eitthvað hlýtur að vera
til af myndefni.
x x x
ÚR ÞVÍ að minnst er á erni get-ur Víkverji ekki stillt sig um
að segja frá því er hann sá örn í
fyrsta skipti en það var einmitt í
Arnarfirði fyrir áratug.
Örninn sat á steini rétt fyrir neð-
an veginn, sem lá ofarlega í hlíð, og
tók sig á loft og flaug út á sjó eftir
að Víkverji og ferðafélagar höfðu
virt hann fyrir sér í nokkur augna-
blik á um 10 metra færi. Víkverji
hefur ekki séð örn síðan en þakkar
fyrir kynnin. Þá var það ekki síðri
upplifun þegar uglu bar fyrir augu
Víkverja í fyrsta skipti. Það átti sér
stað í Árnessýslu fyrir nokkrum ár-
um og var ótrúlegt að fylgjast með
háttalagi þessa fugls sem Víkverji
hélt að væri rólegheitafugl, tákn
viskunnar og helst alltaf sitjandi.
En uglan í Árnessýslu flaug yfir
allstórt tún, kannski í leit að mús-
um til að éta og steypti sér ótal
sinnum niður í grassvörðinn úr um
5 metra hæð og upp aftur með
miklu vængjablaki og miklu meiri
snerpu og krafti en Víkverji hélt að
þessir fuglar ættu til. Á þessu gekk
í einar 4 eða 5 mínútur án þess að
uglan tæki sér hlé. Síðan hvarf hún
Víkverja sjónum og hefur hann
ekki séð uglu síðan, en telur sig
hafa heyrt í uglu tvisvar eða þrisv-
ar í Árnessýslu, í Villingaholts-
hreppi nánar tiltekið árið 1990.
Smárabíó –
aldurstakmark
LAUGARDAGINN 16.
mars fórum við hjónin á
mynd í Smárabíó sem heitir
13 Ghosts og er hryllings-
mynd með tilheyrandi blóð-
slettum og aflimunum.
Þegar hlé kom tókum við
eftir því að 4–5 krakkar á
aldrinum 12–13 ára voru að
horfa á myndina, en mynd-
in er stranglega bönnuð
innan 16 ára. Þar sem við
eigum barn á þessum aldri
vissum við að við hefðum
ekki viljað að okkar barn
sæi þessa mynd, enda frek-
ar skuggaleg. Ég fór fram
og ræddi við starfsstúlku
sem sagði að líklegast
hefðu krakkarnir keypt
miða á aðra mynd og laum-
ast svo inn á þessa. Hún
sagði að þetta yrði athugað.
Rétt þegar myndin var að
hefjast aftur kom starfs-
maður og ræddi við krakk-
ana og fékk að líta á miðana
þeirra. Þau voru greinilega
með miða á rétta mynd og
fengu því að vera áfram,
ekki var beðið um skilríki.
Þannig að fyrst þau kom-
ust í gegnum miðasöluna
var ekki hægt að banna
þeim að horfa á myndina.
Þetta fannst okkur síð-
asta sort og vera kvik-
myndahúsinu til vansa.
Eftir helgi hafði ég sam-
band við kvikmyndaeftirlit-
ið og þeir sögðu að það væri
ekki í þeirra verkahring að
fylgjast með hvort kvik-
myndahúsin framfylgdu
reglum um aldurstakmörk,
þeir sæju eingöngu um að
setja aldurstakmörk á
myndir. Þeir sögðu að ég
hefði átt að hafa samband
við lögreglu, það er orðið of
seint núna enda við ekki
með neitt í höndunum.
Ef þið, neytendur góðir,
verðið varir við að kvik-
myndahúsin brjóti þessar
reglur í gróðaskyni vil ég
endilega benda ykkur á að
láta lögreglu vita ef þið sjá-
ið þessar reglur brotnar.
Lína Sólbjartsdóttir.
Leiðarljós
NÚ í maí fellur niður Leið-
arljós í sjónvarpinu og óvíst
er með framhald á sýning-
um.
Eftir því sem mér skilst
fær sjónvarpið þessa þætti
frítt svo það ætti nú að vera
kostur í þeim fjárhagserf-
iðleikum sem eru þar. Þess-
ir þættir hafa verið sýndir í
mörg ár og njóta mikilla
vinsælda enda frábærir
þættir. Ég þoldi ekki sápu-
óperur hér áður fyrr en
þessir þættir hafa alger-
lega heillað mig.
Það fer víst eftir við-
brögðum áhorfenda Leið-
arljóss hvort framhald
verður á sýningum og því
skora ég á alla aðdáendur
þáttarins, sem ég veit að
eru fjölmargir, að láta
heyra hressilega í sér.
Einnig skora ég á dag-
skrárdeild sjónvarpsins að
endurskoða þessa ákvörð-
un því þættirnir eru langt í
frá að verða búnir. Það er
hálf hallærislegt að klippa á
þættina núna í miðju kafi
þar sem enn er verið að
framleiða þættina.
S.H.
Tapað/fundið
Taska
í óskilum
TASKA fannst í Fífu-
hvammi í Kópavogi sl.
föstudag. Í töskunni eru
ýmis áhöld til fiskveiða.
Eigandi er beðinn að
hringja í síma 564 2197.
Konan sem lánaði
handklæði
KONAN sem lánaði okkur
bláa handklæðið í nýja
íþróttahúsinu í Grafarvogi
sl. sunnudag er beðin að
hafa samband í síma 562-
7510 eða 822-7510.
Dýrahald
Blár páfagaukur
týndur
PÁFAGAUKUR flaug út
um glugga á Vatnsenda í
Elliðavatnshverfi 20. apríl
sl. Um er að ræða karlfugl,
afar fallegan, bláan að lit.
Gaukurinn er mjög gæfur –
hann er vanur að vera laus
og innan um fólk, en er þó
heldur feiminn í fyrstu við
ókunnuga. Hann á það til
að spígspora um gólf, eltir
mann um öll hús fljúgandi
eða situr á öxl manns. Hann
hefur dálæti á osti, pizzu og
pasta og hans er sárt sakn-
að á heimilinu. Ef einhver
hefur orðið hans var þá vin-
samlegast hafið samband í
586 2805 eða 557 6100.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Í FYRIRSPURN til Vel-
vakanda hinn 1. maí sl.
veltir símnotandi því fyr-
ir sér hvers vegna gamli
góði „á tali-sónninn“
hafi nú verið látinn víkja
fyrir þýðri kvenmanns-
rödd þegar hringt er í
símanúmer sem er á tali.
Símakona býður nú
símnotendum að spara
sér ómakið við að
hringja aftur í upptekið
númer með því að ýta á
töluna 5.
Fyrir þessa þjónustu
er að sjálfsögðu tekið
gjald. Hvað skyldi Land-
síminn hafa grætt mikið
á óþolinmæði Íslendinga
undanfarna mánuði?
Ragnheiður.
Gamli góði talsónninn