Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ UPPREISNARMENN sam- taka maóista í Nepal lýstu í gær einhliða yfir vopnahléi í mánuð í baráttunni gegn stjórnarhern- um og tekur það gildi nk. mið- vikudag. Samtökin hafa undan- farna daga beðið mikla ósigra, meðal annars við helstu bæki- stöð sína, Rolpa, sem er uppi í afskekktu fjalllendi. Munu alls um 1.000 manns hafa fallið í átökunum, aðallega uppreisnar- menn. Áætlanir Bandaríkja- manna um að styðja tilraunir stjórnvalda til að kveða upp- reisnina niður voru fordæmdar. Leit að brennivargi hætt NORSKA lögreglan hefur hætt leit að þeim sem kveikti í ferj- unni Scandinavian Star fyrir 12 árum með þeim afleiðingum að 159 manns fórust. Tor-Geir Myhrer saksóknari segir að gögn, sem þrír menn er komust af lögðu fram, gefi ekki ástæðu til frekari rannsókna. Kveiktur var eldur á tveim stöðum á ferj- unni sem var á leið frá Ósló til Fredrikshavn í Danmörku. Tungumála- lög afnumin ÞING Lettlands samþykkti í gær með 67 atkvæðum gegn 13 að afnema umdeild lög um að kjörnir embættismenn skuli geta bjargað sér í lettnesku og hafa Lettar þá uppfyllt skilyrði sem talsmenn Atlantshafs- bandalagsins, NATO, hafa sett fyrir inngöngu landsins í banda- lagið. Talsmaður laganefndar þingsins tók þó fram að engu hefðu verið heitið um inngöng- una. Nær helmingur íbúa Lett- lands er rússneskur að uppruna og tala fæstir þeirra lettnesku. Bankaræn- ingjar myrtu sex manns SEX manns létu lífið og tveir eru alvarlega særðir í Ung- verjalandi eftir vopnað banka- rán í bænum Mor, sem er 60 km frá höfuðborginni Búdapest í gær. Tveir vopnaðir ræningjar komu inn í bankann og skutu á starfsfólk og viðskiptavini. Ræningjarnir komust undan með peninga, en ekki hefur ver- ið upplýst um hversu mikla. Lögreglan lokaði öllum leið- um út úr bænum og heitir nú 40 þúsund evrum, um þrem og hálfri milljón króna, fyrir upp- lýsingar sem gætu vísað á ræn- ingjana. Mannfall í Kasmír LÖGREGLAN í indverska hluta Kasmír felldi í gær 11 manns er hún dreifði mannsöfn- uði sem mótmælti meintri árás á múslimaleiðtoga af hálfu öfga- sinnaðra hindúa. Flestir hinna föllnu voru taldir vera úr röðum herskárra múslima, að sögn sjónarvotta. Indverskt herlið felldi einnig þrjá múslima sem taldir eru hafa laumast inn í hér- aðið frá Pakistan til að berjast gegn stjórnvöldum. STUTT Boða vopnahlé í Nepal MESTU fjöldamorð í 40 ára sögu óaldarinnar í Kólombíu hafa orðið til þess, að FARC, Kólombísku bylting- arsveitirnar, hafa farið fram á nýjar friðarviðræður. Andres Pastrana, forseti landsins, kom í fyrradag til bæjarins Bojaya en þar myrtu skæruliðar 119 manns, aðallega kon- ur og börn, sem leitað höfðu hælis í kirkju. Vinstrisinnaðir skæruliðar og vígasveitir hægrimanna börðust um yfirráð yfir Bojaya og höfðu um 300 bæjarbúa leitað skjóls í kirkjunni. Var þá varpað inn í hana própangas- kútum, sem búnir höfðu verið út sem flísasprengjur, og urðu þeir, eins og fyrr segir, 119 manns að bana, að- allega konum og börnum. Talið er víst, að liðsmenn FARC hafi framið ódæðið því að þeir einir nota sprengjur af þessu tagi. Morðin voru framin 2. maí. Þúsundir manna flúnar Ariel Palacio, bæjarstjóri í Boja- ya, hefur skorað á yfirvöld í landinu að senda þangað strax matvæli og lyf. Sagði hann, að af 11.000 íbúum væri allt að helmingur flúinn brott en hinir væru án matar og annarra nauðsynja. Búið væri að grafa margt fólk en lík annarra lægju víða um bæinn og væru farin að rotna. Stjórnarhermönnum og hjálpar- starfsmönnum hefur gengið illa að nálgast bæinn vegna þess, að bar- dagar milli skæruliða og vígasveita hægrimanna geisa enn í nágrenni hans. Pastrana forseti sagði, að morðin í kirkjunni væru ekkert annað en „þjóðarmorð“ og hann kvaðst vona, að Evrópusambandið, ESB, setti FARC mjög fljótlega á lista yfir hryðjuverkasamtök. Það hefur ESB ekki viljað gera hingað til og var því mótmælt fyrir utan franska sendi- ráðið í Bogota í gær. Rannsóknarnefnd frá Sameinuðu þjóðunum Ljóst er, að ráðamenn í FARC ótt- ast hryðjuverkastimpilinn og því hafa þeir farið fram á friðarviðræður við þann, sem ber sigur úr býtum í forsetakosningunum í Kólombíu 26. maí næstkomandi. Samtímis fóru þeir hörðum orðum um „eitruð um- mæli“ allra þriggja forsetaframbjóð- endanna um skæruliða. Pastrana hefur hvatt