Morgunblaðið - 10.05.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 10.05.2002, Síða 40
MINNINGAR 40 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Aðalheiður Jóns-dóttir var fædd á Vestra-Skagnesi í Mýrdal í Vestur- Skaftafellssýslu 21. júní 1913. Hún and- aðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 24. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Jón Jónsson frá Skammadal, síðar bóndi á Vestra-Skag- nesi, f. 31.8. 1860, d. 10.6. 1929, og Sigríð- ur Ófeigsdóttir hús- freyja ættuð frá Vestra-Skagnesi, f. 12.3. 1871, d. 29.10. 1942. Systkini Aðalheiðar voru 12 tals- ins og eru þau nú öll látin: Sig- urgísli, f. 1892, Jórunn, f. 1893, Eyjólfur, f. 1895, Eva Álfhildur, f. 1897, Jón, f. 1899, Hólmfríður, f. 1901, Jón, f. 1902, Steinþór Elías, f. 1904, Magnús, f. 1906, Ólöf, f. 1908, og Aðalsteinn, f. 1910. Aðalheiður ólst upp á Vestra- Skagnesi og bjó þar til ársins 1945. Hún lauk hefðbundinni skólagöngu. Aðalheiður fór í Samvinnuskólann í Reykjavík og dvaldi við nám þar í eitt ár en þurfti frá að hverfa vegna veik- inda. Aðalheiður fluttist til Reykja- víkur árið 1945 ásamt Ólöfu systur sinni. Árið 1963 hóf hún að reka sameig- inlegt heimili með Ólöfu systur sinni og bjuggu þær saman allt til ársins 1997 er Ólöf lést. Árið 1999 flutti Aðalheiður í íbúðir fyrir aldraða í Furugerði 1 og bjó hún þar til dauðadags. Að- alheiður starfaði alla sína starfs- ævi á „Drengjafatastofunni“, sem Ólöf systir hennar rak. Frá árinu 1973 hófu þær systur sameigin- legan rekstur og nefndist þá fyr- irtækið „Fatabreytingar og við- gerðir“ og var til húsa á Klappar- stíg 11. Þær systur hættu rekstri fyrirtækisins árið 1996. Útför Aðalheiðar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Síðasta vetrardag, með sumarið handan við hornið, kvaddi Aðalheið- ur Jónsdóttir, eða Heiða frænka, eins og ég heyrði á hana minnst af vinkonu minni henni Siggu í bakarí- inu. Oftar en ekki sagði Sigga frekar ,,Heiða og mamma“ því svo sam- rýmdar voru þær systur að ekki var minnst á aðra nema hinnar væri get- ið um leið og fyrir manneskju eins og mig, sem hafði þá ekki séð eða hitt þær, en heyrt þeirra getið, var sem um eina og sömu konu væri að ræða. Oftar en ekki talaði Sigga vinkona mín um að hún væri að fara að hitta þær ,,mæður“ sínar, því vart mátti á milli sjá hvort Heiða eða Ólöf væri móðirin, þó svo að vissulega hefði að- eins Ólöf þann heiður að vera blóð- móðir Siggu. Þær systur Ólöf og Heiða fæddust á Skaganesi, ólust þar upp og bjuggu í Mýrdalnum þar til Sigga var á þriðja ári. Fluttu þær þá búferlum til Reykjavíkur á Hjallaveg 46 og bjuggu þar um skamman tíma og var undirritaðri oft hugsað til mæðgn- anna þegar ég árla morguns skaut Morgunblaðinu inn um bréfalúgu í kjallara þessa sama húss, áratugum síðar, vitandi af sporum þeirra í þessu umhverfi. Heiða og Ólöf unnu saman á saumastofunni sem sú síðarnefnda stofnaði í kringum 1940 og höfðu þær það starf með höndum allar göt- ur síðan, þar til þær seldu húsnæðið sem þær höfðu eignast á Klapparstíg 11 og notað undir starfsemi Drengjafatastofunnar (síðar Fata- breytinga- og viðgerðaþjónustan), og luku sínu ævistarfi á vordögum 1995. Fáeinum árum áður en þær systur loka stofunni varð Aðalheiður fyrir því óhappi, er hún var í sendiferð fyr- ir saumastofuna, að þegar hún ætlaði að fara fyrir hornið á Klapparstíg og Laugavegi, var hún hlaupin niður af síkátum unglingum fyrir slysni og skelltist hún í götuna með þeim af- leiðingum að hún axlarbrotnaði og skaddaðist í andliti. Hún náði sér að fullu eftir þetta og endurheimti starfsgetu sína. Það var ekki fyrr en við að fá fréttir af þessu atviki að ég áttaði mig á því hve fullorðnar þær systur væru orðnar og enn starfandi samt sem áður. Aðalheiður var mjög listfeng og handlagin