Morgunblaðið - 09.05.2002, Síða 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
18 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Á góðum bíl í Evrópu
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig
(Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga)
Innifalið í verði er ótakmarkaður
akstur, trygging, vsk.
og flugvallargjald.
Bretland kr. 3.000,- á dag
Ítalía kr. 3.700,- á dag
Frakkland kr. 3.000,- á dag
Spánn kr. 2.200,- á dag
Portúgal kr. 2.600,- á dag
Danmörk kr. 3.500,- á dag
www.avis.is
Við
reynum
betur
TILLAGA hollensku arkitektastof-
unnar KuiperCompagnons varð
hlutskörpust í samkeppni um nýtt
bryggjuhverfi á Norðurbakkanum í
Hafnarfirði, en úrslit samkeppninn-
ar voru kynnt í gær. Segir í áliti
dómnefndar að tillagan reyni „að
brjóta upp hefðbundna nálgun í
skipulagi íbúðabyggðar á Íslandi“.
Það er Norðurbakki ehf. sem stóð
fyrir samkeppninni, en að því félagi
standa Hafnarfjarðarbær, J&K
eignarhaldsfélag ehf. og Þyrping hf.
og er markmið þess uppbygging
norðurbakkans. Efnt var til sam-
keppninnar í byrjun ársins og var
þremur aðilum boðið að taka þátt.
Fyrir utan KuiperCompagnions var
dönsku arkitektastofunni Schmidt,
Hammer og Lassen boðið til keppn-
innar og íslensku stofunum Teikni-
stofu Halldórs Guðmundssonar og
Archús sem saman skiluðu inn einni
tillögu.
Í verðlaunatillögunni segir að
hugmyndin að baki nýja hverfinu sé
að viðhalda einkennum núverandi
byggðar í Hafnarfirði og sögulegum
tengslum bæjarins við höfnina og
sjóinn. Kemur fram að þrátt fyrir að
í tillögunni felist umtalsverð fjölgun
íbúa í bænum sé lagt kapp á að við-
halda þeirri tilfinningu fyrir smæð
og nálægð sem sé eitt helsta ein-
kenni byggðar í Hafnarfirði.
Tillagan gerir ráð fyrir um 17
þúsund fermetra landfyllingu og við
það verður byggingasvæðið í heild
rúmlega 53 þúsund fermetrar. Gert
er ráð fyrir 571 íbúð í húsum sem
eru 1–7 hæða en mest liggur byggð-
in þó í 3–5 hæðum að því er fram
kemur í greinargerð Norðurbakka
ehf. um samkeppnina. Meðalstærð
íbúða er 115 fermetrar. Bílastæði
verða í landhæð „þannig að byggðin
er að mestu tekin eina hæð upp og
byggð umhverfis innigarð, sem um
leið eru yfirbyggð bílastæði.“ Kom
fram á kynningarfundi um úrslit
samkeppninnar að gert væri ráð
fyrir einu og hálfu bílastæði á íbúð
sem er samkvæmt samþykktu
skipulagi miðbæjarins. Með tilkomu
nýju byggðarinnar mun íbúum í
miðbæ Hafnarfjarðar fjölga um sex-
tán til átján hundruð, en í dag eru
íbúar bæjarins í heild um 20 þúsund
talsins.
Smágerðar húsaþyrpingar
og sambyggt fjölbýlishús
Í tillögunni er nýja hverfinu skipt
í þrjá meginhluta eftir legu þess og
umhverfi og er það gert vegna
stærðar hafnarsvæðisins og mis-
munandi landfræðilegra eiginleika
þess, að því er segir í greinargerð-
inni. Þessir þrír hlutar eru Hafn-
arbærinn (Harbour Village), Byggð-
armörk (Land’s End) og Eyjarnar
(Islands). „Tvær sjálfstæðar bygg-
ingar, Útsýnið (Belvedere) og Skel-
in (the Shell), koma sérstaklega við
sögu auk þess sem Hvalurinn hefur
burði til að verða nýtt tákn Hafn-
arfjarðar,“ segir í greinargerðinni.
Í umfjöllun um hina þrjá hluta
segir að Hafnarbærinn, sem er
syðsti hluti hafnarinnar, sæki hug-
myndir til hefðbundinnar byggðar í
Hafnarfirði með smágerðum húsa-
þyrpingum og bröttum þökum og
fjölbreyttu ytra útliti sem einkenn-
ist af timbri og bárujárni í marg-
víslegum litum.
