Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 53 DAGBÓK Hlutavelta STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þú ert byltingarmaður og leggur þitt af mörkum til samfélagsins. Síðari hluti ársins á eftir að reynast þér farsæll. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Gættu þess vel, sem þú vilt ekki að aðrir komist yfir. Annars áttu á hættu að allt verði eyðilagt fyrir þér og þínum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það kann yfirleitt ekki góðri lukku að stýra að leggja af stað í leiðangur án áttavita. Það sama á við á öðrum sviðum lífsins. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ættir að undirbúa málin vandlega því þá getur þú óttalaus ýtt þeim úr vör og stýrt til sigurs. Vertu ekki of óþolinmóður. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Hættu að láta þér leiðast allir skapaðir hlutir. Hristu af þér slenið. Það þarf engin ósköp til þess að gera þær breytingar sem eru nauð- synlegar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er hollt að vera jafnan við öllu búinn og geta þá notið velgengni og tekist hraustlega á við mótlætið þegar það kemur upp. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þótt þér hafi ekki tekist að segja allt sem þú vildir sagt hafa á síðasta fundi mælir ekkert á móti því að þú takir upp þráðinn aftur. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Í nýjum hugmyndum felast oft gömul sannindi. Taktu því engu sem sjálfsögðum hlut heldur gaumgæfðu mál- in frá öllum hliðum áður. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það kann ekki góðri lukku að stýra að láta fjármálin reka á reiðanum. Taktu þér tak sem fyrst og komdu lagi á hlutina. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Einhverjar breytingar standa fyrir dyrum sem gefa þér tækifæri til að sýna hvers þú ert megnugur. Vertu tilbúinn að fórna ein- hverju fyrir það. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert útsjónarsamur og það skaltu nýta þér á öllum sviðum. Sýndu sveigjanleika í samskiptum þínum við aðra því það ber bestan ár- angur. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þér finnst engu líkara en einhver sé að reyna að reita þig til reiði. Láttu það ekki ganga eftir heldur haltu ró þinni og þá fer allt vel. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Mundu að öll sambönd byggjast á því að báðir að- ilar leggi sitt af mörkum. Sýndu því tillitssemi og virtu tilfinningar annarra. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Þessir duglegu drengir, Helgi Andrésson (til vinstri) og Stefán Darri Þórssosn (til hægri), söfnuðu kr. 1.673 til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þessi duglegi strákur, Axel Máni Gíslason í Borgar- firði, safnaði dósum að andvirði 4.000 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. 1. f4 c5 2. b3 Rf6 3. Bb2 g6 4. e4 Bg7 5. Bc4 d6 6. e5 dxe5 7. fxe5 Rd5 8. Df3 e6 9. Dg3 Rc6 10. Rf3 a6 11. Rc3 b5 12. Bd3 Rcb4 13. Re4 0–0 14. Rxc5 Dc7 15. Df2 Rxd3+ 16. cxd3 a5 17. 0–0 b4 18. Hac1 Dd8 19. Dg3 h6 20. Rd4 Db6 21. Kh1 Rc3 Heinrik Danielsen (2.520) þykir ein- staklega skemmti- legt að koma til Ís- lands og tefla. Hann starfar á geð- sjúkrahúsi í heima- landi sínu og nýtir hvert frí til að koma til sögueyjunnar góðu í norðri. Í stöðunni hafði hann hvítt gegn Helga Ólafssyni (2.474) á Reykjavíkurskák- mótinu. 