Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 23
MÁLÞING um Biblíumálfar og jafn-
rétti verður í fundarsal Þjóðarbók-
hlöðunnar – Landsbókasafni Íslands
– Háskólabókasafni á morgun, laug-
ardag, kl. 13.30.
Tilefnið er að um þessar mundir er
að hefjast lokafrágangur á texta nýrr-
ar þýðingar Gamla testamentisins
sem unnið hefur verið að undanfarinn
áratug. Við lokafrágang textans verð-
ur tekið tillit til athugasemda sem
borist hafa til þýðingarnefndar. Jafn-
réttisnefnd kirkjunnar og Kvenna-
kirkjan hafa vakið athygli þýðingar-
nefndar á að mikilvægt sé að málfar
hinnar nýju þýðingar endurspegli
málfar beggja kynja. Til málþingsins
er boðað svo fræðileg umræða geti
farið fram um þetta efni með hliðsjón
af þeim texta sem nú liggur fyrir.
Frummælendur eru Arnfríður
Guðmundsdóttir, lektor við guðfræði-
deild Háskóla Íslands, Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, prestur kvennakirkj-
unnar, og Ágústa Þorbergsdóttir, MA
og sérfræðingur á Íslenskri málstöð.
Sigurður Pálsson, ritari þýðingar-
nefndar, setur þingið og Guðrún
Kvaran, prófessor og formaður þýð-
ingarnefndar, mun flytja lokaorð.
Málþing um Biblíu-
málfar og jafnrétti
Listasafn Íslands Í tengslum við
sýningu um rússneska myndlist,
sem stendur yfir í safninu, flytur
Ksenia Ólafsson innanhússarkitekt
fyrirlestur kl. 12.30 um rússneska
hönnun 1890–1930. Fyrirlesturinn
fer fram á ensku.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b
Waling Boers heldur fyrirlestur, á
ensku kl. 20. Boers stofnaði og
hefur rekið „nýlistagalleríið“ Beu-
roFriedrich í Berlín síðan 1997.
Áður hafði hann verið virkur í
listastarfsemi í Hollandi um ára-
bil. BeuroFriedrich hefur vakið at-
hygli fyrir nýstárlega „verkefna-
miðaða“ sýningarstefnu. Hann
mun segja frá safninu, stefnu þess
og einstökum sýningum.
Aðgangur er ókeypis.
Hægt er að skoða vefsíðu Beuro-
Friedrich á slóðinni: www.beuro-
friedrich.org.
Sýningunni „Allir í bátana“, sem
stendur yfir í safninu, lýkur á
sunnudag. Safnið er opið miðviku-
daga til sunnudaga frá kl. 13–17.
Aratunga Samkór Selfoss og
Samkór Rangæinga halda sameig-
inlega tónleika kl. 21. Kórarnir
syngja hvor í sínu lagi og nokkur
lög saman. Samstarf kóranna hef-
ur verið að þróast undanfarin ár
og eru þessir tónleikar liður í að
styrkja það samstarf. Á efnis-
skránni eru m.a. lög úr Seldu
brúðinni eftir Smetana, ungversk
þjóðlög, og lög eftir íslensk tón-
skáld.
Stjórnandi Samkórs Selfoss er
Edit Molnár og píanóleikari Mikl-
ós Dalmay. Stjórnandi Samkórs
Rangæinga er Guðjón Halldór
Óskarsson.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
VORTÓNLEIKAR Léttsveitar
Reykjavíkur verða að þessu sinni
haldnir í Ými. Fyrstu tónleikarnir
voru í gærkvöldi en tvennir verða
á morgun, laugardag, kl. 15 og kl.
17.
Yfirskrift tónleikanna er „Den
lille lysegrønne sang – Turen går
til Norden“ og helgast af því að á
annað hundrað léttsveitarkonur
eru á leið til Norðurlanda að
„syngja sig inn í hjörtu frænd-
fólksins“. Hápunktur ferðarinnar
verða tónleikar á stóra sviðinu í
hinum margrómaða skemmtigarði
Tívolí í Kaupmannahöfn.
Á vortónleikunum fæst for-
smekkur af söngnum í fyrirhugaðri
för til Danmerkur og Svíþjóðar og
verður efnisskráin með norrænum
blæ. Sungin verða sænsk, dönsk og
finnsk þjóðlög, Jónasarlög Atla
Heimis Sveinssonar og lög eftir
Hallbjörgu Bjarnadóttur í útsetn-
ingu Aðalheiðar Þorsteinsdóttur
píanóleikara. Stjórnandi Léttsveit-
ar Reykjavíkur er Jóhanna V. Þór-
hallsdóttir og undirleikari er Að-
alheiður Þorsteinsdóttir. Einnig
mun Tómas R. Einarsson leika
undir á bassa og syngur kórinn
einnig lag eftir hann.
Léttsveitin
á leið utan
Í EDEN í Hveragerði stendur nú
yfir sýning Bjarna Jónssonar list-
málara og gefur þar að líta
margar heimildamyndir um líf og
störf forfeðra okkar ásamt „fant-
asíum“.
Bjarni hefur haldið margar
sýningar hér á landi og tekið þátt
í samsýningum erlendis. Síðustu
áratugi hefur hann gert fjölda
heimildamynda um sögu áraskip-
anna en hann teiknaði flestar
skýringamyndirnar í ritverk Lúð-
víks Kristjánssonar um íslenska
sjávarhætti.
Sýningin í Eden stendur til
annars í hvítasunnu.
Heimilda-
myndir í Eden
Bjarni Jónsson listmálari með tvö verka sinna.