Morgunblaðið - 10.05.2002, Síða 25
Sigrún
sveigir
burt á
hjólinu.
ÉG HEF stundum leik-ið í auglýsingum enaldrei upplifað ann-
að eins. Ókunnugt fólk glápir
á mig úti á götu. Vinir mínir í
briddsinu spyrja mig reglu-
lega að því hvort ég sé ekki
enn á hjólinu!“ segir Sigrún
Pétursdóttir, aðalleikarinn í
DAS-auglýsingunum, sem
vart hafa farið framhjá les-
endum dagblaða og sjón-
varpsáhorfendum und-
anfarið. Og Sigrún hlær
dillandi hlátri áður en hún
býður sæti í bjartri stofunni
á heimili sínu í vestur-
bænum.
Sigrún er alls enginn byrj-
andi á leiklistarsviðinu þótt
örlögin hafi skapað henni
annan vettvang á sínum
tíma. „Ég er algjörlega
ómenntuð, gekk ekki
einu sinni í „graut-
arskóla“,“ segir hún og
fær bakþanka. „Svona
á maður auðvitað ekki
að tala um hús-
mæðraskóla. Nema
hvað – ég missti föð-
ur minn ung, þurfti
snemma að fara að
vinna fyrir mér.
Með tímanum gift-
ist ég, eignaðist
börn, varð ein-
stæð móðir og
þurfti á góðu starfi að
halda. Mestan hluta starfsævinnar
var ég ráðskona á Bessastöðum – í
22 ár.“
Eftir að Sigrún hætti að vinna
gekk hún til liðs við leikhópinn Snúð
og Snældu. „Mér finnst óskaplega
gaman að leika,“ segir hún. „Á æf-
ingatímabilinu stigmagnast spenn-
an. Þegar frumsýningin er að bresta
á er ég oft orðin ótrúlega nervös.
Stundum er síðasti dagurinn nánast
óbærilegur. Um leið og ég byrja að
leika lagast allt. Ég hætti að vera ég
sjálf og verð persónan í leikritinu.“
Fyrsta kvikmyndahlutverkið var
símaauglýsing. „Ég fékk upphring-
ingu og ákvað að grípa tækifærið.
Leikstjórinn var eitthvað hikandi í
upphafi. Á endanum stundi hann því
upp að ég væri ekki nógu gamalleg
til að leika í auglýsingunni. Þá fékk
ég lánaða hárkollu hjá Bandalagi ís-
lenskra leikfélaga, mætti með hana
og fékk hlutverkið.“
Alltaf langað að
henda kápunni!
Tilboðið um hlutverk í DAS-
auglýsingunni bar brátt að. „Bjarn-
ey frá Eskimo kom á sýningu hjá
Snúð og Snældu og tók upp stutt
viðtöl við okkur öll. Ég var nýkomin
heim þegar hún hringdi og bauð
mér hlutverkið. Ég sagði nátt-
úrulega já – af því að ég segi aldrei
nei,“ segir Sigrún og skellihlær, „og
þá sagði Bjarney að ég þyrfti að
drífa mig aftur út því að auglýsingin
Aldrei upplifað
annað eins
ago@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
yrði tekin fyrir framan Hrafnistu
klukkan hálfsex. Ég dreif mig strax
af stað og myndatakan fyrir blaða-
auglýsingarnar var búin klukkan
átta.“
Daginn eftir var sjónvarpsauglýs-
ingin tekin upp. „Ég var komin upp
á Hrafnistu klukkan hálfníu um
morguninn og búin klukkan þrjú,“
segir Sigrún og upplýsir að einna
erfiðast hafi verið að komast í
þröngan mótorhjólagallann. „Ég
geng niður tröppurnar fyrir framan
Hrafnistu í kápunni utan yfir leð-
urfötunum og segi: „Ég vann stóra
vinninginn í Happdrætti DAS.“ Þeg-
ar ég var komin niður var spurning
um hvað ég ætti að gera við kápuna.
Ég sagði að mig hefði alltaf langað
til að henda henni. Hvort ég mætti
ekki bara henda henni upp í loftið!
Þegar ég er búin að því set ég á mig
mótorhjólagleraugun, segi að vinn-
ingurinn hafi hjálpað mér til að láta
drauminn rætast og bruna burtu á
mótorhjólinu,“ segir hún og við-
urkennir að þótt gaman hafi verið
að leika í auglýsingunni finnist
henni óþægilegt að sjá sjálfa sig í
sjónvarpinu. „Aftur á móti er ég
ánægð yfir að hafa lagt DAS lið og
vona að auglýsingin skili happ-
drættinu hagnaði í réttu hlutfalli við
alla athyglina.“
Sigrún hefur m.a. leikið í kvikmyndinni
Perlur og svín, Regínu og myndbandi
með Kolrössu krókríðandi.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 25
Hvar á Íslandi getur pabbi fengi› leig›a vöggu
e›a fer›arúm handa mér flegar vi› förum öll
saman í fer›alag?
Skeifunni 8, Reykjavík
www.babysam.is
Í BabySam !
Acidophilus
og Bifidus
FRÍHÖFNIN
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla4
o
g
8
b
il
lj
ó
n
ir
Fyrir meltingu og maga
með gæðaöryggi
FRÁ
Árangursrík meðferð við ójafnri húð á hálfum mánuði
*í
s
k
ö
m
m
tu
m
(1
)
að
m
eð
al
ta
li
–0
,6
5
sm
e
ft
ir
h
ál
fs
m
án
að
ar
m
eð
fe
rð
.
M
æ
lin
g
ar
í
se
n
tí
m
et
ru
m
á
5
2
ko
n
u
m
.
G
ó
ð
u
r
ár
an
g
u
r
n
áð
is
t
af
m
eð
fe
rð
í
69
%
t
ilv
ik
a.
(2
)
P
ró
fu
n
g
er
ð
á
7
0
ko
n
u
m
.
88
,9
%
á
n
æ
g
ð
ar
m
eð
m
ýk
ri
o
g
s
lé
tt
ar
i á
fe
rð
h
ú
ð
ar
in
n
ar
e
ft
ir
h
ál
fs
m
án
að
ar
m
eð
fe
rð
.
Fyrsta meðferðin
við fituójöfnum í húð
sem er að verki allan sólarhringinn.
VIRK EFNI
YFIR DAGINN
hjálpa til við
að draga úr fitu
VIRK EFNI
YFIR NÓTTINA
hjálpa til við að
draga úr
uppsöfnun fitu
og hreinsa
húðvefinn
Minnkun ummáls:
Allt að
2,5 sm (1)
Sléttari áferð:
88,9% (2)
CHRONO ACTIF
Inniheldur rétta skammtinn af
sérstökum virkum efnum til notkunar
kvölds og morgna til að ná
hámarksárangri
15 dagsskammtar -
15 næturskammtar með
mismunandi innihaldi
CHRONO ACTIF
Örvar fitusundrun á daginn og
hindrar uppsöfnun hennar á nóttunni
ásamt því að stuðla að úthreinsun
Bíldshöfða
Enn meiri verðlækkun
Bakhús inni í portinu