Í miðjuhluta hverfisins, Byggðar-
mörkunum, verði sambyggt fjöl-
býlishús byggt umhverfis innri garð
og verði það ytra kennileiti byggð-
arinnar. „Húsið rís eins og virki við
hafið og gera höfundar ráð fyrir
ljósgráu málmkenndu ytra útliti í
bland við málma í björtum litum.“
Vestast á skipulagssvæðinu er
síðan gert ráð fyrir byggð á eyjum í
stað samfelldrar uppfyllingar, en í
greinargerðinni segir að með því sé
hægt að halda núverandi strand-
lengju, skerjum og fjöru. „Þarna er
gert ráð fyrir að allar íbúðir eigi
bein tengsl við sjóinn og aðkoma sé
á bryggjum sem liggja út í eyjarn-
ar.“
Í umsögn dómnefndar segir að
hugmyndin um eyjarnar sé
„skemmtileg, en kannski ekki raun-
hæf kostnaðarlega“.
Menningarmiðstöð með kvik-
mynda-, tón- og leiklistarsölum
Byggingin sem nefnd er Útsýnið
er staðsett á vesturenda bakkans
milli Hafnarbæjarins og Byggðar-
markanna, en gert er ráð fyrir að
það verði fjögurra hæða hús með 21
íbúð með stórum svölum til suðurs.
Önnur afgerandi bygging er Skelin,
sem er ein hlið Byggðarmarkahlut-
ans. Byggingin mun hýsa 20 íbúðir
sem eiga að snúa inn í garðinn og
sem slíkt markar húsið kennileiti
víða að. Loks er nefndur til sög-
unnar Hvalurinn, en það er bygging
sem skilur sig sérstaklega út úr til-
lögunni. „Samkvæmt henni verður
byggð menningarmiðstöð með kvik-
myndasölum, tón- og leiklistarsölum
á milli hafnarbakkans og miðbæjar
Hafnarfjarðar. Hvalurinn hefur alla
burði til að verða eitt helsta kenni-
leiti Hafnarfjarðar í framtíðinni,“
segir í greinargerðinni.
Loks kemur fram að gert sé ráð
fyrir gönguleið á hafnarbakka sjáv-
armegin við Hafnarbæinn og
Byggðarmörkin og er þar gert ráð
fyrir smáhýsum með ýmiss konar
þjónustu.
Kom fram í máli Ragnars Atla
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Þyrpingar hf., á kynningar-
fundinum að í framhaldinu yrði unn-
ið að skipulagi og hönnun hverfisins
á grundvelli verðlaunatillögunnar.
Framkvæmdir munu hefjast um
mitt ár 2003 og standa yfir til ársins
2006 samkvæmt áætlunum. Mun
Norðurbakki ehf. sjá um þróun,
skipulag og hönnun hverfisins en
margir verktakar munu geta komið
að byggingu þess. Aðspurður sagði
Ragnar hugmyndina þá að ekki yrði
um mjög dýrar íbúðir að ræða eins
og stefnt er að á nýjum bygginga-
svæðum í Reykjavík á borð við Suð-
urhlíðar og Skuggahverfið. „Þetta
verður í betri kantinum, en alls ekk-
ert í líkingu við Skuggahverfið – þar
erum við að tala um verð sem er
mun hærra. Miðað við hagkvæm-
ustu íbúðir mun þetta kannski verða
um milljón krónum dýrara.“
Hollenskir arkitektar hlutskarpastir í hönnunarsamkeppni um Norðurbakkann
Þrír ólíkir megin-
hlutar og hvalur
sem nýtt kennileiti
Norðurbakki séður úr
norðri í verðlaunatillögu
KuiperCompagnons. Frá
vinstri: Þjónustusmáhýsi,
Hvalurinn, Hafnarbærinn,
hringlaga bygging sem
kallast Útsýnið, Byggð-
armörkin með Skelinni og
loks Eyjarnar.
Hafnarfjörður Morgunblaðið/RAX
Líkan af verðlaunatillögunni
tekið út á kynningarfundinum í
gær. F.v.: Magnús Gunnarsson
bæjarstjóri, Þorsteinn Njálsson,
formaður bæjarráðs, Jónas Þór
Jónasson, verkefnisstjóri sam-
keppninnar, Þóra Arnórsdóttir
fréttamaður og Páll Gunnlaugs-
son arkitekt en hann átti sæti í
dómnefndinni.