og marga fagra muni skapaði hún og gaf sínum nánustu. Veit ég að sú hæfni og handbragð hafa bæði Sigga og hennar börn erft frá þeim Skaganess-systrum. Þessi heilaga þrenning eða ,,vitr- ingarnir þrír“, þær Sigga, Heiða og Ólöf, fóru oftsinnis í Ölfusborgir, or- lofshús verslunarmanna, á sumrin og nutu þar samverunnar og ekki síður gesta er mættu til þeirra þar. Þó svo að undirrituð hafi ekki sökum anna getað nýtt sér gestrisni þeirra þar, var alltaf gott að koma í eldhúskrók- inn í Barmahlíðinni þar sem Heiða dvaldi síðustu mánuðina í góðu yf- irlæti og umönnun hjá Siggu og hennar fjölskyldu. Það sem var hennar líf og yndi undangengin ár var að fylgjast með beinum útsend- ingum frá Alþingi og hafði hún sínar skoðanir á hlutunum og lét ófáar greinar og skrif birtast á síðum Morgunblaðsins og vandaði þá stundum landsfeðrunum ekki kveðj- una. „Lífið er pólitík og við eigum að hafa skoðun á umhverfi, velferð og framgangi þjóðar okkar og landsaf- komu.“ Þetta voru einkunnarorð Að- alheiðar. Síðasta greinin sem hún skrifaði veit ég að er hálfkláruð heima og óbirt. Eitt af því síðasta sem Heiða fársjúk hafði þrek til, var að vera gestur Eyjólfs í fermingarboði 14. apríl og af myndum að dæma virtist ekki sem þar væri um veika, hvað þá fársjúka konu að ræða, enda var hún heldur ekki að mikla fyrir sér hlut- ina. Hún hélt ótrauð áfram og kvart- aði aldrei. Þar sem Sigga hefur nú misst þær báðar, móður sína árið 1997 og Heiðu móðursystur sína núna, stendur hún frammi fyrir miklum breytingum í lífi sínu. Ég vil því óska henni alls hins besta og veit að það veganesti sem þessar tvær merkiskonur gáfu henni í uppvextinum og síðar, mun verða hvati að öllu því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. Börn- um og barnabörnum Siggu sem misst hafa í Heiðu elskulega fóstur- ömmu og góðan vin, óska ég velfarn- aðar á þessari viðkvæmu stundu. Þú ert laus frá lífsins þrautum og liðin jarðarganga. En áfram lifir á andans brautum ævidaga langa. Drottinn verndar dag og nótt á dularvegi nýjum. Aftur færðu aukinn þrótt í eilífð ofar skýjum. (Jóna Rúna Kvaran.) ,,Hvert ljós sem skín er tákn til lífsins um frið og von“ (JRK). Ég veit að Heiða var eins og ljós sem skín. Blessuð sé minning Aðal- heiðar Jónsdóttur, Jóhanna B. Magnúsdóttir. Elsku Heiða frænka er látin. Það er sárt fyrir okkur sem erum eftir að hún sé farin, en hvíld fyrir hana eftir stutta en erfiða baráttu við krabba- mein. Heiða hefur verið svo stór þáttur í lífi mínu frá því ég fæddist. Allar stundirnar sem ég átti með henni og ömmu á saumastofunni eða þegar ég gisti hjá þeim gleymast aldrei. Ég sem lítil stelpa var að vinna hjá þeim að eigin sögn en gerði sjálfsagt lítið annað en að þvælast fyrir þótt það breyttist með árunum og hægt var að nýta mig í ýmis smá- verk. Margar helgar sem barn og unglingur gisti ég hjá Heiðu og ömmu í Dvergabakkanum og var oft grínast með það að þið amma ættuð kannski að ættleiða mig svo oft var ég hjá ykkur. Síðar tók Björn Hlyn- ur sonur minn við af mér og átti margar skemmtilegar stundir með þér í pizza-áti og videoglápi og skildi ég aldrei hvernig þú gast horft svona á hvað sem er með honum. Ég og mín fjölskylda vorum svo heppin að búa hjá þér tvisvar sinnum. Lengst í tvö ár uppi í risinu á Kaplaskjólsvegi og voru það okkar skemmtilegustu ár svo gaman var að vera með ykkur ömmu. Heiða var mjög pólitísk og hafði skoðanir á flestum hlutum og vorum við nú ekki alltaf sammála. Hún skrifaði margar greinar í DV og Morgunblaðið og kom það í minn hlut að setja þær á tölvutækt form og skila inn til blaðanna. Heiða var alltaf svo flott og glæsileg kona og vildi hafa allt varðandi útlit á hreinu og var mjög hress allt til síðasta dags. Man ég þegar þið mammma fóruð fyrir tveimur árum til Skot- lands