Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 35

Morgunblaðið - 09.05.2002, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 35 an, við að tókst það u og Róm- brenndir m. Ég hef meðan var mínar. “ ði nú for- óst þú við alþjóðlega trinu við rð hversu ví að þeir ginu sem áskil mér að menn fir ástand- líkneskj- n miklum ar vitni. t að sam- , hvernig kta í kirkj- mitt besta arsællega. og vonum onum. Ég ar sem ég t er svikið ki gleyma ndir borg- allt sem í ma út. Sem ð yfirgefa anna Sagt er að einu sem ið á friði á mmála um rk Evrópu nn megið efur verið um aldirn- andfræði- Eru Evr- sum stað- n bóginn ríkjamenn hlutverki Rússum, a sem hóf- ust í Madríd og ég vona að því ferli sem þar var hrundið af stað með Bush eldri, ljúki nú með Bush yngri. Það er að ákvæðum samkomulagsins verði framfylgt; ákvæðum um land fyrir frið og öðrum ályktunum eins og til dæmis að Palestínumenn skuli fá sitt sjálfstæða ríki en Bush hefur margoft lýst því yfir að svo skuli verða; á fundum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, fréttamanna- fundum og nú síðast í Washington þar sem fulltrúar Evrópu, Banda- ríkjanna, Rússlands og SÞ voru sam- ankomnir til viðræðna. Við vonum að þeir muni bregðast við, hratt og kröftuglega, til að stöðva þennan harmleik. Annars mun friðurinn um öll Mið-Austur- lönd vera úti, það jafnvægi sem hald- ist hefur mun hrynja.“ Heimir: ,,Hvað hlutverki getur Ís- land gegnt á þessum vettvangi?“ Arafat: ,,Allar þjóðir Evrópu hafa hlutverki að gegna við að þrýsta á um frið og þið getið skipt miklu máli innan Evrópu. Í því samhengi má benda á að 70% allra utanríkisvið- skipta Ísraels eru við Evrópu.“ Heimir: „Herra Arafat. Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra Ís- lands, stefnir að því að koma í op- inbera heimsókn til Ísraels hinn 26. maí en hann hefur sagt að ekkert verði af þeirri ferð nema honum gef- ist tækifæri á að hitta þig. Hefur þú heyrt af þessari heimsókn og telurðu að þú munir hitta hann?“ Arafat: ,,Þetta er það fyrsta sem ég heyri af þessu og hann er meira en velkominn. Ég vona að ég fái tækifæri til að hitta hann og komdu hjartanlegum þökkum áleiðis til hans og allra Íslendinga fyrir þann stuðning sem þeir hafa sýnt okkur í þessu máli.“ Arafat þakkaði nú fyrir viðtalið og reis úr sæti. Hann var greinilega mjög þreyttur og aðstoðarfólk hans hafði þegar reynt að ljúka fundinum. Að lokinni myndatöku var fundar- mönnum smalað sömu leið út úr hús- inu og út í palestínsku nóttina. Hálf- tíma seinna fréttist af sjálfsmorðs- árás sem gerð hafði verið í Tel Aviv. Í ljósi þess hversu viðkvæmt ástand- ið er þá verður að teljast ljóst að Arafat muni ekki yfirgefa Mqadaá í bráð. höfuðstöðvum sínum í Ramallah í gær. ði á fresti“ Reuters HÁSKÓLI Íslands, Félagstjórnmálafræðinga ogfastanefnd fram-kvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins efndu til málþings í gær með yfirskriftinni „Evrópa á krossgötum“. Tilefnið var Evrópu- dagurinn sem haldinn er hátíðlegur ár hvert hinn 9. maí og er dagurinn helgaður samrunaferlinu að þessu sinni og fyrirhugaðri stækkun Evr- ópusambandsins, sem reiknað er með að hefjist í ársbyrjun 2004. Fimm erindi voru flutt á mál- þinginu í gær og að þeim loknum tóku þingmennirnir Einar K. Guð- finnsson, Sjálfstæðisflokki, Bryndís Hlöðversdóttir, Samfylkingunni, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, þátt í