Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÉR fer á eftir í heild ákæra sem
ríkissaksóknari gaf út 6. maí síð-
astliðinn á hendur fimm einstak-
lingum:
Ríkissaksóknari gjörir kunnugt:
Að höfða ber opinbert mál fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur á hendur
Árna Johnsen,
kennitala 010344-4259,
Höfðabóli, Vestmannaeyjum,
Birni Kristmari Leifssyni,
kennitala 010759-4049,
Árlandi 8, Reykjavík,
Gísla Hafliða Guðmundssyni,
kennitala 051157-2309,
Melahvarfi 5, Kópavogi,
Stefáni Axel Stefánssyni,
kennitala 291170-2939,
Hlíðarhjalla 16, Kópavogi, og
Tómasi Tómassyni,
kennitala 191044-2079,
Vaglaseli 2, Reykjavík,
fyrir hegningarlagabrot eins
og nánar greinir hér á eftir.
I.
Ákærða Árna Johnsen einum er
gefið að sök fjárdráttur, umboðs-
svik, rangar skýrslur til yfirvalda
og mútuþægni í opinberu starfi sem
alþingismaður, formaður bygging-
arnefndar Þjóðleikhússins og for-
maður byggingarnefndar Vestnor-
ræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar.
A. Ákærði Árni er sakaður um
fjárdrátt í opinberu starfi sem for-
maður byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins með því að hafa dregið sér;
1. eldhús- og baðinnréttingu sem
hann tók út hjá Samnorræna,
Reykjavík, í viðskiptareikning Ís-
taks hf. samkvæmt beiðni Ístaks
hf. til sölufyrirtækisins. Ákærði
fékk fyrirsvarsmann sölufyrirtæk-
isins til að tilgreina úttektina sem
hillueiningar og þilplötur á reikn-
ingi dagsettum 28. janúar 1997 að
fjárhæð kr. 326.000. Ístak hf. krafði
reikningsfjárhæðina hjá byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins með reikn-
ingi dagsettum 19. febrúar 1997 að
viðbættu 15% álagi. Ákærði endur-
greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001
án álagsins.
2. ýmis hreinlætistæki og pípu-
lagningaefni sem hann tók út hjá
Tengi ehf., Kópavogi, samkvæmt
reikningi dagsettum 8. júlí 1997 að
fjárhæð kr. 231.810 og lét greiða af
fjárveitingum byggingarnefndar-
innar. Ákærði endurgreiddi fjár-
hæðina 13. ágúst 2001.
3. fánastöng, límtrésbita, sem
hann tók út hjá Stálsmiðjunni hf.,
Reykjavík, í viðskiptareikning Ís-
taks hf. samkvæmt beiðni Ístaks
hf. til sölufyrirtækisins. Ístak hf.
krafði fjárhæð reiknings Stálsmiðj-
unnar hf., dagsetts 19. mars 1999,
kr. 39.999, hjá byggingarnefnd
Þjóðleikhússins með reikningi dag-
settum 30. september 1999 að við-
bættu 15% álagi. Ákærði endur-
greiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001
án álagsins.
4. álstiga sem hann tók út hjá
Húsasmiðjunni hf., Reykjavík, í
viðskiptareikning Ístaks hf. sam-
kvæmt beiðni Ístaks hf. til sölufyr-
irtækisins. Ístak hf. krafði fjárhæð
reiknings Húsasmiðjunnar hf., dag-
setts 7. apríl 1999, kr. 12.047, hjá
byggingarnefnd Þjóðleikhússins
með reikningi dagsettum 30. sept-
ember 1999 að viðbættu 15% álagi.
Ákærði endurgreiddi fjárhæðina
13. ágúst 2001 án álagsins.
5. þjóðfána og veifu sem hann
tók út hjá Íslensku fánasaumastof-
unni, Hofsósi, samkvæmt reikningi
dagsettum 16. ágúst 1999 að fjár-
hæð kr. 247.133 og lét greiða af
fjárveitingum byggingarnefndar-
innar.
6. verkpalla sem hann tók út hjá
Verkpöllum ehf.-Brimrás, Reykja-
vík, í viðskiptareikning Ístaks hf.
samkvæmt beiðni Ístaks hf. til
sölufyrirtækisins. Ístak hf. krafði
fjárhæð reiknings Verkpalla ehf.-
Brimrásar dagsetts 6. september
1999, kr. 249.245, hjá byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins með reikn-
ingi dagsettum 30. september 1999
að viðbættu 15% álagi. Ákærði end-
urgreiddi fjárhæðina 13. ágúst 2001
án álagsins.
