Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 52
52 FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sölumann til inni-
og útisölu. Um er að ræða vörur fyrir
byggingariðnað, verkfæri og festingar,
ásamt rekstrarvöru fyrir viðhaldsiðnað.
Við leitum að húsasmið, tæknifræðingi
eða sambærileg menntun.
Vinsamlegast sendið umsóknir til auglýs-
ingadeildar Mbl., merktar: „S — 12256".
Varmalandsskóli í Borgarfirði
Halló!
Er einhver menntaður kennari ekki enn
búinn að ákveða sig?
Ef ekki, gríptu þá tækifærið.
Lausar stöður við skólann eru s.s. almenn
kennsla, sérkennsla, íþróttakennsla, kennsla
í verkgreinum. Því ekki að koma í heimsókn,
kynna sér skólann, fá kaffi og kleinu og rölta
um staðinn og skoða umhverfi hans?
Upplýsingar gefur Flemming Jessen, símar
430 1511/430 1531, netf. fjessen@ismennt.is .
Viltu slást í hópinn?
Langar þig að kenna úti á landi en eiga
samt stutt til Reykjavíkur?
Okkur í Heiðarskóla vantar kennara næsta vetur
til að kenna smíðar auk dönsku og stærðfræði
í unglingadeildum.
Heiðarskóli er rúmlega 100 barna einsetinn skóli
í yndislegu umhverfi í Leirársveit í Borgarfirði.
Þar starfar góður og samhentur hópur fólks.
Nánari upplýsingar veita:
Haraldur Haraldsson (skólastjóri)
í síma 433 8920 og
Helga Stefanía Magnúsdóttir
(aðstoðarskólastjóri) í síma 433 8921.
Laus er staða
aðstoðarskólastjóra
við Nesjaskóla í Hornafirði
Í Nesjaskóla verða um 110 nemendur í
1.—3. bekk.
Allar nánari upplýsingar gefa Þorvaldur, skóla-
stjóri, í símum 478 1445/478 1939 og Hreinn,
aðstoðarskólastjóri, í símum 478 1445/
478 1443.
Skólaskrifstofa Hornafjarðar.
Framhaldsskólakennarar
Fjölbrautaskóli Suðurlands auglýsir öðru sinni
lausar til umsóknar heilar stöður kennara í
efnafræði, félagsfræði, náttúrufræðum, sér-
kennslu, tölvunotkun, stærðfræði og viðskipta-
greinum, og hlutastörf í eðlisfræði, fjölmiðlun,
lífsleikni, sálfræði og spænsku auk séráfanga
grunnnáms í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum.
Upphafstími ráðningar er 1. ágúst 2002.
Um laun fer skv. kjarasamningi fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs og Kennarasambands
Íslands. Nánari upplýsingar veita skólameistari
(sigurdur@fsu.is) og aðstoðarskólameistari
(orlygur@fsu.is), sími 482 2111.
Umsóknir berist skólameistara eigi síðar en
17. maí 2002.
Skólameistari.
Matreiðslumaður
Matreiðslumeistari
w w w . i c e h o t e l . i s
Óskum eftir matreiðslumanni eða matreiðslumeistara
í fullt starf, samkvæmt vaktakerfi.
Starfsreynsla, brennandi áhugi, hlýlegt viðmót og
reglusemi eru meðal þeirra kosta sem við leitum eftir.
Hótel Hérað er góður vinnustaður þar sem ríkir frábær
starfsandi. Þeir sem áhuga hafa á starfinu snúi sér til
Auðar Önnu Ingólfsdóttur, hótelstjóra í síma 471 1500,
netfang: audur@icehotel.is
FRÁ KÓPAVOGSSKÓLA
Nokkra kennara vantar til starfa á komandi
skólaári, 2002/03.
Meðal kennslugreina eru:
• Íslenska á unglingastigi
• Stærðfræði á unglingastigi
• Bekkjarkennsla á barnastigi
• Sérkennsla
Laun skv. kjarasamningi Kennarasambands
Íslands og Launanefndar sveitarfélaga.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
störfin.
Frekari upplýsingar gefur skólastjóri, Ólafur
Guðmundsson, í símum 5540475 eða 8979770.
