Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður Reynis-dóttir fæddist í Reykjavík 13. desem- ber 1976. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu 2. maí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar eru Þóra Sigurðar- dóttir og Reynir H. Sæmundsson. Systir Sigríðar er Jódís Ólafsdóttir, maður hennar er Jóhannes Ellert Eiríksson, þau eiga tvö börn, Þóri og Fjólu. Unnusti Sigríð- ar er Björn Ásbjörns- son. Foreldrar hans eru Kristín Guðnadóttir og Ásbjörn Björns- son. Bróðir Björns er Guðni og unnusta hans er Kristbjörg Sölva- dóttir. Sigríður ólst upp í Kópavogi og bjó lengst af á Kópa- vogsbraut 74. Hún gekk í Kársnesskóla, síðan Þinghólsskóla og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi 1996. Sig- ríður stundaði nám í læknisfræði við Há- skóla Íslands og var að ljúka 5. ári nú í vor, þegar hún lést. Útför Sigríðar verður gerð frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Það er í janúar 1996, ungt fólk komið saman heima hjá okkur að undirbúa þátttöku í spurninga- keppninni „Gettu betur“ fyrir hönd Menntaskólans í Kópavogi. Það er ákafi í unga fólkinu. Þjálfarinn er með hraðaspurningar, bjölluspurn- ingar og allt sem gæti komið fyrir í sjálfri keppninni. Við höfðum gam- an af að fylgjast með unga fólkinu og hvað þau voru dugleg að svara. Í liðinu voru Björn sonur okkar og Sigríður Reynisdóttir ásamt fleir- um. Þetta voru fyrstu kynni okkar af Siggu. Seinna um vorið voru þau Sigga og Bjössi orðin kærustupar. Sex hamingjurík ár líða og svo verður Sigga bráðkvödd í svefni á heimili þeirra og foreldra hennar 2. maí sl. Við þetta ótímabæra fráfall Siggu leitar hugurinn í allar góðu minningarnar sem við eigum um hana. Við borðuðum oft saman á kvöldin en þau eru sérstaklega eft- irminnileg öll notalegu föstudags- kvöldin þar sem krakkarnir hafa verið hér öll, Sigga, Bjössi, Guðni og Krissa og við höfum notið þess að borða saman góðan mat og spjalla saman. Nýlega áttum við sérlega ánægjulegt svona kvöld þar sem allir við matarborðið sögðu frá því hvað þeir hefðu verið að gera síðustu daga. Þetta var svo skemmtilegt að við vorum ákveðin í að endurtaka það sem oftast, Sigga var þá einmitt nýbúin með verkefni sem við fengum að heyra um. Það var svo sjaldgæft að hún segði á þennan hátt frá því hvað hún var að fást við, það var nú ekki hennar stíll að vera neitt að flagga sínu, svo við höfðum einstaklega gaman af því að fá að heyra hvað hún var í raun að fást við merkilega hluti. Nú verður Siggu sárt saknað á þessum kvöldum, sem og í lífi okk- ar öllu, því við vonuðumst til að fá að hafa hana til framtíðar og litum orðið á hana sem dóttur á heim- ilinu, eftir 6 ára samveru var það orðið svo sjálfsagt. Enda var farið að velta fyrir sér brúðkaupi og íbúðarkaupum. Sigga var afburða námsmaður og dúx á stúdentsprófi í Menntaskól- anum í Kópavogi í sínum árgangi. Eftir stúdentspróf lá leið hennar í læknisfræði. Námið stundaði hún af miklum dugnaði og samvisku- semi og var að klára sitt fimmta ár í greininni. Það var gaman að fá að fylgja Siggu og Bjössa út á flugvöll í mars síðastliðnum. Gleðin skein úr augunum og tilhlökkun yfir að fá að fara þessa ferð. Þau voru á leiðinni til New York, en þangað hafði Siggu verið boðið á ársþing bandarísku astma- og ónæmis- fræðisamtakana (AAAA&I) til að kynna niðurstöðu úr rannsóknum í ónæmisfræði sem tengdist soreas- is, en þessu verkefni hafði hún lagt lið sitt með rannsóknarstörfum hér á landi. Það var hamingjusamt ungt par sem kom heim aftur eftir ánægjulega daga í New York, Sigga búin að kynna niðurstöðurn- ar og allt gekk svo vel. Eftir lát Siggu var örlítil huggun harmi gegn að fá að heyra Björn Rúnar leiðbeinanda hennar segja frá því hvað hún stóð sig vel og að það væru ekki margir nemar á fimmta ári sem hefðu átt stóran þátt í þrem merkilegum rannsókn- um sem munu