Morgunblaðið - 09.05.2002, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2002 53
Félagsstarf aldraðra
Seltjarnarnesi
Handavinnusýning
Félagsstarf aldraðra er með handavinnusýn-
ingu á Skólabraut 3—5 í dag, fimmtudaginn
9. maí, kl. 13.30—18.00. Selt verður vöfflukaffi.
SUMAR- OG ORLOFSHÚS
Tilkynning um aðalfund
Aðalfundur SR-mjöls hf. verður haldinn í sal
Kiwanisfélagsins, Kiwanishúsinu, Engjateigi 11,
Reykjavík, föstudaginn 24. maí kl. 14.00.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagsins, töluliður 1 til 5.
2. Tillaga stjórnar félagsins um breytingu á
4. gr. samþykkta félagsins þess efnis að nú-
verandi heimild stjórnar um útgáfu nýrra
hluta með áskrift allt að 200 millj. kr. að
nafnverði gildi til 1. nóvember 2003.
3. Önnur mál, skv. 6. tölulið 14. gr. samþykkta
félagsins.
Dagskrá, tillögur og ársreikningur félagsins,
auk annarra gagna munu liggja frammi á skrif-
stofum félagsins á Siglufirði, Raufarhöfn,
Seyðisfirði og í Reykjavík, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Stjórn SR-mjöls hf.
NAUÐUNGARSALA
Ríkislögreglustjórinn
Auglýsing um inntöku nýnema
í Lögregluskóla ríkisins 2003
Um námið:
Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun sem
starfar samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996
og reglugerð um Lögregluskóla ríkisins nr. 490/
1997. Grunnnám miðar að því að veita hald-
góða fræðslu í almennu lögreglustarfi.
Nám í skólanum stendur í a.m.k. 12 mánuði
og skiptist í þrjár annir. Fyrsta önnin, jan.-apríl,
grunndeild I, (GD I), er ólaunuð. Þeim nemum,
sem standast próf á önninni, skal ríkislögreglu-
stjóri sjá fyrir launaðri starfsþjálfun, GD II, í
lögreglu ríkisins í a.m.k. fjóra mánuði.
Starfsþjálfun fer fram á höfuðborgarsvæðinu.
Að lokinni starfsþjálfunarönn tekur við launuð
þriðja önn, sept.-des., GD III, í Lögregluskólan-
um sem lýkur með prófum.
Nemar í GD I teljast ekki til lögreglumanna.
Þeir klæðast búningi almennra lögreglumanna
en nota ekki lögreglueinkenni. Nemendur fá
búninginn endurgjaldslaust. Engin skólagjöld
eru greidd og námið er lánshæft.
Þeir, sem búa úti á landi, geta sótt um styrk
til jöfnunar námskostnaðar til námsstyrkja-
nefndar, sbr. rg. 779/1999.
Nemar í starfsþjálfun, GD II, og þeir sem stunda
nám í GD III, teljast til lögreglumanna.
Í starfsþjálfun stunda þeir vaktavinnu og fá
greidd laun skv. kjarasamningi og eru mánaðar-
laun lögreglumanna greidd skv. launaflokki A4.
Laun nema í GD III eru mánaðarlaun skv. fyrr-
greindum samningi auk meðaltalsvaktaálags
sem hópurinn hefur fengið í starfsþjálfuninni.
Næsta skólaár hefst í janúarbyrjun 2003.
Ætla má að fjöldni nema að þessu sinni verði
um 40, en endanleg ákvörðun umfjölda nem-
enda mun liggja fyrir eigi síðar en 1. júlí 2002.
Almenn skilyrði:
Skv. 38. gr. lögreglulaga skulu lögreglumanns-
efni fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
2. mgr.
a) vera íslenskir ríkisborgarar, 20—35 ára en
þó má víkja frá aldurshámarkinu við sérstak-
ar aðstæður og ekki hafa gerst brotleg við
refsilög; þetta gildir þó ekki ef brot er smá-
vægilegt eða langt um liðið frá því að það
var framið,
b) vera andlega og líkamlega heilbrigð og
standast læknisskoðun trúnaðarlæknis,
c) hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu fram-
haldsnámi eða öðru sambærilegu námi með
fullnægjandi árangri eða starfsþjálfun sem
jafna má til slíks náms. Þau skulu hafa gott
vald á íslensku, einu Norðurlandamáli, auk
ensku eða þýsku, þau skulu hafa almenn
ökuréttindi til bifreiðaaksturs, lögreglu-
mannsefni skulu synd,
d) standast inntökupróf með áherslu á íslensku
og þrek.
3. mgr. Valnefnd velur nema í Lögregluskólann
úr hópi umsækjenda og eru ákvarðanir hennar
endanlegar.
Skil umsókna og úrvinnsla:
Þeir, sem hafa áhuga á námi í Lögregluskólan-
um og uppfylla framangreind skilyrði, skulu
skila umsóknum til valnefndar Lögregluskóla
ríkisins, Krókhálsi 5a, 110 Reykjavík, fyrir
1. júlí 2002. Umsóknareyðublöð fást hjá lög-
reglustjórum og í Lögregluskóla ríkisins, en
einnig er hægt að nálgast þau á lögreglu-
vefnum, www.logreglan.is, undir liðnum
„Eyðublöð“.
