Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 29
„Vi› frambjó›endur D-listans bjó›um
alla Reykvíkinga velkomna á kosninga-
skrifstofur Sjálfstæ›isflokksins
í sínu hverfi sí›degis í dag kl. 17-19.“
Komdu í kaffi!
Vilhjálmur fi. Vilhjálmsson
og Tinna Traustadóttir
Kosningami›stö›in Skaftahlí› 24
Sími: 553 9634 og 553 9632
Sjálfstæ›isfélag Hlí›a- og Holtahverfis
Sími: 553 9650
Sjálfstæ›isfélag Háaleitishverfi
Sími: 553 9642
Opi›: Virka daga kl. 13.00 - 21.00
Helgar kl. 12.00 - 18.00
Kjartan Magnússon
og fiorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Smáíbú›a-, Fossvogs-
og Bústa›ahverfis, Glæsibær
Sími: 553 9653
Sjálfstæ›isfélag Langholtshverfis
Sími: 553 9663
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 22.00
Helgar kl. 13.00 - 18.00
Hanna Birna Kristjánsdóttir
og Rúnar Freyr Gíslason
Sjálfstæ›isfélag Árbæjar-, Seláss
og Ártúnsholts, Hraunbær 102 B
Sími: 567 4011
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Kristján Gu›mundsson
og Jórunn Frímannsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Grafarvogs
Hverafold 1-3
Sími: 557 7682 og 557 7684
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Gísli Marteinn Baldursson
og Gu›rún Ebba Ólafsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Hóla- og Fellahverfis
Sími: 557 7694 og 557 7695
Sjálfstæ›isfélag Skóga- og Seljahverfis
Sími: 557 7694 og 557 7695
Sjálfstæ›isfélag Bakka- og Stekkjahverfis
Álfabakki 14a
Sími: 557 7694 og 557 7695
Opi›: Virka daga kl. 17.00 - 21.00
Helgar kl. 13.00 - 16.00
Gu›laugur fiór fiór›arson
og Alda Sigur›ardóttir
Sjálfstæ›isfélag Vestur- og Mi›bær
Laugavegi 70
Sími: 552 9183
Austurbæjar- Nor›urm‡rar
Laugavegi 70
Sími: 552 9178
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Inga Jóna fiór›ardóttir
og Margrét Einarsdóttir
Sjálfstæ›isfélag Nes- og Melahverfis
Hjar›arhaga 47
Sími: 552 9187
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Marta Gu›jónsdóttir
og Ívar Andersen
Sjálfstæ›isfélag Laugarneshverfis
Laugalæk 6 (vi› hli› Bónusvideo)
Sími: 553 9670
Opi›: Virka daga kl. 16.00 - 20.00
Helgar kl. 14.00 - 16.00
Haf›u samband vi›
hverfaskrifstofuna flína.
Mundu a› öflugt starf á
kosningaskrifstofunum er
lykilatri›i í baráttu fyrir sigri
Sjálfstæ›ismanna 25. maí.
Viltu leggja
baráttunni li›?
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 29
NÚ UNDIR lok yf-
irstandandi kjörtíma-
bils hefur fyrirhyggju-
leysi núverandi meiri-
hluta bæjarstjórnar
Garðabæjar í málefn-
um bæjarfélagsins
komið æ betur í ljós.
Ítrekað hafa bæjarbúar
orðið að grípa inn í ger-
ræðislegar ákvarðana-
tökur meirihlutans með
háværum mótmælum á
opinberum vettvangi.
Er ljóst að stór hluti
Garðbæinga er orðinn
langleiður á stjórnun-
arstíl meirihlutans þar
sem seint og illa er tek-
ið mið af þörfum og sjónarmiðum
fólksins í bænum. Garðabæjarlistinn
er samsettur af fylkingu Garðbæinga
með skýra framtíðarsýn þar sem
uppbygging og mótun bæjarfélags-
ins mun grundvallast á virkri þátt-
töku íbúanna í málefnum bæjarins.
Með málefnastefnu okkar þar sem
öryggi og velferð fjölskyldunnar er
sett á oddinn munum við tryggja öfl-
uga framtíðaruppbyggingu Garða-
bæjar á grundvelli íbúalýðræðis.
Framkvæmdastjóri
Garðabæjar
Með reglulegum íbúaþingum í
hverfum bæjarins og virku tölvu-
netssamstarfi fá Garðbæingar greið-
an aðgang að stefnumótun og
ákvarðanatökum fyrir bæjarfélagið.