í skemmtiferð. Brunabjallan fór í gang og þú vildir ekki fara af stað út úr herberginu fyrr en hárið var greitt og varaliturinn kominn á sinn stað. Elsku Heiða, ég get haldið endalaust áfram því minningarnar eru svo margar. Glói litli skilur ekki að þú sért farin og vill bara fara í heimsókn því hann er viss um að þú sért heima og saknar leiksins ykkar þegar þið fóruð að leika Tomma og Jenna og hann var músin og þú kött- urinn – hann skilur það síðar. Við sem eftir erum hér söknum sárt frábærrar frænku og vinkonu sem var eins og önnur amma, en ég veit að millifærslan á milli heimanna eins og við köllum það bíður okkar allra og við sjáumst síðar, elsku frænka. Ólöf A. Þórðardóttir. Mig langar að fara nokkrum orð- um um góða konu. Aðalheiður eða Heiða einsog við kölluðum hana var að mörgu leiti sérstök kona. Allir eru sérstakir á sinn hátt. Allt sem gott er kom saman á einn stað þar sem Heiða var. Hún vildi allt fyrir alla gera og meinti það beint frá hjart- anu. Oftlega áttum við skemmtilegar samræður þar sem skoðanir voru sterkar og ekki hvikað frá réttlætinu á einn eða annan máta. Réttlætis- kenndin einkenndi Heiðu hvar sem hún fór. Ef eitt barnabarnið í fjöl- skyldunni fékk eitthvað skyldu allir fá hið sama. Eitt af því sem kennir yngra fólki á samtíðina er að læra af þeim eldri. Það sætti furðu minni hve Heiða var alltaf vel inni í öllum mál- um, hvort sem þau fjölluðu um stjórnmál eða þau mál sem uppi voru hverju sinni. Tíðarandanum fylgdi hún þó aldurinn færðist yfir. Um skeið bjuggum við Ólöf hjá ömmu og Heiðu og var það góður tími. Einatt var hugsað um okkur sem unga í eggi. Allt skyldi gert til að ungu fjöl- skyldunni og litla drengnum liði sem best. Við áttum því láni að fagna að fá annan lítinn dreng sem einnig varð í miklu uppáhaldi hjá Heiðu. Þegar Ólöf (lanka) féll frá missti Heiða mikið. Frá þeim tíma fannst mér halla undan fæti hjá henni, hún saknaði systur sinnar. Eftir stutt en ströng veikindi er hún nú komin til systkyna sinna handan móðunnar miklu og er örugglega í góðu yfirlæti ásamt þeim sem henni þótti svo vænt um. Ég vil þakka Heiðu fyrir það sem hún gerði fyrir mig og mína og bið Guð og góðar vættir að fylgja henni í nýjum heimkynnum. Pétur R. Pétursson. Elsku Heiða mín. Þú ert besta frænka mín sem ég hef átt. Þú fórst í friði og komst aftur í nýju ljósi. Þú komst sem engill guðs. Takk, Heiða, fyrir allar stundirnar okkar saman á Kaplaskjólsveginum og í Furugerði. Björn Hlynur Pétursson. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Heiða. Við þökkum þér fyrir öll góðu árin. Eyjólfur, Jóna, Eyjólfur Aðalsteinn og Ída Bjarney. Elsku Heiða mín, með þessum orðum langar mig að kveðja þig og þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Síðastliðna 15 mánuði barðist þú hetjulega við krabbamein og þurftir að gefa eftir að lokum. Kvalir þínar voru ógurlegar, elsku Heiða mín, og var mjög sárt að horfa á þig þjást AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR                                        !    ""       !!     "# $!!% #&##   !%  '! (!)      &)&#   !% #* #  %  +'                              !" !" #  #$!!  $%&  $%& '( )#$)  #$!!  ))# *'(  &  #$!!  *()  !#$'( $")(( '( +)) ))#$!!  ! ,-(  '( .%(#) )#$!!  .(()  '( /) + !)  &012(  '( ),#3 (#$!!  4-  '( ()5"6 (#$!!  2, .78! "'! 9' (& 8! "'! 0)()02('&0)()0)()02(7                                             ! "# $$ %$$ &$  #' # "# $ &$  ( $ )# *)$ "# $ )# $ (+#$ ,# &$ $ ! "# $ )# $$ -# ./$,# &$ ,#$,+#$ & ,#$,#$,+#$!               ! " #$ %&!# '() *"$  + ) ',)(()                                         !"   #   $   $ $% &     '          '#"  (#  )    )            ! "#$ % & '((!  ) '* '((!  ( ! % + , ! (#-  . $ /- '((!  $001   $00+$ 2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.