Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 34
LOFAÐU svo einn, að þú lastir ekki ann- an er máltæki sem margir mættu hafa í huga. Til dæmis Jakob F. Ásgeirsson blaða- maður og aðdáandi Björns Bjarnasonar. Jakobi er mikið í mun að styðja Björn í bar- áttu hans vegna næstu borgarstjórnarkosn- inga. Ekki lái ég hon- um það enda er við of- urefli að etja. Hins vega finnst mér ógeð- fellt þegar menn geta ekki hælt sínum manni í keppni án þess að tala illa um keppinauta. Jakob segir orðrétt í Morgun- blaðinu 30. apríl: „Við viðkynningu finnur fólk glöggt að Björn Bjarna- son er alger andstæða hins kalda og fjarlæga valdshroka sem ríkt hefur í Ráðhúsi Reykjavíkur sl. átta ár.“ Ég leyfi mér að fullyrða að hér fari Jakob með staðlausa stafi hvað varðar Ingibjörgu Sólrúnu og störf hennar sem borgarstjóra. Ingi- björg Sólrún er afskaplega réttsýn og sanngjörn manneskja sem gott er að leita til og alveg laus við vald- hroka. Leyfi ég mér þá að vitna aft- ur í Morgunblaðið en þar segir í Velvakanda 1. maí sl. Fyrirsögnin er: „Finnst hún frá- bær.“ „Ég þurfti að hafa samband við borgarstjórann til að fá niðurfellingu skatta. Það var eins og ég væri að tala við gamla kunningjakonu, ég þurfti ekkert að segja henni, hún vissi alveg um hvað málið snerist. Finnst mér hún alveg frábær.“ Undirskriftin er Ein ánægð. Þessi ummæli lýsa Ingibjörgu Sól- rúnu eins og hún er. Strax sem ung kona vakti hún athygli í borgar- stjórn Reykjavíkur fyrir það hve fljót hún var að átta sig á aðal- atriðum hvers máls. Hún hefur þá hæfileika að geta hlustað á alla, tekið við ráðum og verið samvinnu- fús. Það eru margir góðir stjórnmála- menn á Íslandi en þrír bera af. Þau eru: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Davíð Oddsson og Steingrímur J. Sigfússon. Þessi þrjú hafa þá hæfi- leika sem allir stjórnmálamenn þrá að hafa. Persónutöfra, stjórnvisku og mælsku. Jakob F. Ásgeirsson kvartar yfir því að Ingibjörg Sólrún njóti fjöl- miðlaathygli. Ég spyr hann á móti af hverju skyldi hún ekki gera það? Þeir sem eru bestir eru líka vinsæl- astir, svo einfalt er það. Húsmóð- irin í ráðhúsinu hefur staðið sig með afbrigðum vel og við Reykvík- ingar höfum ekki efni á að missa slíkan stjórnanda. Þess vegna hvet ég alla, konur og karla, til þess að kjósa Ingibjörgu Sólrúnu aftur sem borgarstjóra í Reykjavík. Áfram Ingi- björg Sólrún Margrét Sæmundsdóttir Höfundur er fyrrverandi borg- arfulltrúi Kvennalistans. Reykjavík Ingibjörg Sólrún er af- skaplega réttsýn og sanngjörn manneskja, segir Margrét Sæ- mundsdóttir, sem gott er að leita til og alveg laus við valdhroka. UMRÆÐAN 34 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 12 mánudaginn 27. maí! Blaðaukinn Sumarferðir 2002 kemur út 1. júní Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild í síma 569 1111 eða netfang: augl@mbl.is HEILDSTÆÐIR hverfaskólar eru kjarni í hverju hverfi og endurspegla þann áhuga og metnað sem sveitarfélagið leggur á málaflokkinn. Þeir sem lofa að einsetja skóla og hraða upp- byggingu þeirra, eiga að setja í forgang að klára skólana svo þeir standi ekki hálfbyggð- ir með öllum þeim óþægindum sem af því hlýst. Á Akureyri hefur verið mikil gerj- un í skólastarfi og mikil uppbygging síð- ustu ár, en sannarlega þarf að gera betur til að bæta innra starf- ið. Tvö fyrstu skólastigin og fjöl- skyldan móta einstaklinginn fyrstu árin. Þá mótast sjálfsmyndin og persónueinkenni styrkjast. Ekkert tæki er öflugra en skólakerfið til að jafna lífskjör og gefa öllum möguleika til þroska og náms. Hverfisskólinn er fyrir alla og ekki á að ýta undir þá hugmynd að for- eldrar velji annan skóla fyrir barn- ið sitt, án þess að sérstakar ástæð- ur liggi að baki. Námið í skólunum