Með slíku fyrirkomulagi munu
Garðbæingar hafna bráðabirgðaúr-
lausnastefnu núverandi meirihluta.
Með íbúalýðræði er gert ráð fyrir
virku samstarfi íbúa og bæjaryfir-
valda með það að meginmarkmiði að
gera góðan bæ betri. Þar er einnig
gert ráð fyrir því að ráðinn verði
framkvæmdastjóri Garðabæjar sem
ígildi bæjarstjóra að undangengnu
hæfnis- og stöðumati. Slíkt fyrir-
komulag tryggir betri og skilvirkari
rekstur bæjarfélagsins þar sem
ákvarðanataka mótast fyrst og
fremst af þörfum íbúanna en ekki
pólitísku poti eða óraunsæjum lof-
orðalistum.
Heimabyggð kláruð
Í skipulagsmálum hefur meirihlut-
inn farið hamförum. Er það hreint
ótrúlegt að sjálfstæðismenn í Garða-
bæ skuli hafa það á stefnuskrá sinni
að rjúka til og byggja nýjan bæ á
Garðaholti áður en núverandi bæjar-
stæði hefur verið endanlega frágeng-
ið og deiliskipulagt. Garðabæjarlist-
inn hafnar slíkri óráðsíu og leggur
áherslu á að lokið verði uppbyggingu
og skipulagi Ásahverfis, Stranda-
hverfis, Arnarneshæðar og Hnoðra-
holts áður en stofnað verði til gríð-
arlegs kostnaðar vegna upp-
byggingar nýs bæjarstæðis á
Garðaholti. Ef æðibunugangur nú-
verandi meirihluta nær fram að
ganga verður að telja öruggt að
Garðabær verði eitt skuldsettasta
bæjarfélag landsins.
Nýtt hlutverk
Vífilsstaða
Aukinn þunga verður að leggja í
atvinnu- og umhverfismál bæjar-
félagsins. Er nú svo komið að eitt
merkasta kennileiti Garðabæjar, Víf-
ilsstaðaspítali, stendur nánast autt
eftir að Landspítali – háskólasjúkra-
hús (LSH) hefur dregið nær alla
starfsemi sína út úr bæjarfélaginu.
Við þessu verður að
bregðast strax með
skilvirkari hætti en nú-
verandi meirihluti hef-
ur gert. Garðabæjar-
listinn leggur til að
núverandi húsnæði og
landareign verði endur-
skipulögð sem endur-
hæfingar- og heilsu-
ræktarsetrið Vífils-
staðir. Nú þegar verði
hafnar viðræður við
LSH um slíka upp-
byggingu með sérstaka
áherslu á endurhæf-
ingu eldri borgara og
einstaklinga með minn-
isskerðingu. Rekstur setursins yrði
síðan í samvinnu ríkis, LSH, sveitar-
félagsins og einkaaðila. Með slíkum
rekstri væri kominn grundvöllur að
heilsumiðuðum ferðamannaiðnaði
innan bæjarfélagsins. En Garðabæj-
arlistinn leggur áherslu á uppbygg-
ingu lítilla og meðalstórra fyrirtækja
á hátækni- og heilbrigðissviði innan
bæjarfélagsins.
X-S
Af framansögðu er ljóst að Garða-
bæjarlistinn er með skýra framtíð-
arsýn sem grundvallast á samstarfi
við íbúa Garðabæjar með velferð
þeirra og öryggi að leiðarljósi.
Garðbæingar, veitið því Garðabæjar-
listanum umboð ykkar til að standa
vörð um Garðabæ og gera hann að
lífvænu og blómlegu bæjarfélagi fyr-
ir komandi kynslóðir.
Stöndum vörð
um Garðabæ
Björn Rúnar
Lúðvíksson
Garðabær
Garðabæjarlistinn er
samsettur af fylkingu
Garðbæinga, segir
Björn Rúnar Lúð-
víksson, með skýra
framtíðarsýn.
Höfundur er læknir og skipar 3. sæti
Garðabæjarlistans.
www.islandia.is/~heilsuhorn
Kelp
Fyrir húð, hár og neglur
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
fæst m.a. í Lífsinslind í Hag-
kaupum, Árnesaptóteki Sel-
fossi, Yggdrasill Kárastíg 1.