Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ REYKJAVÍKURLISTINN Reykjavík er menningarborg Vi› munum • Byggja tónlistar- og rá›stefnuhús í mi›borginni • Gera Listahátí› a› árlegum stórvi›bur›i • Efla Menningarnótt enn frekar, ásamt Vetrarhátí› og Hátí› hafsins • Flétta menningu og listum í auknum mæli saman vi› skólastarf • Halda áfram öflugum stu›ningi vi› frumkvæ›i almennings, fyrirtækja og frjálsra félagasamtaka á svi›i menningar og lista. Vi› höfum • Opna› flrjú n‡ borgarbókasöfn, n‡tt Ljósmyndasafn, Borgarskjalasafn og n‡tt Listasafn Reykjavíkur • Komi› á Menningarnótt á hverju ári ásamt Vetrarhátí› • Stutt vi› baki› á óhá›um menningarhátí›um, kvikmyndahátí›, stuttmyndahátí›, kirkjulistahátí›, Myrkum músíkdögum, Airwaves, Hinsegin dögum og jasshátí› • Eflt Borgarleikhúsi› me› n‡jum sal, sta›i› a› strandlengjus‡ningu á útilistaverkum og gert Reykjavík a› menningarborg Evrópu. ÞORLÁKUR Karlsson, fram- kvæmdastjóri Gallup, gagnrýnir spurningar sem lagðar voru fyrir þátttakendur í könnun Félagsvís- indastofnunar fyrir forsætisráðu- neytið, þar sem ákveðnar forsendur um áhrif aðildar eru settar fram. Segir hann þær ekki mæla afstöðu landsmanna til Evrópusambands- ins. Friðrik H. Jónsson, forstöðumað- ur Félagsvísindastofnunar, vísar allri gagnrýni á könnunina á bug og Davíð Oddsson forsætisráðherra undrast viðbrögð við könnuninni og segir hana standa fyrir sínu. Hinir spökustu menn verða trylltir af æsingi „Ég hef svolítið gaman af því hvað menn eru ofboðslega æstir og trylltir út af þessari könnun,“ segir Davíð. „Hinir spökustu menn, meira að segja þáttastjórnendur, verða trylltir af æsingi og láta allt mögu- legt út úr sér. Fréttastofa útvarps- ins fór nú bara um koll og hætti að vera í fréttaflutningi og fór bara í málflutning og hefur verið í því,“ segir Davíð. Spurningu um aðild ber að leggja fyrir formálalaust Þorlákur Karlsson segir það fara eftir markmiði könnunar hverju sinni hvort ákveðnar forsendur séu lagðar fyrir svarendur. „Ef mark- miðið er að athuga hlutföll þeirra sem eru með og á móti aðild að ESB er þetta ekki leiðin og mjög langt frá því,“ segir hann. Þorlákur segir að ef kanna eigi afstöðu til að- ildar þurfi að leggja þá spurningu fyrir með samskonar hætti og gert væri í þjóðaratkvæðagreiðslu alger- lega formálalaust. Þorlákur segir skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar ekki gefa neinar vísbendingar um afstöðu manna til þess hvort þeiri vilji að Ísland gangi í ESB. Hann bendir m.a. máli sínu til stuðnings á að ef þátttakendum í könnun eru gefnar ákveðnar upplýsingar eða forsendur með spurningunni þurfi öll þjóðin í raun að hafa sömu upplýsingar ef menn eigi að geta alhæft um nið- urstöðurnar fyrir alla þjóðina. Auk þess megi gera ráð fyrir að þjóðin hafi fleiri forsendur í huga en spurt er um þegar lagt er mat á inngöngu í ESB. Spurður hvort Gallup hefði fram- kvæmd könnunina með þessum hætti ef forsætisráðuneytið hefði leitað til Gallup um gerð hennar svaraði Þorlákur því neitandi. Hann heldur því hins vegar fram að afstaða landsmanna til aðildar að ESB hafi verið mæld með eðlilegum hætti í umdeildri könnun sem Gall- up gerði fyrir Samtök iðnaðarins í vetur. Þar hafi verið spurt beint og formálalaust að því hvort svarendur væru hlynntir eða andvígir aðild. Sú könnun hefur sætt harðri gagnrýni, m.a. af forsætisráðherra, einkum spurning þar sem þátttakendur voru spurðir hvort þeir væru hlynntir eða andvígir því að taka upp aðildarviðræður við ESB til þess að ganga úr skugga um hvað Íslandi stæði til boða við aðild. 