7. tvær jólaljósaseríur sem hann
tók út hjá Dengsa ehf., Reykjavík,
samkvæmt reikningi dagsettum 22.
desember 2000 samtals að fjárhæð
kr. 217.257 og lét greiða af fjár-
veitingum byggingarnefndarinnar.
8. timbur sem hann tók út hjá
Húsasmiðjunni hf., Reykjavík, í
viðskiptareikningi Ístaks hf. sam-
kvæmt beiðni sem meðákærði
Tómas Tómasson gaf út til sölufyr-
irtækisins. Fjárhæð tveggja reikn-
inga Húsasmiðjunnar hf. vegna út-
tektarinnar dagsettra 2. janúar
2001, samtals kr. 251.857, krafði Ís-
tak hf. hjá byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins með reikningi dagsett-
um 28. febrúar 2001 að viðbættu
15% álagi. Ákærði endurgreiddi
fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags-
ins.
9. 300 stk. óðalskantsteina og 30
stk. ótalssteina sem hann tók út
hjá BM Vallá, Reykjavík, sam-
kvæmt reikningi dagsettum 11. maí
2001 að fjárhæð kr. 160.978 og lét
greiða af fjárveitingum byggingar-
nefndarinnar. Reikningurinn var
áritaður af Framkvæmdasýslu rík-
isins 17. júlí 2001 um endur-
greiðslu.
10. timbur, saum o.fl. sem hann
tók út hjá BYKO, Kópavogi, sam-
kvæmt reikningi dagsettum 23. maí
2001 að fjárhæð kr. 400.930 sem
hann lét stíla á Þjóðleikhúsið vegna
leikmunageymslu og færa til skuld-
ar á viðskiptareikningi Þjóðleik-
hússins hjá BYKO. Reikningurinn
var síðar bakfærður af reikningi
Þjóðleikhússins og hefur ákærði
greitt reikningsfjárhæðina.
11. þéttidúk og lím sem hann tók
út hjá Gróðurvörum ehf., Reykja-
vík, samkvæmt reikningi dagsett-
um 2. júlí 2001 að fjárhæð kr.
173.658 sem hann lét stíla á bygg-
ingarnefnd Þjóðleikhússins vegna
bílaplans og smíðaverkstæðis Þjóð-
leikhússins. Reikningnum var
framvísað hjá Framkvæmdasýslu
ríkisins en reikningsfjárhæðin var
ekki greidd af fjárveitingum bygg-
ingarnefndarinnar.
12. timbur, þéttiull og aðrar
byggingavörur sem hann tók út hjá
BYKO, Kópavogi, samkvæmt
reikningi dagsettum 3. júlí 2001 að
fjárhæð kr. 1.016.069 í nafni bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins
vegna leikmunageymslu. Reikn-
ingsfjárhæðina greiddi ákærði 20.
júlí eftir að mál þetta kom upp.
13. þéttidúk sem hann tók út hjá
Fagtúni ehf., Reykjavík, sam-
kvæmt reikningi 9. júlí 2001 að
fjárhæð kr. 157.320 sem hann lét
stíla á byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins. Reikningnum var framvís-
að hjá Framkvæmdasýslu ríkisins
en reikningsfjárhæðin var ekki
greidd af fjárveitingum bygging-
arnefndarinnar.
B. Ákærði Árni er sakaður um
fjárdrátt í opinberu starfi sem for-
maður byggingarnefndar Vestnor-
ræna ráðsins, Brattahlíðarnefndar,
með því að hafa dregið sér;
14. kr. 782.790 af bankareikningi
Vestnorræna ráðsins við Lands-
banka Íslands, Reykjavík, þann 22.
júní 2001 er ákærði fénýtti í eigin
þágu andvirði tékka sem hann fékk
útgefinn af Landsbanka Íslands til
X og lét skuldfæra á bankareikning
Vestnorræna ráðsins vegna til-
hæfulauss reiknings, dagsetts 20.
júní 2001, á hendur Brattahlíðar-
nefnd yfir smíði á þrjátíuogtveimur
kistilhnöllum sem hann blekkti X
til að undirrita. Þann 22. júlí 2001
fékk ákærði X til að undirrita yf-
irlýsingu um að hann gæti ekki
sinnt smíði kistilhnallanna og af-
henti honum reiðufé til þess að
skila fjárhæðinni sem X gerði
næsta dag með því að fara í Lands-
banka Íslands, Kópavogi, og leggja
peningana inn á bankareikning
Vestnorræna ráðsins við Lands-
banka Íslands, Reykjavík.