nýtast læknisfræð- inni í framtíðinni. Við sem hlýddum á höfðum ekki gert okkur grein fyrir þessu fyrr, enda var Sigga einstaklega hógvær og státaði ekki af eigin afrekum. Á heimili okkar ríkir mikil flug- della og umræður um flug og flug- vélar eru daglega á lofti. Sigga tók virkan þátt í þeim umræðum og setti sig vel inn í þau mál og kom flugdelluliðinu sífellt á óvart með þekkingu sinni á orðatiltækjum, fagmáli og flugvélategundum sem hún þekkti. Hana munaði ekki mik- ið um að leggja þetta á sig til að geta verið með í umræðunum og hvatti sinn heittelskaða óspart áfram í flugnáminu. Hún hafði líka mjög gaman af að flújga með hon- um og þær voru ófáar ferðirnar sem þau svifu saman um loftin blá. Hún er líka eftirminnileg er ferðin sem Sigga fór með okkur tilvon- andi tengdaforeldrunum fyrir tveimur árum til Flórída að heim- sækja Bjössa sinn sem var þar í flugþjálfun. Við áttum saman ógleymanlega daga þar sem við ferðuðumst um allan Flórídaskag- ann fljúgandi öll fjögur á ótrúleg- ustu staði. Í þessari ferð kynnt- umst við Siggu enn betur. En það er líka sérstakt í lífi Bjössa og Siggu hvað þau náðu að gera margt saman og ferðast töluvert. Elsku Sigga, nú hefur þú hafið flugið langa. Við skiljum ekki til- ganginn með þessu öllu saman og fáum engu breytt, en síðasta útkall kemur alltaf óundirbúið. Lífið held- ur áfram, en það verður aldrei eins. Þökk fyrir samfylgdina og allt það góða sem þú gafst okkur og Bjössa. Þú lifðir í friði. Far þú í friði. Elsku Bjössi okkar, Þóra, Reyn- ir, Jódís og fjölskylda. Við biðjum algóðan Guð að umvefja ykkur og styðja ykkur og styrkja í ykkar mikla missi. Blessuð sé minning Sigríðar Reynisdóttur. Kristín og Ásbjörn Guðni og Kristbjörg. „Sigga er dáin. Hún varð bráð- kvödd í morgun.“ Þannig hljóðaði símtal sem við fengum laust eftir hádegi fimmtudaginn 2. maí. Vantrú kom upp í hugann, þetta gat ekki verið rétt. Innst inni von- uðumst við eftir öðru símtali sem segði að þetta hefði bara verið mis- skilningur. Það símtal kom ekki. Það er langt síðan að við fréttum að Bjössi frændi Guðna væri kom- inn með kærustu upp á arminn. Það var óvænt ánægja að stúlka sú var Sigga úr vesturbænum í Kópa- vogi. Við höfðum verið málkunn- ugar sem börn, en ekki hist í mörg ár þar á eftir. Þetta var upphafið að löngu og skemmtilegu tímabili sem einkenndist af því að hittast á tveggja vikna fresti og horfa á formúluna. Við vorum fjögur pör sem hittumst reglulega í Garða- bænum. Fljótlega fór vinskapurinn að vinda upp á sig og við fórum saman í sumarbústað, í tjaldferðir um verslunarmannahelgina, grill- uðum saman og héldum jólahlað- borð. Það var einstakt hvað við náðum öll vel saman. Við höfðum öll sama markmið: að hafa það gott. Þegar við erum ung finnst okkur það sjálfsagt að næstu 20, 30, 40 árin verði lífið óbreytt, við höldum áfram að hittast, ekkert kemur fyr- ir. Við teljum lífið svo sjálfsagt að erfitt er skilja af hverju þetta gerð- ist. Afhverju Sigga, sem átti fram- tíðina fyrir sér? Hún sem ætlaði að verða læknir, hún sem kenndi Ástu Margréti á stultur, sú sem vann okkur oftast í Viltu vinna milljón. Sigga sem var svo gaman að spjalla við. Sigga sem kom fram við alla sem jafningja. „Sigga var góð“ sagði Hafþór Andri, „hún ætlaði að verða læknir og hún situr alltaf í sófanum þegar formúlan er“. Við vorum góður hópur og áttum góðar stundir. Þannig verður það áfram – með Siggu í hjarta okkar. Líklega hefur Hafþór Andri rétt fyrir sér, hún mun sitja áfram með okkur í sóf- anum. Ei vitkast sá er verður aldrei hryggur, hvert visku barn á sorgar brjóstum liggur. Á sorgarhafs botni sannleiksperlan skín, þann sjóinn máttu kafa, ef hún skal verða þín. (Steingrímur Thorsteinsson.) Elsku Bjössi þú átt hug okkar allan. Þér, foreldrum Siggu og öðr- um ástvinum vottum við okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Siggu. Guðlaug