Morgunblaðið - 10.05.2002, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skilorðseftirlitsmaðurinn
(The Parole Officer)
Gamanmynd
Bretland 2001. Sam-myndbönd. (93
mín.) Öllum leyfð. Leikstjórn John Duig-
an. Aðalhlutverk Steve Coogan, Emma
Headey.
ÞÓTT NAFNIÐ Steve Coogan sé
svo til óþekkt utan Bretlands þá er
málið hreinlega ekkert flóknara en
það að þar fer fyndnasti Tjallinn af
þeim öllum – og það með allnokkrum
yfirburðum. Hann byrjaði feril sinn
sem einn af þeim sem ljáðu gúmmí-
brúðunum í Spitting Image rödd
sína og þaðan fór
hann út í að leika í
óborganlegum
gamanþáttum á
borð við The Day
Today og kannski
allra helst Knowing
Me, Knowing You
þar sem hann lék
sína frægustu per-
sónu, þáttastjórn-
andann misheppnaða Alan Part-
ridge. Síðan þá hefur hann skapað
fleiri kostulega karaktera eins og
rómanska stórsöngvarann og hjarta-
knúsarann Tony Ferrino sem söng
einmitt hinn eldheita ástardúett á
móti Björk, „Short Term Affair“,
hreint drepfyndið lag. Ástæður fyrir
því að þessi grínsnillingur er samt
ekki þekktari utan Bretlands en
raun ber vitni eru trúlega tvær, grín-
ið í þáttum hans er svo afgerandi
breskt að það höfðar vart til þeirra
sem ekki fylgjast með bresku sam-
félagi að staðaldri, og The Parole
Officer er einungis þriðja myndin
sem hann leikur í og í raun fyrsta al-
vöru aðalhlutverk hans því í hinu að-
alhlutverkinu var hann nær óþekkj-
anlegur í hlutverki moldvörpunnar.
Og vegna þessara ótvíræðu hæfileika
hans verður ekki annað sagt en að
þetta fyrsta stóra tækifæri hans til
að sýna heimsbyggðinni hvað hann
kann fari forgörðum – ekki vegna
þess að hann klikkar í gríninu heldur
vegna ófyndins handrits (sem hann
reyndar á hluta í). Sagan er bara full-
slöpp og leikstjórn Duigans alltof ög-
uð fyrir svona gamanmynd en bestu
og langfyndnustu augnablikin eru
einmitt þegar Coogan tekst að losa
sig úr viðjum handrits og leikstjórn-
ar og lætur móðan mása, gefur lík-
amanum lausan tauminn og gerir
það sem hann gerir best, fíflast. Þá
er hann ekkert minna en Peter Sell-
ers endurborinn. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Nýi
Sellers?
2
Hljómsveit
Rúnars Júl
Fjölbreyttur tilboðsmatseðill
fyrir leikhúsgesti.
Nauðsynlegt er að panta
í tíma borð í síma 568-0878
leikur fyrir dansi föstudags
og laugardagskvöld
D a n s l e i k i r u m h e l g i n a
KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Su 12. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 18. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Mi 22. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Í kvöld kl 20 - NOKKUR SÆTI
Su 26. maí kl 20 - LAUS SÆTI
Tilboð í maí kr. 1.800
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Lau 11. maí kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 25. maí kl 20 - AUKASÝNING
ATH: Síðasta sýning
SALKA VALKA á Listahátíð í Reykjavík
Nýtt dansverk eftir Auði Bjarnadóttur
við tónlist Úlfars Inga Haraldssonar
Frumsýning lau 11. maí - kl 16.00 ÖRFÁ SÆTI
2. sýn fi 16. maí kl 20.00
3. sýn fö 17. maí kl 20.00
Ath: Aðeins þessar þrjár sýningar
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Í kvöld kl 20 - NOKKUR SÆTI
Su 12. maí kl 20 - LAUS SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Lau 25. maí kl 20 - AUKASÝNING
ATH: síðasta sinn
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 12. maí kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
Lau 18. maí kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
SUMARGESTIR e. Maxim Gorki
Nemendaleikhús Listaháskólans og LR
Lau 11. maí kl 20
Fi 16. maí kl 20
Fö 17. maí kl 20
Ath: Takmarkaður sýningafjöldi
JÓN GNARR
Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Ath. afsláttur með Eurocard
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Í kvöld kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 11 maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Ath. Sýningum lýkur í maí
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
3. hæðin
!
"#
$$!
!
%
!
&&$
$'((!
Vegna fjölda áskorana:
Aukas. fös. 10. maí kl. 20. örfá sæti
!
"
Í HLAÐVARPANUM
Ég býð þér dús,
mín elskulega þjóð
Dagskrá í tilefni 100 ára fæðingar-
afmælis Halldórs Laxness
Laugardaginn 11. maí kl. 21.00
Laugardaginn 18. maí kl. 21.00
"...Kallaði fram tár í augnkróka...Óhætt
er að hvetja menn til að missa ekki af
þessari skemmtun." SAB, Mbl.
Fugl dagsins
Valgeir Guðjónsson og Jón Ólafsson
miðvikudag 15. maí kl. 21
!""#$%&%
!#%'#(
)*+++!,
!
!
"
#
$
%
&
'#!'
Bossakremið
frá Weleda – þú færð ekkert betra
Fæst í: Þumalínu, Heilsuhúsinu,
Lyfju, Lyf og heilsu og Apótekinu