Morgunblaðið - 10.05.2002, Page 1

Morgunblaðið - 10.05.2002, Page 1
108. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 10. MAÍ 2002 sjá bls. 12–13 NÝ VERSLUN Í KRINGLUNNI SAMKOMULAG var sagt hafa náðst í gær um að nokkur Evrópu- ríki og Kanada tækju við 13 palest- ínskum vígamönnum sem ísraelski herinn hefur setið um í Fæðingar- kirkjunni í Betlehem í rúman mánuð. Þar er einnig fjöldi annarra Palest- ínumanna. Utanríkisráðherra Kýp- ur, Yiannakis Cassoulides, sagði að mennirnir 13 yrðu fluttir til eyjar- innar til bráðabirgða fram á mánu- dag meðan verið væri að ganga frá lokasamningum um örlög þeirra en ísraelskir embættismenn sögðu í gærkvöldi að enn væri verið að semja og samkomulag ekki í höfn. Ísraelar héldu áfram að draga saman lið við Gaza-spilduna og brutu niður hús í Rafah-flóttamannabúð- unum. Var búist við að Ísraelar myndu leita hefnda þar eða annars staðar á hernumdu svæðunum vegna sjálfsmorðsárásar í Tel Aviv á þriðjudagskvöld með því að ráðast inn í flóttamannabúðir. Talsmenn vinstrisinnaðra stjórnarandstæð- inga í Ísrael hafa varað við því að beitt verði sams konar aðferðum og í Jenin-flóttamannabúðunum fyrir skömmu. Þær voru víða hart gagn- rýndar þótt ljóst sé talið að tölur frá Palestínumönnum um mannfall með- al óbreyttra borgara hafi verið mjög ýktar. Gaza-spildan er eitthvert þéttbýlasta svæði í heimi og þar býr rúmlega milljón manna, aðallega í flóttamannabúðum. Stjórn Yassers Arafats, leiðtoga Palestínu, handtók í gær 16 liðsmenn Hamas-samtakanna sem hafa geng- ist við tilræðinu í Tel Aviv. Ekki var um háttsetta leiðtoga samtakanna að ræða og virtust þeir ekki óttast um sinn hag er fjölmiðlar ræddu við þá. En heimildarmenn töldu að handtak- an gæti samt þýtt að Arafat hygðist beita sér af krafti gegn hermdar- verkamönnum. Lét talsmaður George W. Bush Bandaríkjaforseta, Ari Fleischer, í ljós varfærnislega bjartsýni í gær um að Arafat ætlaði að reyna að stöðva hryðjuverk en sagði að úrslitum réði hvort hinir handteknu yrðu áfram í haldi. Bush sagði í gær rangt að hann hefði á fundi með Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, í Washington samþykkt að Arafat yrði hunsaður en bætti við að koma myndi í ljós hvort Palestínuleiðtoginn vildi raun- verulega frið. Fram til þessa hefði hann brugðist Palestínumönnum. „Hann hefur ekki veitt þeim for- ystu og afleiðingin er að Palestínu- menn þjást,“ sagði Bush. Ísraelar sögðust tortryggnir. „Við munum dæma Arafat eftir gjörðum hans, ekki eftir yfirlýsingum hans,“ sagði Ephraim Sneh, ráðherra samgöngu- mála. Ísraelar draga saman lið við Gaza-spilduna Vígamenn í Fæðingarkirkjunni sagðir fá hæli í Evrópu og Kanada Róm, Washington, Jerúsalem, Gaza-borg. AP, AFP. Reuters Palestínsk stúlka í Rafah-flóttamannabúðunum á Gaza-spildunni við brakið úr húsi fjölskyldunnar sem Ísr- aelsher braut niður með jarðýtum í gær. Talið var líklegt að maður sem sprengdi sjálfan sig og 15 ísraelska borgara í Tel Aviv á þriðjudag hefði komið frá Gaza og því spáð að Ísraelar myndu gera hefndarárás. ÁRUM saman hefur það verið stefnan, að fólk eigi að hlífa bak- inu eða hryggnum sem mest við áreynslu, hvort heldur það situr við vinnu sína eða þarf að lyfta þungum hlutum. Þrátt fyrir það hefur bakmeinunum ekkert fækk- að. Athuganir dönsku Vinnuvist- fræðistofnunarinnar sýna, að margra ára tilraunir með bakvæn húsgögn og kennslu í því að bera sig rétt að þegar hlutum er lyft hafa litlum árangri skilað. Af þeim sökum telja menn rétt að hugsa þessi mál upp á nýtt að því er fram kemur í Berlingske Tid- ende. Bente Schibye, yfirmaður stofn- unarinnar, telur, að of mikil áhersla hafi verið lögð á að hlífa hryggnum við hvers konar