Morgunblaðið - 09.05.2002, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 27
FLYGILDIÐ sem mun að öllum lík-
indum taka við hlutverki bandarísku
geimskutlanna fer í loftið á sama hátt
og flugvél, er knúið áfram af auka-
eldflaugum sem snúa aftur til jarðar,
og það nýjasta er að þessi geimflug-
vél verður væntanlega án flug-
manna.
Geimflugvélin verður með útbún-
aði sem gerir áhöfninni kleift að yf-
irgefa hana í neyðartilvikum, lend-
ingarbúnaður verður fjarstýrður, og
verður flugvélin öruggari en geim-
skutlurnar sem Bandaríska geimvís-
indastofnunin (NASA) notar nú. Þá
sögðu fulltrúar stofnunarinnar að
geimflugvélin yrði mun ódýrari í
rekstri en skutlurnar.
Markmiðið er að geimflugvélin
verði tilbúin til notkunar 2012, um
sama leyti og geimskutlunum verður
lagt. „Þetta verður nokkru minna
farartæki [en geimskutlan] og þess
vegna ef til vill ekki eins stórbrotið
og hávaðasamt og öflugt og þegar
skutlan fer í loftið,“ sagði Dennis
Smith, sem stjórnar þróunaráætlun
NASA. „En [geimflugvélin] hefur
ýmsa skemmtilega kosti.“
Til dæmis myndu aukaeldflaug-
arnar losna frá vélinni, snúa við og
fljúga aftur til flugtaksstaðarins.
Aukaflaugar geimskutlunnar svífa til
jarðar í fallhlífum, lenda í sjónum og
eru veiddar upp með skipum. Nýja
geimflugvélin yrði notuð til að flytja
geimfara og tæki til alþjóðlegu geim-
stöðvarinnar. Sama kerfi yrði notað
til að koma á loft gervihnöttum.
Meginmarkmið NASA í þróun
nýju vélarinnar eru að lækka kostn-
aðinn við flutninga á búnaði út í
geiminn úr 22 þúsund dollurum (um
tveim milljónum króna) fyrir hvert
kíló, sem flutningur með geimskutl-
unum kostar, í innan við 2.200 dollara
(um 200.000 kr.), og draga úr hætt-
unni á banvænu slysi, sem nú reikn-
ast vera einn á móti 500, í einn á móti
10 þúsund.
Smith sagði að í skutlurnar vant-
aði búnað til að áhöfnin gæti forðað
sér í neyðartilvikum í flugtaki. Slíkur
búnaðir væri nauðsynlegur ef ná ætti
því markmiði að draga úr hættunni
við geimskot, svo sem NASA væri
staðráðin í að gera. Meðal þeirra
kosta er koma til greina eru áhafn-
arsæti sem skjóta má út úr flauginni
og sérstakar björgunarferjur.
Líklegast er að nýja flugvélin fari
á loft frá Kennedy-geimstöðinni á
Flórída, en vélin mun væntanlega
geta farið á loft hvort heldur sem er
eins og flugvél eða eins og geimflaug.
Hún gæti einnig gegnt hlutverki
björgunarbáts fyrir alþjóðlegu geim-
stöðina, sagði Smith. Þá komi til
greina að engir flugmenn verði hafð-
ir um borð til þess að meira pláss
verði fyrir aðra áhafnarliða.
Undanfarin ár hefur NASA valið
15 tillögur úr þúsundum hugmynda
sem þrjú fyrirtæki lögðu fram,
Boeing, Lockheed og samstarfsfyr-
irtæki Orbital Sciences og Northrop
Grumman. Áætlar NASA að velja úr
tvær tillögur á næsta ári og hefja
smíði flugvélar samkvæmt annarri
þeirra 2006, og vonir standa til að
fyrsta flugið verði 2012.
„Það tók okkur níu ár að fara til
tunglsins og við þróuðum skutluna á
átta árum,“ sagði Smith. „Nú eru tíu
ár til stefnu og þetta er á endanum
spurning um að láta ekki deigan síga
við þetta nýja verkefni.“
Fjarstýrð geimflugvél
í stað geimskutlunnar
Canaveral-höfða. AP.
AP
Teikning af nýju geimflugvélinni, samkvæmt einni af þeim hugmyndum
sem NASA hefur nú til athugunar.
Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is
Aukin umsvif
ÍAV flytja í rúmbetra húsnæði að Höfðabakka
ÍAV flytja skrifstofu sína frá Suðurlandsbraut í rúmbetra húsnæði að Höfðabakka 9, 4. hæð. Af þeim sökum verður skrifstofan
lokuð á morgun, föstudag. Við opnum á nýja staðnum mánudaginn 13. maí nk. Verið velkomin.
Byggðu á þínum tíma
Grafarvogi Ármúla
Kópavogi Vestur í bæ
Opið í dag
Klukkubúðir í þínu hverfi
www.husa.is