Morgunblaðið - 10.05.2002, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 47
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Þjónar í sal
Starfsfólk óskast í kvöld- og helgarvinnu
á veitingahúsið Pasta Basta
Upplýsingar veittar á staðnum mánudaginn
13. og þriðjudaginn 14. maí milli kl. 14 og 16.
Frá Höfðaskóla á Skagaströnd
Laus staða skólastjóra
Vegna námsleyfis er staða skólastjóra
laus skólaárið 2002—2003
Höfðaskóli er einsetinn grunnskóli. Nemendur
er 115. Skólinn er vel búinn til kennslu, með
skólabókasafn, tölvuver og gott íþróttahús.
Vinnuaðstaða kennara er góð.
Skagaströnd er kauptún með 620 íbúum. Þar
er góður leikskóli, heilsugæsla og öll almenn
þjónusta.
Umsóknarfrestur er til 24. maí nk. Umsóknir
sendist til sveitarstjóra Höfðahrepps, 545
Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veita Ingibergur Guð-
mundsson, skólastjóri, vs. 452 2800, hs.
452 2824, Gylfi Guðjónsson, form. skólanefnd-
ar, vs. 455 2003, hs. 452 2861 og Magnús B.
Jónsson, sveitarstjóri, vs. 452 2707, hs.
452 2792.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILKYNNINGAR
Auglýsing um aðalskipu-
lag Ásahrepps 2002-2014
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með
lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðal-
skipulagi Ásahrepps er tekur til alls sveitar-
félagsins; dreifbýlis og Holtamannaafréttar.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Ásahrepps að Laugalandi
í Holtum frá 10. maí 2002 til 7. júní 2002.
Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila til Ásahrepps eigi
síðar en 21. júní 2002 og skulu þær vera skrif-
legar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Oddviti Ásahrepps,
Jónas Jónsson.
Auglýsing
um aðalskipulag Holta- og
Landsveitar 2002-2014
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með
lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðal-
skipulagi Holta- og Landsveitar er tekur til alls
sveitarfélagsins; þéttbýlis að Laugalandi, dreif-
býlis og Landmannaafréttar.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Holta- og Landsveitar að
Laugalandi í Holtum frá 10. maí 2002 til 7. júní
2002. Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila til Holta- og Landsveit-
ar ekki síðar en 21. júní 2002 og skulu þær vera
skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir inn-
an tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Holta- og Landsveitar,
Valtýr Valtýsson.
Auglýsing
um aðalskipulag Rangár-
vallahrepps 2002-2014
Samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 með síðari breytingum er hér með
lýst eftir athugasemdum við tillögu að aðal-
skipulagi Rangárvallahrepps er tekur til alls
sveitarfélagsins; þéttbýlis á Hellu og Gunnars-
nolti, dreifbýlis og Rangárvallaafréttar.
Skipulagsuppdrættir og greinargerð verða til
sýnis á skrifstofu Rangárvallahrepps í Laufskál-
um 2, 850 Hellu, frá 10. maí 2002 til 7. júní 2002.
Ennfremur er tillagan til sýnis hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Athugasemdum skal skila til Rangárvalla-
hrepps ekki síðar en 21. júní 2002 og skulu þær
vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athuga-
semdir innan tilskilins frests teljast samþykkir
tillögunni.
Sveitarstjóri Rangárvallahrepps,
Guðmundur Ingi Gunnlaugsson.
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér
með auglýstar til kynningar tillögur að deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík:
Amtmannsstígur, Lækjargata, Bankastræti, Þingholtsstræti (Skólastræti), deili-
skipulag.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Amtmannsstíg til suðurs, Lækjargötu til vesturs, Bankastræti
til norðurs og Þingholtsstræti til austurs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið tillögunnar er m.a. að stuðla að
uppbyggingu og vernd miðborgarsvæðisins, gefa skipulagssvæðinu heildstætt yfirbragð, ákveða
nýtingu þess til framtíðar og tryggja betri nýtingu lóða.
Tillagan gerir m.a. ráð að öll hús reitunum standi áfram að undanskildum nokkrum bakhúsum.
Verndun húsa er í samræmi við tillögur í þemahefti með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016, um
húsvernd og húsakönnun Árbæjarsafns. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja bakbyggingar á
einni hæð á lóðum næst Bankastræti. Heimilt verði að hækka húsið nr. 4 við Bankastræti um 1-2
hæðir og ris og setja risþak á hluta hússins nr. 6 við Bankastræti. Bakbygging á lóðinni nr. 6 við
Þingholtsstræti lækki um eina hæð og heimilt verði að byggja viðbyggingu austan við hús nr. 5b við
Skólastræti. Leyfilegt byggingarmagn á reitnum vex um rúmlega 1000 m2 skv. tillögunni.
Amtmannsstígur, Þingholtsstræti, Bankastræti, Ingólfsstræti, deiliskipulag
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Amtmannsstíg til suðurs, Þingholtsstræti til vesturs, Banka-
stræti til norðurs og Ingólfsstræti til austurs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Markmið tillögunnar er m.a. að stuðla að
uppbyggingu og vernd miðborgarsvæðisins, gefa skipulagssvæðinu heildstætt yfirbragð, ákveða
nýtingu þess til framtíðar og tryggja betri nýtingu lóða. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að öll hús reitsins
standi áfram. Þó er gert ráð fyrir niðurrifi nokkura skúra sem skilyrði fyrir uppbyggingu. Á reitnum
verður almennt heimilt að byggja bakbyggingar á einni hæð með flötu þaki. Þá gerir tillagan ráð fyrir
að hækkun Bankastrætis 8 um eina hæð og ris. Heimilt verði og að byggja bílskúr norðan við húsið
nr. 10 við Ingólfsstræti. Ekki verði byggt á lóðinni nr. 9 við Þingholtsstræti (hornlóðin við
Amtmannsstíg). Leyfilegt byggingarmagn á reitnum vex um 1200 m2 skv. tillögunni.
Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10.00 – 16.00 frá 10. maí 2002 - til 21. júní 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir
til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til
skipulagsfulltrúa eigi síðar en 21. júní 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 10. maí 2002.
Skipulagsfulltrúi
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