92% lýstu sig hlynnt því. Forsætisráð- herra sagði hins vegar á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins að þessi spurning hefði ekkert gildi fyrir umræðuna því fæstir myndu setja sig upp á móti áhættulausri fyr- irspurn af þessu tagi. Aðspurður segir Þorlákur að þessari spurningu hafi ekki verið ætlað að mæla hvort menn vildu ganga í ESB, heldur eingöngu kanna vilja manna til þess að Ísland gengi til aðildarviðræðna. Mæling á afstöðu til aðildar hafi hins vegar verið gerð með annarri spurningu þar sem menn voru spurðir hvort þeir væru hlynntir eða andvígir að- ild að ESB. „Það er mælingin og svoleiðis á hún að vera. Þar kom í ljós að 52% eruhlynnt, 25% andvíg og 23% í miðjunni,“ segir hann. Spurningar taka til þátta sem yrðu í lokaniðurstöðu samningsgerðar Davíð Oddsson forsætisráðherra segir skoðanakönnun Félagsvís- indastofnunar taka til þátta sem myndu verða í lokaniðurstöðu hvaða samningsgerðar sem er við Evrópu- sambandið. „Það segir alla söguna, a.m.k. hófstilltum mönnum, hver niðurstaða þjóðarinnar yrði þegar komið væri með slíkan samning til baka. Hver veit hvort þetta mælir nákvæmlega afstöðu þjóðarinnar til ESB núna? Það virðist vera margt á huldu í þeim efnum og menn sáu með hvaða hætti Gallup-könnunin var notuð á sínum tíma, þannig að mér finnst afar dapurlegt að sjá þennan forstöðumann Gallup fara eins og eldur um sinu. Ég hef aldrei séð þetta áður og man ekki til þess að það hafi verið leitað til Félagsvís- indastofnunar út af könnunum Gall- ups. Þetta er afskaplega sérstök málsmeðferð af hálfu þess aðila og virðist [hann] hafa einhvern sér- stakan málstað að verja. Menn hafa þá náttúrlega hliðsjón af því þegar sá aðili gerir kannanir um Evrópu- sambandið að hann virðist vera mjög heltekinn af því sjónarmiði. Það er dapurlegt að sjá,“ segir Dav- íð. Aðalatriði að fólk viti hvaða spurningum það er að svara Friðrik segir að meginkosturinn við að leggja ákveðnar forsendur fyrir svarendur sé sá að spurningin sé þá mjög skýr og alveg ljóst sé til hvaða álitaefnis svarendur séu að taka afstöðu. „Aðalatriðið er að fólk viti hvaða spurningum það er að svara og að niðurstöðurnar séu túlkaðar í sam- ræmi við þær spurningar sem lagð- ar eru fyrir. Í þessu tilviki hjá okk- ur var spurningin skýr. Fólk vissi hverju það var að svara,“ segir hann. „Það hefur hins vegar hingað til verið spurt almennt og óljóst [um aðild að ESB] og hefur hver getað búið til sínar forsendur. Þá vitum við ekki út frá hverju fólk svarar og hvað fólk hefur í huga. Hér vitum við það. Svörin ber því að túlka í ljósi þessara forsendna,“ segir Frið- rik. Að sögn hans snýst gagnrýnin í raun um hvort forsendurnar sem lagðar voru fyrir svarendur séu réttar eða rangar og hvort dregin hafi verið upp röng mynd af aðild. Því neitar Friðrik. „Eftir að hafa skoðað málið teljum við að svo sé ekki. Þess vegna spyrjum við þess- ara spurninga,“ segir hann. Hann var spurður hvort draga mætti almennar ályktanir um af- stöðu þjóðarinnar til aðildar að ESB út frá þessari könnun. „Ef einhvern tíma kemur upp sú staða að Íslend- ingar fara í atkvæðagreiðslu um að- ild munu talsmenn ólíkra sjónar- miða halda fram sínum málstað og það munu koma fram ýmis rök. Meðal þeirra verða þessi rök sem spurt var um í könnun okkar. Ég get ekki svarað því hvaða rök verða ofan á þegar upp er staðið, en verði þessi rök, sem spurt var um, ofan á er líklegt að þessi könnun endur- spegli afstöðuna,“ segir Friðrik. Friðrik vildi ekki tjá sig um spurningar í Gallup-könnuninni fyr- ir Samtök iðnaðarins og sagðist ein- göngu svara fyrir kannanir sem gerðar væru á vegum Félagsvís- indastofnunar. Sigurður Helgason, yfirmaður rannsóknadeildar Pricewaterhouse- Coopers, segir þá aðferð að tiltaka ákveðnar forsendur í spurningum sem lagðar eru fyrir þátttakendur í könnunum hafa bæði kosti og galla. „Stundum er þetta gert og er