pallborðsumræð- um. Evran gefur Íslend- ingum tækifæri Í upphafi málþingsins flutti Ger- hard Sabathil, sendiherra fasta- nefndar framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg, stutt ávarp. Hann sagði að árið 2002 væri sögu- legt fyrir Evrópu vegna þeirra við- ræðna sem væru í gangi um stækk- unina og ekki síst vegna gildistöku sameiginlegrar myntar, evrunnar. Hann sagði að evran væri farin að virka og fólki líkaði hún vel. Gild- istaka sameiginlegrar myntar hefði haft gríðarlega þýðingu fyrir efna- hag þjóðanna, verðbólga hefði minnkað, vextir sömuleiðis, vel- megun aukist og samkeppnisum- hverfi fyrirtækja batnað. Hann sagði evruna einnig skapa tækifæri fyrir Íslendinga og tækju þeir hana upp myndu markaðir í Evrópu opn- ast enn frekar en áður fyrir fyrir- tæki og fjárfesta. Sabathil sagði að framundan væru þýðingarmikil skref í sam- runaferlinu, búið væri að setja nið- ur tímaáætlun sem miðaðist við að ferlinu myndi ljúka um mitt ár 2004. Hann sagði að Ísland yrði boðið velkomið í ESB, ákvæðu stjórnvöld að sækja um aðild, og að sjálfsögðu yrðu teknar upp sérstak- ar viðræður varðandi sjávarútvegs- málin. Hann sagðist finna aukinn áhuga á Íslandi um Evrópumálin en hann sagðist ennfremur skilja var- færna afstöðu stjórnvalda. Væntingar um aðild stuðlað að jákvæðri þróun Eiríkur Bergmann Einarsson, yfirmaður Íslandsdeildar fasta- nefndar ESB, fjallaði stuttlega um helstu áfanga á leið sambandsins til stækkunar. Hann sagði að nú í upp- hafi 21. aldar stæði ESB frammi fyrir því mikilvæga og sögulega verkefni að víkka sambandið út til þeirra Evrópuþjóða sem í lok síðari heimsstyrjaldar hefðu verið skildar frá Vestur-Evrópu austan megin við járntjaldið. Eiríkur sagði ávinn- inginn af útvíkkun ESB til austurs bæði vera pólitískan, efnahagsleg- an og menningarlegan. Væntingar um aðild að sambandinu hefðu nú þegar stuðlað að jákvæðri þróun í öllum umsóknarríkjunum. Ríkin sem um ræddi væru Eistland, Kýp- ur, Pólland, Slóvenía, Tékkland, Ungverjaland, Búlgaría, Malta, Lettland, Litháen, Rúmenía, Slóv- akía og Tyrkland. Eiríkur sagði að vegna erfiðleika innanlands væri ekki reiknað með að Rúmenía og Búlgaría fengju aðild fyrr en 2007 og óvíst væri hvenær gæti orðið af aðild Tyrklands. Pólitískur máttur Evrópu þrotinn Guðmundur Hálfdánarson, pró- fessor í sagnfræði við Háskóla Ís- lands, velti því fyrir sér hvort Evr- ópusambandið boðaði endalok þjóðríkisins. Hann sagði að þótt frumkvöðlar Evrópusamvinnunnar hefðu ekki getað ímyndað sér heim án þjóðríkja hefði trú manna á hefð- bundið ríkjaskipulag álfunnar dvín- að á síðustu áratugum. Að sumu leyti væri hér um að ræða eðlilega niðurstöðu samvinnunnar sjálfrar, eftir því sem hún hefði orðið víð- tækari yrðu mörk þjóðríkjanna og sameiginlegs valds Evrópu sífellt óskýrari. Deilt væri um hvar ætti að taka ákvarðanir um einstaka um ríkjum sambandsins, fjölga þyrfti starfsmönnum sendiráðsins í Brussel úr 19 í 30 og fundasókn embættismanna að heiman myndi aukast. Baldur benti ennfremur á að Ísland hefði engin sendiráð í verðandi aðildarríkjum ESB. Ný áskorun með stækkun ESB Halldór Grönvold, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ASÍ, fjallaði í sínu er- indi um áhrif stækkunar ESB á ís- lenskt atvinnulíf og vinnumarkað. Hann sagði að þau áhrif gætu orðið töluverð og almennt jákvæð. Hall- dór sagði að EES-samningurinn hefði haft mikla þýðingu fyrir