Konur, sem uppfylla skilyrðin, eru sérstaklega
hvattar til að sækja um inngöngu í skólann.
Þegar umsóknir liggja fyrir, mun valnefnd Lög-
regluskólans vinna úr þeim og m.a. sjá um
framkvæmd inntökuprófa og taka viðtöl við
þá umsækjendur, sem koma til greina.
Inntökupróf verða dagana 19. og 20. ágúst 2002
og hugsanlega einnig þann 21. ágúst eftir
fjölda umsóknar. Viðtöl Valnefndar fara fram
í september 2002.
Nánari upplýsingar um námið og inntökuprófin
fylgja umsóknareyðublöðum, en jafnframt er
hægt að nálgast upplýsingar á heimasíðu lög-
reglunnar www.logreglan.is undir Lögreglu-
skóli ríkisins.
Reykjavík, 29. apríl 2002.
Ríkislögreglustjórinn.
Uppboð
Framhaldsuppboð verður á eftirfarandi eign á henni sjálfri
sem hér segir:
Pálsbergsgata 1, Ólafsfirði, þinglýstur eigandi Sigvaldi Þorleifsson
ehf., (Fiskvinnsla Ólafsfjarðar ehf.), að kröfu Byggðastofnunar, Stál-
taks hf. og Ólafsfjarðarkaupstaðar, miðvikudaginn 15. maí 2002
kl. 10.00.
Sýslumaðurinn í Ólafsfirði,
8. maí 2002,
Ástríður Grímsdóttir.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 1835108 Lf.
Gospel í Grensáskirkju
á hverju fimmtudagskvöldi í maí
kl. 20.00.
Öðruvísi kvöld í Grensáskirkju.
Í kvöld kl. 20.00: Lofgjörðarsam-
koma í umsjón Aslaug Haug-
land.
Sérstök samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42 kl. 14.00
Hvítasunnukirkjan í Kirkju-
lækjarkoti kemur í heimsókn.
Mikill söngur og vitnisburðir.
www.samhjalp.is
9. maí Uppstigningardagur
Strandaheiði — Þráinsskjöld-
ur — Slaga
Um 5—6 klst. ganga. Fararstjóri
Jónas Haraldsson. Verð 1.700/
1.400. Brottför frá BSÍ kl. 10.30
með viðkomu í Mörkinni 6 og
austan við kirkjugarðinn í Hafn-
arfirði.
11. maí Fuglaskoðunarferð
með Hinu íslenska náttúru-
fræðifélagi og Fuglaverndar-
félagi Íslands.
Verð kr 1.700/2.000. Brottför frá
BSÍ kl. 10.30 með viðkomu í
Mörkinni 6.
12. maí Ketilstígur — Mó-
hálsadalur — Höskuldarvellir.
Ekið verður að Seltúni í Krýsuvík
og þar er gengið upp á Sveiflu-
hálsinn. Fararstjóri Jónatan
Garðarsson. Verð 1.400/1.700.
Brottför frá BSÍ kl. 10.30 með við-
komu í Mörkinni 6 og austan við
kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Breiðamörk 17, Hveragerði. Fastanr. 221-0099, þingl. eig. Páll Þórðar-
son, gerðarbeiðandi Hveragerðisbær, fimmtudaginn 16. maí 2002
kl. 11.15.
Breiðamörk 26, Hveragerði. Fastanr. 223-9066, þingl. eig. Trygginga-
umboðið ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, fimmtudaginn
16. maí 2002 kl. 11.30.
Breiðamörk 26, Hveragerði. Fastanr. 223-9067, þingl. eig. Trygginga-
umboðið ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, fimmtudaginn
16. maí kl. 11.30.
Heiðarbrún 64, Hveragerði. Fastanr. 221-0319, þingl. eig. Berglind
Bjarnadóttir og Sigurður Blöndal, gerðarbeiðendur Hveragerðisbær,
Íbúðalánasjóður og Málningarþjónustan ehf., fimmtudaginn 16.
maí 2002 kl. 13.15.
Heiðarvegur 4, Selfossi. Fastanr. 225-2169, þingl. eig. Hannes Grétar
Ársælsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 16.
maí 2002 kl. 10.00.
Lindarskógar 6-8, Laugarvatni, Laugardalshreppi, 80,3% ehl., þingl.
eig. Sandsalan ehf., gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf., fimmtudaginn
16. maí 2002 kl. 14.45.
Lóð úr landi Efri-Brúar, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
Sigrún Lára Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Grímsnes- og Grafnings-
hreppur og Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 16. maí 2002 kl. 15.30.
Minna Mosfell, Grímsnes- og Grafningshreppi. Fastanr. 220-7852,
þingl. eig. Anna M. Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag
Íslands hf., fimmtudaginn 16. maí 2002 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
8. maí 2002.
Ástríkur gallvaski
Hollenskur safnari Ástríksbóka
óskar eftir íslenskum Ástríks-
bókum frá Fjölva. Greiðsla í
evrum eða ísl. kr.
Vinsamlega skrifið á ensku til:
hsellers@asterix-obelix.nl
ÓSKAST KEYPT
Aðalfundur Skíða-
deildar Breiðabliks
verður haldinn miðvikudaginn 15. maí nk.
kl. 20.00 í Smáranum.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.