22. Rcxe6! Bxe6 23. dxc3 bxc3 24. Bxc3 a4 25. Hb1 axb3 26. axb3 Hfc8 27. Rxe6 Dxe6 28. d4 Ha3 29. Bb4 Ha2 30. Hf2 Hxf2 31. Dxf2 Dd5 32. Bd6 Hc3 33. b4 h5 34. b5 Hb3 35. Hxb3 Dxb3 36. Df1 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. LJÓÐABROT GRÁTITTLINGURINN Ungur var ég, og ungir austan um land á hausti laufvindar blésu ljúfir, lék ég mér þá að stráum. En hretið kom að hvetja harða menn í bylsennu. Þá sat ég ennþá inni alldapur á kvenpalli. Nú var trippið hún Toppa, tetur á annan vetur, fegursta hross í haga, og hrúturinn minn úti. - - - Jónas Hallgrímsson BRÆÐURNIR Oddur og Hrólfur Hjaltasynir unnu aðaltvímenningskeppni Bridsfélags Reykjavíkur sem lauk á þriðjudagskvöld- ið. Keppnin stóð yfir í fimm kvöld með þátttöku 40 para. Bræðurnir náðu snemma forystu í mótinu, en misstu hana undir lokin í hendur Matthíasar Þorvaldssonar og Þorláks Jónssonar. Raunar leit út fyrir öruggan sigur Þorláks og Matthíasar á tímabili, en þeir fengu stóran skell í næst síðustu umferð og þá voru efstu tvö pörin nánast jöfn að stigum. Síðasta spil mótsins var dramatískt: Vestur gefur; AV á hættu. Norður ♠ DG3 ♥ 853 ♦ K953 ♣963 Vestur Austur ♠ 972 ♠ 6 ♥ D72 ♥ KG10964 ♦ 1087 ♦ G4 ♣K1052 ♣DG84 Suður ♠ ÁK10854 ♥ Á ♦ ÁD62 ♣Á7 Suður á fallega hönd og það standa sex spaðar og sjö tíglar í NS. Báðar slemm- urnar byggjast á þeirri sömu forsendu að tígullinn komi í hús og því eru sjö tígl- ar yfirburðasamningur. En í reynd náðu örfá pör hálf- slemmunni spaða og aðeins eitt par sagði sjö tígla – það voru Runólfur Jónsson og Kristinn Þórisson og mót- herjar þeirra voru engir aðr- ir en Þorlákur og Matthías: Vestur Norður Austur Suður Þorlákur Runólfur Matthías Kristinn – – 3 hjörtu 4 hjörtu * Pass 4 spaðar Pass 5 spaðar Pass 6 tíglar Pass 7 tíglar Pass Pass Pass Kristinn á enga góða sögn við þremur hjörtum og valdi að sýna tvo liti með fjórum hjörtum. Þetta er Michaels innákoma, sem oftast gefur til kynna 5-5 skiptingu. Og sú staðreynd skýrir sex tígla sögn Runólfs við fimm spöð- um, en hann ákvað að taka slemmuboði makkers og leita í leiðinni að hinum lit- um. Og þá hlaut Kristinn að lyfta í sjö. Þorlákur og Matthías fengu tært núll fyrir spilið, en það hefði ekki dugað þeim til sigurs í mótinu að verjast í sex spöðum. Þeir hefðu hins vegar unnið ef Runólfur og Kristinn hefðu stansað í geimi. Svona eiga mót að vera – ráðast á síðasta spilinu. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Með morgunkaffinu Ég þoldi ekki leng- ur hvað hann sóð- aði allt út. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík K læ ja r þ ig í tærnar? Gætu það verið fótsveppir? Lamisil krem 15 g og úðalausn 15 ml Ráðgjöf og kynningar í eftirtöldum apótekum kl. 14–18 dagana: Nesapóteki 10. maí Grafarvogsapóteki 13. maí Borgarapóteki 14. maí Árbæjarapóteki 15. maí Apóteki Keflavíkur 16. maí 15% afsláttur 10. – 16. maí í öllum Plús apótekum 15% afsláttur 10. – 16. maí Skipst á sko›unum fiórdís Pétursdóttir Sími: 515-1700, netfang: disa@xd.is Björg fiór›ardóttir Sími: 515-1700, netfang: bjorgth@xd.is Ef flú vilt frambjó›anda/frambjó›endur Sjálfstæ›isflokksins á fund e›a í heimsókn haf›u flá samband vi› skrifstofu Sjálfstæ›isflokksins í síma 515-1700. Nánari uppl‡singar gefa:

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.