Umsóknarfrestur er til 15. maí næstk.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Menntaskólinn á
Egilsstöðum
Laus störf frá 1. ágúst 2002:
I. Heilar stöður:
Kennslugreinar:
1) Efnafræði og NÁT 123
2) Líffræði og NÁT 103.
3) Stærðfræði og eðlisfræði.
4) Þýska (til eins árs).
II. Hlutastörf (50—75%):
Kennslugreinar:
1) Listgreinar (áfangar á listabraut).
2) Sálfræði og lífsleikni.
Krafist er háskólamenntunar og kennslu-
réttinda í viðkomandi kennslugreinum.
Laun samkvæmt kjarasamningi milli KÍ
og fjármálaráðherra.
Umsóknir um ofangreind störf, ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf, sendist skóla-
meistara Menntaskólans á Egilsstöðum, sem
einnig veitir nánari upplýsingar í s. 471 2501
og 471 3820. Netfang: hob@me.is .
Umsóknarfrestur er framlengdur til
17. maí 2002.
Skólameistari.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TIL SÖLU
Lagerútsala
Fimmtudaginn 9. og laugardaginn 11. maí 2002
verðum við með síðustu lagerútsölurnar í bili
frá kl. 13.00 til kl. 16.00 síðdegis. Seld verða
leikföng í úrvali, bílar, dúkkur, gæsaveiðitækið
vinsæla, tölvustýrðir jeppar og fjórhjól, boltar,
stórar vatnsbyssur, o.fl. o.fl. Einnig nokkuð af
ódýrum KAFFIVÉLUM, brauðristum, SAFA-
PRESSUM, handþeyturum. Herðatré plast og
tré, fægiskóflur, plastborðdúkar, servíettur,
plasthnífapör. VEIÐARFÆRI, hjól, stangir,
vöðluskór, spúnar, túbu-Vise o.fl. Ódýrar vöðl-
ur í stærðunum 41—42 hagstætt verð. VERK-
FÆRAKASSAR á tilboðsverði. Eldhúsvogir,
hitakönnur, bakkar fyrir örbylgjuofna. Grill-
grindur, grillgafflar, uppkveikikubbar fyrir grill.
Hleðslubatterí, einfaldir álstigar 2,27 m. Tak-
markað magn. Vagn á hjólum með þremur hill-
um, tilvalinn á lager, í mötuneyti o.fl. Trillu fyrir
lager. Lítið við, því nú er tækifæri til þess að
gera góð kaup, allt á að seljast. Kredit- og deb-
etkortaþjónusta.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Auglýsing
Uppbygging á grunnskóla-
lóð og tjaldsvæði
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í uppbygg-
ingu á lóð við Grunnskólann í Borgarnesi auk
uppbyggingar á tjaldsvæði við gamla malar-
völlinn í Borgarnesi. Um er að ræða hefð-
bundna jarðvinnu, lagnavinnu vegna frárennsl-
is og snjóbræðslu auk frágangs yfirborðs á
grunnskólalóð þ.e malbik og hellulögn.
Byrjað verður að afhenda útboðsgögn á bæjar-
skrifstofu Borgarbyggðar miðvikudaginn
8. maí nk. Tilboð skulu hafa borist Tæknideild
Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, 310 Borgar-
nesi, eigi síðar en þriðjudaginn 21. maí 2002
kl. 14.00 og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðanda er viðstaddir verða.
Borgarnesi, 7. maí 2002,
Sigurður Páll Harðarson,
bæjarverkfræðingur.
OPIÐ HÚS
Í NÝJUM LEIKSKÓLA
VIÐ RJÚPNASALI
Húsnæði leikskólans Rjúpnahæðar
verður opinn almenningi til sýnis á
afmæli Kópavogsbæjar þann 11. maí
frá kl. 13.00 – 16.00.
Rjúpnahæð er 6 deilda leikskóli fyrir börn 2-6
ára, alls 119 rými, samskonar bygging og
Fífusalir við Salaveg. Leikvöllur við skólann er
sérstaklega fjölbreyttur og áhugaverður.
Rjúpnahæð mun taka til starfa mjög fljótlega.
Bæjarbúar eru hvattir til að koma og skoða
nýjasta leikskólann og umhverfi hans.
KÓPAVOGSBÆR
TILKYNNINGAR