Vísir - 16.06.1980, Side 1
r GaröaT sígurOsson, Tormaður pingfararkaupsneTndar?"1
„Þeir fengu að vita
betta ailt saman"
„Þingfararkaupsnefnd gerði bókun um þetta, sem visaði til þess,
þegar þingmenn voru settir í þennan ákveðna launaflokk, ásamt
mörgum starfsmönnum rikisins og þessir menn hafa fyrir
mörgum árum fengið greidda ómælda yfirvinnu, 20% eða meira,
aðrir hafa hækkað um flokka eða farið út úr launaflokkakerfinu. Ég
tók aldrei eftir þvi, að neinn hávaði væri, þegar þessir aðilar fengu
hækkun á launum,” sagði Garðar Sigurðsson, form. þingfarar-
kaupsnefndar, er Visis náði sambandi við hann um borð í Gullberg-
inu frá Vestmannaeyjum.
Garðar var spurður að þvi,
hvort honum þætti ekki óeðliíegt
að þingmenn í'ái 20% launa-
hækkun, þegar opinberum
starfsmönnum væri boðin
0.37-1.98% hækkun, nánast á
sama tima. „Eru það ekki opin-
berir starfsmenn sem eru i
þessum launaflokki með okkur.
Þetta er ekki nein ákvörðun,
sem tekur mið af aðstæðum
núna og ekki neinni þróun, sem
orðið hefur nýverið, siður en
svo. Það er alveg rangt og alveg
út i hött, einungis til þess að
gera þetta tortryggilegt og
æskilegt að bera þessa saman
við einhverja nýja kjarasamn-
inga við BSHB.”
„En er ekki ljóst, að þetta
muni hafa siæm áhrif á samn-
ingamálin aimennt?”
„Það má vel vera, aö þetta
hafi slæm áhrif á fólk, en ég veit
ekki, hvort þetta hefur slæm
áhrif á þá, sem eru með okkur
i launaflokki. Þingmenn eru
ekki kröfuharðir i launamálum.
sem sést best á þvi, að á s.l. ári
voru laun alþingismanna 6.5
milljónir.”
„Nú samþykktir þú hækkun-
ina i þingfararkaupsnefnd i
blóra við þinn þingflokk, sam-
kvæmt þvi sem formaöur hans
helur látið hafa eftir sér.”
„Var það? Ég ber ekki
ábyrgð á þvi hvaö þessir
ágætu menn segja. Þeir fengu
að vita þetta allt saman. Og ég
veit ekki til þess, að l'yrir liggi
neinar samþykktir þingflokk-
anna i þessu efni, þó að þessi
mál séu aðsjálfsögðu rædd þar,
þannig að þeir þurla ekkert að
verða mjög hissa. Þeir glima
við stóru vandamálin, enda sér
maður góðarúrlausnir blasa við
i þeim efnum, ekki satt?” sagði
Garðar Sigurðsson að lokum.
—Gsal.
Launahækkun
frestað til
fundar á
fimmtudaginn
„Ég er búinn að boða fund á
fimmtudagsmorgun með forset-
um, og þá fæ ég jafnframt for-
menn þingflokkanna á fund”,
sagði Jón Helgason. forseti
Sameinaðs þings, er Vísir leitaði
til hans vegna beiðni frá for-
mönnum þingflokks Alþýöu-
bandalags og Framsóknarflokks
um, að breyting þingfararkaups-
nefndar á mánaðarlaunum
alþingismanna komi ekki til
framkvæmda. En i lögum um
þingfararkaup alþingismanna er
kveðið á um, að skjóta megi úr-
skurði þingfararkaupsnefndar til
forseta Alþingis, sem felli endan-
legan úrskurð.
„Það eina.sem ég hef i höndun-
um.er simskeyti frá Ragnari Arn-
alds um það,aö þessu verði frest-
að og um það fjöllum við á
fimmtudaginn”.
A.S.