ís- lenskt samfélag, aðildin að samn- ingnum hefði þýtt að Ísland valdi að verða samferða öðrum ríkjum Vest- ur-Evrópu inn í framtíðina. Aðild- inni hefði ennfremur fylgt eitt lengsta hagvaxtarskeið á seinni tímum. Hún hefði einnig haft mikla þýðingu hér fyrir þróun á vinnu- markaði og bætta réttarstöðu launafólks. Halldór sagði að stækkun ESB og þar með Evrópska efnahags- svæðisins fæli í sér nýja áskorun fyrir íslenskt atvinnulíf og vinnu- markað. Með stækkuninni opnuð- ust nýir markaðir og viðskiptatæki- færi fyrir íslensk fyrirtæki. Mælti hann einnig með því að Íslendingar tækju upp evruna. Halldór sagði að líkt og að Evr- ópa stæði á krossgötum, samanber yfirskrift málþingsins, væru Ís- lendingar í svipuðum sporum. EES-samningurinn hefði staðið fyllilega undir væntingum en einnig hefði margt breyst síðastliðinn ára- tug. Þróunin í Evrópu hefði veikt stöðu samningsins og EFTA- ríkjanna, sem aðeins væru þrjú eft- ir á EES-svæðinu. Halldór benti á að nú byggju um 5 milljónir manna á EES-svæðinu en á móti mætti reikna með að íbúafjöldi ESB-ríkja yrði ríflega 400 milljónir. Íslending- ar yrðu að taka þátt í þeirri um- ræðu sem væri í gangi um Evrópu- mál, þeir væru hluti af Evrópu. Einhliða umræðu stjórnað af fylgismönnum aðildar Steingrímur J. Sigfússon tók fyrst til máls að loknum framsögu- erindum og sagði umræðuna um Evrópumál hér á landi hafa verið einhliða og henni stjórnað af fylg- ismönnum aðildar að ESB. And- stæðingar þyrftu að koma sínum sjónarmiðum meira á framfæri, umræðan væri mikilvæg en hún þyrfti að vera efnisleg. Steingrímur sagðist vera hallur undir stækkun ESB af ýmsum ástæðum og þar renndu menn einkum hýru auga til nýrra markaða. Spurningin væri hvort sagan myndi ekki endurtaka sig þar sem þjóðir væru annaðhvort að sameinast eða sundrast, velti hann því fyrir sér hvað yrði um Evrópusambandið síðar meir í því samhengi. Bryndís Hlöðversdóttir var ekki sammála Steingrími, sagði það mis- skilning að umræða um Evrópumál hefði verið einhliða. Stuðnings- menn aðildar hefðu hins vegar lagt meiri vinnu á sig til að kanna kost- ina og gallana. Hún sagði að færa þyrfti þjóðina nær því að ræða mál- ið af skynsemi, nýjasta útspil for- sætisráðherra með skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar hefði ekki verið til að auka veg þeirrar um- ræðu. Hún taldi það merkilegt að Steingrímur væri hlynntur stækk- un ESB en ekki að Ísland gengi þar inn. Í þessu væri ákveðin þversögn. Eins og gamall traktor Einar K. Guðfinnsson sagði að Íslendingar þyrftu ekki að leita skjóls hjá ESB til að sanna að þeir væru evrópsk þjóð. Íslendingar byggju að sterkri lýðræðislegri hefð og væru búnir að taka þátt í margvíslegu samstarfi á evrópsk- um vettvangi. Einar sagði að ákvarðanaferli innan ESB væri stirðbusalegt og embættismaður hefði sagt sér að líkja mætti sam- bandinu við gamlan traktor sem væri erfitt að snúa í gang eftir langa hvíld. Með stækkun ESB yrði ákvörðunarferlið mun erfiðara í framkvæmd. vissu leyti háfleygar en rök hans væru sannfærandi. Framtíðin ætti eftir að skera úr um hvort hug- myndir hans yrðu að veruleika. Stjórnsýslan í stakk búin til að takast á við ESB-aðild Baldur Þórhallsson, lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands, kynnti rannsókn sína á áhrif- um samrunaferlisins í Evrópu og fyrirhugaðrar stækkunar á ís- lenska stjórnsýslu og stefnumótun. Hann sagði að í