eðli- legt en í öðrum tilfellum er það ekki,“ segir hann. Könnun sem PricewaterhouseCoopers gerði fyrir LÍÚ í síðasta mánuði um afstöðu til ESB hefur einnig sætt gagnrýni en í henni voru þátttakendur beðnir að svara því játandi eða neitandi hvort þeir vildu að Ísland gengi í Evrópu- sambandið. Af þeim sem tóku af- stöðu sögðu 39,2% nei en 38,1% já. Sigurður segir að vegna gagnrýni sem fram hafi komið hafi verið ákveðið að sannprófa niðurstöðuna með því að endurtaka könnunina en sama niðurstaða hafi fengist út úr því. Skiptar skoðanir á könnunum á afstöðunni til ESB „Svörin ber að túlka í ljósi forsendna“ EKKI er útilokað að Haraldur Örn Ólafsson geri atlögu að tindi Ev- erest úr grunnbúðum á morgun, föstudag, ef veður leyfir. Er þá gengið upp í 2. búðir og gist þar eina nótt áður en haldið er upp í 3. búðir. Daginn eftir er farið upp í 4. búðir og hvílt þar í örfáar klukku- stundir áður en lagt er til atlögu við tindinn. Ef allt gengur að óskum gæti Haraldur staðið á tindinum á mánudaginn, en hann tekur fram að sú áætlun sé byggð á björtustu vonum. Hópur frá Kóreu gerði mislukk- aða tilraun snemma í gærmorgun til að ná tindinum en sneri við vegna veðurs. Haraldur Örn með snæviþaktan tind Everest í baksýn. Ef allt gengur að óskum gæti hann náð þangað á mánudag. Gæti náð tindi Ev- erest á mánudag LJÓSMYNDIR eftir leikskólabörn af leikskólanum Ægisborg prýða nú húsakynni Vesturgarðs, Fjöl- skyldu- og skólaþjónustu Vest- urbæjar, en myndirnar eru af- rakstur vettvangsvinnu barnanna, sem hafa ferðast um Vesturbæinn með myndavélar og myndað tré sem fangað hafa athygli þeirra. Um er að ræða samstarfsverkefni milli allra leikskóla Vesturbæjar sem hefur það að markmiði að gera barnamenninguna sýnilega. Börnin af Ægisborg, sem gerðu trén að viðfangsefni sínu, afhentu í vikunni Vesturgarði hluta myndaraðar sinnar. Opið hús hefur verið á leik- skólunum undanfarnar vikur og verða settar upp sýningar á verk- um barnanna á ýmsum stofnunum. Morgunblaðið/Kristinn Barnamenningin sýnileg FYRIRSVARSMAÐUR Eystra- saltsviðskipta ehf. var í gær sak- felldur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á lögum um atvinnurétt- indi útlendinga og sektaður um 300 þúsund krónur. Ákærði var dæmdur fyrir að ráða 9 nafngreinda einstaklinga frá Eystrasaltsríkjum hingað til lands og ráða þá til starfa hjá öðrum fyr- irtækjum án þess að útvega tilskilin leyfi og réttindi. Dómurinn fann að því hvernig lögregla stóð að rannsókn málsins. Þannig segir í dóminum, að ekki verði fullyrt hversu lengi útlending- arnir höfðu verið að störfum á veg- um ákærða og virðist ekki hafa ver- ið gerð alvarleg tilraun af hálfu ákæruvaldsins til að sýna fram á það. Einnig hafi rannsókn málsins ver- ið ábótavant varðandi það, hvað mönnum þessum var greitt í laun og hvernig tryggingamálum þeirra var háttað. Ennfremur var ekkert upp- lýst um hvort og hvernig laun þess- ara manna voru gefin upp gagnvart skattyfirvöldum. Einnig hafi ekkert komið fram um það hvort ákærði hafi haft fleiri menn í vinnu, sem hafi haft tilskilin leyfi, eins og hann hefði raunar sjálfur haldið fram. Rannsókn málsins yrði einnig að telja ábótavant varðandi atvik að baki komu mannanna til landsins. Kom með óbeinum hætti fram við meðferð málsins að þessir erlendu menn hefðu búið í húsnæði sem hefði verið á vegum Eystrasaltsvið- skipta. Ekki virðist hafa farið fram rannsókn á þessum þætti málsins. Guðmundur L. Jóhannesson hér- aðsdómari kvað upp dóminn. Skip- aður verjandi ákærða var Jón Einar Jakobsson hdl. Sækjandi var Sigríð- ur Elsa Kjartansdóttir fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi. Braut lög um atvinnu- réttindi útlendinga
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.