og Helgi. Á fallegum vordegi fengum við þær sorgarfréttir að Sigga bekkj- arsystir okkar væri dáin. Aðdrag- andinn var enginn og því verður áfallið þeim mun þyngra og óraun- verulegra. Í janúar 1998 komum við fyrst saman í Læknagarði eftir að nið- urstöður samkeppnisprófa lágu fyrir. Eftirvæntingin var mikil þar sem við fengum loksins að sjá and- litin á bak við kennitölurnar 36 og eitt þeirra var Sigga. Það var mikil gleði og veisluhöld þessa önnina og hópurinn náði vel saman. Sigga lét sig aldrei vanta og Bjössi hennar varð strax einn af hópnum. Á þessum fimm árum sem liðin eru höfum við smám saman kynnst henni Siggu. Hún var frábær manneskja sem öllum þótti vænt um. Hógvær og rólynd við fyrstu sýn og við nánari kynni komu fleiri góðir eiginleikar í ljós. Henni tókst alltaf að vera undirbúin fyrir tíma og vel lesin fyrir próf ásamt því að stunda félagslífið af kappi og njóta lífsins með Bjössa. Það hefur verið gaman að fylgj- ast með Siggu eflast og blómstra í gegnum námið. Rannsóknarverk- efni 4. árs vakti áhuga hennar á ónæmisfræði og fyrir stuttu náði hún þeim frábæra árangri að kynna niðurstöður rannsókna sinna í New York á merku þingi í ónæm- isfræðum. Það lýsir Siggu vel að þrátt fyrir þennan framúrskarandi árangur var hún ekki að hreykja sér af afrekum sínum. Öll eigum við okkar minningar um hana Siggu og við getum verið sammála um að hún var gull af manni. Við vottum Bjössa, fjöl- skyldu Siggu og tengdafjölskyldu okkar dýpstu samúð. Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi því táradaggir falla stundum skjótt og vinir berast burt á tímans straumi og blómin fölna’ á einni hélunótt. – Því er oss best að forðast raup og reiði og rjúfa hvergi tryggð né vinarkoss, en ef við sjáum sólskinsblett í heiði, að setjast allir þar og gleðja oss. (Jónas Hallgrímsson.) Við minnumst Siggu með hlýhug og minning hennar mun lifa áfram í hugum þeirra sem hana þekktu. Hún var og er engill. Bekkjarfélagar í læknisfræði. Með þessum fátæklegu orðum viljum við vinkonurnar kveðja hana Siggu okkar með söknuði. Lífið getur verið miskunnarlaust en aldrei héldum við að svona hart gæti það orðið. Efnileg ung kona í blóma lífsins hrifin burt frá ástvin- um. En kannski vegna þess hve hún var einstök hefur verið þörf fyrir hana á betri stað. Við þökkum fyrir ástúð alla, indæl minning lifir kær, núna mátt þú höfði halla, við herrans brjóst, er hvíldin vær. Í sölum himins sólin skín, við sendum kveðju upp til þín. (H.J.) Við vottum Bjössa og öðrum að- standendum okkar innilegustu samúð. Hlín Ólafsdóttir, Sigríður Björk Halldórsdóttir. Um það bil þegar kvöldroði sól- arinnar framkallaðist á fagurbláum himninum undir kvöld, fimmtudag- inn 2. maí s.l. hringdi farsíminn og Bjössi vinur minn tilkynnir mér þá sorgarfregn að unnusta hans hafi látist þá um morguninn, orðið bráðkvödd. Hugurinn lamaðist og vanmáttugur stamaði maður og stundi fram samúð, hluttekningu og stuðning. Fyrirvaralaust er þessi ungi efnilegi maður sviptur ástinni sinni. Allt í einu er tilver- unni nánast slegið á frest í sjálf- sagðri og gleðilegri tilvist þessara ungmenna, þessa ástfangna pars, sem allt gekk svo vel hjá. Fyr- irvaralaust deyr efnileg blómarós, og er hrifsuð frá ástinni sinni, for- eldrum, tengdaforeldrum, ættingj- um og ástvinum öllum og bjartri framtíð hér í jarðvistinni sem svo sannarlega blasti við þessum efni- legu ungmennum á allan hátt. Siggu í námi sínu í læknisfræði, þar sem hún hugðist leggja stund á vísinda- og rannsóknarstörf og Bjössi sem atvinnuflugmaður. Já tilhlökkun ungmennanna var mikil. Framtíðin var þeirra, en margt fer öðru vísi en ætlað er segir mál- tækið. Nú grætur samkór ættingja og vina og syrgir látinn ástvin, vin- konu sem nú heldur til æðra til- verustigs. Við verðum bara að trúa því að það sé tilgangur með þessu, hversu erfitt sem