upphafi gildistíma EES-samningsins hefði þekking á málaflokkum ESB verið takmörkuð og vanmat ríkt á umfangi samn- ingsins og þýðingu. Erfiðleikar hefðu verið í upphafi um lögleiðingu EES-gerða en með tímanum hefði þetta batnað. Nú væru sérfræðing- ar í Evrópumálum starfandi í öllum ráðuneytum og ekki síst sendi- ráðinu í Brussel, og stjórnsýslan fylgdist vel með flestum málaflokk- um Evrópusambandsins. Baldur sagði stjórnsýsluna hafa sýnt að hún hefði burði til að standa að gildistöku EES-gerða en stund- um hefði seinagangur verið þar á vegna skorts á þýðendum og inn- leiðing EES-gerða ekki verið ofar- lega á forgangslista einstakra ráðu- neyta. Baldur taldi íslenska stjórnsýslu vera í stakk búna til að takast á við aðild að Evrópusambandinu, það þýddi að sjálfsögðu aukið álag, markvissa forgangsröðun, byggja þyrfti upp sérþekkingu, starfsfólki stjórnsýslunnar myndi fjölga og kostnaður aukast. En ESB-aðild fylgdi aukið hagræði, beinn að- gangur að ráðherraráðinu, boðun á alla fundi framkvæmdastjórnarinn- ar og ESB myndi greiða allan ferða- og þýðingarkostnað. Baldur sagði að ef Íslandi gengi í ESB þyrfti að setja upp sendiráð í flest- þætti í lífi þegnanna, hverjir ættu að taka þessar ákvarðanir og hvernig. Guðmundur sagði að á meðan Evrópa hefði lifað í skugga atóm- sprengjunnar hefði álfan skipt verulegu máli í refskák risaveld- anna, en síðan aðeins eitt stórveldi, Bandaríkin, hefði orðið eftir á skák- borðinu þá virtist pólitískur máttur álfunnar algerlega þrotinn. Aðeins með því að syngja í kór gæti Evr- ópa látið í sér heyra á alþjóðavett- vangi. Guðmundur sagðist ekki vera viss um að þessi þróun ógnaði í sjálfu sér þjóðríkjaskipulagi Evr- ópu. Þjóðríkjum Evrópu stafaði að sínu mati mun meiri hætta af al- mennri þróun heimsmála síðustu áratugi, hnattvæðingunni, en þróun ESB sem slíks. Myndun samveldis Evrópu Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent í heimspeki við Háskóla Íslands, fjallaði um hugmyndir þýska heim- spekingsins Jörgens Habermas um framtíð Evrópusambandsins. Hún sagði meginhugmynd Habermas snúast um myndun samveldis lýð- ræðisríkja í Evrópu sem gæti styrkt stoðir lýðræðis og verið öfl- ugur málsvari evrópskra gilda á al- þjóðavettvangi. Hún sagði hann fjalla í raun um samstöðu meðal ósamstæðra, hann vildi lifandi lýð- ræði á tímum hnattvæðingar. Sigríður sagði gagnrýni Haber- mas eiga sér djúpar rætur í evr- ópskum gildum, Evrópa væri meira en markaður í hans augum, álfan væri meira eins og samfélagslíkan. Við værum að glata tækifærum ef umræða um aðild eða ekki aðild snerist eingöngu um fjárhagslegan ávinning, betra væri að viðhalda evrópskum gildum og styrkja evr- ópska menningu. Sigríður sagði að hugmyndir Habermans væru að Málþing um samrunaferlið í Evrópu og stækkun ESB í tilefni Evrópudagsins Ísland á krossgöt- um líkt og Evrópa Á málþingi í Háskóla Íslands í tilefni Evr- ópudagsins 9. maí fjölluðu íslenskir fræði- menn og stjórnmálamenn um samruna- ferlið í Evrópu og áhrif þess á íslensk stjórn- og efnahagsmál. Var því m.a. velt upp hvort þjóðríkjum stafaði meiri hætta af hnattvæðingunni en þróun ESB. Morgunblaðið/Sverrir Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, var meðal fyrirles- ara á málþinginu í gær og fundarstjóri var Ólafur Þ. Harðarson, pró- fessor og deildarforseti félagsvísindadeildar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.