TILVERAN er nafn á nýju heimili
fyrir ungmenni sem eru að koma úr
langtímameðferð og þurfa að aðlag-
ast fyrra lífi á ný. Þetta er fyrsta úr-
ræðið sinnar tegundar hjá Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar en
vistunartíminn á heimilinu verður
þrír til fjórir mánuðir.
Formleg opnun heimilisins, sem
er í Breiðholti, var í gær en þar
verður pláss fyrir fjóra 16 til 19 ára
unglinga. Á heimilinu á að veita sér-
hæfða þjónustu fyrir ungmennin og
fjölskyldur þeirra að lokinni með-
ferð á meðferðarheimilum Barna-
verndarstofu og götusmiðjunni Ár-
völlum en að sögn Ragnheiðar
Sigurjónsdóttur, forstöðumanns
Tilverunnar, hefur reynslan sýnt að
oft er erfitt fyrir unga fólkið að fóta
sig á ný í samfélaginu eftir að með-
ferð lýkur. „Það er ákaflega mis-
jafnt hvort fjölskyldurnar hafa haft
tækifæri til að vinna í sínum málum
á meðan börnin eru í meðferð því
meðferðarheimilin eru öll úti á
landi og mjög misjafnlega í stakk
búin til að vera með fjölskyldu-
meðferð. Þess vegna var farið af
stað með þetta úrræði.“
Verða að vera tilbúnir
að vinna í sínum málum
Ragnheiður segir að hingað til
hafi þessir unglingar farið í flestum
tilfellum beint af meðferðarheim-
ilunum inn á sitt gamla heimili.
„Þessi ungmenni eru búin að vera í
langtímameðferð og dýrum úrræð-
um. Þess vegna er mjög átakanlegt
þegar þau koma til Reykjavíkur og
aftur í sitt gamla umhverfi að þá
getur verið verulega erfitt fyrir þau
að fóta sig og finna nýja vini. Því
þurfa þau virkilegan stuðning til að
standa sig þó að yfirleitt vilji þau öll
gera það. Það er svo sannarlega
erfiðara en að segja það. Þannig að
þetta virkar sem brú til þess að
komast heim.“
Hún segir það því skilyrði fyrir
vistun á nýja heimilinu að ungling-
arnir séu tilbúnir til að vinna í sín-
um málum. „Þeir þurfa að stunda
skóla eða vinnu og lifa vímulausu
lífi og vera reiðubúnir til að nýta
sér aðstoðina sem er í boði. Á þess-
um tíma fara þau heim aðra hverja
helgi þar sem þau hafa tækifæri til
að aðlagast lífinu þar og þá reynir á
samskiptin heima fyrir. Ungmennin
borga sína leigu og fæði og þeim er
kennt að standa skil á sínu.“
Brýn þörf fyrir úrræðið
Umsjónarmaður heimilisins mun
búa á staðnum og halda utan um
starfsemina og að sögn Ragnheiðar
kemur hann til með að vinna í nánu
sambandi við félagsráðgjafa og for-
sjáraðila viðkomandi ungmennis.
„Það virkar þannig að á meðan ung-
mennið er á þessu heimili fer í gang
mjög öflugt stuðningskerfi sem
ungmennið og fjölskyldan verða að
taka þátt í.“ Heimilið er fjármagnað
af félagsþjónustunni og hefur Hall-
dór Lárusson verið ráðinn umsjón-
armaður þess en Ragnheiður er
sem fyrr segir forstöðumaður.
Hún segir að um einskonar til-
raunaverkefni sé að ræða og ef það
gangi vel sé óskandi að fleiri slíkum
heimilum verði komið á laggirnar.
Hún er ekki í vafa um að þörfin fyr-
ir slík heimili sé brýn. Þegar séu
fluttir inn tveir einstaklingar á Til-
veruna og fleiri séu á leiðinni.
„Þannig að allir eru samdóma um
að það sé fyllileg þörf fyrir þetta úr-
ræði,“ segir hún að lokum.
Nýtt meðferðarheimili fyrir unglinga opnað í gær
„Brú til þess að komast heim“
Morgunblaðið/Ásdís
Halldór Lárusson sem hefur verið ráðinn umsjónarmaður Tilver-
unnar utan við húsið þar sem ungmennin koma til með að búa.
Breiðholt