Forsetinn í næst
elsta bíl landsins:
„Mikið
ævintýri”
„Þetta var niikiö ævintýri og
sérstaklega ánægjuleg ökuferð”,
sagði dr. Kristján Eldjárn, forseti
tslands, þegar hann, ásamt frú
Halldóru konu sinni og Tryggva
Gislasyni, skólameistara, steig út
úr næstelsta bil landsins á hlaði
heimavistar Menntaskólans á
Akureyri eftir ökuferð frá flug-
vellinum snemma i gærmorgun.
Bifreiðin er af gerðinni Dixie
Flyer og er enn i fullkomnu lagi,
lék m .a. stórt hlutverk i myndinni
Land og synir. ökumaður bifreiö-
arinnar i myndinni og einnig i
ökuferðinni i gær var Steindór G.
Steindórsson, formaður Bila-
klúbbs Akureyrar, en á morgun
stendur klúbburinn fyrir veglegri
bilasýningu við Oddeyrarskól-
ann. Forsetahjónin eru nyrðra i
tilefni af 100 ára afmæli Mennta-
skólans á Alíureyri og sjást hér i
gamla bilnum.
GS-Akureyri/IJ
»
var hafnað í hingfiokknum
segir filalur Ragnar Grfmsson um alstöðu AlDíðubandalagsins - Garðar var ekki á bingflokkslundinum
»
„Við höfum ekkert komið
saman siðan þetta birtist, en ég
ákvað eftir viðræður við þing-
menn og formann þingflokks
Framsóknarflokksins, að við
myndum beita þessu ákvæði i
lögunum um þingfararkaup,
sem yfirleitt hefur ekki verið
beitt, að skjóta þessum úrskurði
þingfararkaupsnefndar til for-
seta Alþingis”, sagði Ólafur
Kagnar Grimsson form. þing-
flokks Alþýðubandalagsins við
Visi i ntorgun.
ólafur sagði að málið væri
þar með úr höndum þingfarar-
kaupsnefndar, en tilmæli þing-
flokksformannanna beggja
heföu veriö þau að ákvörðunin
yrði felld úr gildi.
Ólafur kvaðst fyrst hafa heyrt
af umræddri hækkun þing-
mannalauna á fundi formanna
þingflokkanna, þar sem Sverrir
Hermannsson hefði kynntþessa
hugmynd. „Ég vildi fá það
kannað i þingflokkunum”, sagöi
Ólafur, „hvort hljómgrunnur
væri fyrir þvi að framkvæma
hana og ég kynnti það i minum
þingflokki og þvi var algjörlega
hafnað. Þá tilkynnti ég Sverri
Hermannssyni, sem var tillögu-
maðurinn, aö þingflokkurinn
hefði lagst gegn þessu. Garðar
Sigurðsson var ekki á þeim
fundi, þar sem hugmynd Sverris
var rædd”.
Ólafur kvaðst hafa oröið var
við það á siðustu tveimur árum
sérstaklega að þorri nýrra
alþingismanna sem komið hafa
úr hinum ýmsu störfum i þjóð-
félaginu, hafi lækkað i launum
viö að fara inn á þing og þvi væri
vaxandi kurr meðal þingmanna
um launamál.
„Hvaða milliliður
á ég að vera?”
„Nokkru áður en að þetta var
ákveöiö, þá oröaði Ólafur Ragn-
ar þaö svo við mig að þetta mál
væri mjög þungt fyrir i sinum
flokki og að hann væri svart-
sýnn á framgang þess. En
formaöurinn er úr hans flokki
og hvaða milliliður á ég að vera
i þvi?” sagði Sverrir
Hermannsson er Visir leitaði
eftir þvi hvort rétt væri að Ólaf-
ur Ragnar heföi tilkynnt Sverri
um það að Alþýöubandalgið
væri á móti.
,-Siðast þegar þetta kom fyrir,
þá virtist þetta renna ofan i alla
vegna þess að þetta var sam-
þykkt samhljóða”.
Gsal/AS
i