álagi. Hann þurfi á því að halda eins og aðrir líkamshlutar. Því sé rétt að beita honum og láta á bakvöðvana reyna án þess að ofreyna þá. Schibye segir, að slappir bak- vöðvar séu verulegt vandamál, til dæmis hjá starfsfólki á sjúkra- húsum og hjúkrunarheimilum. Þar þurfi oft að bera eða flytja til sjúklinga en starfsfólkið sé oft svo illa á sig komið líkamlega, að það geti það ekki. Á þessu vill Schibye ráða bót og hefur hún gengist fyr- ir námskeiðum hjá ýmsum hópum sem ganga út á að æfa bakið fyrir eðlilega áreynslu. Jens Folkersen, einn af frammá- mönnum í sambandi starfsfólks í opinbera heilbrigðisgeiranum, er mjög hrifinn af þessum nýja skiln- ingi. Segir hann, að lífeyrissjóð- urinn standi illa og fyrst og fremst af einni ástæðu. Þeim fjölgi ár frá ári, sem fara á eftirlaun fyrir ald- ur fram, búnir í bakinu. Rangt að hlífa bak- inu um of AÐ MINNSTA kosti 34 menn létust og um 130 særðust í sprengjutilræði í bænum Kaspíísk í héraðinu Dagestan í Suður-Rússlandi í gær. Meðal hinna látnu eru 12 börn. Augljóst er, að skotmark hryðjuverkamannanna var rússneskir hermenn en í gær var stríðslokanna í Evrópu vorið 1945 minnst um allt Rússland. Dagestan er nágrannaríki Tsjetsjníu en þar hafa rússneskir hermenn og íslamskir aðskilnaðar- sinnar háð grimmilegt stríð síðustu árin. Engir höfðu lýst ábyrgðinni á hendur sér í gær en Vladímír Pútín, forseti Rússlands, kallaði þá „nasista- óþverra“, sem staðið hefðu fyrir hryðjuverkinu. Fjölmiðlar töldu hugsanlegt að tsjetsjenskir hermdar- verkamenn hefðu staðið fyrir tilræð- inu. Um var að ræða fjarstýrða jarð- sprengju, sem hafði verið falin í runna, og var hún sprengd er skrúð- ganga rússneskra hermanna og her- hljómsveit gekk hjá. Féllu 19 þeirra í sprengingunni og 15 óbreyttir borg- arar, þar af 12 börn. Pútín hélt strax neyðarfund með ríkisstjórninni og skipaði yfirmanni öryggismála í Rússlandi, Níkolaí Pat- rúshev, að taka að sér rannsóknina. Sagði hann, að mikilvægt væri að „finna og refsa glæpamönnunum“ sem fyrst. Jafnhættuleg nasistum Nokkru áður hafði Pútín flutt ræðu í tilefni af Sigurdeginum og sagði þá, að hryðjuverkasamtök á 21. öld væru jafnhættuleg nasismanum á þeirri 20. „Hin illu ofbeldisöfl skjóta upp koll- inum hvað eftir annað. Nú heita þau öðrum nöfnum og nota aðrar aðferðir en ávöxtur þeirra er eins og áður dauði og eyðilegging,“ sagði Pútín. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, Richard Boucher, for- dæmdi í gær tilræðið, sagði brýnt að hinir seku yrðu fundnir og dregnir fyrir rétt en of snemmt væri að full- yrða nokkuð um það hverjir hefðu verið að baki ódæðinu. Skæruliðar, sem vilja stofna ísl- amskt lýðveldi í Tsjetsjníu, hafa oft ráðist inn í Dagestan en íbúar þess eru mjög blandaðir og þar er íslömsk bókstafstrú bönnuð. Hryðjuverk í Dagestan kostaði á fjórða tug manna lífið Íslamskir öfgamenn grunaðir um ódæðið Kaspíísk. AP, AFP. RÚSSAR eru nú farnir að nota afkvæmi sleðahunda og sjakala við leit að sprengiefni og eit- urlyfjum. Er árangurinn mjög góður enda sameinast í þeim hið ofurnæma lyktarskyn sjak- alanna og gæflyndi sleða- hundanna, að sögn BBC. Að kynbótunum hefur verið unnið allt frá 1975 og útkoman er hundur, sem er að fjórðungi sjakali og sleðahundur að þremur fjórðu. Í þær var ráðist vegna þess, að úr venjulegum hundum er búið að rækta að verulegu leyti marga upphaf- lega eiginleika forfeðranna, úlf- anna, eins og til dæmis þef- næmina. Sjakalar hafa hana ómælda og raunar er þefnæmi norrænna sleðahunda miklu betri en annarra hunda. Tugir þessara hunda eru nú notaðir við leit á Sheremetjevo- flugvelli í Moskvu. Sjakala- blóðið eyk- ur þefnæmi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.