Brot ákærða samkvæmt 1.–14.
tölulið þykja varða við 247. gr. sbr.
138. gr. almennra hegningarlaga
nr. 19/1940, sbr. 1. mgr. 20. gr.
sömu laga að því er 7. lið varðar.
C. Ákærði Árni er sakaður um
rangar skýrslur til yfirvalda með
því að;
15. framvísa á skrifstofu Alþingis
með umsókn, dagsettri 28. desem-
ber 2000, um lækkun á tekjuskatt-
stofni starfskostnaðargreiðslna, til-
hæfulausum greiðslukvittunum
a) fyrir leigu á fundaraðstöðu 15.
janúar til 15. desember 2000 að
fjárhæð kr. 112.000, dagsettri 15.
febrúar 2000, sem hann fékk fyr-
irsvarsmann Drífandi ehf. til að
gefa út og
b) fyrir veitingar handa 70
manns að fjárhæð kr. 118.000, dag-
settri 3. júní 2000, sem hann fékk
X til að gefa út.
Brot ákærða samkvæmt 15. tölu-
lið þykir varða við 147. gr., sbr.
138. gr., almennra hegningarlaga.
D. Ákærði Árni er sakaður um
brot í opinberu starfi, mútuþægni,
með því að hafa;
16. í marsmánuði 2000, fengið Ís-
tak hf., sem hann átti umfangsmikil
samskipti við sem formaður bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins og
formaður byggingarnefndar Vest-
norræna ráðsins, Brattahlíðar-
nefndar, til þess að greiða n.kr.
67.308,40 samkvæmt reikningi dag-
settum 13. apríl 2000 fyrir tilsniðið
timbur í stafkirkju sem ákærði
festi kaup á fyrir sjálfan sig hjá
Materialbanken AS í Noregi á
sama tíma og hann vann að viðtöku
stafkirkju, þjóðargjafar Norð-
manna til Íslendinga, sem formað-
ur byggingarnefndar stafkirkju í
Vestmannaeyjum. Ístak hf. færði
fjárhæð reikningsins til gjalda í
bókhaldi sínu í maímánuði 2000 á
bókhaldsreikning vegna bygginga-
framkvæmda í Brattahlíð en með
færslu dagsettri 30. júní 2001 voru
timburkaup ákærða færð honum til
skuldar með kr. 875.694 á við-
skiptareikningi ákærða sem þá var
stofnað til í bókhaldi Ístaks hf.
17. sem formaður byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins, í mars-
mánuði 2001, heimtað og þegið kr.
650.000 úr hendi fyrirsvarsmanna
Þjóðleikhúskjallarans hf., með-
ákærðu Björns Kristmars Leifs-
sonar og Gísla Hafliða Guðmunds-
sonar, fyrir að samþykkja reikning
Þjóðleikhúskjallarans hf., dagsett-
an 8. febrúar 2001 að fjárhæð kr.
3.154.419, vegna ýmissa lagfæringa
í Þjóðleikhúskjallaranum á fimm
ára tímabili frá dagsetningu reikn-
ings að telja, til greiðslu af fjárveit-
ingum byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins.
Brot ákærða samkvæmt 16. og
17. tölulið þykir varða við 128. gr.
almennra hegningarlaga.
E. Ákærði Árni er sakaður um
umboðssvik í opinberu starfi með
því að hafa sem formaður bygging-
arnefndar Vestnorræna ráðsins,
Brattahlíðarnefndar, misnotað að-
stöðu sína, sér eða öðrum til ávinn-
ings;
18. þann 22. júní 2001 er hann
greiddi af bankareikningi Vestnor-
ræna ráðsins við Landsbanka Ís-
lands, Reykjavík, Torf- og grjót-
hleðslunni ehf. Hellu, reikning á
eyðublaði Torf- og grjóthleðslna,
dagsettan 10. ágúst 2000, að fjár-
hæð kr. 645.000, vegna hleðslu í
Brattahlíð og tækjaleigu, þótt Torf-
og grjóthleðslan ehf., sem verið
hafði undirverktaki Ístaks hf. við
framkvæmd verks í Grænlandi á
árinu 2000 og fengið fullnaðar-
greiðslu frá Ístaki hf., hafi ekki átt
lögvarða kröfu á hendur Bratta-
hlíðarnefnd.
Brot ákærða samkvæmt 18. tölu-
lið þykir varða við 249. gr., sbr.
138. gr. almennra hegningarlaga.
II.