það nú annars er á stundu sem þessari. Minningarbrot um ástfangið par og ýmsar stundir með þeim sækja á, eins og Flórídaferðin fyrir tveimur árum, nánast upp á dag, þar sem Sigga ásamt foreldrum Bjössa, þeim Ásbirni og Kristínu, fóru til að heimsækja kappann þar sem hann dvaldi við flugþjálfun í Flórída og ég ásamt syni mínum sem vorum í afmælisferð. Á sjálfan afmælisdaginn minn heiðraði þetta ágæta fólk mig með því að bjóða okkur feðgum í ógleymanlegt út- sýnisflug yfir Flórída. Um kvöldið var svo slegið upp veislu á veit- ingahúsi. Fyrir mig og okkur feðga var þetta vinarvottur sem gleymist aldrei. Sigga átti sinn þátt í að gera daginn ógleymanlegan með nærveru sinni og léttleika. Ekki get ég sagt að ég hafi þekkt Siggu svo mjög, en í hvert sinn sem ég hitti þau Siggu og Bjössa var alltaf svo bjart yfir þeim. Stutt í brosið og jafnan var á ferð hresst og afslappað par sem heillaði mann alltaf upp úr skónum með yfirvegaðri og vandaðri fram- komu. Það er enn bjart yfir þeim báðum það fullyrði ég; Bjössa í jarðvistinni og Siggu þar sem hún er nú í nýjum heimkynnum eilífð- arinnar. Sagt er að tíminn lækni öll sár og þó það sé kannski ekki alls- kostar rétt er það staðreynd að eft- ir því sem frá líður mildast sárið á sálinni og það lærist að lifa með því. Það mun alltaf stafa ljómi og birta af ykkur báðum, hvoru á sínu stigi tilverunnar Við Bjössa segi ég á þessari erfiðu stundu: Þú munt tvíeflast við þessa ótímabæru lífs- reynslu og éghvet þig til að horfa björtum augum til framtíðarinnar, jafnvel þó sárt sé um stund. Þín bíður björt framtíð og þegar þok- unni léttir muntu sjá ljósið í lífinu sjálfu og munt lifa með ánægju- legar og dýrmætar minningar um elskulega unnustu og vinkonu. Mínar innilegustu samúðarkveðj- ur til þín Bjössi minn, foreldra Siggu, tengdó, þau Ása og Krist- ínu, Guðna og Kristbjargar sem og til allra annarra ættingja og vina. Guð blessi minningu Sigríðar Reynisdóttur. Rúnar Sig. Birgisson. Þó við séum ekki gamlar þá er vinskapur okkar Siggu níu ára gamall. Ég kynntist Siggu high í fyrsta bekk í menntó. Báðar vorum við metnaðargjarnar og námsfúsar og til að vinskapurinn héldist gerð- um við sáttmála um að láta ein- kunnirnar aldrei koma upp á milli okkar. Óteljanlegar eru stundirnar sem við hlustuðum á Led Zeppelin í Ladamobil, þetta var eina spólan í bílnum og ég hef ekki ennþá fengið leið á henni. Eftir menntaskólann skildu leið- ir okkar að hluta en þó gafst iðu- lega tími fyrir útilegur, partý, sum- arbústaðaferðir og spilakvöld, sem var seinast fyrir tveimur vikum. Sigga er ein af þeim fáu sem ég hef alla tíð haft tröllatrú á og eng- ar áhyggjur af, henni tókst yfirleitt það sem hún ætlaði sér. Takk fyrir samveruna, Sigga mín. Emelía. Við fáum ekki skilið hvers vegna þú fékkst ekki lengri tíma með okkur. Allir sem þekkja þig sáu að þér gekk allt í haginn. Þú varst hamingjusöm, námsfús og glöð. Við trúðum að þín biði áframhaldandi skemmtilegt og krefjandi líf. Fleiri áfangar til að sigrast á. Lífið virtist brosa við þér og þínu fólki. Fyr- irvaralaust varst þú tekin frá okk- ur öllum. Hver tilgangurinn með fráfalli þínu er er erfitt að sjá og skilja. Eflaust bíða þín verðug verkefni á öðrum stað. Ef svo er munt þú leysa þau jafnvel af hendi og öll þau verk sem þú tókst á hendur í lifandi lífi. Sigga mín, hvers vegna? Við vit- um að þú getur ekki svarað því frekar en aðrir. Sumt fáum við ekki skilið. Í bænum okkar munum við biðja um styrk handa foreldr- um þínum, unnusta og öðrum ást- vinum. Þú átt góða að þar sem þú ert nú. Við vitum að vel var á móti þér tekið. Í því er huggun. Guð styrki okkur öll. Þínar frænkur. Kristborg, Eva Björk og Hildur Sif. SIGRÍÐUR REYNISDÓTTIR                                      !     " # $%      "           !  " #      $         # %

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.