til, að Sam- einuðu þjóðirnar sendi rannsóknar- nefnd til Bojaya og sendiherra Bandaríkjanna í Bogota hefur tekið undir það. Vilja viðræður eftir grimmileg fjöldamorð Skæruliðar í Kólombíu drápu 119 manns, aðallega konur og börn, í kirkju AP Kirkjan í Bojaya eftir að skæruliðar höfðu varpað inn í hana gas- sprengjum. Urðu þær 119 manns að bana, aðallega konum og börnum. Bogota. AFP. YFIRVÖLD í Pakistan hafa látið handtaka um 300 íslamska öfga- trúarmenn en talið er líklegt, að menn úr þeirra hópi og þá hugs- anlega al-Qaeda hafi staðið fyrir hryðjuverkinu í Karachi á miðviku- dag. Það varð 11 Frökkum og þremur Pakistönum að bana. Michel Alliot-Marie, varnarmála- ráðherra Frakklands, kom til Kar- achi á miðvikudag og sagði þá, að ódæðið væri verk „hryðjuverkasam- taka, sem alþjóðasamfélagið ætti í baráttu við“. Bar hún lof á Pervez Musharraf, forseta Pakistans, fyrir að hafa haft hugrekki til að gefa ekkert eftir í því stríði. Miklar handtökur Musharraf sagði, að hryðjuverkið væri tilraun til að valda ólgu í land- inu og innanríkisráðherra Pakist- ans, Tasneem Noorani, sagði að margir liðsmenn öfgasamtaka hefðu verið handteknir og yrðu teknir á næstu dögum. Haft er eftir heim- ildum, að þegar sé búið að hand- taka um 300. Pakistanskir, franskir og banda- rískir lögreglumenn vinna að rann- sókn á hryðjuverkinu en talið er, að um hafi verið að ræða sjálfsmorðs- árás. Öryggisvarsla hefur verið hert og vegatálmanir settar upp við hótel og aðrar byggingar, sem Vesturlandamenn eiga erindi í. Margir þeirra vilja þó ekki eiga neitt á hættu og hafa því yfirgefið landið. Hryðjuverkið í Karachi í Pakistan Hundruð öfga- manna handtekin Karachi. AFP. RÁÐAMENN Arkansas-framhalds- skólans í þorpinu Arkansas City stinga saman nefjum ásamt dúx- inum á árinu, Kirbi Fletcher, yfir látlausu ræðupúlti sem nú hefur komist í fréttirnar. Púltið var áður í eigu Barksdale-flugstöðvarinnar í Louisiana og George W. Bush for- seti notaði það er hann flutti stutt ávarp til þjóðarinnar 11. september þegar skýrt hafði verið frá árásum hryðjuverkamanna á Bandaríkin. Flugherinn gaf síðar alríkisstofnun í Arkansas nokkur gömul húsgögn, þ. á m. púltið og skólinn keypti það fyrir 75 dollara eða um 7.000 krón- ur. En nú vill flugstöðin fá púltið aftur til að nota á sögusafni um at- burðina í september. Skólinn fær annað púlt í staðinn. Um 500 manns búa í Arkansas City og útskrifuðust níu nemendur í skólanum á mánu- daginn. AP Vilja fá púlt- ið góða aftur POSTULÍNSVASI frá dögum Qing-keisaraættarinnar í Kína var seldur í gær á uppboði hjá Sotheby’s í Hong Kong fyrir rúmlega 473 millj. ísl. króna. Var hann áður í eigu Ogdens Reids, fyrrverandi sendiherra Banda- ríkjanna í Ísrael og fyrrverandi útgefanda International Herald Tribune. Kaupandinn var Alice Cheng, kunn kaupsýslukona í Kína. Á myndinni heldur hún á vasanum, sem er skreyttur þroskuðum ferskjum á tré. Um er að ræða næsthæsta verð, sem fengist hefur fyrir kínverskan listmun en það hæsta, nokkuð á sjötta hundrað millj. kr., var greitt fyrir krukku frá tímum Ming-keisaraættarinnar í Hong Kong fyrir tveimur árum. Vas- inn var gerður í tíð Yong Zheng, sem var þriðji keisari Qing-ætt- arinnar og ríkti á árunum 1723 til 1736. Var hann frægur fyrir baráttu sína gegn kaþólskum trúboðum. Hálfur milljarð- ur kr. fyrir vasa Reuters Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050 SKÝRT var frá því í gær að greinst hefði við könnun miltisbrandur í um 20 póstsendingum til seðlabanka Bandaríkjanna. Sagt var, að kanna þyrfti málið nánar áður en hægt væri að fullyrða að um eiginlega miltis- brandsmengun væri að ræða. Allur póstur til alríkisstofnana er nú geislaður til að drepa miltis- brandsgró en dauð gró munu geta haft þau áhrif að niðurstöður rann- sókna sýni merki um mengun. Sumt af umræddum pósti var ætlað Alan Greenspan seðlabankastjóra og er um að ræða póst sem sendur var í apríl eða maí. Alríkislögreglan FBI hafði ekki upplýsingar um sendend- urna. Fram kom að ekki hefði verið ókennilegt duft í bréfunum eins og reyndin var í vetur þegar fimm manns létust af völdum miltis- brandsmengunar sem talið er að hryðjuverkamaður hafi staðið fyrir. Seðlabanki Bandaríkjanna Miltis- brandur í pósti? Washington. AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.