Morgunblaðið - 09.05.2002, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 39
Í kosningabarátt-
unni fyrir komandi
borgarstjórnarkosn-
ingar hefur margoft
komið fram í máli
frambjóðenda, þar á
meðal Guðrúnar Ebbu
Ólafsdóttur, þriðja
manns á lista Sjálf-
stæðisflokksins, að ef
D- listi nái meirihluta í
borginni muni hann
bjóða fimm ára börnum
skólavist í grunnskóla.
Það vill nú svo til að
fyrir stuttu ályktaði
stjórn Félags leik-
skólakennara um að
skoða þyrfti hvort ekki
væri rétt að bjóða öllum fimm ára
börnum skólavist í leikskóla, for-
eldrum þeirra að kostnaðarlausu.
Ennfremur var velt upp þeirri
spurningu hvort rétt væri að gera
síðasta árið í leikskóla að skyldu.
Stjórn og samninganefnd Félags
grunnskólakennara, með þáverandi
formann félagsins, Guðrúnu Ebbu,
í broddi fylkingar, ályktaði stuttu
seinna og tók eindregið undir álykt-
un Félags leikskólakennara. Hvað
hefur gerst síðan Guðrúnu Ebbu
var boðið þriðja sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins? Hún hefur vent
sínu kvæði í kross með því að vilja
nú gera tilraun með fimm ára börn í
grunnskólum borgarinnar. Mér er
spurn hvað veldur þessum umskipt-
um frambjóðandans?
Fimm ára börn
áfram í leikskóla
Í stefnuskrá
Reykjavíkurlistans er
loforð um að öllum
fimm ára börnum
verði boðið leikskóla-
nám hluta úr degi for-
eldrum að kostnaðar-
lausu. Ég fagna þessu
loforði. Í umræðu um
þessa tillögu hefur
hins vegar mátt skilja
orð frambjóðenda á
þann veg, að leik-
skólastarf muni
breytast yfir í form-
legra hefðbundið nám
fimm ára barna. Ég vara við þeirri
hugmynd. Frá fyrsta degi barns í
leikskóla fer fram undirbúningur
að því sem koma skal, þ.á m. grunn-
skólanámi. Hugmyndafræði og
kennsluaðferðir leikskólans falla
mun betur að þörfum fimm ára
barna en þær kennsluaðferðir sem
notaðar eru í grunnskólum. Það
þarf að mínu mati miklu frekar að
gera tilraunir með að færa hug-
myndafræði leikskólanns inn í
yngstu bekki grunnskólans.
Leikskólinn
er skóli
Leikskólinn er skóli og skil-
greindur sem fyrsta skólastigið í ís-
lenska skólakerfinu með lögum frá
1994. Sá misskilningur virðist vera í
gangi að börn læri eingöngu á hefð-
bundinn hátt, þ.e.a.s. að lesa, skrifa
og reikna. Það er viðurkennt að
börn á leikskólaaldri læra mest og
best í gegnum leik. Í leikskólum eru
börnum m.a. kennd undirstöðuat-
riði fyrir stærðfræði, lestur og
skrift. Í leikskólum á Íslandi er
unnið merkilegt starf, sem ég full-
yrði að sé með því besta sem þekk-
ist. Ég skora á frambjóðendur að
kynna sér störf leikskólanna, t.d.
með því að fá að fylgjast með starf-
inu dagspart. Ég er viss um að þeir
verða margs vísari.
Umskipti Guð-
rúnar Ebbu
Þröstur
Brynjarsson
Leikskólabörn
Hvað hefur gerst síðan
Guðrúnu Ebbu var boð-
ið þriðja sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins?
spyr Þröstur Brynj-
arsson. Hún hefur vent
sínu kvæði í kross með
því að vilja nú gera
tilraun með fimm ára
börn í grunnskólum
borgarinnar.
Höfundur er varaformaður Félags
leikskólakennara.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Finndu flinn tvífara!
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a
K i r k j u s a n d i • 1 5 5 R e y k j a v í k • g l i t n i r . i s • S í m i 5 6 0 8 8 0 0
Frjáls bílafjármögnun Glitnis
kemur flér í samband vi› rétta bílinn
• fiú ræ›ur hvar flú tryggir
• Ábyrg›armenn allajafna óflarfir
• Hagkvæm fjármögnun
• Hægt a› fá lánslofor›
• Sameiningarlán gó›ur kostur
• Einfalt, fljótlegt og flægilegt