Ákærða Árna er í eftirgreindum
tilvikum gefið að sök umboðssvik í
opinberu starfi sem formaður
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
og ákærða, Gísla Hafliða Guð-
mundssyni, hlutdeild í þeim með
því að;
19. ákærði Árni misnotaði af-
stöðu sína og samþykkti til greiðslu
af fjárveitingum byggingarnefnd-
arinnar ár 1998, sér eða öðrum til
ávinnings, tilhæfulausan reikning
sem meðákærði Gísli Hafliði
Guðmundsson útbjó og gaf út í
nafni Þjóðleikhúskjallarans hf. dag-
settan 18. mars 1998 að fjárhæð kr.
82.500 fyrir kaffi og kökur á tutt-
uguogníu fundum byggingarnefnd-
arinnar á tímabilinu júlí 1997 til
mars 1998.
20. ákærði Árni misnotaði að-
stöðu sína og samþykkti til greiðslu
af fjárveitingum byggingarnefndar-
innar ár 1999, sér eða öðrum til
ávinnings, tilhæfulausan reikning
Þjóðleikhúskjallarans hf. sem með-
ákærði Gísli Hafliði Guðmundsson
útbjó og gaf út í nafni Þjóðleik-
húskjallarans hf. dagsettan 20. jan-
úar 1999 að fjárhæð kr. 88.000 fyrir
kaffiveitingar á fundum vegna end-
urbóta í Þjóðleikhúsi.
Þykir brot ákærða Árna sam-
kvæmt 19. og 20. tölulið varða við
249. gr., sbr. 138. gr. almennra
hegningarlaga, en brot ákærða
Gísla Hafliða samkvæmt sömu
töluliðum við 249. gr., sbr. 22. gr.
almennra hegningarlaga.
III.
Ákærða Árna er í eftirgreindu
tilviki gefið að sök umboðssvik í op-
inberu starfi sem formaður bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins og
Stefáni Axel Stefánssyni hlutdeild í
þeim umboðssvikum með því að;
21. ákærði Árni misnotaði að-
stöðu sína og samþykkti til greiðslu
af fjárveitingum byggingarnefndar-
innar, sér eða öðrum til ávinnings,
tilhæfulausan reikning Forum ehf.
dagsettan 14. desember 2000 að
fjárhæð kr. 169.000 sem með-
ákærði Stefán Axel Stefánsson
útbjó og gaf út í nafni Forum ehf.
fyrir kaffiveitingar í Leikhúskjall-
aranum á þrjátíuogþremur fundum
byggingarnefndarinnar á tíma-
bilinu nóvember 1999 til október
2000.
Brot ákærða Árna samkvæmt
21. tölulið þykir varða við 249. gr.,
sbr. 138. gr. almennra hegningar-
laga, en brot ákærða Stefáns Axels
samkvæmt sama tölulið við 249.
gr., sbr. 22. gr. almennra hegning-
arlaga.
IV.
Ákærða Árna er í eftirgreindum
tilvikum gefið að sök umboðssvik
og fjárdráttur í opinberu starfi sem
formaður byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins með því að hafa misnot-
að aðstöðu sína og dregið sér verð-
mæti sér til ávinnings og ákærða
Tómasi Tómassyni verkfræðingi
hjá Ísaki hf., umsjónarmanni með
verkum við Þjóðleikhúsið, er gefið
að sök þátttaka í umboðssvika- og
fjárdráttarbrotunum.
A. Umboðssvik.
22. Ákærði Árni fékk meðákærða
Tómas til þess á árinu 1999 að láta
Ístak hf. annast innréttingu á bíl-
skúr að Haukalind 17, Kópavogi,
sem var byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins algjörlega óviðkomandi, og
gera byggingarnefndinni reikning
vegna kostnaðar við framkvæmd-
ina sem nam kr. 305.825 sam-
kvæmt reikningi Ístaks hf. á hend-
ur byggingarnefndinni dagsettum
30. mars 2000 að viðbættu 15%
álagi.
23. Ákærði Árni fékk meðákærða
Tómas til þess að gefa út beiðni í
nafni Ístaks hf. til Funa ehf. blikk-
smiðju, dagsetta 30. mars 2001, um
sandblástur, efni og viðgerðir á
ofni, sem var byggingarnefndinni
algjörlega óviðkomandi, en Ístak
hf. krafði kostnað vegna verksins,
kr. 32.800, samkvæmt reikningi
Funa ehf., blikksmiðju, dagsettum
23. apríl 2001, með reikningi á
hendur byggingarnefndinni dag-
settum 28. maí 2001 að viðbættu
15% álagi. Ákærði endurgreiddi
fjárhæðina 13. ágúst 2001 án álags-
ins.