og félagsmótunin er grunnurinn sem næsta kynslóð stendur á. Góð- ur hverfisskóli á að vera nafli hvers hverfis, með vel útbúinni skólalóð til leikja. Skólastarfið þarf að lengjast fram á daginn. Brýnt er að auka þátt verk- og listgreina, sem of lítið vægi hafa fengið undanfarin ár. Heildstæður skóli Allir hafa rétt til að sækja sinn heimaskóla og fylgja sínum bekk, sé þess nokkur kostur. Skóli án aðgreiningar þar sem nemendur eru samskipa er markmiðið. Þeir nemendur sem ein- hverra hluta vegna geta ekki fylgt bekkn- um sínum geta þurft að nýta sértæk úr- ræði, markviss og fag- lega skilgreind. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr er það svo, að alltaf verða einhverjir sem þurfa sérúrræði sem ekki er unnt að veita í al- mennri bekkjardeild og nemandinn getur ekki meðtekið í um- hverfi sem venjuleg skólastofa veitir. Þessir nemendur njóta sín best í litlum afmörkuðum hópum eða einir. Samskipun eða blöndun í bekki getur aldrei orðið eins og bókstafstrúarbrögð. Alltaf eru til undantekningar sem sanna regluna. Skólarnir sem tekið hafa að sér þessar sérdeildir á Akureyri hafa unnið gott starf, en miklu skiptir að þetta starf njóti stuðn- ings bæjaryfirvalda á komandi ár- um. Tengsl heimilis og skóla eru grundvöllur þess að árangur náist með þá sem þurfa einhver sérstök úrræði, bæði hvað varðar nám og mótun sterkrar sjálfsmyndar. Enda sýna kannanir að börnum með sterka sjálfsmynd vegnar bet- ur í skóla. Þau hafa gott samband við fjölskyldu sína og kennara. Þeir lenda síður í óreglu en þeir sem lítið sjálfsálit hafa. Margir foreldrar hafa öðlast sjálfstraust til að halda utan um uppeldishlut- verkið með því að kynnast börnum sínum og sjálfum sér í spegli um- hverfisins og í jafningjahópi. Skól- inn þarf að kalla eftir fullorðnu fólki til þátttöku í umhverfis- og grenndarfræðslu og virkja for- eldra í að heimsækja skólamötu- neytin og borða með börnunum. Hægt er að hafa opinn tíma á bókasafni eða tölvustofu skólans fyrir foreldra og börn, þar má skoða ákveðið efni sem verið er að taka fyrir. Foreldraröltið er nauð- synlegt að styrkja og efla sam- stöðu foreldra í að vera á ferli þar sem skólaskemmtanir eru til að vernda börnin gegn hryðjuverka- mönnum eiturlyfjaheimsins. Skólabærinn Akureyri Það olli mér vissulega vonbrigð- um hvernig dregið var að taka ákvörðun um framtíðarhúsnæði Brekkuskóla þrátt fyrir ítrekaðar bókanir skólanefndar þar um. Loksins nú rétt fyrir kosningar er tekin ákvörðun um hvernig skuli sjá fyrir húsnæðismálum skólans. Það endurspeglar áherslur meiri- hluta bæjarstjórnar að byggja fjöl- nota íþróttahús, með sundlaugina ókláraða og bæði Síðuskóla og Giljaskóla í byggingu, þar sem skólastarf líður fyrir þrengsli og aðstöðuleysi. Ekki síst í ljósi þess að mjög ríkulega hafði verið staðið að uppbyggingu í íþróttamálum, langt umfram það sem lofað var í upphafi kjörtímabilsins. Vissulega er gott að standa myndarlega að íþróttamálum, en stofnanir sem veita lögboðna þjónustu eiga að sitja fyrir. Þvílíkt langlundargeð sem fólkið í Síðuhverfi er búið að sýna með því að bíða eftir full- búnum skóla. Skólabærinn Akur- eyri getur svo sannarlega staðið undir nafni ef agi og umhyggja fyrir öllum nemendum einkenna innra starfið. Ég mun ekki liggja á liði mínu í uppeldis- og forvarna- starfi fyrir Akureyrarbæ fái ég til þess brautargengi í kosningunum í vor. Skólarnir eru límið í sam- félaginu Kristín Sigfúsdóttir Akureyri Skólinn þarf að kalla eftir fullorðnu fólki, seg- ir Kristín Sigfúsdóttir, til þátttöku í umhverfis- og grenndarfræðslu. Höfundur skipar 3. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á Akureyri og situr í skóla- nefnd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.