Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 20
LISTIR
20 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJA ráðstefna Dieter Roth-
akademíunnar verður haldin hér á
landi dagana 10. til 15. maí. Af því
tilefni verður opnuð sýning með
þátttöku kennara og nemenda
akademíunnar, alls á fimmta tug
manna, í kvöld kl. 20. Verður hún í
húsakynnum Íshamars ehf., nánar
tiltekið á vinnustofu Björns Roth,
við Álafossveg.
Dieter Roth-akademían var
stofnuð fyrir tveimur árum í Basel
í Sviss en í fyrra hittust meðlimir
öðru sinni í Pécz í Ungverjalandi.
Samanstendur akademían af vin-
um og venslamönnum Dieters,
fólki sem tengdist honum í lífi og
list.
„Þótt Dieter hafi haft sína
grunnmenntun sem auglýs-
ingateiknari frá grafíska skól-
anum í Bern í Sviss, var allt hans
líf eins konar menntunarferli,“
segir Björn Roth, stofnandi aka-
demíunnar. „Hann ferðaðist um,
setti sig niður á mismunandi stöð-
um í mismunandi löndum og komst
í samband við fólk sem aðhylltist
mismunandi strauma og stefnur,
ekki síður handverksmenn en
listamenn og vann með þeim.“
Akademían stendur saman af
þessu fólki, því sem er á lífi, og
kallar Björn það prófessora aka-
demíunnar. Nemendur geta síðan
ferðast og hitt þetta fólk í lengri
eða skemmri tíma og unnið með
því – eða ekki.
Björn segir að akademían sé
ekki stofnun, hún hafi engan
rekstur og enga skriffinnsku.
Starfað sé í anda Dieters. „Það má
kalla það fyrstu lexíuna í akademí-
unni að alla skipulagningu og
skriffinnsku sem fylgir því að
komast í samband við prófess-
orana víða um heim verða nem-
endur að sjá um sjálfir. Inngöngu
fá nemendur hjá hverjum og ein-
um prófessor, sem þeir mögulega
komast í samband við. Það er að
hver og einstakur prófessor getur
mælt með nemanda sem þá að
sjálfsögðu aðrir prófessorar taka
gildan.“
Fjórir metrar á mann
Alls tekur á fimmta tug manna
þátt í sýningunni og hefur hverj-
um og einum verið úthlutað fjög-
urra metra veggplássi. Margir
koma erlendis frá. „Margir með-
limir akademíunnar koma að utan
og sumir hverjir koma nú hingað
til lands í fyrsta sinn,“ segir Björn.
Samsýningar svona fjölmenns
hóps eru ekki daglegt brauð og
Björn viðurkennir að það hafi tek-
ið tíma og fyrirhöfn að koma þessu
heim og saman. Meðal annars
þurfti að umbylta húsakynnum.
„Hvað það varðar kom sér vel að í
akademíunni eru meðlimir sem
eru húsasmiðir.“
Á laugardag verður opið hús á
vinnustofunni, fyrir þá sem missa
af opnuninni í kvöld, eins og Björn
orðar það, en á sunnudag heldur
akademían sem leið liggur austur
á Seyðisfjörð. Þar fer ráðstefnan
fram. „Fyrst við erum á Íslandi er
tilvalið að fara á slóðir Dieters fyr-
ir austan. Þar er menningar-
miðstöðin Skaftfell sem tengist
okkur mikið. Þar verður aðalfund-
urinn á mánudag. Á bakaleiðinni
förum við síðan í pílagrímsferð að
gröf Dieters á Snæfellsnesi en
sumir meðlimir akademíunnar
hafa aldrei komið þar.“
Prófessorarnir sem eiga verk á
sýningunni að þessu sinni eru
Björn Roth, Eggert Einarsson,
Malcolm Green, Gunnar Helgason,
Henriette van Egten, Dorothy
Iannone, Karl Roth, Beat Keusch,
Bernd Koperling, Kristján Guð-
mundsson, Magnús Reynir Jóns-
son, Pétur Kristjánsson, Gertrud
Otterbeck, Agnes Pretzell, Rainer
Pretzell, Sigríður Björnsdóttir,
Dieter Roth, Rúna Þorkelsdóttir,
Sigurður Guðmundsson, Dominik
Steiger, Erika Streit, Andrea
Tippel, Vera Roth, Jan Voss, Dadi
Wirz, Ingrid Wiener og Aldo Frei.
Nemendur eru: Aðalheiður S.
Eysteinsdóttir, Arnfinnur Ama-
zeen, Birgir Andrésson, Baldur
Bragason, Davíð Halldórsson,
Krassimira Drenska, Elín Everts-
dóttir, Gunnhildur Hauksdóttir,
Hlynur Sigurbergsson, Tilmann
Haffke, Halla Dögg, Dirk Mainzer,
Margrét M. Norðdahl, Páll Banine,
Casandra Popescu, Sigrún Sirra
Sigurðardóttir, Tinna Guðmunds-
dóttir og Þuríður Elfa Jónsdóttir.
Ráðstefna og sýning Dieter Roth-akademíunnar haldin hér á landi í fyrsta sinn
Starfað í
anda Dieters
Morgunblaðið/Kristinn
Nokkrir meðlima Dieter Roth-akademíunnar sem kemur nú saman til ráðstefnu- og sýningarhalds á Íslandi.