B. Fjárdráttur.
Ákærði Árni er sakaður um að
hafa með aðstoð meðákærða Tóm-
asar dregið sér;
24. flísar og fylgiefni sem hann
tók út hjá Vídd hf., Kópavogi, í við-
skiptareikning Ístaks hf. sam-
kvæmt beiðni sem meðákærði
Tómas gaf út til sölufyrirtækisins.
Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings
Víddar hf., dagsetts 14. febrúar
2001, kr. 290.693, hjá byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins með reikn-
ingi dagsettum 28. febrúar 2001 að
viðbættu 15% álagi. Ákærði Árni
endurgreiddi fjárhæðina 13. ágúst
2001 án álagsins.
25. hurðir, karma, glugga og inn-
réttingar sem hann tók út hjá Tré-
smiðju Sigurjóns Jónssonar,
Stokkseyri, í viðskiptareikning Ís-
taks hf. samkvæmt beiðni sem
meðákærði Tómas gaf út til tré-
smiðjunnar dagsettri 3. maí 2001.
Ístak hf. krafði fjárhæð reiknings
Trésmiðju Sigurjóns Jónssonar,
dagsetts 8. maí 2001, kr. 418.000,
hjá byggingarnefnd Þjóðleikhúss-
ins með reikningi dagsettum 14.
júní 2001 að viðbættu 15% álagi.
Ákærði Árni endurgreiddi fjárhæð-
ina 13. ágúst 2001 án álagsins.
26. hurðir, karma, gerefti, þrösk-
ulda og hurðarhúna sem hann tók
út hjá Húsasmiðjunni hf., Reykja-
vík, í viðskiptareikning Ístaks hf.
samkvæmt beiðni sem meðákærði
Tómas gaf út til Húsasmiðjunnar
hf. 3. maí 2001. Ístak hf. krafði
fjárhæð reiknings Húsasmiðjunnar
hf., dagsetts 16. maí 2001, kr.
104.981, hjá byggingarnefnd Þjóð-
leikhússins með reikningi dagsett-
um 14. júní 2001 að viðbættu 15%
álagi.
27. baðherbergistæki sem hann
tók út hjá Tengi ehf., Kópavogi, í
viðskiptareikning Ístaks hf. sam-
kvæmt beiðni sem meðákærði
Tómas gaf út til Tengis ehf. dag-
settri 3. maí 2001. Ístak hf. krafði
fjárhæð reiknings Tengis ehf., dag-
setts 16. maí 2001, kr. 184.624, hjá
byggingarnefnd Þjóðleikhússins
með reikningi dagsettum 14. júní
2001 að viðbættu 15% álagi.
Brot ákærða Árna samkvæmt
22. og 23. tölulið þykja varða við
249. gr., sbr. 138. gr. almennra
hegningarlaga, en brot ákærða
Tómasar samkvæmt sömu liðum
við 249. gr. almennra hegningar-
laga.
Brot ákærða Árna samkvæmt
24. til 27. tölulið þykja varða við
247. gr. en brot ákærða Tómasar
samkvæmt sömu töluliðum við 247.
gr., sbr. 22. gr. almennra hegning-
arlaga, en til vara við 249. gr. al-
mennra hegningarlaga.
V.
Ákærðu Birni Kristmari og Gísla
Hafliða er gefið að sök mútur með
því að hafa;
28. sem fyrirsvarsmenn Þjóðleik-
húskjallarans hf. lofað á árinu 2001
að greiða meðákærða Árna sem
formanni byggingarnefndar Þjóð-
leikhússins kr. 650.000 þóknun fyr-
ir að samþykkja greiðslu á reikn-
ingi Þjóðleikhúskjallarans hf. á
hendur byggingarnefnd Þjóðleik-
hússins, vegna ýmissa lagfæringa í
Þjóðleikhúskjallaranum á fimm ára
tímabili, dagsettum 8. febrúar
2001, að fjárhæð kr. 3.154.419.
Þóknunina inntu þeir af hendi í
marsmánuði 2001 þegar reiknings-
fjárhæðin hafði verið greidd Þjóð-
leikhúskjallaranum hf. af fjárveit-
ingum byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins.
Brot ákærðu samkvæmt 28. tölu-
lið þykir varða við 109. gr. al-
mennra hengingarlaga.
Þess er krafist að ákærðu verði
dæmdir til refsingar.
Reykjavík 6. maí 2002.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari.
Ákæra ríkis-
saksóknara